Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 35

Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 35 menning Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 30 ár www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli BREIÐHOLT - ÓSKUM EFTIR RAÐ-/PARHÚSI OG 4RA-5 HERB. ÍBÚÐ Til mín hafa leitað tvær fjölskyldur sem óska eftir að kaupa rað-/parhús eða stærra sérbýli í Breiðholti. Einnig hef ég verið beðinn um að útvega 4ra-5 herbergja íbúð í Breiðholti. Um er að ræða ákveðna kaupendur. Áhugasamir vinsamlega hafið samband. Grétar Kjartansson, sölumaður fasteigna, sími 696 1126. ÞRJÚ lög komust áfram í þriðju og síðustu undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins síðastliðið laugardags- kvöld. Alls hafa níu lög komist áfram í úrslitakeppnina sem fer fram þann 17. febrúar næstkom- andi. Forkeppni Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva fer svo fram 10. maí næstkomandi í Helsinki í Finnlandi, sem er heimaland sig- urvegaranna frá því í fyrra, Lordi. Lögin sem komust áfram á laug- ardagskvöld voru: „Bjarta brosið“ Lag: Torfi Ólafsson Texti: Kristján Hreinsson Flytjandi: Andri Bergmann „Þú tryllir mig“ Lag: Hafsteinn Þórólfsson Texti: Hafsteinn Þórólfsson og Hannes Páll Pálsson Flytjandi: Hafsteinn Þórólfsson „Ég og heilinn minn“ Lag: Dr. Gunni og Ragnheiður Eiríksdóttir Texti: Dr. Gunni Flytjandi: Ragnheiður Eiríks- dóttir Þau sex lög sem áður höfðu tryggt sér sæti í úrslitakeppninni þann 17. febrúar eru: „Segðu mér“ Lag: Trausti Bjarnason Texti: Ragnheiður Bjarnadóttir Flytjandi: Jónsi „Ég les í lófa þínum“ Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson Texti: Kristján Hreinsson Flytjandi: Eiríkur Hauksson „Eldur“ Lag: Grétar Örvarsson og Krist- ján Grétarsson Texti: Ingibjörg Gunnarsdóttir Flytjandi: Friðrik Ómar „Blómabörn“ Lag: Trausti Bjarnason Texti: Magnús Þór Sigmundsson Flytjandi: Bríet Sunna Valde- marsdóttir „Húsin hafa augu“ Lag: Þormar Ingimarsson Texti: Kristján Hreinsson Flytjandi: Matthías Matthíasson „Áfram“ Lag: Bryndís Sunna Valdimars- dóttir og Sigurjón Brink Texti: Bryndís Sunna Valdimars- dóttir og Jóhannes Ásbjörnsson Flytjandi: Sigurjón Brink Morgunblaðið/Eggert Ánægð Aðstandendur þeirra þriggja laga sem á laugardag tryggðu sér sæti í úrslitaþætti Söngvakeppninnar. Brosið, heilinn og tryllirinn Úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins ráðast þann 17. febrúar SENA afhenti á dögunum tvær gullplötur en þá viðurkenningu hljóta listamenn sem selt hafa yf- ir fimm þúsund eintök af plötum sínum eða mynddiskum. Annars vegar er það heimild- armyndin Þetta er ekkert mál sem selst hefur í hátt í sex þús- und eintökum. Myndin sem fjallar um kappann Jón Pál Sigmarsson var einnig vel sótt í kvikmyndahúsum. Um 12 þúsund manns sáu myndina í bíó en það er besta aðsókn sem ís- lensk heimildarmynd hefur feng- ið. Hin gullplatan var veitt þeim Friðriki Karlssyni og Þórunni Lárusdóttur fyrir plötu sína Álfar og fjöll, sem kom út fyrir síðustu jól. Platan hefur selst í tæpum sjö þúsund eintökum en á henni má finna sígildar íslenskar perlur ásamt nýjum lögum í keltneskum stíl þeirra Friðriks og Þórunnar. Gulls ígildi Heimildarmyndin Þetta er ekkert mál fjallar um Jón Pál heitinn Sigmarsson. Jón Páll, álfar og fjöll VEFUR Karlottu er eitt ástsæl- asta ævintýrið í Vesturheimi, eftir E.B White, sem einnig skrifaði Stúart litla, en báðar bækurnar hafa komið út íslenskri þýðingu. Um Stúart litla var gerð feiki- vinsæl mynd fyrir fáeinum árum og framhald, ef minnið bregst mér ekki. Vefur Karlottu hefur a.m.k. verið kvikmynduð einu sinni áður, í það skipti var útkoman lítið