Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 23

Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 23 Ímarsbyrjun verða tímamót íverðlagsmálum matvöru á Ís-landi og reyndar snertabreytingarnar einnig fleiri vörur og þjónustu. Virð- isaukaskattur verður lækkaður niður í 7%, í flestum atvikum úr 14% en í nokkrum til- fellum úr 24,5%. Auk þess verða vörugjöld lækkuð og 40% lækk- un tolla verður á ýms- um kjötvörum, sam- hliða samningum við Evrópusambandið um útflutning búvöru þangað. Þessar breytingar styðjast ann- ars vegar við sterka stöðu rík- issjóðs og hins vegar við þá stað- reynd að nú hefur hagsveiflan snúist þannig frá fyrri þenslu að ráðandi rök benda til þess að lækk- anir þessar muni skila sér til al- mennra neytenda í landinu. Hér er um mjög verulega kjara- bót að ræða, sem nýtist öllum og ekki síst þeim sem minnst hafa á milli handanna. Þessi kjarabót nú bætist við aðrar skattalækkanir, hækkun skattleys- ismarka og þær miklu umbætur sem eru orðnar nýlega og verða áfram í mál- efnum aldraðra, ör- yrkja og lífeyrisþega, með víðtækum að- gerðum ríkisstjórn- arinnar upp á síðkast- ið. Algengasta verð- breyting 1. mars er um 7% lækkun. En þegar tillit er tekið til annarra lækkana í þessum aðgerðum má reikna heild- aráhrifin 9–12% verðlækkun og um 2,6% lækkun í vísitölu neysluverðs. Auk matvöru lækkar virð- isaukaskattur af rafmagni til hús- hitunar, af gistiþjónustu, af bókum, ritföngum og tímaritum og af hljómdiskum. Auk þessa hafa framleiðendur mjólkurafurða boðað verðstöðvun um skeið. Kemur þetta til viðbótar við aukinn innflutning kjötvöru sem áður er getið. Bændur hafa sýnt mikilsvert fordæmi og taka á sig byrðar og skuldbindingar við þess- ar miklu kjarabætur. Ýmsir hafa látið í ljós efasemdir um að milliliðir og verslunin muni hirða mest af þessu. En slíkt kemur ekki til mála, þar sem um skatta- lækkanir er að ræða. Skattar eru alveg sér gagnvart verðmyndun vörunnar og ótengdir öðrum verð- breytingatilefnum og aðilar geta á engan hátt laumað einhverjum öðr- um hækkunum inn á móti skatta- breytingum. En mikilvægt er að allur almenningur fylgist mjög vel með framvindu mála. Skattalækkun og matvöruverð Jón Sigurðsson fjallar um mat- vöruverð og skattamál » Ýmsir hafa látið íljós efasemdir um að milliliðir og versl- unin muni hirða mest af þessu. En slíkt kemur ekki til mála þar sem um skattalækkanir er að ræða. Jón Sigurðsson Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. Með nýju frumvarpi umnámsgögn er brotiðblað í sögu námsefn-isgerðar á Íslandi. Markmið frumvarpsins er að draga úr mið- stýringu og auka fjöl- breytni og framboð við gerð námsgagna. Þetta veitir skólum og kenn- urum aukið sjálfstæði við val á námsgögnum. Möguleikar bókaútgef- enda til að taka þátt í námsgagnagerð fyrir grunnskólann aukast án þess að dregið sé úr styrk Námsgagna- stofnunar. Samhliða þessu er stórauknum fjármunum varið til námsgagnagerðar en á fjárlögum ársins 2007 eru framlög vegna námsgagna aukin um 100 milljónir króna. Það er sannfæring mín að með því að gefa fleiri aðilum kost á að koma að gerð námsgagna muni framboð námsgagna verða fjöl- breyttara og gæði þeirra aukast, skólastarfi í landinu til heilla. Í frumvarpinu er lagt til að námsgagnagerð fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla byggist á þrem- ur stoðum. Í fyrsta lagi verði stofnaður námsgagnasjóður. Sjóðurinn fái fjárveitingu á fjárlögum, sem sé skipt milli allra grunnskóla á land- inu í samræmi við nemendafjölda og stærð. Skólarnir ráði því sjálfir hvernig þessum fjármunum sé var- ið. Fá þeir þannig tækifæri til að kaupa námsgögn, sem aðrir en Námsgagnastofnun hafa á boð- stólum. Í öðru lagi verði stofnaður þró- unarsjóður námsgagna, sem ætlað er að styðja við nýsköpun og þróun í