Morgunblaðið - 20.03.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 20.03.2007, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra veitist að persónu og starfsheiðri undirritaðs í grein, sem hann ritar í Morgunblaðið í dag, 15. mars. Ráðherrann svarar örfáum af all- mörgum faglegum at- hugasemdum í Morg- unblaðsgrein frá 12. mars í tilefni af sam- gönguáætlun til 2018, sem nú liggur fyrir Al- þingi. Áætlun þessi er löngu tilbúin en svo seint fram komin að ekkert ráðrúm er til að ræða hana með fagleg- um og vönduðum hætti eins og vera ber, hvorki innan þings né utan. Ráðherrann af- greiðir margar vel rök- studdar athugasemdir sem „talnaleikfimi“ og öðrum sinnir hann alls ekki. Hann gerir auk þess gys að því aug- ljósa orsakasamhengi, sem borgarbúar finna óþyrmilega fyrir á hverjum degi: að flug- völlurinn í Vatnsmýri leiðir af sér miklar hörmungar í gegnum splundraða byggð, 700 bíla á hverja þúsund íbúa, mikinn akstur, mikinn kostnað, mikla tímasóun og mikla vanrækslu á því sem máli skiptir í daglegu borgarlífi. Samgönguráðherrar koma og fara. Á lýðveldistímanum hafa þeir komið úr röðum landsbyggðarþing- manna og í helmingi tilvika hafa þeir samtímis gegnt stöðu landbún- aðarráðherra. Í þessa 6 áratugi og reyndar lengur voru samgöngu- ráðherrar einskonar fram- kvæmdastjórar ríkisreknu byggða- stefnunnar, sem þrifist hefur í skugga mikils misvæg- is atkvæða í kosningum til Alþingis. Eftir kjördæma- breytingu fyrir kosn- ingarnar 2003, þegar kjördæmin þrjú á höf- uðborgarsvæðinu fengu loks meiri hluta þingmanna, var skipun í lykilnefndir þingsins ekki leiðrétt. Þar er enn rangt gefið því í samgöngunefnd eru 6 af 9 nefndarmönnum úr landsbyggðarkjör- dæmunum þremur og í fjárlaganefnd eru þeir 7 af 11. Fimm þreyttir flokkar á þinginu bera ábyrgðina og ekki er von á úrbótum svo lengi sem kjósendur á höfurborgarsvæðinu gera engar kröfur til fulltrúa sinna. Ólafur Thors þáver- andi ráðherra sam- göngumála bar ráð- herraábyrgð á því að herflugvöllurinn í Vatnsmýri var gerður að borgaralegum flug- velli 6. júlí 1946. Segja má að Ólafur hafi þá ekki getað séð fyrir afleiðing- arnar en frá þeim tíma varð Reykja- víkurflugvöllur hornsteinn byggða- stefnunnar illræmdu, sem nú hefur nánast gert að engu alla möguleika á sjálfbærri þróun bæði á landsbyggð- inni og í höfuðborginni. Að öðru leyti átti Ólafur Thors nokkuð farsælan stjórnmálaferil. Og e.t.v. má segja eitthvað svipað um núverandi samgönguráðherra. En eitt er þó víst, Sturlu Böðv- arssyni ber að axla fulla ráðherra- ábyrgð á gegndarlausri sóun fjár- muna í byggingu nýs flugvallar í Vatnsmýri 1999-2002 fyrir 2 millj- arða kr., í byggingu nýrrar Hring- brautar 2004 fyrir 1,5 milljarða kr. og í fyrirhugaða byggingu flug- stöðvar fyrir 3 milljarða kr. Ráð- herraábyrgð hans nær einnig til þeirrar miklu sóunar verðmæts byggingarlands og ómetanlegra sóknarfæra borgarsamfélagsins í kjölfar ofangreindra framkvæmda. Í Vatnsmýri var byggður nýr flug- völlur að óþörfu og til þess eins að segja mætti eftir á að nú þyrfti lang- an afskriftatíma á kosnaðarsamri framkvæmd. Gamli herflugvöllurinn, sem var verkfræðileg snilld þess tíma og flaut ofan á mýrinni, þjónaði án teljandi viðhalds í 60 ár og stóð m.a. undir millilandaflugi í meira en 20 ár. Honum var mokað burt, mýr- arjarðvegur allt að 5 m