Morgunblaðið - 23.04.2007, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.04.2007, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í fyrri hluta greinarinnar var komist að þeirri niðurstöðu að stærsti hluti virðisauka í álfram- leiðslu renni til erlendra aðila. Í þessum hluta verður reynt að nálg- ast mat á rentu af auðlindinni sem virkjuð er og rýnt í hver nýtur hennar. Sé heimsmarkaðsverð, söluverð og framleiðsluverð raf- orku eitt og hið sama er engin renta af auð- lindinni. Allur virð- isauki rennur þá til annarra fram- leiðsluþátta. Auðlindin hefur ekkert verðgildi í orkuframleiðslu við þessar aðstæður. Ef heimsmarkaðsverð á orku er hærra en framleiðsluverð inn- lendrar orku er renta af auðlindinni til stað- ar. Það ræðst af sölu- verðinu til álversins hvar hún lendir. Rentan lendir hjá orkuframleið- andanum ef hann selur raforkuna á heimsmarkaðsverði. Auðlindarentan er þá munurinn á heimsmark- aðsverðinu og framleiðsluverði ork- unnar að meðtaldri eðlilegri ávöxtun á fjármagni í rekstrinum. Sé orkan hins vegar seld á verði sem er undir heimsmarkaðsverði skilar rentan sér ekki að fullu til orkusalans held- ur rennur að hluta til kaupandans og að fullu til hans ef söluverðið er jafnt framleiðsluverðinu. Upplýst afstaða til virkjana í þágu stóriðju krefst þekkingar á þessum forsendum. Þeir sem tilbúnir eru að ganga langt í uppbyggingu stóriðju vilja væntanlega ekki nýta auðlindir hér á landi þannig að öll renta af þeim renni til erlendra aðila og þeir sem vilja fara varlega í sakirnar eiga auðveldara með að gera upp hug sinn ef þeir vita fyrir hvaða verð náttúruauðlindum er fórnað. Það hlýtur að vera hagsmunamál allra að upplýsingar þessar liggi fyr- ir. Upplýsingar um söluverð ís- lenskra orkuvera á raforku til stór- iðju hafa ekki legið á lausu. Án slíkra upplýsinga má þó nálgast svar við spurningunni um rentuna þótt ekki sé í tölum. Fyrr á tíð lögðu stjórnavöld mikið í að fá erlenda aðila til að byggja hér álver. Gekk það lengi vel illa þrátt fyrir síaukna álnotkun og hækkandi heimsmarkaðsverð. Skýringin er líklega sú að orkuverð hér hafi þótt hátt í samanburði við heimsmark- aðsverð á orku til álframleiðslu. Nú hafa orðið umskipti. Álframleið- endur standa í biðröð og eru að sögn komnir með bindandi tilboð um orkuverð, sem gerir þeim kleift að ákveða sig með stuttum fyrirvara. Þetta bendir til þess að orkuverð til stóriðju hér á landi sé nú orðið lægra en það verð sem fá má hjá öðrum orku- framleiðendum. Það þýðir þó ekki að verð hér hafi lækkað nema að tiltölu við heims- markaðsverð. Rétt er að hafa í huga að Ís- land er ekki hagkvæmur fram- leiðslustaður fyrir ál m.t.t. flutnings á hráefni og framleiðsluvöru og að laun eru há. Þetta óhagræði verður að jafna út með orkuverðinu. Framangreint bendir sterklega til þess að verð á orku til álframleiðslu hér á landi sé nú orðið lægra en heimsmarkaðsverð. Sé svo er það vísbending um að orkukaupandinn, þ.e. álverið, sé að fá í sinn hlut nokk- uð af þeirri rentu sem auðlindin gef- ur af sér. Sé litið til framleiðslu orkunnar má einnig finna vísbendingar þar um. Þar sem söluverð til stóriðju hefur ekki verið gefið upp hafa ýms- ir orðið til þess að draga í efa fjár- hagslega hagkvæmni af þessari orkuframleiðslu og byggja það á upplýsingum sem fyrir liggja og út- reikningum sem þeir hafa gert. Orkusalar fullyrða að sala orku til stóriðju sé hagkvæm og er það stutt