Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIKILL áhugi er á auknum sam-
skiptum Íslands og Kaliforníu þar
vestra, að sögn Sólveigar Péturs-
dóttur, forseta Alþingis. Sendinefnd
alþingismanna mun í dag heimsækja
fylkisþingið í Sacramento og funda
þar með ráðamönnum.
„Hér er mjög mikill áhugi á orku-
og umhverfismálum,“ sagði Sólveig.
Sendinefndin hefur m.a. vakið at-
hygli á íslenskum orkufyrirtækjum
sem eru að hasla sér völl á Banda-
ríkjamarkaði. Nýting jarðhita og
þróun djúpborana hér á landi hefur
vakið mikla athygli í Kaliforníu.
Einnig er þar mikill áhugi á þróun
vetnistækni í samgöngum, að sögn
Sólveigar. Sólveig sagði Ísland og
Kaliforníu hafa skrifað undir vilja-
yfirlýsingu um aukna samvinnu á
sviði orkumála. „Þeim finnst ótrú-
legt að yfir 70% af þeirri orku sem
Íslendingar nota sé endurnýjanleg
orka,“ sagði Sólveig. Hún sagði gott
að hafa sérfræðinga á sviði orku- og
umhverfismála á borð við Sigríði
Önnu Þórðardóttur, fyrrverandi um-
hverfisráðherra, og Hjálmar Árna-
son, formann iðnaðarnefndar og
nefndarmann í sjávarútvegsnefnd, í
sendinefndinni.
Sendinefndin heimsótti rann-
sóknamiðstöð sem rekin er í
tengslum við sædýrasafnið í Monter-
eyflóa. Það er stærsta sædýrasafn í
heimi. Þar átti nefndin fund með ein-
um af æðstu stjórnendum safnsins
og rannsóknamiðstöðvarinnar.
„Þeir hafa verið að vara við því að
Atlantshafsþorskurinn sé í útrým-
ingarhættu og íslensk stjórnvöld
hafa mótmælt skilgreiningu þeirra,“
sagði Sólveig. Nefndin kom því m.a.
á framfæri að Íslandsþorskurinn sé
sjálfstæður stofn og útskýrði ís-
lenska fiskveiðistjórnunarkerfið og
áherslu Íslendinga á sjálfbærar fisk-
veiðar. Sólveig segir að forsvars-
menn rannsóknastöðvarinnar hafi
verið þakklátir fyrir þessar upplýs-
ingar og sagst mundu mæla með því
að fólk keypti íslenskan þorsk. Þá
lýstu stjórnendur stöðvarinnar
áhuga á auknum samskiptum við
Hafrannsóknastofnun um rannsókn-
ir og upplýsingamiðlun.
Mikill áhugi á auknum sam-
skiptum Kaliforníu og Íslands
Sendinefnd alþingismanna kynnti íslenska fiskveiðistjórnun og nýtingu jarðhita
Ljósmynd/Matthías Ingimarsson
Heimsókn Þingmannanefndin heimsótti meðal annars Donald Bren-
umhverfisskólann við Kaliforníuháskóla í Santa Barbara.
LÍF OG FJÖR var í Smáralindinni
um helgina þegar fram fór karókí-
keppni fyrir krakka. Meðal dómara
voru Hara-systurnar Hildur og
Rakel úr X-Factor, en þær urðu þar
í öðru sæti. Meðdómarar voru Jógv-
an, sigurvegari í X-Factor, og Guð-
björg, sem lenti í þriðja sæti. Sjálf
Ellý, sem var dómari í X-Factor,
var á staðnum, en kom þó ekki að
dómum að þessu sinni.
Karen Lind Harðardóttir, 12 ára
nemandi í Borgarskóla, bar sigur
úr býtum, en hún söng lagið My
heart will go on, sem Celine Dion
söng svo ljúflega í kvikmyndinni
Titanic. Svanhildur Alexandra, 11
ára frá Akranesi, varð í öðru sæti.
