Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÉG ER ekki kominn með nafnið á fyrirtækinu, það er ekki búið að ganga frá undirskrift, en eftir við- ræður helgarinnar erum við komnir að niðurstöðu. Þetta er heiðurs- mannasamkomula og ef báðir standa við sitt er þetta frágengið,“ segir Guðmundur Ásgeirsson stjórnarformaður Nesskipa, en síð- degis í gær varð ljóst að flutn- ingaskipið Wilson Muuga, sem bjargað var í síðustu viku af strand- stað við Hvalsnes, yrði selt til Líb- anons. Vildi selja til viðgerðar „Fyrirtækið ætlar að gera við skipið og nota það áfram við flutn- inga, og þá í heldur mildara far- vatni en hér norðurfrá,“ segir Guð- mundur. Hann kveðst hafa haft meiri áhuga á að selja skipið aðila sem ætlaði að gera við það og koma því aftur í drift. „Það hæfir skipi sem ég hef umgengist í 27 ár mun betur, ef hægt er að koma því við. Það getur siglt þarna suðurfrá í 10 ár í viðbót ef vel tekst til. Ég tek ofan fyrir mönnum sem hafa áræði, þor og kunnáttu til að gera við svona mikið laskað skip innan ásættanlegra kostnaðarmarka. Við- gerð á 32 ára gömlu skipi má ekki kosta mikið, ef skipið á að geta ver- ið samkeppnisfært þegar það hefur siglingar að nýju, því mega menn ekki gleyma.“ Að ósk kaupandans er verð skipsins ekki gefið upp, en Guð- mundur segir ekki ljóst enn hvort salan borgi kostnað útgerðarinnar við strandið. „Við vitum ekki enn hver endanlegur kostnaður verður við björgunina, en þetta er rúmlega brotajárnsverð. Þetta er það skásta sem við getum gert, besta niður- staðan og miðað við allt sem á und- an er gengið held ég að þetta sé farsælasta lausnin.“ Wilson Muuga selt og fer til viðgerðar í Líbanon Morgunblaðið/ÞÖK Heiðursmannasamkomulag Ef báðir standa við sitt, er þetta frágengið. Söluverð skipsins er yfir brotajárnsverði en ekki gefið upp að ósk kaupanda TVÆR kríur sáust í gærmorgun á flugi utan við Óslandið á Höfn í Hornafirði, að því er fram kemur á vef fuglaáhugamanna á Höfn, www.fuglar.is. Það má segja að krían hafi komið „upp á dag“ því 22. apríl er „með- alkomudagur“ kríu á árunum 1998–2006, að því er fram kemur á farfuglatali Yanns Kolbeinssonar líffræðings. Á því tímabili kom krían snemma árið 2004 og sást þá 15. apríl, en árið 2000 sást ekki kría fyrr en 27. apríl. Krían komin Morgunblaðið/Ómar HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur sýknað karlmann af ákæru vegna kynferðisbrots „með því að hafa […] káfað á brjóstum og kynfærum […] og sett fingur inn í kynfæri hennar, en við þetta not- færði ákærði sér það að […] gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölv- unar og svefndrunga“. Málsatvik voru þau að nefnd stúlka og samleigjendur hennar voru með innflutningsteiti í greindri íbúð þangað sem boðið var góðum vinum, þ.á m. ákærða. Óumdeilt er að ákærði og stúlkan voru mjög ölvuð. Maðurinn játaði við málsmeðferð að hafa snert stúlkuna með þeim hætti sem lýst er í ákæru en hann neitaði sakargiftum og bar að stúlkan hefði verið vakandi, nokkur aðdragandi hefði verið að verknaðinum og hún hefði ekki gert athugasemdir við gjörðir hans. Stúlkan staðfesti fram- burð ákærða í fyrstu en kvað síðar athæfi ákærða hafa verið andstætt vilja sínum. Af frásögn hennar varð ráðið að hún hefði ekki andmælt at- hæfi ákærða með orðum en í stað þess í lokin þrýst saman fótum sín- um og þóst vera sofandi og hafi ákærði þá hætt athæfi sínu. Þar sem ákærði lýsti við alla með- ferð málsins atvikum á sama hátt og frásögn stúlkunnar þótti óljós var talið ósannað að ákærði hefði framið það brot sem honum var gefið að sök. Hann var því sýknaður af öllum kröf- um og fellur allur sakarkostnaður á ríkissjóð. Dómarar voru Freyr Ófeigsson dómstjóri, Ólafur Ólafsson hér- aðsdómari og Sigrún Guðmunds- dóttir héraðsdómari. Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari sótti málið, Arnar Sigfússon hdl. var til varnar. Sýknaður af kynferðisbroti Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Eiginlega allir nokkuð góðir til heilsunnar eftir aldri KVÍSKERJABRÆÐUR, þeir Hálf- dán, Helgi og Sigurður Björns- synir, voru heiðraðir í afmælishófi sem sveitungar og vinir héldu þeim á laugardaginn var. Hálfdán varð áttræður 14. mars sl., Helgi varð 82 ára 2. febrúar og Sigurður verður níræður á morgun. Hófið var haldið í Hofgarði í Öræfum. Þar voru flutt ávörp þar sem minnst var margra góðra verka þeirra bræðra í þágu sveit- arinnar. Þeir hafa um tíðina lagt gjörva hönd að mörgum framfara- málum og eru sjálfmenntaðir vís- indamenn og snillingar á mörgum sviðum. Karlakórinn Jökull söng nokkur lög og einnig sungu fyrr- verandi sumardvalarbörn á Kví- skerjum brag um góða vist fyrrum daga. Þeim bræðrum var afhent sólúr á stöpli sem Einar J. Ingólfs- son, hagleiksmaður í Hafnarfirði, smíðaði. Stöpullinn er skreyttur myndum sem endurspegla hugð- arefni þeirra bræðra hvers um sig. „Þetta var mjög góð gjöf,“ sagði Hálfdán í samtali við Morgunblaðið. „Við vorum búnir að afþakka gjafir en líkaði ákaflega vel við þessa gjöf og erum búnir að skoða hana.“ Hann sagði að þeim hefði þótt skemmtilegra að fólk þyrfti ekki að vera að koma með gjafir til þeirra og kæmi bara í fagnaðinn. Hálfdán taldi líklegt að sólúrinu yrði fund- inn staður á góðum steini á Kví- skerjum. Hann taldi að um 200 manns hefðu komið í afmælið en 175 skráðu nöfn sín í gestabók. Þar voru m.a. sýndar myndir sem þeir bræður og fleiri hafa tekið en Hálf- dán hefur m.a. tekið ljósmyndir frá um 1960. En hvernig eru þeir bræður til heilsunnar? „Ég er bara góður og við erum eiginlega allir nokkuð góðir eftir aldri,“ sagði Hálfdán. Hann sagði að sjón Sigurðar hefði daprast og hann sæi ekki lengur til að lesa en vel til að ganga úti. Helgi væri al- veg sæmilegur til heilsu. En er Hálfdán ekki eitthvað að grúska? „Jú, þetta er baktería sem ég losna ekki við meðan ég lifi. Ég er að fara yfir skordýrasafnið mitt, sem skiptir þúsundum, til að reyna að hafa það merkt ef maður hættir að geta séð vel á það. Merkja bæði fundarstaði og dagsetningar svo það gæti komið einhverjum að not- um í framtíðinni.“ KVÍSKERJABRÆÐUR FENGU SÓLÚR Í AFMÆLISGJÖF Kvískerjabræður Helgi, Hálfdán og Sigurður Björnssynir við sólúrið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.