Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.04.2007, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LISTAHÁTÍÐIN nuna (now) var opnuð í Winnipeg í gær og þegar hafa henni verið gerð mjög góð skil í fjölmiðlum í borginni. Um næstu helgi verður þjóðræknis- þing Þjóðræknisfélagsins í Norð- ur-Ameríku haldið í Winnipeg og er allt að smella saman, að sögn Serena Goebel, formanns íslensk- kanadíska félagsins Fróns, sem sér um þingið að þessu sinni. For- seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms- son, er heiðursgestur þingsins. Uppselt Þjóðræknisþingið hefur vakið æ meiri athygli síðan það var haldið í Minneapolis 2002. Núna verður það haldið á Fort Garry hótelinu og er rými fyrir um 350 manns í hátíðarkvöldverðinn á laugardag. Þó nokkuð er síðan miðar á kvöld- verðinn seldust upp. „Við gerum ráð fyrir að um 250 manns sæki sjálft þingið og þó við sláum hvorki Minneapolis né Edmonton 2003 út, verður þetta fjölmennasta þjóð- ræknisþing sem haldið hefur verið í Manitoba,“ segir Serena Goebel. Fyrsta þjóðræknisþingið var haldið í Winnipeg 1919 en um ára- tugur er síðan það var þar síðast. Serena minnir á að Winnipeg er miðpunktur „íslenska“ samfélags- ins vestra og stöðugt sé eitthvað að gerast þar í málefnum fólks af íslenskum ættum. Frón hafi lagt grunninn að stofnun Þjóðræknis- félagsins fyrir 88 árum og sam- stendur hún til 29. apríl. Á meðal íslensku listamannanna, sem koma við sögu hátíðarinnar, eru söng- konurnar Fabúla, Ólöf Arnalds og Ragnheiður Gröndal og myndlist- armaðurinn Ragnar Kjartansson, auk þess sem sýndar verða kvik- myndir eftir Egil Eðvarðsson og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. Í tengslum við þjóðræknisþingið kynnir Iceland Naturally íslensk- an mat á þremur virtum veitinga- stöðum í Winnipeg. Félagið Jón Sigurðsson, Kanada Ísland sjóðurinn og Safn íslenskr- ar menningararfleifðar á Gimli. „Atli Ásmundsson, aðalræðismað- ur Íslands í Winnipeg, hefur líka lagt okkur ómælt lið í þessu mesta átaki í sögu Fróns.“ Dagblaðið Winnipeg Free Press greindi frá listahátíðinni nuna (now) á forsíðu fyrir helgi og varði þremur síðum í menningarblaðinu undir viðburðinn. Um 50 ungir listamenn taka þátt í hátíðinni og vinnan ráði enn ríkjum. Því sé samvinna fólks yfirskrift þingsins. Allir með Undirbúningur hófst í desem- ber 2005 og var þegar ákveðið að fá önnur „íslensk“ samtök í Winni- peg til að koma að málum. Serena segir að þeir sem leggi Frón lið séu íslenskudeild Manitoba-há- skóla, Norræna húsið í Winnipeg, Lögberg Heimskringla, Íslensk kanadíska tímaritið, Lestrarfélag, Íslenskir dagar í Winnipeg Listahátíð ungs fólks í Kanada og á Íslandi hafin í borginni og forseti Íslands heiðursgestur á þjóðræknisþinginu í vikunni Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Skipuleggjendur Margir hafa komið að skipulagningu þjóðræknisþings Þjóðræknisfélagsins í Norður- Ameríku, sem verður í Winnipeg, og mikið hefur mætt á Evelyn Thorvaldson, til vinstri, og Serenu Goebel. ENDURMENNTUNARSTOFNUN Mc- Gill-háskólans í Montreal efndi til Ís- landskynningar á dögunum og mætti hópur fólks sem starfað hefur að kennslu- og menntamálum. Markús Örn Antonsson, sendiherra Ís- lands í Kanada, David Franklin, ræðis- maður Íslands í Montreal, og Salóme Arnbjörnsdóttir kynntu sögu Íslands og landshagi og gerðu grein fyrir áhuga- verðum tækifærum fyrir erlenda ferða- menn, sem til landsins koma. Í erindi sínu fjallaði Markús Örn m.a. um margháttuð tengsl Íslands og Kan- ada fyrr og nú, sögu Vestur-Íslendinga og íslensk utanríkismál. David Franklin gerði grein fyrir íslenskum efnahags- málum og utanríkisviðskiptum en Sal- óme Arnbjörnsdóttir, sem hefur starfað sem leiðsögumaður á Íslandi en er nú bú- sett í Montreal, veitti margvíslegar