Hún á ekki langt að sækja hæfileik-
ana því hún er dóttir Ellýjar. Besta
vinkona Karenar, Heiðrún Bach-
man, 12 ára, lenti í þriðja sæti. Þess
má og geta að Heiðrún dró Karenu,
vinkonu sína, með sér í keppnina. Í
verðlaun er dvöl í sumarbúðunum
Ævintýralandi á Hellu. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinkonur í
efstu sætum í
karókíkeppni
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞETTA hefur verið reynt einu sinni
áður en samkvæmt lögum um tækni-
frjóvganir er staðgöngumæðrun
ekki leyfð á Ís-
landi,“ segir
Reynir Tómas
Geirsson, pró-
fessor og yf-
irlæknir á
kvennasviði
Landspítala há-
skólasjúkrahúss,
en í Morgun-
blaðinu í gær
birtist auglýsing,
þar sem óskað var eftir staðgöngu-
móður.
Staðgöngumóðir er sú kona sem
gengur með og elur barn sem getið
er af öðru fólki með tæknifrjóvgun. Í
lagalegum skilningi er stað-
göngumóðirin móðir barnsins sem
hún elur, þótt hún sé það ekki í líf-
fræðilegu tilliti.
Móðir í lagalegum skilningi
Í lögum um tæknifrjóvgun frá
1996 var staðgöngumæðrun ekki
heimiluð hér á landi og ástæðurnar
meðal annars þær, hve erfitt getur
verið fyrir konu að láta frá sér barn
sem hún hefur alið en einnig ákvæði
sem tryggja á rétt barns til vitn-
eskju um foreldra sína og uppruna.
„Staðgöngumæðrun hefur alls
staðar verið umdeild vegna þess hve
það er erfitt að vera í þeirri stöðu að
fæða barn og láta það frá sér. Er-
lendis hafa komið upp alvarleg
vandamál þegar staðgöngumæður
hafa ekki viljað láta barnið af hendi,
þrátt fyrir heit þar um,“ segir Reyn-
ir Tómas. Að hans sögn hefur þetta
þó verið einn af þeim raunhæfu
möguleikum sem konur sem misst
hafa leg, en halda eggjastokkum,
hafa átt til að eignast barn. „Það eru
margir á þeirri skoðun, og þar á
meðal ég, að það kæmi vel til greina
að breyta lögum um tæknifrjóvgun
og rýmka heimildir til stað-
göngumæðrunar í sérstökum til-
fellum að uppfylltum fastákveðnum
skilyrðum.“
Kona getur ekki gefið frá sér
ófætt barn og því reynir ekki á sam-
komulag tilvonandi foreldra við stað-
göngumóður fyrr en barn er fætt.
„Það er svo áhætta sem fólk þarf að
taka, um að staðgöngumóðirin efni
sitt heit við fæðingu barnsins.“
Til þess að koma staðgönguþung-
un í kring, þurfa hinir tilvonandi ís-
lensku foreldrar og íslensk stað-
göngumóðir nú að fara til útlanda,
þangað sem leyfilegt er að gera slík-
ar aðgerðir. Foreldrarnir þurfa því
að bera allan kostnað sjálfir, þar
með talinn kostnað staðgöngumóð-
urinnar en kostnaður við aðgerðina
sjálfa getur verið 250-500 þúsund
krónur.
Á netinu má finna fjölda vefja þar
sem fólk óskar eftir staðgöngu-
mæðrum en einnig vefi þar sem kon-
ur auglýsa að þær taki stað-
göngumæðrun að sér. Dæmi eru um
það erlendis, ef marka má sumar
þessara netsíðna, að konur hafi stað-
göngumæðrun að lifibrauði. Ekki er
sama hver staðgöngumóðirin er, því
þær verða líka að uppfylla ákveðin
heilbrigðisskilyrði og fylgikvillar í
þungun hjá staðgöngumóður geta
orðið og haft áhrif á heilbrigði barns-
ins. Enn önnur vandamál koma upp
ef staðgöngumóðir er erlend.
