Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LJÓÐVEISLA til heiðurs Jó-
hanni Hjálmarssyni skáldi
verður í Listasal Mosfells-
bæjar í kvöld kl. 20. Þröstur
Helgason fjallar um skáld-
skaparferil Jóhanns; Krist-
björg Kjeld les ljóð við píanó-
leik Carls Möllers og Leskór
nemenda úr Lágafellsskóla
flytur einnig ljóð eftir skáldið.
Jóhann Hjálmarsson er
bæjarlistamaður Mosfells-
bæjar 2006 og með verkum sínum hefur hann
markað sér sess sem eitt af helstu skáldum
sinnar samtíðar og hlotið ýmsar viðurkenningar
fyrir.
Ljóðlist
Mig hefur dreymt
þetta áður
Jóhann
Hjálmarsson
SAGNFRÆÐINGAFÉLAG
Íslands stendur fyrir hádeg-
isfyrirlestri í dag í Þjóðminja-
safni Íslands við Suðurgötu,
klukkan 12.05–12.55. Þá mun
Gísli Sigurðsson, rannsókn-
arprófessor á Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum
fræðum, flytja eriendi sitt
„Arfur og miðlun: Hug-
myndafræði og nýjar rann-
sóknir“ þar sem hann beinir
sjónum sínum að því hvernig hugmyndafræði
hvers tíma hefur áhrif á skráningu á samtíðinni og
rannsóknir á fortíðinni.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Sagnfræði
Hugmyndafræði
og rannsóknir
Gísli
Sigurðsson
FLUTT verða spænsk ein-
söngslög og dúettar frá ýmsum
tímabilum á Háskóla-
tónleikum, sem fram fara í
Norræna húsinu klukkan 12.30
á morgun, miðvikudag. Val-
gerður Guðrún Guðnadóttir
sópran, Hrólfur Sæmundsson
barítón og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir píanóleikari
flytja verk spænsku tónskáld-
anna, Albeniz, De Falla og
Granado og argentínska tónskáldsins Morillo.
Yrkisefnin eru í heitum anda um ástina, feg-
urðina, þjáninguna og dauðann.
Tónleikarnir taka um 30 mínútur í flutningi.
Söngtónleikar
Spænskar
tilfinningar í HÍ
Hrólfur
Sæmundsson
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
YFIRLITSSÝNING á verkum
Ólafs Elíassonar mun opna í Ný-
listasafninu í San Francisco
(SFMOMA) í byrjun september á
þessu ári. Þetta er fyrsta stóra yf-
irlitssýningin á verkum Ólafs í
Bandaríkjunum og markar hún upp-
hafið á alþjóðlegum túr sem hefst
strax í kjölfarið á sýningunni í San
Francisco, en hún mun standa frá 8.
september 2007 til 24. febrúar 2008.
Sýningin heitir Take your time:
Olafur Eliasson og þar koma saman
verk Ólafs sem eru í eigu almenn-
ings- og einkasafna um heim allan.
Sýningin nær yfir fjölbreytt úrval af
verkum frá árinu 1993 til dagsins í
dag, þar á meðal verða innsetningar,
stór verk sem tengjast sökkvandi
landslagi, stakar höggmyndir og
ljósmyndir m.a af íslensku landslagi.
Ólafur mun einnig vinna nokkur ný
verk fyrir sýninguna, þar á meðal
manngeng göng á brú í safninu sem
verður sýnilegt frá opnu svæði milli
sýningarsala fimm hæðum neðar
segir í fréttatilkynningu frá
SFMOMA.
272 síðna sýningarskrá
Sýningin er skipulögð af Made-
leine Grynsztejn og Elise S. Haas
yfirsýningarstjóra málverka og
skúlptúra í SFMOMA í nánu sam-
starfi við Ólaf. Í tilefni sýning-
arinnar verður gefinn út yfirgrips-
mikil 272 blaðsíðna sýningarskrá í
samstarfi við Thames & Hudson
sem inniheldur ritgerðir ýmissa að-
ila um Ólaf og samræðu Ólafs við
listamanninn Robert Irwin.
Fyrsta sýning Ólafs í Ameríku var
árið 1996 í Tanya Bonakdar Gall-
eríinu í New York en þrátt fyrir að
vera talinn einn af áhrifamestu
starfandi listamönnum samtímans
hefur Ólafur ekki hlotið mikla at-
hygli í Bandaríkjunum hingað til.
