Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 44
Ljósmynd/MAI Sigur Rós Matthías tók þessa mynd fyrir Morgunblaðið í fyrra þegar Sigur Rós lék í Hollywood Bowl. MATTHÍAS Árni Ingimarsson ljós- myndari fékk það spennandi verk- efni að taka myndir fyrir tímaritið Rolling Stone á dögunum. Óskaði tímaritið eftir því að hann myndaði nokkrar sveitir sem lékju á SXSW- hátíðinni í Austin Texas sem hófst síðasta miðvikudag og lauk á sunnudag en þar myndaði hann einnig fyrir Morgunblaðið. Matthías segir hátíðina hafa ver- ið „eins og Iceland Airwaves á ster- um,“ þar sem þúsundir hljómsveita stíga á svið. Aðdragandi þess að hann var ráðinn voru myndir sem hann tók af hafnfirsku hljómsveit- inni Jakobínurínu á SXSW- hátíðinni í fyrra. Einn af að- alskríbentum Rolling Stone sá hljómsveitina spila og hafði svo samband við 12 tóna sem bentu honum á Matthías sem var staddur þar fyrir Morgunblaðið. Myndirnar voru síðan birtar í Rolling Stone og eftir það var hann í sambandi við ljósmyndaritstjóra tímaritsins sem réð hann til að mynda ákveðnar hljómsveitir sem léku í ár á SXSW. Hann á að skila myndunum á mið- vikudaginn, en þá kemur end- anlega í ljós hvort myndirnar verða notaðar eða ekki. „Þetta eru ekki beint stórir peningar, en eitthvað smá. Bara það að fá myndir birtar í Rolling Stone er ágætis borgun út af fyrir sig,“ segir Matthías í lokin spurður um þóknun fyrir mynd- irnar. Matthías Árni mynd- ar fyrir Rolling Stone Ljósmyndarinn Matthías Árni stundar nám í blaðaljósmyndun í Los Angel- es. Hann myndaði hljómsveitir á SXSW fyrir tímaritið Rolling Stone Þetta er alvarleg mynd um það hvernig þessir krakkar döguðu uppi án þess að nokkur hefði áhuga á þeim … 48 » reykjavíkreykjavík Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is „ÚTVARPIÐ er mjög stór partur af lífi fólks – stærri en fólk gerir sér al- mennt grein fyrir,“ segir Búi Bendt- sen, annar helmingur Capone og dag- skrárstjóri Reykjavík FM 101,5 sem fór formlega í loftið í gær. Tímamóta- dagur í íslensku útvarpi segir Búi og Andri Freyr Viðarsson, hinn helm- ingurinn, tekur undir það. Á Reykja- vík FM munu Capone-bræður halda áfram þar sem frá var horfið þegar útvarpsstöðin X-FM, þar sem þeir störfuðu, var seld og lögð niður. Það var sömuleiðis dagur sem þeir munu seint gleyma. „Það var hringt í okkur á gaml- ársdaginn síðasta og okkur sagt að mæta niður á stöð. Við mættum niður eftir í þeirri trú að við værum að ná í rakettupakka en fengum þá í leiðinni uppsagnarbréf,“ rifjar Andri upp. Nokkrum dögum eftir að X-FM var lokað nálgaðist Búa ónefndur maður og spurði hvort hann vildi ekki vera með í stofna nýja útvarpsstöð. Hann tók því boði og hófst þá und- irbúningur að stofnun Reykjavík FM. Það eru eflaust fjölmargir sem fagna endurkomu Capone í útvarpið. Þeir eru í það minnsta kátir með að vera komnir aftur en að þeirra mati hefur íslensku tónlistarútvarpi verið í ýmsu áfátt á undanförnum misserum; það sinni hreinlega ekki sínu tilætl- aða hlutverki. Heimskulegur bransi Þetta er sumsé í annað sinn sem þeir félagar fara af stað með nýja út- varpsstöð en þeir tóku þátt í að setja á laggirnar X-FM fyrir rúmum tveimur árum. Á sama tíma og Búi og Andri eru ánægðir með að vera komnir aftur í loftið má skynja tals- verðan pirring frá þeim út í útvarps- markaðinn. „Þetta er svolítið heimskulegur bransi,“ segir Andri blátt áfram. Búi tekur undir. „Umhverfið í þessum bransa er svolítið brenglað. Það eru alltaf einhverjir stórir aðilar með heftið á lofti að kaupa upp stöðvar sem stríða þeim of mikið. Það er ekki það að við stöndum okkur eitthvað illa heldur er samkeppnisumhverfið hálfasnalegt.