Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 18

Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI AUSTURLAND Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Eskifjörður | Talsverðar umræður hafa spunnist um málefni innflytj- enda á Austurlandi undanfarið, í kjölfar þess fjölda útlendinga sem býr og starfar í fjórðungnum. Rúmlega 25% íbúa Austurlands nú eru útlendingar, en voru um 3% ár- ið 2001 skv. tölum Hagstofu. Sr. Davíð Baldursson, prófastur Múlaprófastsdæmis og sóknar- prestur á Eskifirði, segir kirkjuna hafa unnið mikið starf með útlend- ingum í Fjarðabyggð, ekki hvað síst í kringum álversframkvæmd- ina þar sem starfa nú um 1.900 manns og 70% þeirra Pólverjar. „Þjóðkirkjan á Austurlandi hef- ur lagt sitt af mörkum til að að- stoða erlenda innflytjendur í fjórð- ungnum,“ segir sr. Davíð. „Ráðinn var héraðsprestur með búsetu á Reyðarfirði, sr. Hólmgrímur Elís Bragason, sem hefur haft það sem stærstan hluta af sínu starfi að sinna þessu samfélagi og þá sér- staklega því pólska, með miklu samstarfi við andlegan leiðtoga þeirra, Slawek Gorski. Við byrjuð- um á því að vera með pólskar mess- ur sem síðar þróaðist yfir í að við lánum kirkjuna á Eskifirði fyrir um 300 manna messur hvern ein- asta sunnudag. Þetta samstarf hef- ur verið til góðs, dregið úr spennu og núningi við samfélagið og fólk hefur náð að skjóta nokkrum rót- um og fundið fast land undir fótum. Þá eru haldnar reglulegar guðs- þjónustur á Reyðarfirði af héraðs- presti fyrir enskumælandi sam- félagið, hann hefur þjónustað það með reglubundnum hætti og enn- fremur komið að sálusorgun starfsmanna Alcoa og Bechtel. Þetta er búið að vera mjög merki- legt starf og hefur mikla vigt og þýðingu fyrir velgengni Fjarðaáls- verkefnisins og hag þess fólks sem við það hefur starfað. Mér finnst kirkjustarfið vera rós í hnappagat safnaðanna, sóknanna og sam- félagsins hér.“ Sr. Davíð segir bæði Bechtel, sem byggir álverið á Reyðarfirði og Alcoa Fjarðaál, eiganda þess, hafa haft ríkan skilning á mikil- vægi þjónustu kirkjunnar og metið hana mikils og stutt. Hefur Bechtel m.a. útvegað rútur til og frá kirkju og séð til þess að tímasetningum sé þannig háttað að messuhald gangi vel upp hjá starfsmönnum. Kirkjan er heimavöllur „Ég hef sagt að slys mættu ekki verða í samfélaginu vegna fram- kvæmdanna, fremur en við þær sjálfar,“ heldur sr. Davíð áfram. „Þetta hefur verið útgangspunktur og við höfum sett ótrúlega mikla vinnu í þetta, bæði að fjármagna dæmið og svo að leiða þá vinnu í þessu nána samstarfi. Við höfum einbeitt okkur að fyrirbyggjandi ráðstöfunum og reynt að skapa þessu fólki sem er mjög trúað og trúrækið og hefur verið rifið upp með rótum, fast land undir fótum. Þegar það safnast saman í kirkju og fær svalað trúarþörf sinni er það komið heim. Ef þetta hefur ekki vigt í starfi með innflytjend- um, hvað þá?