Morgunblaðið - 05.02.2007, Síða 31
og hlýjan, sem einkenndu hana sem
manneskju, sem koma fyrst í hug-
ann.
Það var ánægjulegt fyrir mig að fá
Runólf í smá spjall á mína skrifstofu
í lok hvers vinnudags þegar hann
kom að sækja konu sína á leið heim
úr vinnu og eru þessar stundir mér
sérstaklega minnisstæðar.
Við Arndís nutum alla tíð einlægr-
ar vináttu Hildar og Runólfs, vináttu
sem við mátum mikils. Einn sólríkan
sunnudag á liðnu sumri, eftir tón-
leika í Skálholti, komu þau hjón í
heimsókn til okkar í sumarbústaðinn
í Biskupstungum og eigum við nú
dýrmæta minningu frá þeirri heim-
sókn.
Við vottum Runólfi og fjölskyldu
hans okkar innilegustu samúð.
Blessuð sé minning Hildar Hall-
dórsdóttur.
Fjölnir.
Látin er bekkjarsystir mín, Hild-
ur Halldórsdóttir en við vorum sam-
stúdentar 1948. Þessi hópur dreifð-
ist eins og verða vill og áratugir þess
sem kallað er hversdagur liðu án ná-
ins sambands. Svo kom að því að
Runólfur Þórðarson, eiginmaður
Hildar kom til liðs við stjórnendur
Kammermúsíkklúbbsins og endur-
nýjuðust þá kynni okkar Hildar og
ég er þakklátur fyrir að við hjónin
urðum einlægir vinir hennnar og
Runólfs.
Hildur var ákafleg hlý kona, ein-
læg og glaðlynd, nokkuð dul en hafði
góða kímnigáfu sem hún deildi með
okkur, aldrei þó háum rómi.
Hún var virk í Kammermúsík-
klúbbnum og sakna stjórnendur
hans og makar góðs vinar.
Hinn mikli óvinur, krabbinn, réðst
að henni og var þeirra stríð langt, en
lítið bar á því hjá Hildi. Fram að síð-
ustu sjúkralegu var kunningjum það
ekki ljóst að komið var að lokum lífs
hennar. Hún sótti tónleika fram á
síðustu daga fótaferðar. Sagði sjálf:
það bætir heilsuna, mér líður betur
þegar ég hlusta á tónlist. Vonandi
hafa svífandi tónar létt brottförina.
Við hjónin sendum Runólfi og fjöl-
skyldu hugheilar samúðarkveðjur.
Guðmundur W. Vilhjálmsson.
Kveðja
Ég sá í bernsku
í djúpri fjarlægð
hvar augu blikuðu
á tæpri stund.
Ég sá í nálægð
á nýjum degi
hvar augu blikuðu
í djúpri kyrrð.
Og enginn veit
hvað það var og er.
Ó, nálægð djúp,
ó, stund sem fer.
(Jón Óskar)
Ég þakka líf vinkonu minnar Hild-
ar Halldórsdóttur þegar morgun-
döggin glitrar og við sólarlag.
Ég minnist þín þegar jörðin vakn-
ar af vetrardvala og vorskúrin vökv-
ar fræ í mold.
Ég minnist þín þegar sumarsólin
skín á blómskrúð garðsins og rós-
irnar ilma.
Ég minnist þín þegar farið er um
landið, yfir ár og læki, gróna dali og
svarta sanda.
Á hljómleikum og í leikhúsi, ég
minnist þín á listasöfnum og við lest-
ur góðra bóka.
Ég minnist þín á gleðistundum og
í vinafagnaði.
Við munum sakna þín.
Jakobína Finnbogadóttir (Bíbí).
Kveðja frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Starfsfólk Tónlistarskóla Kópa-
vogs kveður í dag tryggan og góðan
fyrrverandi starfsfélaga, Hildi Hall-
dórsdóttur. Hildur starfaði sem
skólaritari við skólann í meira en
aldarfjórðung. Í starfi sínu hélt hún
utan um hina mörgu þræði sam-
skipta og umsýslu skrifstofunnar af
miklum myndarskap og markaði
djúp spor í skólahaldið. Skólanum
reyndist hún afar dýrmætur starfs-
kraftur og samstarfsfólki sínu kær
félagi.
