Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 15
MENNING
SÍÐUSTU sýn-
ingar á leikritinu
Equus með Dan-
iel Radcliffe í að-
alhlutverki,
verða í nú júní,
aðeins þremur
mánuðum eftir
frumsýningu.
Uppfærslan hef-
ur vakið mikla
athygli um heim allan og gengið fyr-
ir fullu húsi í Gielgud-leikhúsinu á
West End í London. Talsmaður leik-
hússins tilkynnti fjölmiðlum að
ástæðan væri sú að leikstjóri sýning-
arinnar Thea Sharrock vildi hætta
með enn gengi vel en sýningin hóf að
skila hagnaði eftir aðeins átta vikur.
Uppfærslan vakti strax gríðarlega
athygli þegar Daniel Radcliffe sem
er þekktastur fyrir að leika litla
galdrastrákinn Harry Potter, var
ráðinn til að leika eitt aðalhlutverkið
en verkið sem er eftir breska leik-
ritaskáldið Peter Shaffer, segir frá
sálfræðingi sem tekst á við sálsjúkan
dreng sem ber kynferðislegar
kenndir til hesta. Radcliffe kemur
nakinn fram í verkinu.
Ákvörðun leikhússins um að ljúka
sýningum eftir aðeins þrjá mánuði
kom mörgum í opna skjöldu því
heyrst hafði að framleiðendur væru
að leita að leikara sem tæki við af
Radcliffe. Þess í stað hefur leikhúsið
tilkynnt að uppfærslan fari í 12
vikna sýningarferðalag með nýjum
leikhópi. Á meðal þeirra sem höfðu
verið orðaðir við hlutverkið voru
Jamie Bell, Orlando Bloom og Jesse
Metcalfe.
Radcliffe mætir aftur á hvíta
tjaldið í sumar þegar Harry Potter
og Fönixreglan verður frumsýnd.
Equus
hættir
Skilaði hagnaði
eftir aðeins átta
vikur á West End
Daniel Radcliffe
BANDARÍSKI
rithöfundurinn
Hans Koning lést
á föstudag 85 ára
að aldri. Dóttir
hans Christina
Koning staðfesti
andlátið en vildi
ekki greina frá
banameini hans.
Koning skrifaði á
löngum ferli sínum um 40 verk, allt
frá skáldsögum leikritum, kvik-
myndahandritum, ferðabókum,
barnabókum til blaðagreina fyrir hið
virta tímarit The New Yorker. Árið
1976 sendi Koning frá sér ritið Col-
umbus: His Enterprise – Exploding
the Myth sem vakti mikla athygli og
reiði margra. Í verkinu sýnir Koning
Kólumbus í öðru ljósi en almenn-
ingur í Bandaríkjunum átti að venj-
ast. Þar sýnir hann Kólumbus sem
harðstjóra sem hafi staðið fyrir
nauðgunum og ránum á frum-
byggjum Ameríku. Koning segir
hann hafa hoggið hendur af indían-
um þegar þeir uppfylltu ekki gull-
kvótann, brennt höfðingja þeirra á
báli og þeir sem komust lífs af
frömdu sjálfsmorð með því að borða
eitraðar rætur. Bókin var endur-
prentuð árið 1992 og seldi þá um 30
þúsund eintök. Hún er enn höfð til
hliðsjónar í mörgum menntaskólum.
Fjórar kvikmyndir voru gerðar eftir
bókum Koning en sú þekktasta er
líklega A Walk with Live and Death
sem skartaði Anjelicu Houston í að-
alhlutverki. Koning sagði eitt sinn að
takmark hans sem rithöfundur væri
að varpa ljósi á ranglæti heimsins og
ástand mannverunnar með dulúð-
ugum hætti.
Hans Kon-
ing látinn
Hans Koning
GÓÐIR gestir sækja Söguloft
Landnámsseturs í Borgarnesi
heim í kvöld kl. 20. Hér er á
ferðinni franski brúðuleikhóp-
urinn Turak í tilefni af menn-
ingarhátíðinni Frönsku vori.
