Morgunblaðið - 20.03.2007, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 49
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
SMOKIN' ACES kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.16.ára
BREAKING AND ENTERING kl. 5:50 B.i.12 .ára
THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 4 - 6 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ
300 kl. 5:30 - 8 - 9:15 - 10:30 B.i.16.ára
300 VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30
BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 - 10:30 B.i.12 .ára
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
300 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
BLOOD & CHOCOLATE kl. 10 B.i. 12 ára
MUSIC & LYRICS kl. 6 - 8 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
300 kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
THE LAST KING OF... kl. 10 B.i. 16 ára
NUMBER 23 kl. 8 B.i. 12 ára
STÆRSTA MYND ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM
eeee
V.J.V.
RÓMANTÍSK GAMANMYND SEM FÆR
ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI
eee
H.J. - MBL
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
VJV, TOPP5.IS
eee
SV, MBL
eee
S.V. - MBL eeee
VJV, TOPP5.IS
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDI
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
17.03.2007
2 7 9 23 31
9 9 7 2 6
8 1 8 7 4
33
14.03.2007
1 9 12 27 43 45
3910 26
SÆMUNDUR fróði er stutt leikrit
sem Pétur Eggerz byggir á ýmsum
þjóðsögum sem og á bók eftir Njörð
Njarðvík, Púkablístrunni, sem gefin
var út 1989. Upphaflega stóð í bækl-
ingi Möguleikhússins að sýningin
væri ætluð börnum frá 6–12 ára en
seinna virðist einhver hafa skipt um
skoðun og víkkað aldurshópurinn
verulega til að ná öllum frá 8–89 ára.
Það er ólíklegt að maður sendi
börnin sín ein á þessa sýningu en
samt er hún greinilega ætluð þeim
frekar en okkur fullorðnum. Hún er
ekki nema klukkutími að lengd og er
þetta allt saman ágætis skemmtun.
Þórhalli Sigurðssyni leikstjóra
tekst að blása lífi í þessar gömlu
þjóðsögur með því að uppfæra ým-
islegt og gera það nútímalegra. T.d.
er gert grín að Norðmönnum, Dön-
um og Þjóðverjum með því að láta
nútímafána merkja löndin þeirra og
leyfa leikurunum að tala norsku,
dönsku og þýsku. Þættirnir í sögu
Sæmundar renna vel saman og
áhorfandinn hefur alltaf eitthvað
skemmtilegt til að fylgjast með.
Leikmynd og búningar eftir Mes-
síönu Tómasdóttur er einföld en
breytileg eftir þörfum hverrar senu,
þannig að þrjár aðalsviðseiningar
tákna ýmislegt, t.d. skip á úfnum sjó,
fjós með kúm, klefa í Svartaskóla
o.s.frv.
Leikararnir þrír skila góðum leik,
en Bjarni Ingvarsson fær eðlilega
mesta athygli sem Kölski sem hann
leikur fimlega og með miklum látum.
Samt sem áður eru litlar líkur á því
börn verði hrædd við þennan Kölska,
þrátt fyrir grímuna sem hann gengur
með. Þótt Sæmundi takist að narra
Kölska, þá er það samt sem áður ekki
vottorð um snilli Sæmundar því þrátt
fyrir klókindi Kölska virkar Sæ-
mundur ekki sérstaklega klár sjálfur.
Er það kannski þess vegna sem for-
eldrar hans eru látnir hlæja að við-
urnefninu fróði? Nokkur atriði á sýn-
ingunni, eins og þegar Sæmundur
platar Kölska til að smækka sig svo
að hann verði nógu lítill til að koma
sjálfum sér í flösku, eða þegar Sæ-
mundur er að deyja og stendur (frek-
ar en liggur) á dánarbeði sínum, bæði
gleðja augað og halda athyglinni. En
það voru frekar klókindi leikstjórans
en Sæmundar sem ollu því. Þessi Sæ-
mundur er frekar góður en fróður.
