Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Í dag, 23. apríl, hefði Jakobína frænka mín orðið 44 ára en hún lést 2. mars sl. Móðursystir mín, hún Bína, er fall- in frá allt of snemma.Veikindi hafa verið hennar fylgifiskur í mörg ár og Guðrún Jakobína Jakobsdóttir ✝ Guðrún Jak-obína Jak- obsdóttir fæddist í Neskaupstað 23. apríl 1963. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fáskrúðs- fjarðarkirkju 10. mars. að lokum sigraði krabbameinið. Alltaf var hún já- kvæð og lífsviljinn leyndi sér ekki. Bína var alltaf hress og kát og stutt í léttleikann sem var henni í blóð borinn. Ég hef þekkt Bínu frá fæðingu, en þegar ég fæddist var hún tíu ára. Með tím- anum urðum við vin- konur miklar. Eitt sumarið, þegar ég var unglingur, fór ég aust- ur að passa Steinar Örn, elsta barn þeirra hjóna, og er þetta sumar mér mjög minnistætt fyrir margra hluta sakir. Síðar, eða árið 1991, flutti ég austur á Fáskrúðsfjörð og þá urðu samverustundirnar fleiri. Líf Bínu var ekki alltaf dans á rós- um. Hún missti dreng, sem fékk nafn- ið Ingvar, þegar hann var aðeins fimm daga gamall. Núna er hún kom- in til hans og þar hafa orðið fagnaðar- fundir. Ég á þrjá drengi sem minnast hennar sem mikils fjörkálfs og alltaf hressrar og brosandi. Fyrir nokkrum árum sömdum við frænkurnar lag og dans við lagið sem við fluttum á fjöl- skylduskemmtunum fólki til mikillar gleði. Að minnsta kosti skemmtum við okkur alltaf vel við flutning þessa frábæra skemmtiatriðis. Bína var ótrúlega lífsglöð þrátt fyr- ir erfið veikindi síðustu ár, alltaf stutt í brosið og léttleikann. Ég minnist þess líka þegar hún og eiginmaður hennar, Sigurbjörn, eignuðust Jónu Særúnu, ég var heilluð af þessu litla fallega ósjálfbjarga kríli. Ári seinna eignaðist ég frumburð minn, Björgvin Stefán, og þá voru samverustundirn- ar margar og góðar.Við spásseruðum glaðar með börnin okkar í vögnum um götur Fáskrúðsfjarðar. Núna eru þessi börn orðin 15 og 16 ára gömul. Elsku Bína, þú verður í minningu minni um ókomna tíð. Í lokin vil ég votta Sigurbirni, Steinari Erni og Jónu Særúnu mína dýpstu samúð. Guðfinna Erlín Stefánsdóttir. ✝ Þorbjörg Rögn-valdsdóttir var fædd á Siglufirði 18. maí 1959. Hún lést á dvalarheimili Sjálfs- bjargar 11. apríl sl. Foreldar hennar voru Guðrún Al- bertsdóttir, f. 18.8. 1929, og Rögnvald- ur Rögnvaldsson, f. 14.7. 1921, d. 31.10. 2002. Systkini Þor- bjargar eru: 1. Anna, f. 16.7. 1949. Börn hennar eru: Þorbjörg lauk stúdentsprófi frá menntaskólanum í Kópavogi. Eftir menntaskólaárin stundaði hún ýmis skrifstofustörf, síðast hjá Jó- hanni J. Ólafssyni, eða þar til MS- sjúkdómur dæmdi hana úr leik 1996. Í mörg ár lék hún blak með blakliði Breiðabliks og keppti einnig með landsliði Íslands í blaki. Sambýlismaður Þorbjargar um 10 ára skeið var Sveinn Ragn- arsson. Þorbjörg dvaldi á dvalarheimili Sjálfsbjargar síðustu árin. Útför Þorbjargar verður gerð frá Digraneskirkju í dag kl. 15. Rögnvaldur Daði, Hlynur Jóhann, d. 1997, Benedikt Örn, Albert Pétur, og María Klara. 2. Þór- dís, f. 7.4. 1951, maki Páll Níels Þor- steinsson. Börn þeirra eru Burkni og Frosti. 3. Gunnar Al- bert, f. 30.10. 1956. Maki hans er Sigrún Þormar Guttorms- dóttir. Börn þeirra eru Valdís og Gunnar Freyr. Með fáeinum orðum ætla ég að kveðja vinkonu mína, Þorbjörgu Rögnvaldsdóttur, eða Tobbu eins og við flest þekktum hana. Við kynntumst sumarið eftir landspróf, og má segja að það kom okkur báðum á óvart, að með okk- ur skyldi myndast þessi náni vin- skapur, eins ólíkar og við vorum að mörgu leiti. Hinsvegar vorum við einnig líkar, höfðum afskaplega svipaðar lífsskoðanir og deildum sama skopskyninu. Fátt skemmti- legra vissum við heldur en útilegur og við gátum spilað á spil enda- laust. Um tvítugt fluttum við að heiman og leigðum saman í u.