þeim rökum að hún gefi ásættanlega arðsemi. Ekki er tilgreint hvað telst ásættanleg arðsemi. Með arðsemi er yfirleitt átt við það að eftir að kostn- aður hefur verið greiddur séu eftir tekjur til að umbuna fyrir það fjár- magn sem lagt hefur verið fram. Með ásættanlegri arðsemi er þá væntanlega átt við að arðsemi fjár- magnsins sé ekki minni en hugs- anlegt hefði verið að fá með öðrum hætti. Máli skiptir hvort auðlindin hefur verið metin til fjár í arðsem- isútreikningunum eða hvort aðeins er miðað við beint útlagt fjármagn. Sé verðmæti auðlindarinnar ekki talið með og arðsemi af öðru fjár- magni er aðeins í samræmi við markaðsávöxtun skilar engin renta sér til orkuversins. Auðlindarentan hefur þá runnið að fullu til álversins og kemur fram í hagnaði þess. Í hlut Íslands af rentunni kemur þá ein- göngu tekjuskattur álversins. Framangreind atriði, ásókn í orku og upplýsingar um orkusölu, benda til þess í fyrsta lagi að umtalsverð auðlindarenta sé í orkuframleiðslu á Íslandi. Í öðru lagi að þessi renta skiptist á milli orkuseljenda og ál- veranna. Í þriðja lagi að líklegt sé að verulegur hluti þessarar auðlinda- rentu renni til erlendra aðila. Þeirri spurningu hversu mikil renta er og hvernig hún skiptist milli innlends orkusala og erlends kaupanda verð- ur ekki svarað nema með ítarlegri athugun á grundvelli talnalegra upplýsinga. Sú spurning vaknar hins vegar hvort nýting náttúruauðlinda með þeim hætti að arður af þeim renni að verulegu leyti til erlendra aðila samrýmist hugmyndum manna um þjóðareign á náttúruauðlindunum og nýtingarrétt á þeim. Fyrir Ísland hefur auðlindin þá misst fjárhags- legt gildi sitt, öðrum nýtingarmögu- leikum hefur verið fórnað og um- hverfisspjöll hugsanlega unnin. Auðlindin er þá ekki lengur auðlind en er orðin byrði. Til hvers er þjóð- areign þá? Auðlindir og arður Indriði H. Þorláksson skrifar um auðlindir þjóðarinnar »Hver er hlutdeildinnlendra aðila í virðisauka af álfram- leiðslu og hvert rennur arðurinn af náttúru- auðlindinni, sem notuð er? Indriði H. Þorláksson Höfundur er hagfræðingur. MIKIÐ hefur verið talað um niðurstöður MUNNÍS-rannsókn- arinnar, sem sýnir svart á hvítu að tann- heilsu barna og ung- linga hefur farið hrak- andi undanfarin ár. Þegar undirrituð út- skrifaðist frá tann- læknadeild Háskóla Íslands árið 1993 var tannheilsa barna og unglinga með besta móti. Flest ef ekki öll börn mættu hjá sínum tannlækni tvisvar á ári, voru skoðuð og flúor- lökkuð og gert við skemmdir ef ein- hverjar voru. For- eldrar voru þá látnir borga 25% af kostnaði við þessa tann- heilsugæslu. Svo illa skemmdar tennur að þyrfti að rótfylla eða jafnvel fjarlægja voru afar sjaldgæfur hlutur hjá börnum þá en nú í dag eru þær nánast dag- legt brauð tannlækna. Tvö samhliða kerfi voru í gangi, skólatannlækn- ingar í Reykjavík og Hafnarfirði og einnig sáu sjálfstætt starfandi tann- læknar um sinn yngsta sjúklingahóp af miklum myndarskap. Eftir að op- inberar skólatannlækningar voru lagðar niður var ábyrgð á tannheilsu barna og unglinga alfarið varpað yfir á foreldra. Engir samningar hafa verið í gildi milli tannlækna og Tryggingastofnunar ríkisins síðan 1998 og framlög hins opinbera til tannheilbrigðismála hafa lækkað. Fyrir skömmu átti ég tal við for- menn tannlæknafélaganna á Norð- urlöndum og skýrði þeim frá því hvað væri að gerast uppi á litla Ís- landi. Þeir voru sammála um að ástandið væri ískyggilegt