Ég var samt sem áður að vonast til
þess að sjá eitthvað sem sendi smá-
hroll í gegnum mig, en það gerðist
aldrei. Yngri krökkunum sem voru á
sýningunni virtist aldrei leiðast, en
vel að merkja, þeir stukku ekki held-
ur einu sinni upp úr sæti sínu. Það
var erfiðara að meta viðbrögð tólf og
þrettán ára krakka, sem voru á sömu
sýningu, en mér sýndust þeir vera
full rólegir. Möguleikhúsið segist
vera eina leikhúsið sem sérhæfir sig í
leiksýningum fyrir börn og unglinga
og það er auðvitað synd að fleiri leik-
hópar gera ekki meira fyrir börn á
aldrinum 6–16 ára.
Það er einmitt á þeim aldri sem
flestir smitast fyrst af galdri leik-
hússins.
Sæmundur góður – frekar en fróður
Morgunblaðið/ÞÖK
Líflegt Nýju lífi er blásið í þessar gömlu þjóðsögur með því að uppfæra ýmislegt og gera það nútímalegra.
LEIKLIST
Möguleikhúsið
Höfundur: Pétur Eggerz. Leikstjóri: Þór-
hallur Sigurðsson. Tónlist og hljóðmynd:
Guðni Franzson. Leikmynd og búningar:
Messíana Tómasdóttir. Lýsing: Ólafur
Pétur Georgsson. Leikarar: Sæmundur:
Pétur Eggerz; Faðir Sæmundar, Kölski
o.fl.: Bjarni Ingvarsson; Móðir Sæmund-
ar, þýsk kona o.fl.: Alda Arnardóttir. Sæ-
mundur ungur (rödd): Sigurður Þórhalls-
son. Erlendar raddir: Stjórnarmeðlimir
norrænu barnaleikhússamtakanna
(ASSITEJ). Frumsýnt 14. mars.
Sæmundur fróði
Martin Regal
ÍSLENDINGAR hreinlega flykkt-
ust í bíó um helgina. Sem fyrr voru
frumsýningarmyndir helgarinnar
tekjuhæstar en samtals 12.657
áhorfendur reiddu fram tæpar 11
milljónir til að sjá 300 og Epic Mo-
vie. Þar af lokkaði 300 rúmlega
9.200 manns í bíóhúsin og mun það
vera stærsta opnunarhelgi það sem
af er árinu.
Ekki nóg með það heldur er um
að ræða stærstu frumsýningarhelgi
á Íslandi fyrr og síðar á kvikmynd
þar sem aldurstakmark er 16 ára,
að sögn Sigurðar Victors Chelbat
hjá Samfilm. Íslendingar eru því á
góðri leið með að tryggja 300 sama
sess hérlendis og bandarískir kvik-
myndaáhugamenn hafa gert á sín-
um heimaslóðum, þar sem hún er
mest sótta mynd ársins.
14.000 hafa séð Norbit
Um 3.400 manns sáu Epic Movie
þar sem gert er stólpagrín að Holly-
woodsmellum síðasta árs. Hafa
slíkar myndir ætíð gengið vel ofan í
landann og greinilegt að Epic Mo-
vie ætlar ekki að skera sig þar úr.
Heldur fleiri sáu reyndar Eddy
Murphy bregða sér í ýmis gervi í
Norbit, eða 3.685 bíógestir. Þar
sem þeir greiddu hins vegar heldur
lægri aðgöngueyri verður Eddy að
sætta sig við þriðja sæti listans.
Hann getur þó ekki kvartað enda
rúmlega 14.000 Íslendingar búnir
að sjá mynd hans það sem af er.
Venus, sem frumsýnd var um
síðustu helgi, skipar sér nú á meðal
tíu tekjuhæstu myndanna og er í
sjötta sæti. Talan 23, með hinn kan-
adíska Jim Carrey í aðalhlutverki,
fellur niður um fimm sæti, úr því
þriðja í það áttunda. Vefurinn
hennar Karlottu er í fimmta sæti
eftir átta vikur í sýningu, og Walt
Disney-myndin Brúin til Thera-
bithia er þar skammt undan, í því
sjöunda.
Mest sóttu myndirnar á Íslandi
300 setur
Íslandsmet!
.>
-
!"
# $
%
&' (
( ) * +
&
,) -
$!.
Algjört met Á tíunda þúsund áhorfenda sáu 300 um helgina.