upp- lýsingar um Ísland sem ferðamannaland. Fram kom að margir í áheyrenda- hópnum höfðu gert víðreist um heiminn og voru áhugasamir um Íslandsferðir. Ferðalög milli Íslands og Kanada verða mun auðveldari en verið hefur um árabil þegar beinar flugferðir milli landanna hefjast hinn 17. maí n.k. Þá hefst að nýju áætlunarflug Icelandair til Halifax og ferðaskrifstofan Heimsferðir byrjar vikulegt leiguflug til Montreal. Kynning Frá vinstri: Markús Örn Ant- onsson, Salóme Arnbjörnsdóttir, David Franklin og Glenn F. Cartwright, for- stöðumaður endurmenntunarsviðs McGill-háskólans í Montreal. Íslandskynning í Montreal ÚR VESTURHEIMI Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is UNDANFARNAR vikur hafa nemendur í 9. bekk Grundaskóla lagt nótt við dag við æfingar á söngleiknum Draumaleit en um er að ræða alþjóðlegt samstarfsverkefni. Nemendur og kennarar í þremur öðrum löndum taka þátt í þessu verkefni. Í Stokk- hólmi í Svíþjóð, Lecce á Ítalíu og í Tyrklandi eru nemendur í bænum Giresun við Svartahaf- ið að vinna í verkefninu. Söngleikurinn gerist í Bandaríkjunum fyrir um 100 árum þar sem innflytjendur eru í aðal- hlutverki. Í gær, þegar Morgunblaðið leit inn á æfingu í Bíóhöllinni, var verið að fínpússa ýmis atriði en Einar Viðarsson, kennari við Grunda- skóla, segir að verkefnið hafi gengið vel og margir lagt hönd á plóginn. Fá góðan stuðning „Þetta er stærsta verkefni sem við höfum tekið þátt í og krakkarnir hafa staðið sig eins og hetjur í undirbúningnum. Það koma um 50 nemendur úr 9. bekk nálægt þessu verkefni og við höfum einnig fengið góða hjálp frá for- eldrum sem hafa tekið þátt í búningagerð, sviðsmynd og fjölda annarra verka sem til falla.“ Einar segir ennfremur að sviðið í Bíó- höllinni sé góður stökkpallur fyrir nemendur Grundaskóla. „Við vildum fara með þetta verk út fyrir skólann og taka eitt skref upp á við frá því í síð- ustu verkefnum. Draumaleitin er eitt stærsta verkefni sem Grundaskóli hefur ráðist í þar sem aldrei hafa svo margir leikarar komið við sögu í fyrri söngleikjum og sviðsmyndin er mun stærri en vant er. Einnig er mikið lagt upp úr lýsingu og hljóði,“ sagði Einar. Flosi Einarsson og Einar hafa umsjón með uppsetn- ingunni en Sigurjón Jónsson, Margrét Áka- dóttir og Sigurður Arnar Sigurðsson hafa séð um framkvæmdastjórn. Danshöfundar eru þær Karen Lind Ólafsdóttir og Emilía Ottesen. Einar segir að fátt hafi komið á óvart þrátt fyr- ir að tónlistin sé blanda frá fjórum ólíkum þjóð- um. „Ég hélt að krakkarnir yrðu kannski ekki hrifin af þeirri tónlist sem samin er í Tyrklandi eða á Ítalíu. Annað hefur komið á daginn. Þau eru mjög víðsýn og hafa lært að meta ólíka strauma frá mismunandi menningarsvæðum.“ Sýningin Draumaleitin, sem er styrkt af Com- eniusar-sjóðnum, verður frumsýnd á miðviku- daginn í Bíóhöllinni og er nú þegar búið að selja alla þá miða sem í boði eru á fyrstu sýn- ingu. „Það eru um 240 sæti á hverja sýningu og við gerum ráð fyrir að sýna verkið fimm sinn- um. Ef áhugi reynist fyrir fleiri sýningum þá sjáum við til með framhaldið þegar að því kem- ur,“ sagði Einar. Draumaleitin er þriðji söng- leikurinn sem nemendur Grundaskóla setja upp en Frelsi var fyrsti söngleikurinn sem var sýndur og á sl. ári voru Hunangsflugur og Villi- kettir á dagskránni. „Ólíkir straumar í Draumaleitinni“ Morgunblaðið/Sigurður Elvar Draumalandið Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir og Hallur Flosason eru á meðal þeirra nemenda úr 9. bekk Grundaskóla á Akranesi sem taka þátt í uppsetningu söngleiksins Draumalandsins sem sýndur verður í Bíóhöllinni næstu vikurnar. Um alþjóðlegt samstarfsverkefni er að ræða. Samstarfsverkefni fjög- urra þjóða frumsýnt í Bíóhöllinni á Akranesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.