“ Kaþólska kirkjan hefur einnig fengið afnot af kirkjum á Mið- Austurlandi til messuhalds fyrir sitt fólk og nú stendur til að stofna innan tíðar kaþólskt munkaklaust- ur og kirkju í landi Kollaleyru í Reyðarfirði. Dregið úr spennu og núningi við samfélagið með kirkjustarfi Ekki spurt um trúarafstöðu þegar leitað er til kirkjunnar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Haldreipi Trúarstarf virðist hjálpa útlendingunum í framandi sam- félagi. Kaþólsk nunna í hópi erlendra verkamanna á Austurlandi. Í HNOTSKURN »Sr. Davíð Baldursson, pró-fastur á Eskifirði, hefur ásamt kirkjustjórninni, sr. Hólmgrími Elísi Bragasyni, Al- coa Fjarðaáli og Bectel skipu- lagt og haldið utan um kirkju- lega þjónustu við þá erlendu starfsmenn sem vinna að ál- versframkvæmdinni á Reyð- arfirði. »Um 300 manns mæta hvernsunnudag í pólska messu á Reyðarfirði og eins eru haldn- ar messur fyrir enska sam- félagið. »Sálusorgun vegna m.a.hjónaskilnaða, erfiðleika í sambúð, vegna barna og ým- issa áfalla er töluverð. Seyðisfjörður | Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) hefur samþykkt stuðn- ingsyfirlýsingu við Vestfirðinga og lands- byggðina þar sem segir að SSA styðji heils hugar þær áherslur sem sveitarstjórn- armenn á Vestfjörðum setja fram í við- leitni sinni til að snúa við þeirri óheillaþró- un í byggða- og atvinnumálum sem átt hefur sér stað í landshlutanum. Segir SSA að veik byggð á Vestfjörðum veiki landsbyggðina og um leið landið allt. „Tökum höndum saman og köllum fólk- ið okkar, atvinnulífið og stjórnvöld til verka við að snúa vörn í sókn á lands- byggðinni“ segir í stuðningsyfirlýsingu Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem send hefur verið Vestfjarðanefndinni. Standa við bakið á Vestfirðingum Kárahnjúkavirkjun | Bilun hefur komið fram í þrepastillum spenna Fljótsdalslína 3 og 4 sem flytja eiga rafmagn frá Kárahnjúkavirkjun til nýs álvers á Reyð- arfirði. Spennarnir eru hluti af tengivirki Landsnets í Fljótsdal og segir Þórður Guð- mundsson, forstjóri Landsnets, að þrátt fyrir bilunina sé hægt að hafa spennana í rekstri með takmörk- unum á rekstrarsviði þrepastillanna. Er annar spennanna í gangi og hefur verið undanfarið. Um það hvort bilunin tefji raf- orkuafhendingu til Alcoa Fjarðaáls segir Þórður ekki sjálfgefið að svo verði, beðið sé staðfestingar á því hvenær sérfræð- ingar komi til landsins með varahluti í spennana. Bilunin í spennunum tveimur er rakin til framleiðslugalla. Vandræði með spenna Fljóts- dalslína 3 og 4 Fljótsdalslínur í Reyðarfirði. Ljósmynd/Jóhann Ólafur Styrkur Einstaklingar og fulltrúar félagasamtaka sem fengu styrk. SPARISJÓÐUR Svarfdæla hefur ákveðið að styrkja Hákarlasafnið í Hrísey um sjö milljónir króna, sem væntanlega mun duga aðstandend- um til að ljúka þessu mikla verkefni sem staðið hefur um 10 ára skeið. Þá var á aðalfundi sjóðsins formlega samþykkt sú tillaga stjórnar að færa íbúum Dalvíkurbyggðar menningar- hús að gjöf. Áætlaður kostnaður við menning- arhúsið er 200 milljónir króna eins og áður hefur komið fram og hefjast framkvæmdir í sumar. Að aðalfund- inum loknum undirrituðu samkomu- lag um byggingu hússins Friðrik Friðriksson sparisjóðsstjóri og Svan- fríður Jónasdóttir bæjarstjóri að við- stöddu fjölmenni við athöfn í Dalvík- urkirkju. Í ávarpi sem Svanfríður Jónasdótt- ir hélt við þetta tækifæri sagði hún að stofnfjáraðilar Sparisjóðs Svarfdæla hefðu með ákvörðun sinni á föstu- dagskvöld skrifað merkan kafla í sög- unni, bæði fyrir Dalvíkurbyggð og á landsvísu. „Það er bæði með stolti og mikilli ánægju sem ég fyrir hönd íbúa Dalvíkurbyggðar staðfesti sam- komulag um byggingu menningar- húss í Dalvíkurbyggð; menningar- húss sem sparisjóðurinn ætlar að gefa fólkinu hér í byggðarlaginu,“ sagði bæjarstjórinn og sagði ekki annað hægt en vera stoltur „þegar maður