Hildur var að eðlisfari jákvæð, kát
og hláturmild og hafði góða nær-
veru. Hún var létt í spori og fjaðraði
um gangana í verkum sínum. Hún
var skarpgreind og rösk í allri fram-
göngu. Hún var óþvinguð í fasi og í
samskiptum við fólk og um leið bar
framkoma hennar með sér ákveðinn
menningarblæ. Hún var ekki mikið
fyrir að breiða úr sér, en hélt sig
frekar til hlés af hæversku.
Hildur var unnandi fagurra lista.
Klassísk tónlist hefur alla tíð skipað
öndvegissess hjá þeim hjónum, Hildi
og Runólfi, og voru þau samhent í að
stunda tónleika af kappi og styðja
við framgang lifandi tónlistariðkun-
ar. Þannig tilheyra þau sannarlega
hópi máttarstólpa íslensks tónlistar-
lífs. Andblæ úr þeim heimi bar Hild-
ur með sér í störfum sínum í tónlist-
arskólanum og smitaði til þess unga
fólks sem þangað sækir sína þjálfun
á tónlistarsviðinu.
Fyrir hönd skólans og starfsfólks
hans vil ég þakka fyrir þær góðu
samvistir sem við nutum með Hildi á
lífsleiðinni. Runólfi og fjölskyldunni
allri sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing Hildar Halldórsdóttur.
Árni Harðarson.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 31
FRÉTTIR
Félagslíf
MÍMIR 6007020519 III
I.O.O.F. 19 187257 Þb.
HEKLA 6007020519 VI
GIMLI 6007020519 II Þorrafundur
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með
auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Reykjavík.
Einholt - Þverholt
Tillaga að deiliskipulagi reits 1.244.1/3 sem afmar-
kast af Einholti, Stórholti, Þverholti og Háteigs-
vegi.
Tillaga að deiliskipulagi sem auglýst var og kynnt
í ársbyrjun 2006 öðlaðist ekki gildi og eru því hér
með auglýstar nýjar tillögur fyrir reitinn. Tillagan
sem nú er auglýst gerir eins og áður ráð fyrir að
niðurrif eldra iðnaðarhúsnæðis sé heimiluð og
leyfð verði mun þéttari blönduð byggð verslunar,
þjónustu og íbúða á norðurhluta reitsins en hreinni
íbúðabyggð á syðri hluta reitsins. Nýbyggingar
verða allt að sex hæðir með inndreginni efstu hæð
og bílakjöllurum undir byggingum og bakgörðum
þar sem þeim verður við komið. Gert er ráð fyrir
að í núverandi byggingum og í nýbyggingum
að Þverholti 21 og Háteigsvegi 7 verði allt að
100 almennar íbúðir. Á sameinuðum lóðunum að
Þverholti 15, 15A, 17 og 19 ásamt Einholti 6 verði
sambyggingar fyrir allt að 325 námsmannaher-
bergi og 94 litlar námsmannaíbúðir. Á reitnum er
gert ráð fyrir minnst 370 bílastæðum í geymslum
neðanjarðar auk a.m.k. 50 bílastæða fyrir almenn-
ing samsíða gangstéttum umhverfis reitinn.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipu-
lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,
frá 5. febr. 2007 til og með 19. mars 2007. Einnig
má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulags-
fulltrúa) eigi síðar en 19. mars 2007.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 5. febr. 2007
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing
um deiliskipulag leikskólalóðar í landi
Fögrubrekku, Hvalfjarðarsveit
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25. gr. Skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst
eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipu-
lagi leikskólalóðar í landi Fögrubrekku, Hval-
fjarðarsveit.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðal-
skipulag Innri-Akraneshrepps 2002-2014 og
gerir ráð fyrir einni lóð 3.375,0 m² stærð.
