Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 25
þurftir snemma að byrja að vinna,
man ég eftir mörgum frásögnum
þegar þú varst að gera hitt og þetta
með pabba þínum og oft hafði víst
pabbi þinn orð á því að hann hefði
viljað að þú værir strákur. Ég er ekk-
ert viss um að hann hefði verið
heppnari með það því öðrum eins
dugnaðarfork hef ég ekki kynnst. Oft
varst þú í tveimur til þremur störfum
eftir að þú misstir eiginmanninn þinn
og varst að basla við að halda heim-
ilinu saman. Og ekki léstu það vaxa
þér í augum að kaupa þér nýja íbúð
við hliðina á okkur í Kambaselinu.
Þú hafðir alveg einstaklega gaman
að því að ferðast, hvort sem það var
innanlands eða utan og fórum við
margar ferðirnar saman. Það var al-
veg einstakt að ferðast með þér um
Snæfellsnesið. Þar þekktir þú hverja
þúfu og betri og skemmtilegri leið-
sögn var ekki hægt að fá, t.d. þegar
við tjölduðum við Hótel Búðir og
löbbuðum þar um hraunið og fjöruna;
þá varst þú frábær leiðsögumaður.
Fórum við alloft saman í ferðalög
bæði heima og erlendis og betri
ferðafélaga er ekki hægt að hugsa
sér.
Þú varst alveg einstakur dýravin-
ur, það var hrein unun að sjá hvernig
þú komst fram við dýr og hvernig dýr
löðuðust að þér. Þegar við eignuð-
umst okkar fyrsta hund, labrador-
tíkina Söru Klöru, urðuð þið hinar
mestu vinkonur og var alveg einstakt
að sjá sambandið milli ykkar. Við fór-
um í sumarfrí árið eftir, Sara Klara
átti að fara á hundahótel en þú gast
ekki hugsað sér að vinur þinn yrði
þar í 3 vikur. Flýttir þú sumarfríinu
þínu þannig að þú gæti passað vininn
þinn. Seinna eignuðumst við aðra tík,
hana Fjólu, og urðuð þið líka einstak-
ir vinir og nú hin síðustu ár bjó Fjóla
oft hjá þér. Þið voruð báðar komnar á
efri ár og nutuð þess að vera saman í
rólegheitum. Fjóla sá samt um að þið
hreyfðuð ykkur daglega og fór út
(eins og þú sagðir sjálf) að labba með
gömlu konuna.
Alltaf var hægt að leita til þín með
allskonar vandamál, hvort sem þau
voru stór eða smá, þú greiddir úr öllu
eins vel og þú gast. Ég er þér æv-
inlega þakklátur fyrir allt sem þú hef-
ur gert fyrir mig og fjölskyldu mína.
Ég elska þig og á eftir að sakna þín
mikið.
Þinn tengdasonur
Sigurgeir.
Fallin er frá ein af valkyrjum ís-
lensku þjóðarinnar, Unnur Runólfs-
dóttir. Mig langar að fara nokkrum
fögrum orðum um þessa snilldar-
konu. Ég kynntist Unni fyrir um það
bil 27 árum, þegar ég fór að vinna á
Hrafnistu í Reykjavík. Þar var hún
verkstjóri í litlum borðsal sem kall-
aður er Blái salur. Var ég þar undir
hennar verkstjórn í rúm 18 ár. Unnur
var skörungur mikill, hörkudugleg,
glæsileg, heiðarleg og fylgin sér í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur. Hún
kunni til verka sem stjórnandi og er
það ekki ofsögum sagt að öllum ólöst-
uðum, þá var hún án efa einn allra
besti verkstjóri sem ég hef átt í gegn-
um tíðina. Ég lærði margt af þessari
konu og sá lærdómur nýtist mér enn í
þeim störfum sem ég hef unnið við
síðan.