Heppilegra að velja skyldfólk
Aðspurður um hvort fólk ætti
sjálft að geta valið sér stað-
göngumæður, ef heimild fengist til
slíkra aðgerða hér, segir Reynir
Tómas að í mörgum tilfellum sé það
svo að nákominn ættingi vilji taka
það hlutverk að sér. „Ég tel það
heppilegra en að velja ókunnugt
fólk. Ég hef það á tilfinningunni að
óskyld kona myndi frekar vilja halda
barninu en ef þetta væri meðal
skyldfólks. Það sama átti við um ætt-
leiðingar áður fyrr. Þær reyndust
auðveldari ef börn voru látin til ætt-
ingja.“
Íslenskt par auglýsti eftir staðgöngumóður í Morgunblaðinu um helgina Reynir Tómas Geirsson
prófessor segir að til greina komi að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi en það er óheimilt nú
Staðgöngumóðir er lögmóðir
Morgunblaðið/Kristinn
Staðgöngumóðir Kona getur ekki
gefið frá sér ófætt barn.Reynir Tómas
Geirsson
KARLMAÐUR hefur verið dæmdur
í Héraðsdómi Suðurlands til að missa
ökuréttindi sín í tólf mánuði fyrir um-
ferðarlagabrot og til að greiða allan
sakarkostnað, rúmar 190.000 krónur.
Málsatvik eru þau að í apríl 2006
veitti lögregla athygli bifreið sem var
beygt til vinstri út af Langasandi á
Hellu inn á Dynskála og ekið á móti
lögreglubifreiðinni. Lögreglumenn-
irnir töldu sig þar þekkja bifreið
ákærða en skömmu áður hafði lög-
regla haft afskipti af manninum í
hesthúsi vegna líkamsárásar sem
hann kvaðst hafa orðið fyrir af hendi
sambýliskonu sinnar. Ákærði var
ölvaður þegar lögregla hafði afskipti
af honum í hesthúsinu. Hann var einn
í bifreiðinni. Blóðsýni var tekið úr
honum og sýndi það að vínandamagn
í blóði var 1,54 prómill. Ákærði neit-
aði sök, kvaðst hafa drukkið áfengi
eftir að lögregla stöðvaði hann. Frá-
sögn ákærða var á reiki og þótti ekki
trúverðug. Í dómi er talið hafið yfir
skynsamlegan vafa að ákærði hafi
ekið í umrætt sinn undir áhrifum
áfengis eins og kært var fyrir.
Dóminn kvað upp Ástríður Gríms-
dóttir héraðsdómari. Kristín Þórðar-
dóttir fulltrúi flutti málið fyrir hönd
ákæruvaldsins. Hilmar Ingimundar-
son hrl. var til varnar.
Missir
ökuleyfi
og greiðir
kostnað
GENGIÐ hefur verið frá skipan
manna í efstu sætin á framboðslista
Íslandshreyfingarinnar – lifandi
lands, í Norðausturkjördæmi. Hörð-
ur Ingólfsson markaðsráðgjafi frá
Akureyri verður í fyrsta sæti listans.
Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir félags-
málastjóri á Egilsstöðum verður í
öðru sæti. Davíð Sigurðarson fram-
kvæmdastjóri á Egilsstöðum verður
í þriðja sæti. Eyrún Björk Jóhanns-
dóttir stjórnmálafræðinemi á Egils-
stöðum verður í fjórða sæti. Ásgeir
Yngvason biðreiðastjóri á Akureyri
verður í fimmta sæti.
Íslandshreyfingin hefur nú birt
framboðslista í öllum kjördæmum,
nú þegar búið er að birta listann í
Norðausturkjördæmi.
Íslandshreyf-
ingin birtir
síðasta listann
♦♦♦