samningu og útgáfu námsefnis fyrir öll skólastigin; leik-, grunn- og framhaldsskóla. Með því að stofna einn sjóð er leitast við að tryggja betri yfirsýn og nýtingu fjármuna, sem varið er til þróunar og nýsköpunar í gerð námsgagna. Jafnframt auðveldar það meiri samfellu og sveigjanleika milli skólastiga, stuðlar að fjölbreytni í skólastarfi og kemur betur til móts við þarfir ólíkra nemenda og eflir einstaklingsmiðað nám. Í þriðja lagi er lagt til að starf- semi Námsgagnastofnunar haldist óbreytt. Stofnuninni hefur á und- anförnum árum tekist vel að mæta námsefnisþörf grunnskólanna með tilliti til þeirra fjármuna sem hún hefur haft til ráðstöfunar. Ekki þykir skynsamlegt að draga úr efnum stofnunarinnar til að sjá grunnskólunum fyrir námsgögnum, en með því að leggja fé í nýjan náms- gagnasjóð til ráð- stöfunar samkvæmt óskum og ákvörð- unum einstakra skóla, til viðbótar því fé sem veitt er til stofnunarinnar er styrkari stoðum rennt undir þennan mikilvæga þátt skólastarfsins. Fjölbreytni, val og gæði náms- efnis Frumvarpið gerir þannig ráð fyrir, að skapaður sé nýr rammi um námsefnisgerð á grunn- skólastigi um leið og bætt verður við framlög til þróunar og nýsköp- unar í námsefnisgerð. Dregið verð- ur úr miðstýringu í framleiðslu námsefnis og kennurum þannig gefið færi á að velja í auknum mæli hvaða námsgögn þeir nota í starfi sínu. Stuðlað verður að fjöl- breytni og gæðum námsefnis, bæði varðandi inntak og útlit á grund- velli markmiða sem sett eru í aðal- námskrá. Frumvarpinu er ætlað að koma m.a. til móts við þau viðhorf sem er að finna hjá kennurum, skóla- stjórum og bókaútgefendum og koma fram í niðurstöðum könn- unar, sem gerð var 2005 í tengslum við endurskoðun laga um Námsgagnastofnun. Kennarar telja þörf á endurbótum á núver- andi framboði námsefnis og auknu framboði nýs efnis. Einnig kemur fram að stór hluti kennara útbýr eigið námsefni, notar námsefni frá öðrum kennurum, ljósritar upp úr bókum og leitar í síauknum mæli eftir námsefni á Netinu. Almenn tölvunotkun í skólastarfi hefur gert kennurum kleift að auka notkun stafræns námsefnis til muna. Í könnuninni voru útgefendur spurðir hvort þeir væru tilbúnir til að gefa út námsefni fyrir grunn- skólann, en margir þeirra gefa þegar út námsefni fyrir framhalds- skólann. Útgefendur telja að opn- un markaðar fyrir námsgögn fyrir grunnskólann gefi þeim tækifæri til að taka þátt í samkeppninni sem hvetji útgáfurnar til að byggja upp þjónustuna og dýpka sérþekk- ingu á námsefni fyrir þetta skóla- stig. Það fyrirkomulag, sem nú er á námsgagnaútgáfu hefur verið nær óbreytt frá 1980. Á þessu tæplega þrjátíu ára tímabili hafa orðið stór- felldar breytingar á skólastarfi m.a. hefur mjög verið dregið úr miðstýringu. Minna má á flutning grunnskólans til sveitarfélaganna samkvæmt lögum 1995. Mótun sjálfstæðrar skólastefnu Ný námskrá var gefin út 1999 þar sem búið var í haginn fyrir þær breytingar sem orðið hafa á skipulagi skólastarfs þar á meðal aukið sjálfstæði skóla til að móta eigin skólastefnu, einstaklingsmið- aðrar kennslu, aukinnar al- þjóðavæðingar og aðlögunar að fjölmenningarlegu samfélagi. Þessi þróun er í takt við þróunina í skólamálum í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Í ljósi þeirra breytinga og þró- unar sem orðið hefur í skólastarfi er nauðsynlegt að renna styrkari stoðum undir framleiðslu, þróun og dreifingu námsgagna í skóla- kerfinu. Frumvarpið um námsgögn þjónar þessum tilgangi. Þar á að tryggja aukna fjölbreytni og fram- boð námsgagna um leið og sjálf- stæði skóla er aukið á þessu sviði. Með þessu er ekki síst verið að veita kennurum í skólum landsins tækifæri til að velja þau námsgögn er þeir telja best henta hverju sinni. Fyrir börnin okkar þýða breytingarnar enn betri náms- gögn. Dregið