Morgunblaðið - 23.04.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 9
FRÉTTIR
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Nýjar peysur og bolir
ÖRUGG FJÁRFESTING Á ÍSLENSKA HLUTABRÉFAMARKAÐN U M
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
18
4
Kynntu þér málið á kaupthing.is, í þjónustuveri bankans
í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi.
Vegna frábærra undirtekta á ICEin 0308
höfum við opnað fyrir sölu á ICEin 0408.
Fjárfestu á íslenska hlutabréfamarkaðnum án fyrirhafnar og
með takmarkaðri áhættu. ICEin 0408 er höfuðstólstryggður
hlutabréfareikningur sem fylgir gengi íslenska hlutabréfa-
markaðarins, OMXI15 vísitölunni (áður ICEX-15).
• Lágmarksupphæð er 500.000 kr.
• Innlánið er bundið í eitt ár
• Ávöxtun allt að 25%
• Höfuðstóll er tryggður
• Upphafsgengi ákvarðast í lok dags 26. apríl
Sölutímabil
ICEin 040816.-26. apríl
EinkaleyfastofanEngjateigi 3 – 150 Reykjavík – Sími 580 9400 – www.els.is
Einkaleyfastofan hefur nú flutt sig um set,
frá Skúlagötu 63 – að Engjateigi 3 í Reykjavík.
Opnum kl. 12 í dag, mánudaginn 23. apríl,
og tilkynnum um leið breyttan afgreiðslutíma,
frá kl. 10 til 16 alla virka daga.
Við erum flutt
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR (D)
fengi 40,9% atkvæða í Suðurkjör-
dæmi væri gengið til kosninga nú
samkvæmt skoðanakönnun sem
Capacent Gallup vann fyrir Sjón-
varpið og Morgunblaðið dagana 15.
til 19. apríl. Samfylkingin (S) fengi
24,0%, Framsóknarflokkurinn (B)
14,2% og Vinstrihreyfingin – grænt
framboð (V) fengi 13,7%. Frjáls-
lyndi flokkurinn (F) fengi 4,8%, Ís-
landshreyfingin (I) 2,2% og Bar-
áttusamtökin (E) fengju 0,3%.
Samkvæmt könnuninni fengi
Sjálfstæðisflokkurinn fimm kjör-
dæmakjörna þingmenn í kjördæm-
inu, Samfylkingin tvo þingmenn og
Framsóknarflokkurinn og Vinstri
grænir einn þingmann hvor flokk-
ur. Næsti maður inn væri 3. maður
Samfylkingar en lítill munur er á
honum og 5. manni Sjálfstæðis-
flokks.
Þegar fylgið er greint eftir svæð-
um kemur í ljós að í Árnessýslu er
B-listi með hlutfallslega flesta
kjósendur (23,6%). Í Vestmanna-
eyjum er D-listi með langmestan
stuðning (55,5%). F-listi sækir
hlutfallslega flesta kjósendur sína
til Suðurnesja (8,3%), líkt og E-listi
(0,7%) og I-listi (3,7%). Stuðnings-
menn S-lista eru hlutfallslega flest-
ir á Suðurnesjum (27,6%) og V-
lista á Suðurlandi austan Árnes-
sýslu (23,2%).
Úrtakið var tilviljunarúrtak úr
þjóðskrá. Í því voru 800 manns 18
ára og eldri. Nettósvarhlutfall var
64,5%.
D-listi með 55,5%
fylgi í Eyjum
FRAMSÓKN fengi ekki kjördæm-
iskjörinn þingmann í Reykjavík suð-
ur samkvæmt niðurstöðu skoðana-
könnunar Capacent Gallup.
Sjálfstæðisflokkur er með 42,5%
fylgi og fengi fimm kjördæmiskjörna
þingmenn, Samfylking er með 24,9%
og fengi tvo þingmenn, VG er með
18,8% og fengi tvo þingmenn. Önnur
framboð fengju ekki kjördæmiskjör-
inn þingmann en Íslandshreyfingin
er með 5,4% fylgi, Framsóknarflokk-
ur með 4,5% fylgi og Frjálslyndi
flokkurinn með 3,9% fylgi. Fylgi
Baráttusamtakanna var 0,0%.
Niðurstöður eru úr símakönnun
Capacent Gallup 15.–19. apríl sl. Í til-
viljunarúrtaki úr þjóðskrá voru 800
manns 18 ára og eldri. Nettósvar-
hlutfall var 60,7%.
D-listinn í sókn
í Reykjavík suður
Nafn Álfheiður Ingadóttir.
Starf Útgáfustjóri hjá Náttúru-
fræðastofnun Íslands.
Fjölskylduhagir Ég á mann og 16
ára son.
Kjördæmi Reykjavík suður, 2. sæti
fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt
framboð.
Helstu áhugamál?
Ætli ég verði ekki að segja pólitík
á þessu stigi málsins. Ég á ósköp
fjölþætt áhugamál en þau tengjast
mjög mikið félagsmálum og félags-
málastörfum. Ég hef alltaf verið í
slíku starfi meðfram vinnu. Þar fyrir
utan hef ég mest gaman af því að
vera í kofanum mínum í Flatey á
sumrin. Vetrarstarfið miðast við að
komast þangað og geta verið þar
sem lengst. Þar les ég, slappa af,
stunda garðrækt, veiði fisk og tek
því rólega.
Hvers vegna pólitík?
Af því að pólitíkin stjórnar lífi okk-
ar og þróun samfélagsins og ég vil
taka þátt í að móta það með góðu
fólki.
Er Alþingi áhugaverður
vinnustaður?
Já. Ég var þingfréttaritari í nokk-
ur ár og ég hef komið þrisvar eða
fjórum sinnum inn á Alþingi sem
varaþingmaður. Mér þykir þetta
mjög áhugavert starf og kvíði því
sannarlega ekki.
Fyrsta mál sem þú vilt
koma á dagskrá?
Ætli það sé ekki síðasta mál sem
ég mælti fyrir í haust. Ég vil að það
verði endurgreiddur virðisauka-
skattur af almenningsvögnum á öllu
landinu til þeirra fyrirtækja sem
hafa endurnýjað vagnana sína. Ég
vil efla almenningssamgöngur en
ekki láta þær vera tekjulind fyrir
ríkissjóð. Í þessu felst að almenn-
ingssamgöngur njóti jafnræðis á við
hópbíla en 2⁄3 hlutar virðisaukaskatts
á hópbílum fást endurgreiddir. Ég
hef flutt þetta tvisvar eða þrisvar og
það lýsa allir yfir stuðningi við málið.
En ætli maður þurfi ekki að komast í
ríkisstjórn til að breyta þessu?
Þarf breytingar?
Já, miklar breytingar! Og það er
síðasti séns í svo mörgum málum.
Nýir frambjóðendur | Álfheiður Ingadóttir
Pólitíkin
stjórnar
lífi okkar
Félagsmálatröll Álfheiður Inga-
dóttir hefur alltaf verið í félags-
störfum meðfram vinnu.