Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 29

Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 29 Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó hlutavelta ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Við- talstími hjá hjúkrunarfræðingi kl. 9-11. Boccia kl. 10. Félagsvist kl. 14. Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna kl. 9-12. Smíði/útskurður kl. 9-16.30. Söngstund kl. 10.30. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 8.30-16.30. Almenn handa- vinna, morgunkaffi/dagblöð, bútasaumur, fótaað- gerð, samverustund, hádegisverður, bútasaumur, kaffi. Upplýsingar í síma 535-2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | FEBK. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-11.30. S: 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13-14.S. 554 3438. Fé- lagsvist er spiluð í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og í Gullsmára 13 á mánudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi- tár kl. 13.30. Danskennsla Sigvalda; línudans kl. 18, samkvæmisdans byrjendur kl. 19. og framhald kl. 20. Vorfagnaður verður haldinn föstudaginn 27. apríl kl. 20. Fjölbreytt skemmtiatriði og dans. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leið- beinandi verður til hádegis. Boccia kl. 9.30. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og kl. 13. Lomber kl. 13. Canasta kl. 13.15. Kóræfing kl. 17. Skapandi skrif kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Mánudagur 23. apríl: kl. 9.05 postulínsmálun, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handavinna og brids (FEBK- tvímenningur), kl. 20.30 félagsvist (FEBK). Kaffi á könnunni alla virka daga. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Í Kirkjuhvoli: kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45. bókband og málun kl. 10. glerskurður og málun kl. 13. Vatns- leikfimi kl. 12 í Mýri. Í Garðabergi er bíósýning kl. 13 og fyrirlestur hjúkrunarfræðinema kl. 15, leik- húsmiðar seldir í Garðabergi til kl. 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.20 kóræf- ing. Miðvikud. 25. apríl kl. 13 er lagt af stað á Sögusýningu Landsbankans, leiðsögn og kaffiveit- ingar í boði bankans. Skráning á staðnum og s. 5757720. Strætisvagnar S.4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handavinna. Kl. 10- 10.30 bænastund. Kl. 12-13 hádegismatur. Kl. 13.30-14.30 dans. Kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, keramik, kortagerð og prjónaðar hand- stúkur. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Frjáls spila- mennska kl. 13-16. Fótaaðgerðir 588-2320. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Allir velkomnir í morgunkaffi, skoðaðu dagskrána. Ganga með fótgönguliðinu og heilaleikfimi með setuliðinu. S. 568-3132, asdis.skuladottir@reykaj- vik.is. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, þriðjudag, er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Hátúni 12. Brids í kvöld kl. 19. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerð- ir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia. Kl. 11- 12 leikfimi. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30- 15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja opin fyrir há- degi, bókband kl. 9-13, handavinnustofan opin frá kl. 9-17, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10-11, hár- greiðslu og fótaaðgerðastofur opnar frá kl. 9, gler- bræðsla kl. 13. Frjáls spil kl. 13-16.30. Félagsmið- stöðin er opin fyrir alla aldurshópa. Þórðarsveigur 3 | Mánudaga: Kl. 10 félagsráðgjafi (annan hvern mánudag). Kl. 13 opin salurinn. Kl. 13.15 leikfimi. Kirkjustarf Áskirkja | Bænastund í umsjá djákna Áskirkju kl. 9.30. Gengið til góðs kl.10.30. Gönguhópur leggur af stað frá Dalbraut 27. Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára í Grafar- vogskirkju kl. 17-18. TTT fyrir 10-12 ára í Húsaskóla kl. 17-18. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20. Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20- 21.30. Hjallakirkja | Tíu til tólf ára starf kl. 16.30-17.30. Hlutavelta | Þessar duglegu vinkonur, Elísabet Kristjánsdóttir og Karítas Rún Aðalgeirsdóttir, héldu tombólu og söfnuðu 6.500 krónum til styrktar Rauða krossinum. Með þeim á mynd- inni er Sara Ragnheiður, litla systir Elísabetar. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er mánudagur 23. apríl, 113. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Á þeim degi skulu leifarnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi, sem af komast, eigi framar reiða sig á þann sem sló þá, heldur munu þeir með trúfestu reiða sig á Drottin, Hinn heilaga í Ísrael. (Jesaja 10, 20.) Umhverfisstofnun hefur staðið fyrir röðfyrirlestra á vormisseri. Á morgun,þriðjudag, mun Brynhildur Briem, mat-vælafræðingur og fagstjóri á matvæla- sviði Umhverfisstofnunar, kynna í fyrirlestri nýjar samevrópskar reglur um fullyrðingar í merkingum matvæla. Mikilvægar upplýsingar „Reglugerðin nær til hverskonar staðhæfingar sem fullyrðir um eða gefur til kynna sérstaka eig- inleika vörunnar, hvort heldur með texta eða mynd- um eða jafnvel lögun umbúða,“ segir Brynhildur. „Fullyrðingar geta ýmist verið næringargildisfull- yrðingar, s.s. sykurlaust, eða trefjaríkt, heilsufull- yrðingar þar sem fjallað er um tengsl heilsu og neyslufars, t.d. „styrkir beinin“ og loks eru fullyrð- ingar um að varan dragi úr áhættuþáttum sjúk- dóma, t.d. „dregur úr líkum á hjarta- og æðasjúk- dómum“. Slíkar merkingar geta komið mikilvægum upplýsingum til neytenda á einfaldan hátt en þess verður að gæta að ekki séu gefnar villandi upplýs- ingar, og fullyrðingar þurfa að byggja á vísinda- legum grunni.“ Með nýju reglugerðinni eru reglur um notkun fullyrðinga í merkingum matvæla innan ESB svæð- isins samræmdar: „Reglugerðin er löngu tímabær og einfaldar verulega verslun með matvæli milli landa. Í reglugerðinni er tekinn saman listi af leyfð- um næringargildisfullyrðingum en nú er unnið að lista yfir leyfilegar heilsufullyrðingar í samstarfi við framleiðendur matvæla og aðra hagsmunaaðila,“ segir Brynhildur. Koma óskum á framfæri „Fyrirlestri þriðjudagsins er m.a. ætlað að vekja athygli íslenska matvælaiðnaðarins á vinnuferlinu, og viljum við að íslenskir framleiðendur og inn– og útflytjendur matvæla, sérstaklega frá löndum utan Evrópusambandsins, komi sínum óskum um merk- ingarmöguleika á framfæri.“ Fyrirlestur þriðjudagsins hefst kl. 15 og er hald- inn í húsakynnum Umhverfisstofnunar að Suður- landsbraut 24, 5. hæð. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Finna má frekari upplýsingar á www.ust.is. Matvæli | Evrópskar reglur um næringar– og heilsufullyrðingar Fullyrðingar á matvælum  Brynhildur Briem fæddist í Reykjavík 1953. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1973, BS í lyfjafræði frá Háskóla Ís- lands 1977, B.S. í mat- vælafræði frá sama skóla 1980, BS. í næringarfræði frá Oslóar-háskóla 1982 og meistaraprófi í heilbrigðisvísindum frá HÍ 1999. Brynhildur starfaði í apótekum, var síðar lektor við Kennaraháskóla Íslands og er nú fagstjóri á matvælasviði Umhverfisstofnunar. ÞRIÐJUDAGINN 24. apríl verður þriðji og síðasti fyrirlestur á vegum Pourqoi Pas – Fransks vors í hátíð- arsal Háskóla Íslands. Þar flytur Yves Coppens fornmannfræðingur fyrirlesturinn „The origins of Man: a bunch of ancestors“. Yves Coppens er hvað þekktastur fyrir að hafa fundið fjöldann allan af mikilvægum steingervingum sem hafa varpað nýju ljósi á þróun- arsögu mannsins. Frumkvöðull í mannfræðum á Íslandi SÍÐASTA fræðslukvöld Íslenska vitafélagsins í Sjóminjasafni Reykjavíkur á þessum vetri verður miðvikudagskvöldið 25. apríl kl. 20:30. Þá mun Hreinn Ragnarsson, kennari á Laugarvatni, ræða um áhrif síldveiða á íslenskan efnahag. Eftir kaffihlé fræðir Örlygur Kristfinnsson, forstöðumaður Síld- arminjasafnsins, gesti um Síldar- minjasafnið á Siglufirði og áhrif þess á ímynd bæjarins og bæjar- brag. Síldin og Siglufjörður eru eitt og Síldarminjasafnið á Siglufirði