en vildu kenna því um að allar tannlækningar á Íslandi væru einkareknar, þ.e.a.s. ekki væru opinberar skólatannlækn- ingar. Ég hef verið að hugsa um þessi orð þeirra og það hvers lags ríkisstjórn hefur verið við völd á Íslandi und- anfarinn áratug en hún hefur mikið haldið á lofti kostum einkavæð- ingar og frjálsrar sam- keppni. Við lifum í samkeppn- isumhverfi og tann- læknum er bannað með lögum að hafa verð- samráð. Það var ákvörðun hins opinbera að leggja skólatann- lækningar niður, og einkavæða alla tann- heilsugæslu. Það var ákvörðun hins opinbera, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra síð- astliðinna ára að lækka endurgreiðsluhlutfall vegna tannlækninga markvisst. Ljóst er að þeir sem hafa haldið um pyngju ríkissjóðs undanfarin ár bera mikla ábyrgð á því ástandi sem nú hefur skapast í tannheilsumálum barna og ung- menna. Þeim hlýtur að hafa verið það ljóst að með því að hækka ekki endurgreiðslur vegna tann- læknaþjónustu, þótt ekki væri nema til að halda í við vísitöluhækkanir, myndu börn þeirra foreldra sem minnstar tekjur hafa ekki skila sér til tannlæknis en þau börn eru einmitt í mestri hættu að fá tannskemmdir, það sýna allrar rannsóknir hvar sem er í heiminum. Án þess að hugsa sig tvisvar um hafa ríkisstjórnir undangenginna ára brosað í kampinn og lækkað framlög til þessa málaflokks – með öðrum orðum „sparað“ fyrir hönd rík- issjóðs. Sparað á kostnað þeirra sem minnst mega sín í þessu þjóðfélagi. Einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu fylgir mikil ábyrgð, ekki síst af hálfu hins opinbera. Hér erum við að ræða um grunnheilsugæslu barna okkar og ungmenna en þessi hópur er af- skaplega lélegur þrýstihópur (getur t.d. ekki kosið). Eitt er að einkavæða og annað að láta þessa einkavæðingu ganga upp til velferðar fyrir bæði ríki og ein- staklinga. Segja má að einkavæðing tannheilbrigðisþjónustunnar hafi verið prófsteinn á það hvort ráða- menn hafi haft vit til að notfæra sér hagkvæmni einkavæðingar án þess að velta kostnaði um of yfir á ein- staklingana sjálfa. Mér sýnist að þeim hafi mistekist hrapallega. Á meðan ekki tíðkast sama kerfi hér og í Bandaríkjunum þar sem fólk kaupir sér heilsutryggingar til að standa straum af útgjöldum vegna heil- brigðismála verður íslenska ríkið að bera fulla ábyrgð, þótt ekki sé nema á heilsugæslu barna og unglinga. Ég er nokkuð viss um að fæstir tannlæknar og ennþá síður rík- isstjórnin vilja snúa aftur á bak í tíma og stofna ríkisbákn sem sinna ætti tannheilsugæslu barna og ung- linga eins og er við lýði á hinum Norðurlöndunum. Forvarnir eru og verða kostnaðarsamar, það vita allir. Með því að hækka endurgreiðslu- hlutfall til samræmis við það sem áð- ur var hefði með einföldum hætti mátt koma í veg fyrir þetta stórslys sem orðið hefur í tannheilsugæsl- unni. Nú er um að gera að missa ekki móðinn heldur spýta í lófana og bretta upp ermar, fara aftur á byrj- unarreit og sinna tannheilsugæslu barna okkar eins og þau eiga skilið. Skipbrot einkavæddrar heilbrigðisþjónustu? Ingibjörg S. Benediktsdóttir fjallar um tannheilbrigðismál Ingibjörg S. Benediktsdóttir »Einkavæð-ingu í heil- brigðiskerfinu fylgir mikil ábyrgð, ekki síst af hálfu hins op- inbera. Höfundur er tannlæknir, doktor í röntgentannlækningum og varafor- maður Tannlæknafélags Íslands. SÚ REGLA hefur gilt í íslensku samfélagi að eldri borgarar fara af vinnumarkaði á aldursbilinu 