dýpt undir honum fjarlægður niður á fast berg, fyllt upp með hundruðum þúsunda rúmmetra af sandi, grús og grjóti og malbikað yfir. Allar aðflugsstefnur að Vatnsmýri voru löngu niðurnjörv- aðar og því var nýi völlurinn byggð- ur á nákvæmlega sama stað og sá gamli. Samkvæmt tilboði, sem Sam- tök um betri byggð öfluðu á verk- takamarkaði árið 1999 mátti ná við- unandi árangri fyrir um 150 milljónir. Færsla Hringbrautar var sann- arlega til óþurftar og hefur leitt til versnandi umferðaástands. Tvenn ljósagatnamót á Snorrabraut og Bú- staðavegi eru t.d. fráleit, um gömlu Hringbrautina er þungur umferð- arstraumur, aðkoma sjúkrabíla að LSH er vafasöm og nýtingarmögu- leikar á hinni nýju sjúkrahússlóð vægast sagt takmarkaðir. Nýr þriggja akreina kafli Hringbraut- arinnar hefur hraðahvetjandi áhrif, sem gætir langt út fyrir svæðið til austurs og vesturs. Fyrirhuguð Samgöngumiðstöð í Vatnsmýri ber vitni ólýsanlegri sóuna og er sannarlega óþörf. Þungamiðja almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu er allt annars staðar og þarfir sérleyfishafa og far- þega þeirra verða best leystar nærri jaðri byggðarinnar, austast í borg- inni. Því er um hreina flugstöð að ræða fyrir innanlandsflug, sem dregst saman þegar framkvæmdum lýkur á Austurlandi og vegakerfið stórbatnar, innanlandsflug fyrir fá- mennan hóp stórnotenda, fyrir fólk, sem ekki greiðir miðana sína sjálft. Enn um samgöngur í höfuðborginni Örn Sigurðsson svarar grein umhverfisráðherra » Samgöngu-ráðherrann gerir gys að augljósu or- sakasamhengi milli Vatnsmýr- arflugvallar, bílasamfélags og mikilla hörm- unga í splundr- aðri byggð. Örn Sigurðsson Höfundur er arkitekt. SJALDAN hef ég á mínum þingferli orðið vitni að ómerkilegri vinnubrögðum en hjá Jóni Sig- urðssyni, formanni Framsókn- arflokksins, og reyndar einnig Geir Haarde, formanni Sjálfstæð- isflokksins, í stjórnarskrármálinu. Þáttur Jóns og Geirs Þegar formaður Framsókn- arflokksins uppgötvaði að formað- ur Sjálfstæðisflokksins hafði plat- að hann til fylgis við stjórnarskrárákvæði sem m.a. festi í sessi í stjórnarskránni nú- verandi kvótakerfi þá kennir hann stjórn- arandstöðunni um allt saman. Það sé á hennar ábyrgð að málið gekk ekki fram á Alþingi. Að auki var Jón svo ómerkilegur að hann brigslaði stjórnarandstöðunni um að hafa tekið þingstörfin í gíslingu vegna málsins, sem er algjör fásinna og hreint ótrúlega bíræf- in fullyrðing. Sann- leikur málsins er sá að hver sérfræðing- urinn á fætur öðrum, sem kallaðir voru fyr- ir þingnefndina, gerðu alvarlegar at- hugasemdir við frum- varpið eins og for- menn stjórnarflokkanna höfðu lagt það fyrir þingið. Af hálfu stjórnarflokkanna var ekki vilji til að koma til móts við sjónarmið sérfræðinganna. Þetta stóra mál var aðeins 2 eða 3 daga í meðferð í þingnefnd og þar urðu lyktirnar að sjálfstæðismenn í stjórnarskrár- nefnd þingsins sögðu að málið yrði ekki afgreitt á þinginu. Þegar sjálfstæðismenn höfðu kveðið upp úr um það sátu framsóknarmenn- irnir í nefndinni sneyptir eftir og þögðu þunnu hljóði. Stjórnarand- staðan hafði aftur á móti hvatt til þess að stjórnarskrárákvæðinu yrði breytt, tekið yrði mið af sjón- armiðum stjórnarskrársérfræð- inga sem mættu fyrir nefndina og þingið tæki þann tíma sem þyrfti til þess. Þannig vildi stjórnarand- staðan tryggja að ákvæðið festi