Hún Unnur var mörgum kostum
gædd, glöð var hún, skemmtileg,
húmoristi mikill og gat verið svo
skemmtileg í tilsvörum að maður gat
veltst um af hlátri. Unnur kunni
sannarlega að hrósa fólki og gat einn-
ig sagt fólki ef henni mislíkaði og
gerði það óspart ef þess þurfti. Hún
gerði miklar kröfur til sjálfrar síns
sem og annarra. Unnur hefur eflaust
ekki verið gallalaus kona fremur en
ég og aðrir menn en gallar hennar
hafa þá verið það agnarsmáir að þeir
hafa fallið í skuggann fyrir þeim kost-
um sem hún var gædd.
Unnur mín, nú kveð ég þig um
sinn, ég er afar þakklát og glöð að fá
tækifæri til að kynnst þér og hafa
verið undir þinni stjórn í svo mörg ár.
Þú kenndir mér svo margt og mun ég
minnast þín oft í orði og verki.
Fjölskyldu Unnar, ættingjum og
vinum vil ég votta mína dýpstu sam-
úð.
Hvíl þú í friði.
Kær kveðja
Ásgerður í Bláa sal.
✝ Gísli SigurðurGuðjónsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 12.
janúar 1939. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu í
Reykjavík 12. apríl
2007.
Foreldrar Gísla
voru hjónin Guðjón
Sigurður Gíslason
netagerðarmaður
og múrari, fyrst í
Vestmannaeyjum
og síðar í Reykja-
vík, f. 15.6. 1910, d. 6.4. 1987, og
holtstungum. Sonur Gísla og
Auðar er Reynir Sigurður, f.
22.11. 1976. Sambýliskona hans
er Sigríður Edda Hafberg, f.
20.7. 1969.
Gísli ólst upp í Vestmanna-
eyjum hjá foreldrum sínum í
Uppsölum við Vestmannabraut.
Hann hóf nám í Pentsmiðjunni
Odda í Reykjavík sumarið 1955,
tók sveinspróf í setningu í árslok
1959. Hann vann í prentsmiðj-
unum Odda og síðar Hólum en
hóf svo eigin rekstur við papp-
írsheildsölu og rak hana til
dauðadags. Hann gegndi um tíma
ýmsum trúnaðarstörfum á vegum
Prentarafélagsins. Gísli var mik-
ill listunnandi og eignuðust þau
hjón, Auður og hann, mikið og
gott safn bóka og listaverka.
Útför Gísla fer fram frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 23. apríl
og hefst athöfnin kl. 13.
Laufey Bergmunds-
dóttir húsmóðir, f.
1.4. 1911, d. 21.6.
1996.
Gísli kvæntist
2.12. 1972 Auði
Fanneyju Jóhann-
esdóttur hjúkr-
unarfræðingi, f.
14.1. 1936. For-
eldrar hennar voru
Jóhannes Jónsson, f.
24.6. 1895, d. 21.12.
1990, og Ingibjörg
Sveinsdóttir, f. 8.9.
1895, d. 3.11. 1989.
Þau bjuggu á Flóðatanga í Staf-
Ekkert býr mann undir það að sjá
á eftir foreldri sínu. Minningarnar
flæða og það er stutt í tárin. Það sem
var okkar mesta gleði er sorg okkar í
dag. Elsku pabbi minn er látinn og
söknuðurinn er mikill, skarðið sem
hann lætur eftir sig er stórt.
Ég þakka Guði fyrir allar þær
ljúfu minningar sem ég á um pabba.
Hann var mömmu einstaklega góður
og umhyggjusamur eiginmaður.
Mér var hann yndislegur faðir. Hann
taldi ekkert of gott fyrir okkur og
kaus iðulega sjálfur að taka okkar
þarfir fram yfir sínar eigin. Á sama
hátt og hann var augasteinn foreldra
sinna, hafa foreldrar mínir ávallt litið
á mig sem gullmolann sinn.
Pabbi gaf mér gott veganesti fyrir
lífið og kenndi mér góð gildi eins og
að vera vandvirkur, trúr sjálfum sér
og öðrum og að koma fram við aðra
af virðingu. Hann var iðjusamur og
vann meðal annars við prentverk í
áratugi. Þeir sem þekktu hann hafa
lýst honum sem miklum fagurkera.