úr miðstýringu og sjálfstæði skóla aukið Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur »… með því að gefafleiri aðilum kost á að koma að gerð náms- gagna muni framboð námsgagna verða fjöl- breyttara og gæði þeirra aukast … Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er menntamálaráðherra. nd- inir eða ð fyrst og greiða aðar. nds, astráðinn rstarfs- ta- ár tveir ð báta- vinnu- síðast nu. ssa safns ur starf- kru meta í rgs konar ngum efur er hæst 2004, iði iðn- asafnið þá afn Evr- ns hafa einana sé m er trúa fnur þar kynningu á safninu og ævintýralegri síld- arsögu Íslendinga. Ennfremur má nefna að auk hins hefðbundna safnstarfs hefur Síld- arminjasafnið virkað sem miðstöð menningarlífs á staðnum þar sem margs konar samkomur, tónleikar og listsýningar eru haldnar. Í ljósi þessa alls sem upp er talið hlýtur það að vera hálfhjákátlegt að viðurkenna þá staðreynd að einn fastráðinn starfsmaður gerir varla meira en að halda í horfinu og sinna því allra brýnasta frá degi til dags (svo ekki reki á reiðanum!). Og nú mætti varpa fram þeirri stóru spurningu hver gæti verið rekstrarleg staða Síldarminjasafns Íslands væri það staðsett í Reykja- vík eða Hafnarfirði? Svari hver fyrir sig! Sótt á ný mið Ef við ímyndum okkur að „Sjó- minjasafn Íslands í Hafnarfirði“ hefði orðið að veruleika þá sjáum við fyrir okkur mikið fyrirtæki í mörgum sýningarhúsum og fjölda starfsmanna búin góð vinnuaðstaða við margvíslegustu viðfangsefni s.s. söfnun, varðveislu, sýningar og rannsóknir. Eðli slíkra stofnana er að þróa öflugt innra starf sem birtist al- menningi í síbreytilegum glæsi- legum sýningum og útgáfu margs konar fræðsluefnis. Og þannig er það í stóru söfnunum í Reykjavík, starfsemi þeirra er til mikils sóma í samræmi við öflugan stuðning ríkis og borgar. Stöðugildi í Listasafni Reykjavíkur eru 23,5, í Þjóðminja- safninu nálægt 40 og Listasafni Ís- lands 18,5. Að auki styrkir ríkið önnur minni listasöfn í borginni ríkulega. Til samanburðar skulum við telja saman störfin sem tengjast sjóm- injavörslunni í landinu. Á 9 söfnum sem standa að Sambandi íslenskra sjóminjasafna má reikna samtals um 7,5 stöðugildi sem snúa beint að sjó- eða strandminjum. Hvað er hægt að segja um þenn- an samanburð? Er það eitthvert lögmál að nauðsynleg og góð verk verði ekki unnin nema á höfuðborg- arsvæðinu? Eða skyldi saga sjó- sóknar Íslendinga t.d. vera eitthvað ómerkilegri en saga íslenskrar myndlistar? Fullyrða má að þrátt fyrir góða viðleitni í uppbyggingu einstakra sjóminjasafna hafi þessi tegund minjavörslu orðið hornreka í öllu almennu skipulagi safnamála. Þar hefur heimasaumuðum seglum ver- ið hagað eftir vindi hverju sinni en stefnan til glæsisiglingar ekki tekin af hinu opinbera. Þar ættu Alþingi, hagsmunasamtök sjávarútvegsins ásamt Þjóðminjasafninu að hafa frumkvæðið og horfa til nýrrar stöðu mála. Það hefur að vísu ekki skort skilninginn á stundum. Bæði ráðamenn og hinn venjulegi hvers- dagsmaður hafa t.d syrgt þau gömlu og sögulegu skip okkar sem nú eru horfin og jafnframt að sam- bærilegur stórhugur skyldi ekki hafa verið sýndur þessari grein og frændur okkar í nálægum löndum hafa gert. Fyrir hönd Sambands íslenskra sjóminjasafna vill undirritaður hvetja alla til að endurskoða stöðu sjóminjavörslunnar í því skyni að auka veg hennar eins og samboðið er hinni miklu fiskveiði- og sigl- ingaþjóð. Og fyrir hönd Síldarminjasafns- ins vil ég lýsa því yfir að á Siglufirði er starfsvettvangurinn tilbúinn fyr- ir þróttmikil fræði- og skipulags- störf í þágu menningararfsins. slands – öflugur a verstöð? ert uðsyn- erði á höf- ? Eða knar ra gri en mynd- Höfundur er safnstjóri Síld- arminjasafnsins og formaður Sam- bands íslenskra sjóminjasafna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.