er svo heppinn að búa í sveit- arfélagi þar sem slík lánastofnun starfar, lánastofnunin sem setur samfélagsskyldur fyrirtækja í alger- lega nýtt samhengi í íslensku sam- félagi. Það finnum við öll vel þegar við heyrum hvernig fólkið og fjölmiðl- arnir í landinu fjalla um þennan gern- ing,“ sagði Svanfríður. Í máli Friðriks Friðrikssonar sparisjóðsstjóra á aðalfundinum kom fram að viðskiptavinum sjóðsins hefði fjölgað nokkuð í kjölfar tilkynn- ingar um menningarhúsbygginguna. Bæði væri um að ræða einstaklinga og fyrirtæki víðs vegar að sem með beinum hætti vísuðu til þessa fram- taks sparisjóðsins. „Þetta sýnir glögglega hversu mikla athygli ákvörðunin hefur fengið á landsvísu og hvarvetna höfum við mætt velvilja og ánægju fólks. Mest er þó ánægja okkar sem að sparisjóðnum stöndum að hann skuli hafa þann kraft og styrk að skila þessu til fólksins,“ sagði Friðrik. Að vanda var úthlutað styrkjum úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarf- dæla og var alls veittur 21 styrkur, eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Upp- hæðin var auk þess hærri en áður, eða tæplega fimm milljónir króna sem skiptist á milli ýmissa einstak- linga og félagasamtaka. Þá voru einnig tilkynntar tvær sér- stakar styrkveitingar sem stjórn Sparisjóðs Svarfdæla tók ákvörðun um í ljósi mjög góðrar afkomu á síð- asta ári; áður er nefndur styrkur til Hákarlasafnsins en einnig var úthlut- að þremur milljónum króna til sókn- arnefndar Urðakirkju í Svarfaðardal til endurnýjunar á gólfi kirkjunnar. Sjö milljónir króna til Hákarlasafnsins í Hrísey Í HNOTSKURN »Sparisjóður Svarfdælahagnaðist um rúmar 900 milljónir króna í fyrra. »Viðskiptavinum hefurfjölgað síðustu vikur, eftir að tilkynnt var að Sparisjóð- urinn hygðist gefa íbúum Dal- víkurbyggðar menningarhús. VARÐSTOFA Neyðarlínunnar, 112, var opnuð á Akureyri fyrir helgi. Þar verða þrír neyðarverðir við störf. 112 hefur hingað til haft varastöð í húsnæði lögreglunnar á Akureyri en nýja varðstofan verður í fullum rekstri samhliða varðstof- unni í Björgunarmiðstöðinni Skóg- arhlíð í Reykjavík. Að sögn Dagnýjar Halldórs- dóttur aðstoðarframkvæmdastjóra er markmiðið að vera með um fimm neyðarverði á Akureyri og verða þeir hrein viðbót við núverandi fjölda starfsmanna. Nú eru fimm neyðarverðir á vakt í Reykjavík að degi til og á álags- tímum en þeim fjölgar í sjö þegar varðstofan á Akureyri er full- mönnuð. „Varðstofan á Akureyri er tengd öllum okkar fjarskipta- og upplýs- ingakerfum og starfar með sama hætti og varðstofan fyrir sunnan. Það er mikið öryggi í því fyrir okk- ur að hafa vel mannaða stöð á Ak- ureyri ef eitthvað skyldi fara úr- skeiðis hjá okkur í Reykjavík. Við lítum einnig á það sem mikinn kost að hafa fólk á vakt með góða þekk- ingu á staðháttum og samfélaginu á Akureyri og í nálægum byggðum,“ segir Dagný. Nú starfa 25 neyðarverðir þjá 112. Þeir manna varðstofuna á Ak- ureyri og í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð allan sólarhringinn, ár- ið um kring, og afgreiða um 190 þúsund neyðarsímtöl á ári hverju. Í langflestum tilvikum er óskað eftir aðstoð lögreglu, sjúkraflutninga- manna og slökkviliða. Ljósmynd/Kristján Alltaf til reiðu Varðstofa Neyðarlínunnar á Akureyri var opnuð fyrir helgi. Samskonar varð- stofa og í borginni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.