Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 8
8 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
VORIÐ er skriðið á land úr suðri
og eirir hvorki fönn né frera. Á
Kárahnjúkum, nyrst á hálendi Ís-
lands, var í gær rjómaveður eins og
þau verða fegurst á Íslandi á vorin,
að sögn Sigurðar Arnalds verk-
fræðings og almannatengslafull-
trúa Kárahnjúkavirkjunar. „Hitinn
er rétt yfir frostmarki, hlýindi
framundan og kominn vorhugur í
mannskapinn.“ Sigurður segir und-
anfarna vetur og þann nýliðna hafa
verið snjólétta miðað við það sem
áður var, en þó hafi komið nokkrir
erfiðir kaflar í vetur. Hann segir
mikið að gera, snúning á öllu, og að
mannskap hafi ekki fækkað nema
síður væri.
„Það er allslags frágangsvinna
eftir, sérstaklega í jarðgöngunum
og við stóru stífluna er verið að
steypa yfirfallsrennu. Þetta er úti-
vinna á miðju hálendi Íslands og
vetur rétt að skríða burt.“
Sigurður kveðst telja að Impreg-
ilo sé ennþá með um 1300 manns í
vinnu, en með öllu starfsfólki séu
þar um 1600–1700 manns. „Það er
ekkert minna en þegar mest var.
Þetta er endasprettur á ákveðnum
þáttum við að koma virkjuninni í
gang, en sá verkþáttur sem heldur
áfram til ársins 2008, er vatnið sem
á að koma úr Jökulsá á Fljótsdal,
austan Snæfells. Þar verður haldið
áfram út næsta ár. Þótt það al-
mesta sé búið lýkur verkinu ekki
fyrr en í árslok 2008.“
Hæðin í lóninu nemur nú tæpum
575 metrum yfir sjávarmáli, og þá
vantar 50 metra upp á að lónið sé
fullt. Dýpið næst stíflunni er orðið
um 125 metrar. Sigurður segir
vatnsborðið hafa hækkað mikið
undanfarinn mánuð, eða um fimm
metra. „Það hafa verið blotar og
hlýindi upp á síðkastið. Við reikn-
um með að fullri vatnshæð verði
náð síðsumars.“
Gróður er lítið farinn að gera sig
sumarlegan, enda hæsti hluti
vinnusvæðisins í um 650 metra hæð
yfir sjávarmáli. „Heiðagæsin er
ókomin, en hún verpir innmeð öllu
þessu svæði.“
Engin fækkun á mannskap
Vorið er komið á Kárahnjúka þar sem nærri 1.700 manns eru enn við störf
Ljósmynd/Þórhallur Árnason
Kárahnjúkar „Hitinn er rétt yfir frostmarki, hlýindi framundan og
kominn vorhugur í mannskapinn,“ segir Sigurður Arnalds.
SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld fékk lög-
reglan í Reykjavík tilkynningu um að bíl hefði
verið ekið upp á stein við Öskjuhlíð. Báðir
líknarbelgirnir voru sprungnir og bíllinn hafði
verið yfirgefinn. Haft var samband við skráð-
an eiganda og í ljós kom að hann saknaði bíls-
ins. Talið er að bílnum hafi verið stolið á laug-
ardeginum.
Eigandi hafði ekki orðið var við það að bíln-
um hefði verið stolið fyrr en lögregla hafði
samband. Bíllinn bíður þess nú að verða sótt-
ur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Yfirgefinn með sprungna líknarbelgi
„ÞAÐ er hægt að hafa eldvarnir
samkvæmt lögum og reglugerðum
í gömlum húsum ef þau eru tekin í
gegn eins og t.d. Geysishúsið í Að-
alstræti var tekið,“ segir Björn
Karlsson brunamálastjóri. Berg-
steinn Gizurarson, fyrrverandi
brunamálastjóri, sagði í fréttum
Ríkisútvarpsins í gær að hefði
brunahólfun verið í lagi í húsunum
sem brunnu í miðborginni í síðustu
viku hefði eldurinn ekki borist jafn
hratt á milli húsa og raun bar vitni
og því væri ljóst að eldvarnareft-
irlit hefði brugðist. Bergsteinn,
sem var brunamálastjóri í 15 ár,
sagðist ekki taka þau rök gild að
erfitt væri að koma upp nægileg-
um brunavörnum í þetta gömlum
timburhúsum. Slíkum húsum væri
eins og öðrum hægt að skipta nið-
ur í brunahólf.
„Það hús [Geysishúsið] var
meira eða minna skrallað að inn-
an,“ heldur Björn áfram, „og eftir
stóðu einungis útveggirnir. Húsið
var síðan algjörlega endurbyggt
með nútíma byggingarefnum og
nútíma byggingaraðferðum. Þann-
ig er hægt að ná upp góðum
brunavörnum í svona gömlu húsi.“
Það segir Björn þó kosta um það
bil þrisvar sinnum meira en að
byggja alveg glænýtt hús. Björn
segist vera sammála Bergsteini
um að hægt sé að tryggja eldvarn-
ir í gömlum húsum og segist fagna
allri umræðu þar um.
