Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 41
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
MAN OF THE YEAR kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 7 ára
BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:50 B.i. 16 ára DIGITAL
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
CHARLOTTE´S WEB m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ DIGITAL
THE PRESTIAGE kl. 10 B.i. 12 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
MAN OF THE YEAR kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 7 .ára.
BLOOD DIAMOND kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
BLOOD DIAMOND VIP kl. 5 - 8 - 10.50
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
BABEL kl. 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
FORELDRAR kl. 8:15 LEYFÐ
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 .ára.
STRANGER THAN FICTION kl. 10:10 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:50 LEYFÐ
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. sem besta mynd ársins7
eeeee
- B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- LIB, TOPP5.IS
HJÁLPIN BERST
AÐ OFAN
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
ÓSKARSTILNEFNINGAR2
MEÐ CHRISTIAN BALE, HUGH JACKMAN OG
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM MICHAEL CAINE.
eeee
Þ.T. KVIKMYNDIR.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
RÁS 2
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
GOLDEN GLOBE TILNEFNING
BESTI LEIKARI : WILL FERRELLABÍÓI
ÓSKARSTIL-
NEFNINGAR5
MARTIN SCORSESE
BESTI LEIKSTJÓRINN
ÓSKARSTILNEFNING
besta teiknimynd ársins1
eeee
H.J. MBL.
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Að gefa gjafir er eitt af því sem hægt er
að gleðjast yfir í lífinu og hrúturinn
gleðst yfir ánægju viðtakandans með vel
valda gjöf. Lítillátir þiggjendur halda
hrútnum í stuði til þess að gefa enn
meira.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið hrindir verkefnum í framkvæmd,
þrátt fyrir hindranir og tafir. Ekki
ómaka þig með reiði eða pirringi ef þau
ganga ekki eins og smurð. Það bælir
bara niður stemninguna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ævintýragirni tvíburans kemur berlega
í ljós. Hann finnur sig knúinn til þess að
láta sig reika til þess að uppfylla þörfina
fyrir stöðuga tilbreytingu. Stundum er
engu líkara en að heimili tvíburans sé
bara eins og miðstöð sem hægt er að
flytja úr.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Efnisleg gæði skipta krabbann máli.
Honum fellur dótið sitt vel í geð. Ekkert
athugavert við það. En raunin er sú, að
svo mikið hefur safnast fyrir, að krabb-
inn er búinn að missa tökin. Nú er kom-
inn tími til að grisja.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið getur gefið ráð án þess að nota
viskuna sem tæki til að stýra öðrum.
Hins vegar kemur fyrir að ástvinir þínir
myndu hafa mikinn hag af því að gera
eins og þú vilt. Það á við núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sumir eiga fullt af fallegum hlutum til að
hafa í kringum sig, en finna samt til lít-
illar hamingju. Aðrir gleðjast yfir því
sem þeir þó eiga. Meyjan er einhvers
staðar mitt á milli og á eftir að verða rík-
ari, eftir því sem þakklætið verður henni
tamara.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin gerir upp við sig hverjir eru raun-
verulegir vinir. Kannski hjálpar þetta:
sannur vinur er sá sem hjálpar þér ef þú
dregst aftur úr – í stað þess að benda á
mistökin þín þegar hann tekur fram úr.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það sem þig langar til þess að gera virð-
ist glórulaust. En innsæi sporðdrekans
skjátlast sjaldnast. Heiðraðu það,
hlýddu eðlishvötinni og láttu sem þú
heyrir ekki ráðleggingar vitsmunalega
sinnaðra félaga þinna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Titill bogmannsins ætti að vera „vinur af
bestu sort“. Sú staða vekur kannski ekki
þau allsherjar fagnaðarlæti sem hún
ætti að gera í augnablikinu, en á næstu
vikum kemstu að því hversu mikils þú
ert raunverulega metinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er rólyndið uppmálað, en lað-
ast á einhvern óræðan hátt að brjál-
æðislega mannblendnu fólki. Kannski
virðist það ójöfn pörun, en er í raun í
fullkomnu jafnvægi. Þú og fólk í hrúts-
merkinu smellur hreinlega saman.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn vill helst ekki láta flækja
sér í ágreining annarra en þegar fjöl-
skyldan er annars vegar kemst maður
ekki svo auðveldlega hjá því. Þar að auki
getur vatnsberinn svo sannarlega varp-
að ljósi á aðstæðurnar og gerir það af
mikilli háttvísi og hluttekningu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er léttur í lundu. Nýttu þér
bjartsýnina, með rétta fólkinu og stórum
hópi geturðu gert hvað sem þú vilt.