Það eru um fimmtán ár síðan hann
hóf feril sinn og nú loksins mun fjöl-
breytt yfirlitssýning sem tekur á öll-
um ferli hans vera opnuð fyrir amer-
íska listunnendur segir í fréttatil-
kynningunni.
Ólafur hefur áður tekið þátt í sam-
sýningu í SFMOMA auk þess sem
safnið á eitt verk eftir hann.
Næst til New York
Á sýningunni verða mikilvægustu
verk Ólafs kynnt í tímaröð og taka
þau undir sig um níu hundruð fer-
metra sýningarsvæði.
Eftir San Francisco mun Take
your time: Olafur Eliasson fara í Ný-
listasafnið í New York frá 13. apríl
til 30. júní 2008, þaðan til Listasafns-
ins í Dallas frá 9. nóvember 2008 til
15. mars 2009 og síðan á Nýlista-
safnsins í Sydney og víðar.
Yfirlitssýning á verkum Ólafs Elíassonar í Nýlistasafninu í San Francisco í haust
Taktu þér tíma
ÍBÚAR New York ættu ekki að vera ókunnir verkum Ólafs Elíassonar þeg-
ar Take Your time: Olafur Eliasson kemur þar í borg á næsta ári því lista-
verk eftir hann var í glugga tískuvöruverslunar Louis Vuitton í fyrra.
Ólafur ekki ókunnur
HINN venesú-
elski Banco del
Libro, eða Bóka-
bankinn, hlýtur
Minningar-
verðlaun Astrid-
ar Lindgren í ár.
Bókabankinn er
ekki rekinn í
ágóðaskyni en
hefur dreift bók-
um til barna í Venesúela í nærri
hálfa öld.
Í úrskurði dómnefndar sagði að
ástríða, fagmennska, náin tengsl
við börnin og uppörvandi skortur á
skriffinnsku væru aðalsmerki
Bókabankans, hvort sem væri í fá-
tækrahverfum stórborganna,
fjallaþorpum, háskólum eða í net-
heimum. Minningarverðlaun Ast-
ridar Lindgren eru stærstu barna-
bókaverðlaun hér á jörð, og hlýtur
vinningshafinn andvirði fimm millj-
óna sænskra króna, eða tæpra
fimmtíu milljóna íslenskra króna.
Bankastjóri Bókabankans, Maria
Beatriz Medina líkti því við það að
hreppa Nóbelinn fyrir að fá börn til
lesa, að Bókabankinn skyldi fá
Lindgren-verðlaunin.
Bókabanki
fær óvænta
vexti
Lindgren-verðlaunin
til Venesúela í ár
Astrid Lindgren
Í GÖTUNNI sem eignar sér þann
heiður að vera vagga blússins og
rokksins, Beale Street í Memphis,
Tennessee, ríkir óöld.
Öryggisáætlun í tíu liðum hefur
verið hrundið af stað, til að
stemma stigu við glæpum, en lífið
og fjörið sem fylgir lifandi tónlist-
arflutningi í götunni daglangt –
og næturlangt, dregur að sér fleiri
óþokkapésa en góðu hófi gegnir,
að mati Al James, eiganda Per-
forma-fyrirtækisins, sem sér um
daglegan rekstur götunnar.
Það er tónlistin sem lokkar og
laðar, og fyrsta vers í öryggis-
áætluninni kveður á um að engin
tónlist skuli leikin í götunni eftir
klukkan eitt á næturnar. Enn sem
áður fær þó allt að loga í blús og
rokki innandyra í þeim fjölmörgu
klúbbum sem gatan hýsir, en fjór-
ar milljónir ferðamanna mæla
Beale Street ár hvert og er gatan
vinsælasti ferðamannastaður rík-
isins.
Menningarbullur
á Beale Street
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„VIÐ erum að setja upp Ímynd-
unarveikina eftir Molière í nafni
Franska vorsins. Þetta er frönsk
klassík, en ég fleyga hana með sam-
tímaverki um Madeleine, dóttur
Molières,“ seir Arthur Nauzyciel
leikstjóri, sem hingað er kominn frá
Frakklandi til samstarfs við Þjóð-
leikhúsið. Sýningar verða tvær, á
fimmtudag og föstudag, en leikið
verður bæði á íslensku og frönsku,
en íslenskir textar á skjá.
