Morgunblaðið - 20.03.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.03.2007, Qupperneq 20
|þriðjudagur|20. 3. 2007| mbl.is daglegtlíf Gregory Cattaneo er afreks- maður í sundi, ástríðukokkur, kafari og heltekinn af víkinga- tímanum. » 22 daglegt Um 100 starfsmenn Póstsins stefna ásamt mökum á tind Hvannadalshnjúks og undirbúa þeir sig nú af fullum krafti. » 25 hreyfing Það er ekki nóg að fullorðna fólk- ið flokki sorp og sniðgangi eitur- efni – því krakkana má líka virkja í umhverfismálunum. » 24 vistvænt Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Spurðu ekki hver sé uppá-haldsleikmaðurinn í NBA,spurðu frekar hver séuppáhaldsleikmaðurinn í WNBA. Og auðvitað er það full- komlega rökrétt og réttmæt ábend- ing hjá hinum kraftmiklu körfu- boltastelpum í 9. flokki Fjölnis í Grafarholti. Blaðakonunni hafði bara ekki hugkvæmst að til væri WNBA, úrvalsdeild kvenna í bandaríska körfuboltanum. Stelp- urnar eru samt skilningsríkar, eins og þær hafi oft lent í þessu áður, að það sé sjálfsagt að ætla að þær eigi sér karlfyrirmyndir í boltanum. „Það er aldrei sýnt frá WNBA í sjónvarpinu og það er ekki mikið fjallað um kvennakörfubolta í fjöl- miðlum,“ segja þær nánast í kór. Vonandi verða þær hluti af kyn- slóðinni sem breytir vogarskálun- um þar í átt til meira jafnvægis. „Ég byrjaði að æfa þegar ég var 8 ára. Pabbi, Tómas Holton, var í körfubolta og þjálfar líka. Ég mætti fyrst á æfingar með strákun- um sem pabbi var að þjálfa í Nor- egi,“ segir Bergþóra Tómasdóttir, 12 ára. „Þegar við fluttum heim þá byrjaði ég að æfa með jafnöldrum mínum í Fjölni.“ Ekki bara fyrir hávaxna Telma María Jónsdóttir var 10 ára þegar hún fór á sína fyrstu æf- ingu og féll fyrir leiknum og rauða, stóra boltanum. „Körfubolti er bara svo skemmtilegur,“ segir Telma og brosir. ,,Maður þarf ekk- ert endilega að vera hávaxinn eins og margir halda, bara að hafa áhuga og gaman af leiknum. Maður eignast líka góðar vinkonur.“ Stöllurnar renna sér í röðina með hinum stelpunum sem eru að þjálfa skotfimina undir styrkri stjórn. Það heyrast ýmis hljóð úr barka þeirra, eftir því hvar rauði boltinn lendir; stundum dansar hann á körfuhringnum en fer ekki ofan í, stundum skellur hann á körfuboltaspjaldinu en fer ekki of- an í. En þegar boltinn smýgur í gegnum körfuna er eins og hríslist um þær tilfinningin – þessi óskor- aða tilfinning – að hafa náð ár- angri. Í maí ætla stelpurnar í alþjóð- legar æfingabúðir til Serbíu. „Við munum æfa þrisvar á dag,“ segir Telma María og gefur vinkonu sinni orðið. „Ég hef einu sinni farið í svona búðir, á Ítalíu, en hinar stelpurnar eru að fara í fyrsta sinn. Það er rosalega gaman, að hitta all- ar þessar stelpur frá mörgum, mis- munandi löndum sem allar spila körfubolta.“ Morgunblaðið/Ómar Fimir fingur Bergþóra sýnir hér góð tilþrif með boltann. Morgunblaðið/Ómar Efnilegar Telma María og Bergþóra eru ásamt 9. flokki Fjölnis í körfubolta á leið í æfingabúðir til Serbíu. Kraftmiklar í körfunni „Það er aldrei sýnt frá WNBA í sjónvarp- inu og það er ekki mikið fjallað um kvennakörfubolta í fjölmiðlum,“ segja þær nánast í kór. www.wnba.com STÚLKUBÖRN, sem eru í yfir- vigt í kringum þriggja ára aldur- inn, eiga það á hættu að byrja á gelgjuskeiðinu allt að níu ára göm- ul, samkvæmt bandarískri nýlegri rannsókn, sem birtist í tímariti barnalækna. Rannsóknin leiddi ennfremur í ljós að stúlkur, sem komast á kyn- þroskaskeiðið mjög snemma eða fyrir tíu ára aldurinn, byrja að drekka áfengi og lifa kynlífi fyrr en aðrar jafnöldrur, sem ekki kom- ast á gelgjuna fyrr en eðlilegt má telja. Breskir sérfræðingar telja að mikið böl geti fylgt snemmtækum kynþroska auk þess sem stúlkur þessar eru í meiri hættu en aðrar á að fá vissar tegundir af krabba- meini, þar með talinn brjósta- krabba. Eðlilegur kynþroskaaldur stúlkna er venjulega talinn vera „í lagi“ eftir tíu ára aldur, en Dr. Joyce Lee og samstarfsmenn hennar við Michigan-háskóla kom- ust að því að margar stúlkur, sem höfðu átt við yfirvigt að stríða í barnæsku, komust á kynþroska- aldur við níu ára aldur. Fylgst var með 354 stúlkum frá þriggja ára aldri og upp að tólf ára aldri og um helmingur þeirra, stúlkur í yf- irvigt í æsku, sýndu kynþroska- merki á níunda afmælisdeginum. Niðurstöðurnar eru í anda rann- sóknar, sem gerð var við Bristol- háskóla árið 2000, en þar kom fram að ein af hverjum sex stúlk- um komst á kynþroskaskeiðið fyrir átta ára aldur, að meðaltali átján mánuðum fyrr en mæðurnar. Ein kenningin er sú að kyn- þroskinn sé drifinn áfram með hormóninu leptín, sem verður til fyrir tilstuðlan fituvefja. Nýja rannsóknin styður þá tilgátu að yf- irvigt í barnæsku leiði til snemm- tæks kynþroska frekar en að snemmtækur kynþroski leiði til aukins fitumassa. Gelgjan leggst fyrr á þéttvaxin stúlkubörn AP Vinkonur Stúlkur sem komast á kynþroskaskeiðið fyrir tíu ára aldur byrja að drekka áfengi og lifa kynlífi fyrr en jafnöldrur þeirra. börn HANN virðist ekkert voða- lega ánægður með fyrirsætu- starfið kötturinn Goblin sem hér trítlar niður sýningarpall- linn í bleikum klæðnaði á Petco- vortískusýningunni í San Diego í Bandaríkjunum fyrir skemmstu. Petco er bandarísk gæludýraversl- anakeðja og hafa gæludýratískusýningar á borð við þá sem kisan Goblin tók þátt verið í haldnar í rúmlega 800 verslunum þeirra víðs- vegar um Bandaríkin undanfarið. Reuters Sætur í bleiku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.