Styrktu þennan þátt tilveru þinnar og
byrjaðu á því að eignast áhrifamikinn
vin.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Það er ekki margt í lífinu
sem maður þarf á að halda
og fjöldi fólks í veröldinni
allri, sem á ekki einu sinni
svo mikið. Mótstaða sólar
og Satúrnusar hvetur
mann til þess að þakka sitt ríkulega lán,
hversu fábrotið sem það kann annars að
vera. Tungl er í meyju, stjörnumerkis
þess sem passar upp á það sem hann á.
bandarísku hljómsveitarinnar
Throwing Muses sem lék á Innipúk-
anum í fyrra.
Annað úrslitakvöld í sjónvarps-þættinum X Factor fór fram í
beinni útsendingu á Stöð 2 síðast-
liðið föstudagskvöld.
Þegar niðurstöður símakosningar
lágu fyrir var ljóst að Alan, keppandi
Einars í hóp 25 ára og eldri – og Já,
sönghópur Páls Óskars, fengu fæst
atkvæði frá íslensku þjóðinni.
Niðurstaða dómnefndar var að
lokum sú að Já skyldi hverfa frá
keppni að þessu sinni en dúettinn
skipa systkinin Ásdís og Hans Júl-
íus.
Í 101 galleríi stendur yfir sýning
Stephan Stephensens „If you want
blood … You got it“. Nokkuð dæg-
urlagalegur titill, enda listamað-
urinn kunnur í heimi teknótónlistar
sem skífuþeytirinn „President
Bongo“. Sýningin samanstendur af
ljósmyndum af Stephan sjálfum í
sömu annarlegu stellingunni fyrir
framan þekkta minnisvarða víðs-
vegar um heiminn. Þetta er sígild
breakdansstelling sem ber heitið
„Frelsisstellingin“ og er sýningin
nokkurskonar óður til teknósins.
Teknóheimurinn er forvitnilegt
fyrirbæri þar sem fólk finnur frelsi
í því að leyfa líkama sínum að
hreyfast eftir hröðum endurteknum
áslætti, oft með ambient-hljóm-
grunni sem leiðir hugann á brott
og jafnvel í trans. Til þessa er oft
stuðst við notkun „psychedellic“
vímuefna til að rugla í skynjuninni
og hleypa huganum á flug. Teknóp-
artí eru þannig séð vestræn afbök-
un á frumstæðum ritúölum þar
sem „psycedellic“ efni, unnin úr
plöntum eða vessum úr eitruðum
dýrum, voru (og eru) notuð til að
skapa brú yfir í aðrar víddir þar
sem frumbyggjar álíta að andar og
önnur efnislaus fyrirbæri dvelji. Af-
bökunin felst einna helst í því að
snúa trúarlegum ritúal yfir í hvers-
dagslega skemmtun. Tæma hann
innihaldi og merkingu.
Frelsisstellingin er, eins og nafn-
ið gefur til kynna, yfirlýsing um
frelsi mannsins og minnir eilítið á
jógastellingu, „hálfa höfuðstöðu“
(ardha sirsasana). Þessi tenging
ljósmynda Stephans við ritúala og
jóga þykir mér athyglisverður
partur á sýningunni, en það er eins
með jógað og frumstæða ritúala að
í vestrænni útgáfu er búið að tæma
það andlegu innihaldi og merkingu
og færa það inn á svið aerobic-
æfinga. Af þessum sökum þykir
mér Stephan hitta á nokkuð for-
vitnilegt myndefni. Tengingarnar
eru um margt skemmtilegar og
möguleikarnir því margir. Úr-
vinnslan, ef úrvinnslu má kalla, er
hinsvegar ekki spennandi. Hug-
myndin er fest í frekar stirt skrá-
setningarform og satt að segja sé
ég ekki hvað svo hægðatreg kons-
eptlist, sem býður hvorki upp á
skynræna upplifun né rými fyrir
hugarflug, á sameiginlegt með
flæðandi teknótónlist og dansi.