ekki í sessi núverandi kvótakerfi og yrði sífellt túlkunarefni fyrir dómstólum, sem beinlínis blasti við yrði lögfest stjórnarskrártillaga Geirs og Jóns. Þáttur stjórnarandstöðunnar Hlutur stjórnarandstöðunnar í þessu máli liggur alveg ljós fyrir. Stjórnarandstaðan skrifaði bréf til ríkisstjórnarinnar um stuðning við að koma inn í stjórnarskrána ákvæði sem raunveru- lega tryggði sameign þjóðarinnar yfir auð- lindunum. Það er því sérlega ósvífið og ómerkilegt af formönnum stjórn- arflokkanna, Jóni og Geir, að halda því fram að stjórnarand- staðan hafi gengið á bak orða sinna og beri ábyrgð á niðurstöð- unni. Það sem stjórn- arandstaðan vildi ekki var að taka þátt í því sjónarspili að lögfesta í stjórnarskrána ákvæði sem raunveru- leg hætta var á að festi í sessi í stjórn- arskránni núverandi kvótakerfi. Stjórn- arandstaðan bauð aft- ur á móti upp á sam- starf um ákvæði sem hefði raunverulega þýðingu fyrir þjóð- arheildina – ákvæði sem tryggði almanna- hagsmuni en ekki sér- hagsmuni. Það vildu stjórnarflokkarnir ekki og slitu sjálfir vinnunni í nefndinni og til- kynntu að málið yrði ekki afgreitt á þinginu. Sviðsett sjónarspil Það er engu líkara en sá prúði Jón, sem mætti til þings í haust eftir að hafa tekið við þrotabúi Halldórs Ásgrímssonar, hafi um- hverfst eftir að samstarfsflokk- urinn náði að niðurlægja fram- sóknarmenn og beygja í duftið í þessu máli, sem átti að vera stóra útspil þeirra til að endurheimta fylgið. Það sem þó er verst í þessu máli er hve stjórnarflokkarnir hafa, bæði í vinnubrögðum og að efni til, umgengist stjórnarskrána af lítilli virðingu. Það sem einnig stendur upp úr í þessum farsa stjórnarflokkanna er að íhaldið hefur afhjúpað að það vill ekki festa í stjórnarskrána ákvæði um að auðlindirnar séu sameign þjóð- arinnar. Þeir eru talsmenn sér- hagsmuna en ekki almannahags- muna. Þetta var sviðsett sjónarspil af þeirra hálfu til að framsókn- armenn slitu ekki stjórnarsam- starfinu. Eftir liggja framsókn- armenn sárir og hafa nú ekkert til málanna að leggja nema að kenna öðrum um eigin ófarir. Þjóðin hef- ur orðið vitni að því að þeir gal- vöskustu þeirra sem hótuðu stjórnarslitum næði málið ekki fram að ganga meintu auðvitað ekkert með því. Framsóknarmenn plötuðu þjóðina í þessu máli eins og svo mörgum öðrum. Það sem átti að vera sigurför framsókn- armanna í aðdraganda kosninga breyttist í sneypuför, sem lengi verður í minnum höfð. Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræð- ingur hitti einmitt naglann á höf- uðið þegar hann sagði í fjölmiðlum fyrir helgi að málið allt lyktaði af panik og að lyktir málsins væru ekki á ábyrgð stjórnarandstöð- unnar heldur stjórnarflokkanna. Skoðun Gunnars var sú að það eigi því að beina því að Framsókn- arflokknum og Sjálfstæð- isflokknum séu menn ósáttir við niðurstöðuna. Það er í hnotskurn það rétta í málinu. Sneypuför Jóns Jóhanna Sigurðardóttir skrifar um formenn stjórnarflokkanna » Það er þvísérlega ósvífið og ómerkilegt af Jóni og Geir að halda því fram að stjórnarand- staðan hafi gengið á bak orða sinna. Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er alþingismaður. ENN einu sinni ríður alþing- ismönnum á að yfirgefa vinnu- stað sinn og kasta til höndunum á harðaspretti við mikilvæga löggjöf landsins. Ég spyr; hvað liggur á, af hverju verður Al- þingi að ljúka einmitt nú um miðjan mars? Það hefur verið talað í allan vetur um stutt kosn- ingaþing eins og það sé eitthvert náttúrulögmál. Stór og smá mál hafa hlaðist upp, fastanefndir Alþingis funda ótt og títt síðustu vikuna, reynt er að miðla málum í miklum flýti og afraksturinn verður eftir því. Talað er um að þingmenn verði að komast heim snemma vegna kosninganna 12. maí. En hafa menn tekið eftir því að bæði Samfylking og Sjálf- stæðisflokkur halda ekki sína landsfundi fyrr en um miðjan apríl? Eiginleg kosningabarátta hefst því ekki fyrr en að þeim loknum. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi taki sér betri tíma nú til að fara yfir mál, nálgist þau af meiri dýpt og yf- irvegun. Í raun er ekkert sem kemur í veg fyrir að Alþingi verði starfandi fram að páskum, nema að vera skyldi áhugaleysi þingmannanna sjálfra við þá vinnu sem þeir hafa kosið að bjóða fram krafta sína til. En það skal heldur ekki horft fram hjá því að Alþingi nýtir tíma sinn illa. Settar eru á lang- ar ræður lengdarinnar vegna, lesið er úr bókum og haldið úti málþófi. Allt endurtekna rausið og kjaftæðið er til þess fallið að draga stórlega úr afköstum og vönduðum vinnubrögðum lög- gjafans. Vinnulag Alþingis fer versnandi með hverju árinu, nánast engin lagafrumvörp koma frá þingnefndunum og stjórnarráðinu er uppálagt að hafa frumkvæði í löggjöf. Á meðan keppast þingmenn við að framleiða fyrirspurnir og þings- ályktunartillögur í sama flýt- inum og einkennir raunar öll störf Alþingismanna. Er nokkur furða að innan við þriðjungur landsmanna beri nú traust til Alþingis? Einar Sveinbjörnsson Eru þinglokin eitt af náttúrulögmálunum? Höfundur er aðstoðarmaður um- hverfisráðherra og skoðanir sem fram koma í greininni eru hans eigin. ÞRÁTT fyrir að lækkun mat- arverðs hafi fengið mikla um- fjöllun nú um síðustu mán- aðamót er það ekki svo að einungis matvæli hafi lækkað í verði. Lækkun á virðisauka- skatti hefur áhrif á mörgum öðrum sviðum sem leiðir til lækkunar kostnaðar hjá fjöl- skyldum og fyrirtækjum í land- inu. Lækkun verður á húshit- unarkostnaði landsmanna en hitaveita, rafmagn og olía til húshitunar sem fram til þessa hefur borið 14% virðisaukaskatt lækkar nú niður í 7%. Hið sama má segja um áskrift fjölmiðla en lækkun verður á áskrift- argjöldum RÚV, Stöðvar 2 og Sýnar auk þess sem áskrift lækkar á blöðum og tímaritum svo sem hjá Morgunblaðinu. Skattur af bókum lækkar einnig úr 14% í 7%. Til þess að koma til móts við sjónarmið tónlistar- manna sem réttilega hafa bent á að mikil samkeppni er milli bók- ar og tónlistar var einnig ákveð- ið að lækka virðisaukaskatt á geisladiskum og hljómplötum en sá skattur lækkar úr 24,5% og niður í 7%. Að lokum má nefna að skattheimta af vegamann- virkjum lækkar og því lækkar vegtollur í Hvalfjarðargöngin samhliða þessari aðgerð. Fyrr- nefndar breytingar, ásamt lækkun skatts á matvæli og lækkun tolla, leiðir til rúmlega 2% lækkunar á vísitölu neyslu- verðs en hækkanir á öðrum sviðum, svo sem á húsnæð- ismarkaði, draga að nokkru leyti úr þeim áhrifum. Skatta- lækkunin hefur því verulega víðtæk áhrif, ekki aðeins á mat- arinnkaupin, heldur gætir henn- ar víðar í þjóðlífinu. Árni M. Mathiesen Virðisaukaskattur lækkaður af fleiru en matvælum Höfundur er fjármálaráðherra. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.