67–70 ára, án tillits til þess hvort þeir sjálf- ir eða atvinnurekendur hafa óskað eftir því. Nokkuð hefur borið á því í umræðunni að vísað sé til eldri borgara líkt og um væri að ræða eins- leitan hóp með svipuð einkenni og aðstæður. Þannig er því þó ekki háttað. Það sem eldri borgarar eiga sameig- inlegt er að hafa náð ákveðnum aldri sem skilgreinir þá sem eldri borgara. Að öðru leyti er þessi hópur ekkert frábrugðinn hópum fólks á ein- hverju öðru aldurs- skeiði. Það sem kemur þó fyrst upp í hugann þegar talað er um efri árin er heilsufar. Þótt heilsuleysi geti gert vart við sig á öllum aldurs- skeiðum er hættan á heilsubresti vissulega mest á efri árum. Að þessu leytinu til gætir þó mikils mismunar hjá eldri borgurum. Hluti þeirra er við góða heilsu, hluti við þokkalega heilsu og enn annar við bágborna heilsu. Fjölskylduaðstæður eldri borgara eru að sama skapi afar mis- munandi. Sumir eiga því láni að fagna að eiga maka á lífi sem er við góða heilsu, aðrir hafa misst maka sinn og enn aðrir eiga maka við slæma heilsu sem þarfnast aðhlynn- ingar. Aðrar fjölskylduaðstæður sem geta verið ólíkar eru fjöldi barna- og barnabarna. Fjárhagur og fjárhagsaðstæður er stór áhrifaþátt- ur í lífi eldri borgara. Leiða má líkur að því að flestir eldri borgarar búi við fjárhagslegt öryggi. Vitað er að hluti eldri borgara hef- ur ekki nægjanleg fjár- ráð og býr við ófull- nægjandi aðstæður. Enda þótt þeir fylli e.t.v. ekki stóran hóp er markmið okkar að enginn eldri borgari eigi að þurfa að búa við skort af neinu tagi. Sjálfsagt er að gera ráð fyrir að fólk eigi að get- að lifað áhyggjulausu lífi þegar það hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Gríðarlegar þjóðfélagsbreytingar hafa orðið á undanförnum árum, ekki hvað síst í atvinnulífinu. Ný tækifæri, stækkun fyrirtækja og hin margumtalaða útrás fyrirtækja hef- ur leitt til þess að sumar greinar at- vinnulífsins hafa þanist út á meðan aðrar hafa dregist saman. Með auknum möguleikum á fjölbreyttri menntun hefur orðið fólksflótti úr þeim störfum þar sem ekki er kraf- ist framhalds- eða háskólamennt- unar. Hér má t.d. nefna ýmis að- hlynningar-, umönnunar- og þjónustustörf. Í hópi eldri borgara eru einstaklingar sem bæði geta og vilja vera áfram á vinnumarkaði. Þetta er orkumikið fólk sem er við góða heilsu og er tilbúið að starfa áfram. Um gæti verið að ræða létt- ari störf, ýmis hlutastörf eða fullt starf ef því er að skipta. Þess vegna þarf að lyfta þakinu með þeim hætti að þeir sem vilja og geta starfað áfram eigi þess kost. Sú kynslóð sem hér um ræðir hef- ur öðlast ævilanga reynslu og safnað fjölþættri þekkingu. Með því að auka hlutfall eldri borgara á vinnu- markaði geta þeir miðlað til okkar hinna þroskuðum viðhorfum, sögu- legum venjum og hefðum, dýr- mætum menningararfi sem skilar sér hvað best í munnlegum sam- skiptum frá einum aðila til annars. Því lengur sem eldri borgarar eru virkir í atvinnulífinu og í sem nán- ustum tengslum við yngri kynslóð- irnar, því meiri ávinningur fyrir samfélagið í heild. Eldri borgarar og atvinnulífið Kolbrún Baldursdóttir skrifar um eldri borgara á vinnumark- aði » Því lengur sem eldriborgarar eru virkir í atvinnulífinu og í sem nánustu tengslum við yngri kynslóðir, því meiri ávinningur fyrir samfélagið í heild Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur. vaxtaauki! 10% Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.