er stærsta safn landsins utan höfuð- borgarsvæðisins. Safnið hefur hlot- ið viðurkenningar, m.a. sem besta safn Evrópu. Fræðslukvöld um áhrif síldveiða MENNTUNARSTIG ríkisstarfs- manna hefur hækkað á síðasta ára- tug, en alls eru 57% þeirra með há- skólamenntun. Langflestir ríkis- starfsmenn eða 89% telja að þekking og hæfileikar sínir nýtist vel í starfi. Aðeins 44% svarenda eru hins vegar ánægð með stjórnun stofnunar sinnar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum könnunar, sem gerð var á starfsumhverfi ríkis- starfsmanna og kynnt var nýlega. Könnunin er samstarfsverkefni fjár- málaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX við- skiptaráðgjafar IBM. Hún var fram- kvæmd í nóvember og desember sl. og byggist á svörum tæplega 10 þús- und ríkisstarfsmanna sem starfa hjá 144 ríkisstofnunum. Meirihluti svarenda segist ánægð- ur í starfi eða um átta af hverjum tíu. Óverulegur munur reyndist á starfsánægju eftir kyni, aldri, menntun og því hvar fólk starfar. Menntunarstig hækkar ÓVENJUMARGIR ungir hlust- endur mættu í Salinn s.l. miðvikudag og einnig sáust þó nokkrir kollegar flautuleikarans úr SÍ. Breitt verk- efnavalið náði að módernisma slepptum frá um 1840 til 1958. Eftir perlandi „scherzando“ lokahluta Fantasíu Faurés Op. 79 (1898) lék Robilette einn noktúrnu í B Op. 16,4 og alkunnan Menúett Paderewskis í G Op. 14,1 af horowitzkum krafti. Bæði tóku næst vinsæla sónötu Poulencs (1957) af örvandi lífsþrótti en Robilette síðan Impromptu Chopins í As Op. 29 og etýðu Saint- Saëns í valsformi Op. 52,6 (1877) með breiðri dýnamík og að vísu stundum göslandi tilþrifum en þó fráleitt laus við virtúósan húmor. Eftir hlé lék Hallfríður Passacag- líu Op. 48,2, undirleikslaust lífs- lokaverk Dohnányis (d. 1960), með fjölbreyttum tilþrifum sem ung- versk-ameríski höfundurinn hefði án efa kunnað að meta. Frábærum tón- leikum lauk með jafninnblásið skrif- aðri sem túlkaðri fiðlusónötu Francks í A er flautuleikarar hafa fyrir löngu líka eignað sér, og fór þéttur en sveigjanlegur flaututónn Hallfríðar þar á miklum kostum. Lýrík og litbrigði Morgunblaðið/Golli Tilþrif Hallfríður sýndi fjölbreytt tilþrif á tónleikunum, að því er fram kemur í dómi. Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Salurinn Kammertónleikar  Verk eftir Fauré, Paderewski, Poulenc, Chopin, Saint-Saëns, Dohnányi og Franck. Hallfríður Ólafsdóttir flauta, John Robilette píanó. Miðvikudaginn 11. apríl kl. 20. KATRÍN Elvarsdóttir rær á mið hins ófyrirséða á sýningunni „Spor- laust“ á Veggnum í Þjóðminjasafni Íslands. Það gerir hún ekki aðeins í dularfullu viðfangsefni, sem er inn- blásið af ævintýrinu um Hans og Grétu, heldur einnig með því að nota myndavél sem bjagar myndefnið. Slík stílbrögð hafa sést í fyrri verk- um hennar og hér er það „frumstæð Holga plastmyndavél“ sem setur dulúðugan svip á myndirnar. Myndirnar sýna krakka sem virð- ast fylgja stíg eða slóða í skógi. Sjón- arhorn Katrínar er í nokkurri hæð; það er líkt og horft sé „niður“ og á sumum myndanna á eftir börnunum. Holga-myndavélin býr til skugga í jöðrum myndanna, líkt og skógurinn með börnunum sé að hverfa inn í myrkur. Séu myndirnar skoðaðar frá vinstri til hægri, þá er líkt og dimmi í myndunum smám saman og ekki er það til að draga úr þeim óhugnaði sem undir býr. Hver er það sem fylgist með börnunum? Á sýningunni er unnið skemmti- lega með samband myndavélar og sjónar. Lögð er áhersla á vélræna eiginleika myndavélarinnar – þeir eru snar þáttur í mótun skynjunar- innar ekki síður en sjónarhorn ljós- myndarans. Margt býr í skóginum Anna Jóa LJÓSMYNDIR Þjóðminjasafn Íslands – Veggur Sporlaust/Katrín Elvarsdóttir Til 29. apríl. Opið kl. 11-17 þri.-sun. Að- gangur kr. 600. Eldri borgarar, öryrkjar, námsmenn og hópar (10+): kr. 300. Ókeypis á miðv.d. og fyrir yngri en 18 ára. Morgunblaðið/ÞÖK Vel gert „Á sýningunni er unnið skemmtilega með samband mynda- vélar og sjónar,“ segir í dómi. FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.