Nauzyciel segir verkið fyrst og
fremst snúast um leikhúsið og fjöl-
skyldutengslin og það hvernig raun-
veruleikinn og ímyndunaraflið renna
oft saman í eitt í huga okkar. „Mér
fannst þessi hugmynd passa svo vel
við Þjóðleikhúsið, vegna þess hve
tengslin milli fólks innan þessara
veggja eru sterk. Þema verksins er í
fjölskylduböndum og tengslum kyn-
slóðanna, og það er nákvæmlega það
sem ég er að upplifa hér, þar sem
allir eru skyldir eða afkomendur
fólks sem áður starfaði í húsinu.“
Ef horft er einungis á atriðið milli
Argans hins ímyndunarveika og
yngstu dóttur hans, Louison, að
sögn Nauzyciels, virðist það í fljótu
bragði ekki hafa neinn tilgang í
verkinu. „Oftast er það túlkað eins
og hvert annað grín, ekki síst síðasta
setningin, þar sem Argan segir:
„Það eru engin börn til lengur.“ Mér
fannst hins vegar alltaf að eitthvað
mjög tragískt hlyti að búa þarna að
baki. Það hvarflaði að mér að Mol-
ière hefði með þessu verið að segja
að leikhúsið væri að missa af unga
fólkinu, og engir arftakar myndu
finnast til að taka við. Eiginkona
hans var leikkona, og fjörða kynslóð
í afburða leikarafjölskyldu. Dóttir
þeirra í raunveruleikanum hafnaði
því á sínum tíma að leika hlutverk
Louison. Mér fannst sterkur streng-
ur milli þessarar skrýtnu setningar í
verkinu og staðreyndarinnar að
dóttirin kærði sig ekki um að ganga
leikhúsinu á hönd eins og foreldr-
arnir.“
Þá vildi svo til að Nauzyciel rakst
á leikritið The Silence of Molière eft-
ir Giovanni Macchia, þar sem þetta
er útskýrt. „Molière vissi að hann
ætti ekki langt eftir og að þetta yrði
síðasta verkið hans. Þess vegna var
honum í mun að Madeleine dóttir
hans tæki þátt í sýningunni með því
að leika hlutverk Louison, og vera
með honum á sviðinu í síðasta verki
hans. En, – hún sagði nei. Líf hennar
varð mjög sérstakt; – ekki slæmt, en
hún glímdi alla tíð við sektarkennd
og var sakbitin yfir því að hafa ekki
orðið við þessari bón dauðvona föður
síns,“ segir Nauzyciel.
Sýningin hans á þessu verki hlaut
frábærar viðtökur í Frakklandi þeg-
ar hún var frumsýnd þar árið 1999.
Síðan þá hefur Molière í þessari
gerð flakkað um heiminn og síðast í
Rússlandi.
Brynhildur Guðjónsdóttir leikur
hlutverk dóttur Molières, en í anda
sögunnar hefur Nauzyciel fengið
fullorðinn föður sinn til að stíga á fjöl
í fyrsta sinn í litlu hlutverki.
Ímyndunarveikin eftir Molière sýnd í nýstárlegri fransk-íslenskri uppfærslu í Þjóðleikhúsinu
Fann fjölskyldu-
drama í tilgangs-
lausa gríninu
Morgunblaðið/RAX
Fjölskyldutengsl Í anda Molières bað Arthur Nauzyciel föður sinn að leika
í verkinu. Faðirinn sagði: já. Dóttir Molières sagði hins vegar: nei.
Í HNOTSKURN
» Stór yfirlitssýning á verkumÓlafs Elíassonar verður opn-
uð í Nýlistasafninu í San Franc-
isco 8. september og stendur til
loka febrúar 2008.
» Sýningin ber heitið Take your time: Olafur Eliasson.
» Þar verða sýnd verk Ólafsfrá 1993 til dagsins í dag.
» » Þetta er stærsta kynning áverkum Ólafs í Ameríku
hingað til.
» Eftir sýninguna í San Franc-isco fer sýningin á túr um
Bandaríkin og víðar um heiminn.
» Í frétt frá Nýlistasafninu íSan Francisco er Ólafur
sagður vera einn af áhrifamestu
og þekktustu listamönnum sinn-
ar kynslóðar.
» Í tilefni af Take your time:Olafur Eliasson verður gefin
út 272 blaðsíðna sýningarskrá
þar sem mun kenna margra
grasa um listamanninn.
www.sfmoma.org
♦♦♦