“ „Þetta er fáránlegt umhverfi en í leiðinni er mjög spennandi og skemmtilegt að takast á við þetta verkefni,“ segir Búi og er skyndilega orðinn töluvert jákvæðari. „Það tekur á taugarnar og það er ágætt – maður hefur gott af því.“ Gáfaðri hlustendur „Ég held að hlustendahópurinn verði klárari en áður hjá okkur,“ seg- ir Andri. „Miklu gáfaðra fólk kemur til með að hlusta á þessa stöð. Mús- íkin verður líka betri – verður meira svona „thinking man’s music“.“ Það er allavega greinilegt að Ca- pone-bræður hlakka til að móta nýju útvarpsstöðina og sinna þeirri þörf sem Búi vill meina að hafi skapast í ís- lensku útvarpi. „Það er ekkert verið að sinna tón- listinni og við teljum okkur allavega hafa vit og rænu á því að skila henni almennilega til hlustenda.“ „Útvarp á Íslandi er viðbjóður – þar til í gær,“ segir Andri og tæmir úr kaffibollanum sínum. Morgunblaðið/ÞÖK Tónlistarútvarp Andri Freyr og Búi Bendtsen segja að íslenskt tónlistarútvarp hafi ekki sinnt þörfum hlustenda. CAPONE ÚR ÖSKU ROKKÚTVARPSINS X-FM ER NÚ RISIN NÝ ÚTVARPSSTÖÐ OG BER HÚN HEITIÐ REYKJA- VÍK FM 101,5. ÞEIR BÚI BENDTSEN OG ANDRI FREYR VIÐARSSON ERU ÞAR MÆTTIR AFTUR TIL LEIKS MEÐ ÞÁTTINN CAPONE. Rokkútvarp Matti fyrrum dag- skrárstjóri X-FM ásamt Capone. Al Capone Glæpaforinginn sjálfur. NÝJA Coke Zero-auglýsingin hefur vakið þónokkra athygli enda er aug- lýsingar Vífilfells að finna víða um þessar mundir, bæði í sjónvarpi og í efnislegu formi, svo sem á stórum borðum í Smáralind og Kringlunni. Ef eitthvað er að marka blessaðan bloggheiminn eru viðbrögðin við auglýsingunni neikvæðari en geng- ur og gerist í gosdrykkjabrans- anum. Þykir mörgum auglýsingin ýta undir fyrirfram ákveðnar hug- myndir um karlkynið og vera nið- urlægjandi fyrir karlmenn. Við lestur sumra bloggsíðna má þó greina að gagnrýnin er sett fram í ákveðnum hæðnistóni svo sem eins og í tilviki Ágústs Bogasonar, út- varpsmanns á Rás 2 og gítarleikara Jan Mayen, en þar segir m.a.: „Nýju Coke-Zero-auglýsingarnar eru niðurlægjandi fyrir karlmenn og ýta undir staðalímyndir. Þar er gengið út frá því sem vísu að karl- menn vilji ekki stunda forleik, kunni ekki að losa brjóstahaldara og vilji sjá inn í kvennaklefana í sundi. Nú bið ég um stuðning þrýstihópa og annarra kverúlanta til að láta Vífilfell finna fyrir því! Og svo er sagt frá því í fjölmiðlum að forstjóri Coke á Norðurlöndum sé á leið til landsins. Þetta gengur náttúrlega ekki. Bojköttum allt sem frá Víf- ilfelli kemur og sjáum til þess að þessi Coke-forstjóri fái ekki inni á neinu hóteli og verði sendur úr landi með skömm.“ Annars er það þrautin þyngri að nálgast upplýsingar um hinn nýja drykk á heimasíðu Vífilfells og á coke.is því utan einn auglýsinga- borða er drykkinn hvergi að finna undir vörulista. Heitið skyldi þó ekki vera bókstaflegt? Kreddur Coca Cola Háðskur Ágúst Bogason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.