Morgunblaðið - 23.04.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 23.04.2007, Qupperneq 19
gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 19                      !!"! #$%&' ()  ( *+,&' -.' /0 1((  222"34,33"'  5 5 6 É g hef alltaf haft áhuga á dýrum og hef m.a. áður átt gullfiska, hamstra, skjaldbökur, nokkra fugla og ketti,“ segir María Magnúsdóttir sem er búsett í Reykjanesbæ. „Ég átti líka áður Golden Retriever hund, Tuma sem var einstakur persónuleiki. Núna á ég hins vegar Silky Terrier hund sem heitir Líf. Ég er líka nýbúin að koma mér upp þokkalega stóru fiskabúri og stefni á að fara út í fiskarækt.“ Þar með er ekki sagan öll sögð því María hefur mikinn áhuga á að fá sér smádýr sem gæti þó reynst erfiðleikum háð því hún hef- ur ofnæmi fyrir ákveðnum dýrategundum. „Mig langar að athuga hvort ég geti haft kanínu, naggrís eða jafnvel stökkmús og núna er lítill kanínustrákur í heimsókn hjá mér til reynslu vegna ofnæmisins.“ Vaknaði við urr Einn af mörgum kostum Lífar er einmitt feldurinn. „Hann er silkimjúkur og fellir ekki hár sem er mikill kostur. Margir sem eru með ofnæmi fyrir dýrahárum geta þess vegna haft svona hund,“ segir María. Hún lýsir tegundinni sem vökulli, uppá- tækjasamri og skemmtilega ákveðinni. „Silky Terrier er upprunninn í Ástralíu. Þetta eru hreinræktaðir smáhundar en þó ekki kjölturakkar. Upphaflega voru þeir notaðir til að veiða smádýr. Stundum er Silky Terrierinn kallaður litli hundurinn með stórahundaeðlið enda eru þeir kröftug- ir og ágætis varðhundar.“ María segir sögu af Líf tengda varð- hundseðli hennar. „Hún sefur í búri og eina nóttina vaknaði ég við að hún var að urra. Þegar ég opnaði búrið tók hún strauið fram á gang og niður stigann, en ég bý í stóru tveggja hæða húsi. Hún fór strax að úti- dyrahurðinni og svalahurðinni og urraði út í eitt. Ég fylgdist með henni og eftir svolítinn tíma róaðist hún og labbaði með mér upp aftur. Hvað var í gangi veit ég ekki en ég hef látið mér detta í hug að óboðinn gestur hafi verið á ferðinni.“ Hún segir hundinn mikla heimilisgleði. „Þegar ég kem heim á daginn dansar Líf á afturfótunum eins og ballettdansari marga hringi í kring um mig með fæturna upp í loft. Það eru þvílíkir fagnaðarfundir. Líf er skemmtilega ákveðin, hvatvís og alltaf til í leik, gefur endalaust af sér og varð strax ein af fjölskyldunni. Enda þarf fólk að gera sér grein fyrir því að hundur er ekki eins og leikfang. Þetta er 15 ára skuldbinding og heilmikil ábyrgð sem er bara fyrir fullorð- inn einstakling að standa undir þótt það sé um að gera að leyfa börnum og unglingum að taka eins mikinn þátt í umönnun dýrsins og hægt er. Strákurinn minn, Hlynur Alm- ar, sem er níu ára deilir gæludýra- áhuganum með mér svo hann nýtur Lífar ekkert síður en ég.“ Fiskar þurfa líka athygli Eitt er það sem vekur furðu Lífar og það er þegar húsmóðir hennar er að bjástra við fiskabúrið. „Hún skilur ekkert í þessum furðuverum sem svífa þarna um né hvað ég hef mikinn áhuga á þeim. Þegar ég held henni upp við búrið glápir hún stórum aug- um inn og nær þessu engan veginn.“ María viðurkennir líka að fiskar og hundar séu ólík dýr að halda. „Það er mjög afslappandi að sitja og horfa á fallega fiska í búri en auðvitað er gífurlega mikill munur þarna á. Hins vegar eru þetta hvor tveggja dýr og fiskarnir þurfa sína athygli enda ým- islegt sem getur komið upp í fiskabúri, s.s. sjúkdómar ofl.“ Hún segir heilmikil fræði í kring um fiskaræktina og oft hægt að læra mikið af öðrum fiskaeigendum, t.d. í gegn um netið. „En ég er nú bara byrjandi í þessu,“ bætir hún við. Líf er þó og verður í fyrsta sæti. „Friðrik mikli Prússakeisari sagði: „Því betur sem ég kynnist mönnunum, þeim mun vænna þykir mér um hundinn minn.“ Ef rétt er á málum haldið myndast mjög sérstakt sam- band milli hunds og manns. Hundurinn er einstakur vinur og verðskuldar virðingu í samræmi við það.“ Morgunblaðið/Sverrir Mæðgin María Magnúsdóttir og Hlynur Almar Sölvason deila áhuga sínum á gæludýrum og njóta hér samvistanna við Silky Terrier hundinn Líf og litla kanínustrákinn sem er í heimsókn hjá þeim um þessar mundir. Einnig er fiskabúr að finna á heimili þeirra. Mjúk Það er notalegt að hafa hlýja kanínu á öxlinni eins og Hlynur Almar fær að reyna. Mæðgin með mætur á dýrum Þegar María Magnúsdóttir kemur heim á daginn er henni fagnað með ballettdansi sem væri ekki í frásögur færandi ef dansarinn væri ekki hundur. Bergþóra Njála Guðmunds- dóttir komst að því að Silky Terrier er lítill hvutti með stórt hundaeðli. Þegar ég kem heim á dag- inn dansar Líf á afturfót- unum eins og ballettdansari marga hringi í kring um mig með fæturna upp í loft. Það eru þvílíkir fagnaðarfundir. ben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.