eft- irminnilegur söngleikur, teiknaður upp á gamla mátann. Að þessu sinni hefur tekist betur til að flestu leyti, Vefur Karlottu er bæði leikin og stafræn teiknimynd, aðferð sem er búið að þróa með þokkalegum árangri síðan á dög- um Badda-Babe, fyrir röskum ára- tug, og er sýnd með íslenskri og enskri talsetningu. Myndin gerist í vinalegri, bandarískri sveit. Bóndadóttirin Vera þarf að láta af hendi gælu- dýrið sitt, hann Vilbert grisling, sem tekinn er að bæta á sig beik- oninu. Hann fer þó ekki lengra en svo að Vera litla getur fylgst með honum, eða í gripahúsið hjá Hóm- er frænda hennar og næsta ná- granna. Aumingja Vilbert bregður við að þurfa að standa á eigin fótum og það innan um heldur fjandsamlega íbúa hinnar nýju vistarveru. Þau taka honum ekki fagnandi, kýrnar, gæsirnar, hestarnir, jafnvel rottan Höskuldur sendir Vilbert tóninn. Það er ekki fyrr en grislingurinn og hin dýrin á bænum fara að hlusta á viskubrunninum, kóngu- lóna Karlottu, að lífið verður bæri- legt. Sagan er einföld, sígild og full af góðum boðskap sem er öllum börnum hollur og við, hin full- orðnu, höfum gott af því að fylgj- ast með og kanna hvort við höfum ekki glutrað einhverju niður af já- kvæðum viðhorfum í öllu verald- arvafstrinu. Vilbert litli er saklaus og hreinskilinn og sér fegurðina á ólíklegustu stöðum, líkt og í kóngulónni Karlottu. Hún þakkar honum með því að bjarga lífi hans um leið og hún siðar dýrin á bóndabænum og kennir þeim að bera virðingu hvert fyrir öðru. Ekki er ólíklegt að Vefur Karl- ottu leysi Stúart litla af hólmi sem ein vinsælasta myndin í diskaspil- aranum í barnaherberginu þegar fram í sækir og foreldrar, afar og ömmur, eru búin að fara með smá- fólkið á þessa þörfu mynd um hin klassísku gildi sem vilja gleymast í gullæði samtímans. Sú bíóferð ætti að vera skylduverk. Vísdómur kóngulóarinnar KVIKMYNDIR Sambíóin, Smárabíó, Regnboginn Teiknimynd með íslenskri og enskri tal- setningu. Leikstjóri: Gary Winick. Aðal- leikraddir: Julia Roberts, Dakota Fann- ing, Steve Buscemi, John Cleese, Oprah Winfrey, Cedric the Entertainer, Robert Redford, ofl. Íslenskar aðalraddir: Ólöf Kristín Þorsteinsson, Björgvin Franz Gíslason, Inga María Valdimarsdóttir, Jó- hanna Vigdís Arnardóttir, Róbert Óliver Gíslason, Sigurður Sigurjónsson, ofl. Leikstjóri ísl. talsetningar: Jakob Þór Ein- arsson. 105 mín. Bandaríkin 2006. Vefur Karlottu/Charlotte’s Web –  Vinsæl Ekki er ólíklegt að Vefur Karlottu leysi Stúart litla af hólmi sem ein vinsælasta myndin í diskaspilaranum í barnaherberginu. Sæbjörn Valdimarsson ÍSLENSKA óperan og Línuhönn- un hafa endurnýjað samstarfs- samning sín á milli. Línuhönnun hefur verið eitt af traustustu sam- starfsfyrirtækjum Íslensku óp- erunnar um árabil og lagt fram til- tekna fjárupphæð til stuðnings starfseminni, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Óp- erunni. Upphæðin nemur 350 þús- und krónum. Íslenska óperan er sjálfseign- arstofnun og gert er ráð fyrir að hluti tekna hennar komi frá sam- starfi við önnur fyrirtæki atvinnu- lífsins. Bjarni Daníelsson óp- erustjóri segir samstarf Íslensku óperunnar við atvinnulífið mik- ilvægan þátt í rekstri Óperunnar. „Það er Íslensku óperunni mik- ilvægt að eiga trausta samstarfs- aðila á borð við Línuhönnun til að leggja henni lið og stuðla að óp- erustarfsemi á heimsmælikvarða á Íslandi,“ segir Bjarni. Samstarfssamningur Óperunnar og Línuhönnunar gildir til eins árs. Íslenska óperan og Línuhönnun endurnýja samstarfssamning Morgunblaðið/Árni Sæberg Úr óperunni Brottnámið úr kvennabúrinu var sýnt í Íslensku óperunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.