Sýningin Turak liggur milli
brúðuleiks og hefðbundins
leikhúss, sem sumir nefna
„víðavangsleikhús“. Hópurinn
leikur gjarnan á litlum sam-
komustöðum þar sem nánd er
mikil milli leikara og áhorfenda. Þessi nánd er
leikhústöfrunum lífsskilyrði.
Sýningin er í boði Safnahúss Borgarness. Að-
gangur er ókeypis.
Leikhús
Brúðuleikarar í
Landnámssetri
Brúðuleikhúsið
Turak.
BORGARBÓKASAFN
Reykjavíkur stendur að dag-
skrá á degi bókarinnar í sam-
starfi við Pourquois Pas? –
Franskt vor á Íslandi. Rithöf-
undarnir Gerður Kristný og
Sigurður Pálsson segja frá
kynnum sínum af Frakklandi
og Sigurður les eigin ljóð. Þá
mun Sigríður Thorlacius
syngja frönsk lög við undirleik
Steingríms Karls Teague
píanóleikara og safnið býður gestum upp á kaffi
og franskar veitingar.
Dagskráin verður á Reykjavíkurtorgi í að-
alsafninu í Tryggvagötu 15 og hefst kl. 17:30.
Bókmenntir
Franskt síðdegi í
Borgarbókasafni
Gerður Kristný
rithöfundur.
FÉLAG kvikmyndagerðar-
manna býður til opins stjórn-
málafundar með fulltrúum
flokkana til að ræða stefnu
þeirra í framleiðslu kvikmynda
og sjónvarpsefnis og málefni
RÚV ohf. á efri hæð Kaffi Sól-
ons í Bankastræti 7 kl. 20 í
kvöld. Fulltrúar flokkanna
verða: Þorgerður K. Gunn-
arsdóttir Sjálfstæðisflokki,
Mörður Árnason Samfylking-
unni, Jón Sigurðsson Framsóknarflokki, Kolbrún
Halldórsdóttir Vinstri grænum, Ómar Ragnars-
son frá Íslandshreyfingunni og óstaðfestur frá
Frjálslynda flokknum. Allir velkomnir.
Fundur
Stefna flokkanna til
kvikmyndagerðar
Kolbrún
Halldórsdóttir
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA var hugmynd sýningarstjórans. Okkur
fannst hún svolítið fyndin því ég er búinn að
vera með netfangið egillegill@yahoo.com í mjög
langan tíma,“ segir Egill Sæbjörnsson, mynd-
og tónlistarmaður um nafn sýningarinnar
Egillegillegill sem opnuð var í New York hinn 5.
apríl síðastliðinn.
Sýningin er í galleríi sem nefnist Cueto Proj-
ect og er staðsett í Chelsea hverfinu, en Egill
segir um splunkunýtt gallerí að ræða.
„Þetta er fyrsta einkasýningin í þessu galleríi,
og það er mjög gaman að fá að vera með þessa
sýningu í þessu hverfi. Þetta er náttúrulega í
miðpunktinum í gallerí-hverfinu í New York.
Þetta er líka 250 fermetra rými þannig að þetta
var alveg frábært,“ segir Egill. „Þetta rými er
svo stórt að við ákváðum að ráða sýningarstjóra,
Gyonata Bonvicini, sem hefur meðal annars
unnið í London og Berlín. Hann kom hugmynd-
ina að þessu nafni, sem ég var samt ekki að
kaupa fyrst. En svo fattaði ég að þetta væri svo-
lítið fyndið, það er nánast hægt að sjá þetta ab-
strakt því þetta verður hálfgert orðskrípi.“
Kemur víða við
Aðspurður segir Egill þema sýningarinnar
vera „multiple identities“ og þaðan sé nafnið
komið. „Ég sýndi fjögur verk, það er að segja
stærri innsetningar, og svo var ég með nokkur
minni verk líka. Þetta eru verk frá síðustu
tveimur til þremur árum,“ segir hann, en um er
að ræða myndbönd, innsetningar, ljósmyndir og
skúlptúra.