Hans hjartans áhugamál voru mynd-
list og bækur. Foreldrar mínir voru
ötulir við að fara á listsýningar og
höfðu í gegnum tíðina mikil og gef-
andi samskipti við fjölmarga aðra
sem áttu sömu áhugamál.
Þegar pabbi lést voru þau mamma
nýkomin frá Kanaríeyjum. Þeirrar
utanlandsferðar, sem reyndist vera
þeirra síðasta ferð saman, nutu þau
bæði til hins ýtrasta. Síst átti ég von
á því þegar ég var að hlýða á
skemmtilegar ferðasögur að hann
ætti svo stutt eftir. Það var mikil
gleði á þeim dýrmætu stundum sem
okkar litla fjölskylda átti saman síð-
ustu dagana fyrir andlát pabba.
Minningarnar um góðan mann
munu halda áfram að ylja okkur sem
eftir lifum um ókomna tíð. Mamma
hefur misst sálufélaga sinn og ég hef
misst minn besta vin. Umhyggju-
samari föður og betri félaga er ekki
hægt að hugsa sér. Takk fyrir allt
það sem þú varst okkur mömmu.
Guð geymi þig, elsku besti pabbi
minn.
Reynir.
Gísli frændi okkar Guðjónsson
hefur kvatt, snögglega og óvænt.
Léttur hlátur hans er þagnaður og
ekki verða sagðar fleiri sögur af
þeirri sérstöku snilld sem hann
kunni. „Það er gott að fara svona,“
segja sumir, en höggið er þungt fyrir
aðstandendur og frænda- og vinalið.
Ekki óraði okkur bræður fyrir því,
er við sátum með honum og fleirum
hjá móðursystur okkar síðdegis á
miðvikudegi, í glaðværum fögnuði
yfir gómsætum rjómapönnukökum,
að Gísli ætti skemmra en sólarhring
eftir. Sögurnar runnu fram og það
dillaði í honum hláturinn. Við frænd-
fólk hans getum aðeins huggað okk-
ur við glaða og góða minningu um
okkar síðasta fund.
Gísli var rótgróinn Vestmannaey-
ingur. Þó er liðin meira en hálf öld
frá því hann kvaddi æskustöðvar sín-
ar og hélt á vit nýrra tækifæra í höf-
uðborginni. Í Eyjum bjuggu foreldr-
ar hans í Uppsölum, í sambýli við
föðurforeldra, og móðurforeldrar
hans voru skammt undan. Allt var
þetta traust og gott fólk sem stóð
föstum rótum í aldagömlum þjóð-
félagsháttum sem nú eru að miklu
leyti horfnir. Þetta umhverfi mótaði
Gísla. Þótt hann væri jafnan glaðvær
var hann líka mikill alvörumaður,
hafði sterka siðferðiskennd,
ákveðnar þjóðfélagsskoðanir og mik-
inn listskilning. Hann var einstakur
fróðleiks- og sagnabrunnur um
horfna tíð í Eyjum, og alltaf var aus-
ið af þeim brunni með kímni og léttu
lagi.
Gísli fór ungur að árum til Reykja-
víkur að nema prentiðn, og foreldrar
hans fluttust þangað líka skömmu
síðar, sjálfsagt til að njóta samvista
við einkason sinn sem lengst. Gísla
gekk vel í iðn sinni, varð þekktur fag-
maður og smekkmaður, fór síðar út í
eigin rekstur en var farinn að draga
saman seglin þegar kallið kom.
Gísli var mikill fagurkeri, listunn-
andi og ástríðusafnari. Bókasafn
hans var mikið og glæsilegt en undr-
um sætti listaverkasafnið, svo mikið
sem það er að vöxtum og gott að list-
gildi. Í hópi listamanna og sýning-
arhaldara var hann vel þekktur og
margir þeirra raunar persónulegir
kunningjar hans.