þ.b. átta ár. Á þessum árum, þegar við báðar vorum að mótast og velja okkur þá leið í lífinu sem okkur hentaði, má segja að góð vinátta yrði jafnvel enn betri. Tobba var þessi rólega og sterka, ég hálfgert trippi, sem henni tókst yfirleitt að koma vitinu fyrir, þegar á þurfti að halda. En núna er komið að leiðarlok- um. Tobba lést 11.apríl sl. eftir löng og erfið veikindi. Hún hefur sjálfsagt verið hvíldinni fegin, og við ástvinir hennar þurfum nú að sýna sama æðruleysi og hún sjálf, og sætta okkur við að sjúkdóm- urinn sigraði að lokum. Ég tel mig ríkari manneskju fyrir það að hafa átt hana sem vin, og veit að mitt eigið líf hefði verið mun fátæk- legra, hefði ég ekki kynnst henni. Við Kristín viljum senda starfs- fólkinu í Hátúni okkar innilegustu þakkir fyrir þá góðu umönnun sem þau veittu vinkonu okkar. Við sendum mömmu hennar, henni Rúnu, okkar innilegustu samúðarkveðjur sem og allri fjöl- skyldu hennar. Hvíldu í friði elsku vinkona, Hólmfríður. Þorbjörg Rögnvaldsdóttir ✝ Elsku eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, HEIÐAR V. HAFSTEINSSON véliðnfræðingur, Vættaborgum 64, 112 Reykjavík, lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 20. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigríður Dögg Geirsdóttir, Andri Heiðarsson, Ingveldur Dís Heiðarsdóttir, Gígja Heiðarsdóttir, Elsa Vigfúsdóttir, Daníel Hafsteinsson, Lise Lotte Hafsteinsson, Sævar Hafsteinsson, Vivi Hafsteinsson, Hafsteinn S. Hafsteinsson, Sólveig Einarsdóttir, Berglind Líney Hafsteinsdóttir. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir og bróðir, NÍELS J. KRISTJÁNSSON, 1415 Renfrew Drive NE, Calgary, Alberta, Kanada, lést þriðjudaginn 17. apríl 2007 í Calgary, Kanada. Minningarathöfn auglýst síðar. Shannon Lee Dunning, Kristjan Laural Kristjansson, Anna María Kristjánsdóttir, Karen S. Kristjánsdóttir, Daníel Jón Kjartansson, Alda Kjartansdóttir, Edda M. Kjartansdóttir, og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS ÞORGILSDÓTTIR, Sóltúni 7, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut laugardaginn 21. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Guðjón Valdimarsson, Árný Guðjónsdóttir, Ingólfur Andrésson, Unnur Guðjónsdóttir, Sverrir Jónsson, Óskar Guðjónsson, Hervör Lúðvíksdóttir, Jóhanna Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EMILÍA GUÐRÚN BALDURSDÓTTIR, Hamraborg 36, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 20. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Sæmundur Þorsteinsson, Guðrún S. Sæmundsdóttir, Sigurgeir H. Högnason, Þorsteinn B. Sæmundsson, María J. Hauksdóttir, Sigurður B. Sæmundsson, Svava Bjarnadóttir, Jakob Sæmundsson, Sunneva Jörundsdóttir, Guðlaugur Sæmundsson, Fríður Brandsdóttir, Baldur Sæmundsson, Ólöf Kr. Guðjónsdóttir, Sigurlín S. Sæmundsdóttir, Magnús P. Halldórsson, Kristján N. Sæmundsson, Unnur Þorbjargardóttir, Hallgrímur Sæmundsson, Þórhildur Þorbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Látinn er Sveinn Skúlason, óðalsbóndi í Bræðratungu í Biskupstungum. Kynni okkar hófust fyrir nokkrum árum er ég kom í fyrsta skipti að höfuðbólinu Bræðratungu þeirra erinda að skoða kirkjuna þar. Fag- urt myndverk