Egill, sem búsettur er í Berlín, hefur sýnt
víða að undanförnu. „Ég er búinn að vera að
sýna á síðustu mánuðum í Osló og Amsterdam
og svo í Köln í síðustu viku. Svo er ég að fara til
Arizona þann 1. maí þar sem ég verð með sýn-
ingu í borginni Scottsdale. Ragna Róbertsdóttir
mun líka taka þátt í þeirri sýningu, þetta verða
fjórir listamenn á sýningunni, sem opnar 12.
maí.“
Önnur eða fjórða
Egill er staddur hér á landi um þessar mund-
ir, en hann er að vinna að sinni nýjustu plötu
sem enn hefur ekki hlotið nafn. Egill vakti tölu-
verða athygli fyrir nokkrum árum þegar hann
sendi frá sér plötuna Tonk of the Lawn, en plat-
an The International Rock ’n’ Roll Summer of
Egill Sæbjörnsson vakti einnig nokkra athygli á
sínum tíma. „Þetta er annað hvort önnur platan
mín eða fjórða, það fer eftir því hvernig litið er á
það,“ segir Egill, en nýju plötuna vinnur hann í
Gróðurhúsinu hjá Valgeiri Sigurðssyni, sem hef-
ur unnið með listamönnum á borð við Björk,
Bonnie Prince Billy og Coco Rosie. „Þetta er
bara svona dægurtónlist sem ég hef verið að
semja. Ég var með einhverja hrúgu af lögum og
bað Valgeir að velja úr því. Hann valdi 14 lög og
við gefum líklega út 12 af þeim. Við vorum með
á bilinu 70 til 80 lög sem við þurftum að velja úr,
en þau voru mislangt komin,“ segir Egill, en
platan kemur út síðar á þessu ári hjá Bedroom
Community útgáfufyrirtækinu.
Orðskrípið Egillegillegill
Egill Sæbjörnsson opnar sýningu í New York og er með plötu í bígerð
Heimilisstörf Egill ryksugar píanó í verkinu Songs for the Houses sem hann sýndi í Berlín í fyrra.
www.egills.de
DAGSKRÁ helguð Jónasi Hall-
grímssyni verður haldin á Degi bók-
arinnar í Iðnó í dag.
Rithöfundasamband Íslands ætlar
að helga Jónasi dagskrá sem nefnist
„Einstaklingur, vertu nú hraustur!“
Átta höfundar munu velja og flytja
ljóð eftir skáldið og fjalla um ástæð-
ur fyrir vali sínu.
Höfundarnir eru Davíð Stef-
ánsson, Guðmundur Andri Thors-
son, Hallgrímur Helgason, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Ingunn
Snædal, Kristín Svava Tómasdóttir,
Vilborg Davíðsdóttir og Þorsteinn
frá Hamri.
Þá munu þeir Páll Valsson, bók-
menntafræðingur, og Þórarinn Eld-
járn, skáld, flytja stutt erindi um
Jónas. „Alefling andans og athöfn
þörf – Jónas og nútíminn“ nefnist
erindi Páls, en „Gaman hjá Jónasi“
er heitið á hugleiðingu Þórarins.
Loks mun Kvennakór við Háskóla
Íslands flytja lög Atla Heimis
Sveinssonar við ljóð Jónasar Hall-
grímssonar, undir stjórn Margrétar
Bóasdóttur og undirleik Sólveigar
Önnu Jónsdóttur.
Dagskráin hefst kl. 20 og aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill á með-
an húsrúm leyfir.
Einstaklingur,
vertu nú hraustur!
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjör Gaman hjá Jónasi er heitið á erindi Þórarins Eldjárns.
♦♦♦