Það var mikið lífslán að Gísli
skyldi eignast förunaut sem var hon-
um svo samtaka í því að njóta lista og
fagurra hluta. Á glæsilegu og hlý-
legu heimili þeirra Auðar og Gísla er
list og fegurð í öndvegi. Og auga-
steinn þeirra, Reynir, fylgir sömu
slóð og foreldrarnir.
Gísli frændi okkar var einstaklega
ræktarsamur maður og nærgætinn í
umgengni. Þess nutu margir, ekki
síst móðir okkar og systkini, um ára-
tugaskeið þegar heimili hans og for-
eldra í Reykjavík var eins konar
sendiráð fjölskyldunnar í höfuðborg-
inni. Fyrir alla þá vinsemd sem hann
sýndi erum við ákaflega þakklát. Yf-
ir minningu hans verður alltaf bjart
og fagurt í hugum okkar. Guð blessi
þessa minningu og styðji og styrki
Auði, konu hans, Reyni, son þeirra,
og Sigríði, tengdadóttur, á sorgar-
og saknaðarstund.
Jón og Helgi Bernódussynir.
Ég kynntist Gísla fyrst fyrir um
þremur árum þegar Reynir fór með
mig til að kynna mig fyrir foreldrum
sínum. Óneitanlega var ég með hnút
í maganum yfir að hitta tilvonandi
tengdaforelda en fljótt hvarf hann
þegar ég kynntist þeim. Strax varð
mér ljóst hversu nánir þeir feðgarnir
voru og hversu miklir sálufélagar og
hjartans vinir hann og Auður voru.
Hlýjan sem Gísli sýndi mér var
mikil. Hann tók mér ávallt opnum
örmum og áttum við margar
skemmtilegar stundirnar þar sem
mikið var spjallað og skrafað, oftar
en ekki yfir gómsætum mat í Ofan-
leitinu. Þær stundir hefðu mátt
verða miklu fleiri en ég er afar þakk-
lát fyrir að hafa fengið að kynnast
þeim manni sem Gísli hafði að
geyma. Alltaf var stutt í brosið og
glettnina og ekki var hann að dvelja
við það sem miður fór.
Elsku Reynir og Auður. Missir
ykkar er mikill. Megi algóður Guð
styrkja ykkur, fjölskyldur og vini í
sorginni. Minningin um góðan mann
lifir í hjörtum okkar allra.
Sigríður
Gísli Sigurður
Guðjónsson
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
✝
Elskuleg systir mín og frænka okkar,
BIRNA MAGNÚSÍNA PÁLSDÓTTIR
frá Jaðri,
Skagafirði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dölum
sunnudaginn 15. apríl, verður jarðsungin frá
Glaumbæjarkirkju þriðjudaginn 24. apríl kl. 14.00.
Guðrún J. Pálsdóttir og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON
frá Neðra-Haganesi,
Ferjubakka 6,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala á Landakoti laugar-
daginn 14. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudag-
inn 25. apríl kl. 15.00.
Sigrún Finnsdóttir,
Linda Salbjörg Guðmundsdóttir, Bergur Gíslason,
Edda Herdís Guðmundsdóttir, Hörður Kvaran,
Alda Björk Guðmundsdóttir, Hrannar Örn Hauksson
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem vottað
hafa hlýhug og samúð vegna andláts okkar
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, systur og
mágkonu,
RAGNHEIÐAR STEINDÓRSDÓTTUR,
Heiðargarði 10,
Keflavík.
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki
dagdeildar krabbameinslækninga á Land-
spítalanum við Hringbraut og starfsfólki
heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir einstaka umönnun, hlýju og stuðning.
María Pálsdóttir,
Steindór Bjarni Róbertsson, Anna Sigríður Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Lilja Steindórsdóttir,
systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður, afa og langafa,
BJARNA ÁSMUNDAR GÍSLASONAR,
Hvassaleiti 157.
Jónína Halldóra Einarsdóttir,
Rósamunda Gerður Bjarnadóttir, Skúli Skúlason,
Guðrún Hildur Bjarnadóttir,
Gísli Jón Bjarnason, Guðbjörg Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.