er þar á veggjum, en í garði blöstu við legsteinar fornir, er fyrrum höfðu verið yfir leiðum fyrirfólks staðarins, en síðar nýttir sem stétt fyrir kirkjudyrum, samt ótrúlega heillegir. Þar getur að líta m.a. legstein ,,höfðings matrónunn- ar“, Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu, og manns hennar, Hákonar Gíslasonar, en hún og hennar fólk kemur mikið við sögu Brynjólfs biskups Sveinssonar og Skálholtsfólks, svo sem kunnugt er. Auðheyrt var að liðin sagan var Sveini kær, sömuleiðis kirkjuhúsið fagra, sem verið hefur í umsjá hans sem kirkjubónda um langa hríð og ber umhyggju hans glöggt vitni. Með þessari fyrstu heimsókn að Bræðratungu tókst með okkur Sveini góður kunningsskapur sem enst hefur síðan. Tveimur árum síðar var Sveinn í Bræðratungu mættur við árlega messu í Ábæj- arkirkju í Austurdal í Skagafirði, kominn akandi norður yfir Kjöl og kvaðst aðeins hafa verið einhverja þrjá tíma í förum, svona rétt eins og þegar menn bregða sér bæj- arleið. Maður varð þess fljótt áskynja, að hér fór maður sem ekki miklaði fyrir sér smámuni. Kirkju- bóndinn og hringjarinn í Bræðra- tungu tók að sér að hringja kirkju- klukkunum í Ábæ, sem vakti athygli kirkjugesta, enda víst fá dæmi þess, að hringjari hafi verið sóttur suður á land til að hringja kirkjuklukkum í Skagafirði. Ég fann að Sveini þótti svolítið gaman að þessu, og hann hafði á orði, að þessari siðvenju, sem Ábæjarmess- Sveinn Skúlason ✝ Sveinn Skúlasonfæddist í Bræðratungu 6. júlí árið 1927. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands aðfaranótt 14. mars síðastliðinn. Útför Sveins var gerð frá Skálholts- dómkirkju 24. mars sl. an er, þyrfti að við- halda. Sjálfur hélt hann þeirri venju að koma í Ábæjarmess- una, og þar hringdi hann síðast kirkju- klukkunum um versl- unarmannahelgi á liðnu sumri. Þá vildi svo skemmtilega til, að kirkjunni var færður að gjöf nýr altarisdúkur með mynstri, sem fengið var að láni frá kirkju Sveins í Bræðra- tungu. Sveinn gaf sér ævinlega góðan tíma til að staldra við í kirkjukaffi heima á Merkigili að lokinni messu og spjalla við fólk. Hann var maður fróður um menn og málefni og virt- ist þekkja til fólks í öllum lands- hlutum, glaðlyndur og gamansam- ur í samræðum og hafði góða nærveru. Það sópaði að honum, hvar sem hann fór. Um búskaparár Sveins í Bræðratungu munu aðrir mér fróðari, en hver sá, sem þang- að leggur leið sína, veitir athygli veglegum húsbyggingum og mikilli ræktun, enda Bræðratunga mikil bújörð og ræktanlegt land gríð- arlega mikið. Þar má sjá að ekki hefur verið setið auðum höndum. Síðari árin dró Sveinn sig út úr bú- skapnum og lét í hendur syni sín- um. Síðast bar fundum okkar sam- an heima í Bræðratungu í ágústmánuði „á liðnum slætti“. Þar átti ég góða stund með Sveini og hans ágætu konu, Sigríði Stefáns- dóttur, og bar margt á góma. Við kvöddumst úti við kirkjuna með ósk um að hittast við Ábæjarmessu að sumri. En margt breytist. Sveinn í Bræðratungu hefur nú lagt upp í ferðina, sem öllum er fyrirbúin. Við munum sakna hans í dalnum. Mennirnir þenkja, en Guð ræður. Það hygg ég fáum hafi ver- ið ljósara en óðalsbóndanum í Bræðratungu. Hann var einlægur trúmaður og mat kirkjuna og starf hennar mikils. Við hér á Mælifelli biðjum honum blessunar og far- arheilla um leið og við vottum konu hans Sigríði, börnum þeirra og öllu venslafólki innilega samúð. Guð blessi minningu hans. Ólafur Þ. Hallgrímsson, Mælifelli. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.