Morgunblaðið - 20.03.2007, Side 4

Morgunblaðið - 20.03.2007, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is S kipuleg leit að krabbameini í ristli og endaþarmi á að hefjast á næsta ári, samkvæmt þingsályktunar- tillögu sem Alþingi samþykkti síð- astliðinn laugardag. Þetta verður þriðja skipulagða krabbameinsleitin fyrir Ís- lendinga og sú fyrsta sem nær jafnt til karla og kvenna. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, kvaðst hafa verið með- flutningsmaður þingsályktunartillögunnar á síðasta þingi. Hún sagði að með samþykkt hennar væru Íslendingar að skipa sér í fremstu röð þjóða hvað varðaði skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi. Hér væri stigið mjög mikilvægt skref til krabbameins- varna hér á landi. „Það er líklegt að við munum innleiða skim- unina í áföngum,“ sagði Siv. Hún sagði eftir að ákveða hvernig skimunin yrði útfærð en rætt yrði við leiðandi aðila á því sviði um fram- kvæmdina. Nú yrði hugað að þessu máli í fjár- lagagerðinni fyrir næsta ár, en Alþingi yrði síðan að samþykkja fjárveitingar til þess. Siv sagði hina nýju skimun vera í anda heil- brigðisáætlunar til ársins 2010. Þar segir m.a. um krabbameinsvarnir að aðalmarkmiðið sé að dánartíðni vegna krabbameina hjá fólki yngra en 75 ára lækki um 10%. „Um þriðjungur þjóðarinnar fær krabba- mein á lífsleiðinni. En það hafa orðið mjög miklar framfarir í meðferð ýmissa krabba- meina. Margir fá bót meina sinna og öðrum er gert kleift að lifa lengur með sjúkdóminn en áður. Við Íslendingar stöndum afar framarlega í meðhöndlun krabbameinssjúkra,“ sagði Siv. Stór dagur í baráttu gegn krabbameini „Þetta er stór dagur í baráttunni gegn þessu illvíga krabbameini,“ sagði Ásgeir Theodórs, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum. „Þetta er orðin löng leið frá því Árni Ragnar Árnason heitinn alþingismaður hóf þessa baráttu með okkur fyrir auknum forvörnum gegn krabba- meini í meltingarvegi.“ Í greinargerð með þingsályktunartillögunni kemur m.a. fram að krabbamein í ristli og endaþarmi sé eitt af algengustu krabbamein- um meðal Íslendinga og önnur algengasta dán- arorsökin af völdum krabbameina. Ásgeir sagði stefnt að því að skimað yrði fyrir þessu krabbameini hjá körlum og konum á aldrinum 55–74 ára. Annað hvert ár verði athugað hvort blóð finnst í hægðum fólks og finnist það fer fólk í ristilspeglun. Ásgeir sagði að um 26 þús- und Íslendingar væru á þessu aldursbili og því þyrfti að rannsaka um 13 þúsund manns á hverju ári. „Okkur hefur ekki orðið ágengt í baráttunni við þetta krabbamein til þessa því við erum að greina fólk of seint. Við viljum greina sjúkdóm- inn á því stigi sem hann er einkennalaus og jafnvel á forstigi. Þetta er eitt af fáum krabba- meinum þar sem við þekkjum forstigið,“ sagði Ásgeir. Hann sagði að þegar fólk hefði náð 55 ára aldri ætti forstigið að vera komið í ljós. Ás- geir taldi góðar líkur á að með skipulegri leit megi lækka dánartíðni af völdum þessa krabbameins um 22–25%, eins og staðan væri nú. Hugmyndin er að skipuleggja leitina á svip- aðan hátt og nú er gert varðandi leit að brjósta- krabbameini og leghálskrabbameini. Ásgeir sagði að skipulögð leit að krabbameini í ristli og endaþarmi væri hafin bæði í Finnlandi og Bretlandi. Talið að lækka megi dánartíðni af völdum ristilkrabbameins um 22–25% með leit Skipuleg leit hefst á næsta ári Í HNOTSKURN »Nú greinast um 120 Íslendingar áári með krabbamein í ristli og endaþarmi og um 55 einstaklingar deyja vegna þess á hverju ári. Rúm- lega helmingur þeirra sem greinast er á lífi að fimm árum liðnum frá grein- ingu. »Talið er að lækka megi dánartíðniaf völdum þessa krabbameins um 22–25% með skipulegri leit. »Þingsályktunartillagan var flutt átveimur síðustu þingum en ekki samþykkt fyrr en nú. Fyrsti flutnings- maður var Drífa Hjartardóttir en flutn- ingsmenn voru úr öllum þingflokkum. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra. Ásgeir Theodórs læknir. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is FISKNEYSLA ungs fólks hefur dregist töluvert saman á undan- förnum árum og borðar ungt fólk fisk sem aðalrétt að meðaltali 1,3 sinnum í viku. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar Matís ohf. og fleiri aðila á fisk- neyslu fólks á aldrinum 17–26 ára. Þær benda til þess að Íslendingar muni borða enn minna af fiski í framtíðinni ef ekkert verði að gert. „Það er áhyggjuefni að fiskneysla ungs fólks sé lítil,“ sagði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra þegar niðurstöðurnar voru kynnt- ar á blaðamannafundi í Sjóminja- safninu í gær. Hann sagði þessa niðurstöðu slæma og skynsamlegt og nauð- synlegt væri að reyna að auka neysluna. Áfram þyrfti að kanna neysluvenjur fólks og fiskurinn mætti ekki láta undan síga í sam- keppni við aðrar matartegundir. Emilía Martinsdóttir, verkefna- stjóri hjá Matís, kynnti niðurstöð- ur rannsóknarinnar. Hún var gerð bæði hjá nemum og ungu fólki á vinnumarkaði og var úrtakið 1.735 manns. Spurt var í kennslustund- um og á Netinu og var rannsóknin unnin á um einu og hálfu ári. Þegar neyslutíðni matvæla var rannsökuð var fiskur í neðstu sæt- unum, en kjöt, pasta og hvítt kjöt fyrir ofan. Vinsælasta fisktegundin reyndist vera ýsa, sem Emilía sagði ekki koma á óvart. Hins veg- ar væru túnfiskur og rækjur í öðru sæti og benti Emilía á að margt ungt fólk borðaði þessar fiskteg- undir á samlokum. Fáar fiskverslanir þar sem barnafólkið býr Í rannsókninni var kannað hvar fisksala væri að finna. Í ljós kom að 48% fisksala á höfuðborgarsvæð- inu eru í miðbæ, vesturbæ og á Sel- tjarnarnesi. Aðeins 8% eru fyrir allan Grafarvoginn, Grafarholtið og Árbæinn. Kópavogur og Hafn- arfjörður eru með 12% hvor, en í Mosfellsbæ og Garðabæ eru engar fiskbúðir. Emilía sagði það vekja athygli að fiskbúðir væru „mjög fáar í úthverfum þar sem barna- fjölskyldur búa“. Þá kom í ljós í rannsókninni að í sumum sjávar- byggðum, á borð við Ísafjörð, væru engar fiskbúðir. Þó væri fiskneysla fólks á landsbyggðinni öllu meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Friðrik Jónsson, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, sagði að þegar afstaða ungs fólks til matar og heilsu væri greind kæmu í ljós þrír hópar. Sá minnsti væri 18% af heildinni, en þessi hópur neytti töluverðs fisks og væri ekki auð- velt að hafa áhrif á hann. Í næsta hópi, sem væri 39% heildarinnar, væru aðallega karlmenn. Þessi hópur hefði lítinn áhuga á fisk- neyslu en kysi helst kjöt og skyndi- bita. Þriðji hópurinn og sá stærsti, eða 43%, væri að stærstum hluta konur sem vildu gjarnan neyta fisks og væri mikilvægt að ná til hans. Friðrik sagði að meðal þess sem rannsóknin leiddi í ljós væri að matarvenjur í æsku hefðu áhrif á þær hefðir sem fólk fylgdi á full- orðinsárum. Þá sagði hann ljóst að konur væru gefnari fyrir fisk en karlar. Morgunblaðið/G. Rúnar Einar áhyggjufullur Sjávarútvegsráðherra skoðar tölur um minnkandi neyslu ungs fólks á fiski, en útlit er fyrir að hún geti minnkað enn frekar. Fiskur ratar æ sjaldnar á disk unga fólksins Í HNOTSKURN » Rannsóknin er sam-vinnuverkefni Matís ohf., Félagsvísindastofnunar Há- skóla Íslands, Rannsóknar- stofu í næringarfræði á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi og fyrirtækisins Icelandic Services. »Spurt var um viðhorf tilheilsu, fiskneyslu, neyslu annarra matvæla og inn- kaupa á fiski. »Þá var spurt um smekk ámismunandi fiskréttum. »Einnig var spurt umþætti sem hafa áhrif á fiskneyslu. Á HEIMILI Elíasar Ey- þórssonar, MR-nema, er fiskur eldaður 3–4 sinnum í viku, en pabbi Elíasar selur fisk. Elías segir steiktan fisk í uppáhaldi hjá sér. Hann segist velta fyrir sér hollustu fisks- ins. „Þetta er fínn pró- teingjafi,“ segir hann. „Jú, ætli það ekki,“ segir Elías þegar hann er spurður hvort hann stefni sjálfur á að matreiða fisk þegar hann fer sjálfur að halda heimili. Reyndar sé nokkuð erf- itt að elda fisk. „Ég hef tvisvar reynt það og í bæði skiptin skaðbrenndi ég fisk- inn.“ „Þetta er fínn próteingjafi“ „MÉR finnst ég borða mikinn fisk miðað við jafnaldrana,“ segir Urður Anna Björns- dóttir, nemandi í MR. Pabbi Urðar, sem er kokkur, sér um mat- seldina á heimili henn- ar og þar er fiskur á borðum 1–2 sinnum í viku. Urður Anna borðar fiskinn af bestu lyst og segir lax og saltfisk í uppáhaldi. Hún kveðst ekki hugsa sérstaklega um hollustuna þegar hún snæði fisk, heldur borði bara það sem henni finnist gott. Hún geri fastlega ráð fyrir að elda fisk sjálf þegar hún flytur að heiman. Lax og saltfiskur í uppáhaldi „MÉR finnst hann ekki góður,“ segir Jóhanna Gísladóttir, nemandi í MR, en hún kveðst vera lítið gefin fyrir fiskmeti. Jóhanna seg- ir mömmu sína sjá um matseldina á heimilinu og sé fiskur á boð- stólum um það bil tvisvar sinnum í viku. „Þá borða ég hrísgrjónin og ostinn ofan af,“ segir hún. Jóhanna segir aðspurð að hún geri ráð fyrir því að elda stundum fisk þegar hún fari sjálf að halda heimili. „Kannski svona einu sinni í viku, upp á holl- ustuna,“ segir hún. Einu sinni í viku upp á hollustuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.