Sumar myndanna eru jú nokkuð
„flottar“ en það er engan veginn
nóg til að gefa sýningunni innihald
eða merkingu. Það veitir henni þó
eilítinn trúverðugleika að mynd-
irnar eru framsettar eins og plaköt
og eru þétthangandi þannig að
maður nemur keim af einhverskon-
ar götulist. Stephan gerir síðan til-
raun til að virkja sýningarrýmið
eða brjóta það upp með því að fella
þar inn danspall frá skemmtistaðn-
um Sirkus. En fyrir mitt leyti virk-
ar danspallurinn sem enn einn
minnisvarðinn. Minnisvarði um eina
hugmynd.
Minnisvarði um eina hugmynd
Jón B.K. Ransu
MYNDLIST
101 gallerí
Opið þriðjudaga til laugardags frá kl. 14–
17. Sýningu lýkur 15. febrúar. Aðgangur
ókeypis.
Stephan Stephensen
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sýning Stephans „Tenging ljósmynda Stephans við ritúala og jóga þykir
mér athyglisverður partur á sýningunni.“
ÞÓTT við töpum í handbolta
vinnum við sigra á ýmsum öðrum
sviðum. Óhætt er að fullyrða að
Kristinn Árnason gítarleikari hafi
komið, séð og sigrað á tónleikum
sem hann hélt í Áskirkju þarsíð-
ustu helgi. Á tónleikunum bauð
Kristinn upp á fjölbreytta dagskrá
þrátt fyrir að meiri hluti hennar
hafi verið latneskur, eins og vaninn
er þegar gítarinn er annars vegar.
En það skipti engu máli hvað hann
spilaði, hann gerði allt jafnvel.
Strax á upphafstónum verks sem
ber hið langa heiti Tombeau sur la
mort de monsieur Cajetan Baron
D’Hartig og er eftir Silvius Leo-
pold Weiss, var auðheyrt að Krist-
inn hafði fullkomið vald á hljóðfæri
sínu. Vissulega er gítarinn ekki
hljómsterkur, en öll ólíku litbrigðin
sem Kristinn galdraði fram úr hon-
um voru undursamleg áheyrnar.
Tónlistin lék í höndum hans og
tæknilegt atriði voru á hreinu.
Þrátt fyrir að gítarinn væri óraf-
magnaður var stígandin í tónlist-
inni ótrúlega áhrifamikil, og há-
punktarnir aðdáunarverðir. Ég
man ekki eftir að hafa heyrt fal-
legri gítarleik.
Sömu sögu er að segja um annað
á dagskránni. Sellósvítan í A-dúr
BWV 1009 eftir Bach, sem Kristinn
hafði sjálfur umritað fyrir gítar,
var ekki aðeins pottþétt út frá
tæknilegu sjónarmiði, heldur var
túlkunin leiftrandi músíkölsk, jafn-
vel innblásin. Una limosna por el
amor de Dios eftir Barrios var
sömuleiðis snilldarlega flutt, Grand
Overture eftir Guiliani með ein-
dæmum glæsilegt og spænskir
dansar eftir Granados sérlega
heillandi. Aukalagið, Recuerdos de
la Alhambra eftir Tarrega, var líka
himneskt.
Á tónleikunum flutti Kristinn
Þrjár ljóðrænar hugleiðingar eftir
sjálfan sig. Á tímum aukinnar sér-
hæfingar er ekki svo algengt á
túlkandi listamaður sé jafnframt
tónskáld, og var því gaman að
þessari tilbreytingu. Innhverfar
hugleiðingar Kristins voru líka
sjarmerandi og ekki spillti hversu
vel þær voru leiknar.
Nú erum við sem skrifum um
klassíska tónlist hér á Morg-
unblaðinu ekki vön að gefa stjörn-
ur, en ef sú væri raunin fengi
Kristinn örugglega fimm – í það
minnsta.
Fimm, í það minnsta
Jónas Sen
TÓNLIST
Áskirkja
Kristinn Árnason gítarleikari flutti tónlist
eftir Weiss, Bach, Barrios, Guiliani,
Granados, Tarrega og Kristinn Árnason.
Sunnudagur 28. janúar.
Gítartónleikar