Tillagan ásamt skipulags- og byggingarskil-
málum liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðar-
sveitar, Innrimel 3, frá 5. febrúar 2007 til
5. mars 2007 á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu skipu-
lags- og byggingarfulltrúa, Miðgarði, fyrir 20.
mars 2007 og skulu þær vera skriflegar. Þeir
sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds
frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingar-
fulltrúi Hvalfjarðarsveitar.
ingar 569 1100Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Spilakvöld Varðar
sunnudaginn 11. febrúar
Hið árlega spilakvöld Varðar verður haldið í
Valhöll sunnudaginn 11. febrúar kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar að vanda.
Meðal annars :
Utanlandsferðir, bækur, matar-
körfur o.fl.
Gestur kvöldsins er
Illugi Gunnarsson hagfræðingur.
Aðgangseyrir er kr. 800.
Allir velkomnir.
Vörður – Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Raðauglýsingar
augl@mbl.is
OPINN hádegisfyrirlestur verður
fluttur á morgun, þriðjudag, í fyr-
irlestrasal Öskju – náttúrufræða-
húsi HÍ, um nýja rannsókn á þætti
kvótakerfisins í byggðaröskun.
Annas Sigmundsson, sem er að
ljúka námi í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, mun kynna nið-
urstöður úr BA-ritgerð sinni sem
ber heitið Rannsókn á byggðaþró-
un; þáttur kvótakerfisins í byggð-
aröskun á landsbyggðinni.
Í fréttatilkynningu kemur m.a.
fram að rannsókn Annas byggist
m.a. á spurningakönnun, sem lögð
var fyrir 1.000 brottflutta Ísfirð-
inga á árunum 1990 til ársins 2004,
þar sem brottfluttir voru m.a.
spurðir um hversu stóran þátt
kvótakerfið átti í brottflutningi
þeirra. Að auki er farið yfir kenn-
ingar í ritgerðinni sem leitast við
að skýra þá byggðaþróun sem átt
hefur sér stað á landsbyggðinni á
síðustu 130 árum og þá sérstaklega
á síðustu áratugum.
Að loknum fyrirlestrinum munu
sérstakir gestir fundarins, þau
Einar Kristinn Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra og Anna Kristín
Gunnarsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, ræða um niðurstöð-
ur ritgerðarinnar og sýn sína á
byggðaþróun síðustu áratuga.
Fundurinn hefst um kl. 12 og lýkur
um kl. 13.10. Þetta er fyrsti fundur
Stofnunar stjórnsýslufræða og
stjórnmála um áhugaverðar rann-
sóknir í lokaritgerðum nemenda
við stjórnmálafræðiskor HÍ.
Þáttur kvótakerfis-
ins í byggðaröskun
HANNES Hólmsteinn Gissurarson
flytur næstkomandi þriðjudag, 6.
febrúar, hádegisfyrirlestur um
heimildaþáttagerð á vegum Sagn-
fræðingafélagsins. Venju samkvæmt
verður hann kl. 12.05–12.55 í fyr-
irlestrasal Þjóminjasafns Íslands.
Aðgangur er ókeypis og öllum heim-
ill.
Frekari upplýsingar um fyrirlest-
urinn, sem og komandi fyrirlestra,
má finna á heimasíðu félagsins,
www.sagnfraedingafelag.net.
Fyrirlestur
um heimilda-
þáttagerð
MARKAÐSVERKEFNIÐ Iceland
Naturally býður einstaklingum og
fyrirtækjum að skrá og kynna við-
burði, sem fyrirhugaðir eru í Norð-
ur-Ameríku, á vefsíðu sinni
www.icelandnaturally.com.
Í fréttatilkynningu segir að Ice-
land Naturally (IN) vinni að fram-
gangi Íslands, íslenskra fyrirtækja
og vörumerkja í N-Ameríku og
stefnan að byggja upp jákvæða
ímynd Íslands. Nánari upplýsingar
fást hjá Einari Gústavssyni, fram-
kvæmdastj. Ferðamálaráðs Íslands
í N-Ameríku (iceinar@goicel-
and.org) eða Hlyni Guðjónssyni,
viðskiptafulltrúa Íslands í N-
Ameríku (hlynur@mfa.is).
Undirbúa viðburði í Bandaríkjunum