Skipulags- og byggingarlög
eru ekki afturvirk
„Stjórnvöld, þ.e.a.s. brunamála-
yfirvöld og slökkviliðin í landinu,
hafa hins vegar ekki stjórnvalds-
heimildir til að krefja eigendur
húsa sem eru hundrað ára eða
eldri um að rífa húsið sitt og
byggja það aftur,“ segir Björn.
Aðspurður jánkar hann því að öll
mjög gömul hús í landinu séu
þannig í sömu áhættu gagnvart
bruna, en bendir þó á að skipu-
lags- og byggingarlög séu ekki aft-
urvirk.
Björn segir eldvarnareftirlitið
geta farið í gömul hús og krafist
þess að þau séu hólfuð af með eld-
tefjandi efnum, gipsveggjum og
slíku. „Það er gert og sett viðvör-
unarkerfi í húsin. Eldvarnareftir-
litið getur þannig farið fram á heil-
miklar endurbætur í húsum þó að
ekki sé hægt að fara fram á að
húsið sé rifið til grunna og byggt
aftur,“ segir hann með áherslu.
„Það breytir ekki því að húsið er
áfram gamalt og allir innveggir
eru með holrýmum á milli og það
sem var innan í veggjunum er þar
ennþá. Auk þess er oft notað sag
sem einangrunarefni á milli hæða.
Þannig eru eldri hús einfaldlega í
meiri brunahættu en ný hús.“
Gríðarlegur kostnaður fylgir því að tryggja brunavarnir í mjög gömlum húsum
Ekki hægt að setja kröfur
um að hús séu endurbyggð
Í HNOTSKURN
»Árið 2004 kviknaði íLækjargötu 2. Þá mátti
engu muna að eldurinn næði
sér verulega á strik.
»Slökkviliðið var komið ástaðinn fimm mínútum
eftir tilkynningu og var það
talið hafa ráðið úrslitum um
að tókst að stöðva útbreiðslu
eldsins.
ÞAÐ er sólríkt hjá Erlu, fimm ára tátu
sem krítar hér fagurlega á Laugaveginn.
Ef marka má Mary Poppins og vin hennar
Bert, er fátt skemmtilegra en að kríta sig
beinustu leið inn í ævintýraheimana.
Krítað liðugt
Morgunblaðið/Ásdís
SVEITARSTJÓRNIR
Aðaldælahrepps,
Skútustaðahrepps og
Þingeyjarsveitar hafa
ákveðið að kanna kosti
þess að sameina sveit-
arfélögin og skipað til
þess samstarfsnefnd
samkvæmt ákvæðum
sveitarstjórnarlaga. Í
nefndinni eiga sæti Bjarni Höskuldsson
og Hólmgeir Hermannsson, f.h. Að-
aldælahrepps, Böðvar Pétursson og
Dagbjört Bjarnadóttir, f.h. Skútustaða-
hrepps, og Ásvaldur Þormóðsson og
Erlingur Teitsson, f.h. Þingeyjarsveitar.
Erlingur er formaður nefndarinnar.
Reinhard Reynisson á Húsavík hefur
verið ráðinn í hlutastarf sem verkefn-
isstjóri.
Tilurð og starf nefndarinnar hefur
verið kynnt félagsmálaráðuneytinu og
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Sameining rædd
í Þingeyjarsveit
EITT FÍKNIEFNAMÁL kom upp í Borg-
arnesi og nágrenni um helgina og þrír
voru teknir við akstur, grunaðir um að
vera undir áhrifum fíkniefna. Upp komst
um málin við hefðbundið eftirlit.
Einn þeirra sem teknir voru var grun-
aður um vörslu fíkniefna. Um er að ræða
þrjú aðskilin mál.
Að öðru leyti virtist vera rólegt yfir
landsmönnum um helgina þó að eitthvað
hafi verið um umferðarlagabrot.
Fíkniefnamál
í Borgarnesi
SAMKVÆMT könnun Fréttablaðsins eru
Samfylkingin og Vinstrihreyfingin –
grænt framboð með svipað fylgi. 20,3%
segjast myndu kjósa Samfylkingu en
19,7% vinstri græna. Samfylkingin fengi
því fjórtán menn kjörna og vinstri græn
þrettán. Sjálfstæðisflokkur er með 41,2%
fylgi og fengi 29 menn kjörna. Framsókn
bætir við sig og mælist með 10,4% og fengi
sjö þingmenn. Fylgi annarra flokka mælist
innan við 5%.
Framsókn fengi
sjö menn kjörna
KARLMANNI, sem færður var til yfir-
heyrslu hjá lögreglunni á Selfossi eftir
hnífstungu í Þorlákshöfn á laugardag,
hefur verið sleppt. Atvik voru þau að karl-
maður á þrítugsaldri var stunginn í hand-
legg með eldhúshnífi rétt eftir hádegi á
laugardag í Þorlákshöfn. Maðurinn hafði
deilt við annan mann sem barði hann með
stól auk þess að stinga hann. Áverkarnir
voru ekki alvarlegir, en sá særði var flutt-
ur á slysadeild á Selfossi þar sem gert var
að sárum hans.
Lögregla leitaði gerandans og fann
hann síðdegis á laugardag. Málið er í
rannsókn.
Karlmaður stung-
inn í handlegg