Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 32

Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 32
Þeir líta mikið til Ís- lands og vilja sjá meiri samgang á milli eyjanna… 36 » reykjavíkreykjavík Ídag fögnum við alþjóðlegum degi bók-arinnar en Fluga og félagar kortlögðusumarfríið á Kaffi París á laugardaginnog kættust yfir öllum nýju þýddu frum- útgáfunum á kiljum sem verða sko lesnar á suðrænni ströndu undir pálmatré. Sérstaklega kitlar lestrarlauka fraukanna Saffraneldhúsið eftir Tessu de Loo og Musterisriddarinn eftir Raymond Khoury. Og meira af bókum; milli- lent var á Borgarbókasafninu til að byrgja sig upp af eldsneyti, þ.e. bókum, og rakst gerið þar á útvarpskonuna og Kontrapunktinn Unu Margréti Jónsdóttur, pottþétt í sömu hugleið- ingum. Á sumardaginn fyrsta hljómaði grát- kór sannra miðbæjarmaddama í Austurstræti þegar ungar Reykjavíkurdætur fáruðust yfir rjúkandi rústum Pravda – heitasta og heitt- elskaðasta hnakkastaðarins. Borgarbúar á borð við leikkonuna og hefðardömuna Krist- björgu Keld og Þorgeir Ástvaldsson yfirbítil á Bylgjunni spásseruðu ábúðarfullir um mið- borgina og fólk virti forvitið fyrir sér bruna- rústirnar í Austurstræti og sleikti ís á meðan. Römm brunalyktin hafði seiðmögnuð áhrif á lífið í bænum um helgina og Skerjafjarðar- skáldið Kristján Hreinsson mætti bóndalegur í gamaldags sparifötum í stórborgina. Upp úr aldamótum voru húsbrunar einmitt tíðir í Reykjavík og var fyrrgreint skáld eins og klipptur út úr svarthvítri mynd frá þeim tíma. Fluguflokkurinn fríði fór svo í menningar- og tískugönguför á laugardaginn, altso þræddi Laugaveginn, og vakti sérstaka athygli og kátínu að í hönnunarversluninni ELM í Banka- stræti var útstilling á drifhvítum kvenspari- fatnaði með nett kristilegu, eða alla vega púrí- tönsku, ívafi. Skotmarkið eflaust fínu fermingarmömmurnar. Mættum leikaranum Benedikt Erlingssyni með nýbónaðan skall- ann, blokkflautuskáldinu Gísla Helgassyni í æðislegum rúskinnsjakka og líka gamla frétta- hauknum Ingimari Ingimarssyni sem tölti með hund sinn. Svo bar einnig vel í veiði er við hittum vinina og rithöfundana Halldór Guð- mundsson og Einar Kárason sem voru rölt- andi og spjallandi á gömlum heimaslóðunum í Hlíðunum. Klukkan sem stendur á Lækjar- torgi, og á að vera eins konar tákn torgsins, er alltaf biluð sem er auðvitað bara fáránlegt. Villi minn; ertu ekki til í að gefa okkur borgar- börnunum nýja, flotta klukku? Og þar sem fröken Reykjavík er fuðruð upp, gætirðu ekki sæmt fröken flugu þeirri eftirsóttu nafnbót í leiðinni? Með viðhöfn, takk. | flugan@mbl.is Ísleifur Þórhallsson og Andrea Róbertsdóttir. Elísabet Kvaran og Ingibjörg Skúladóttir. Silja Ragnarsdóttir og Bjarni Arason.Hrefna María Eiríksdóttir og Lilja Björg Eiríksdóttir. Morgunblaðið/Eggert Stefán Már Magnússon, Freyr Eyjólfsson, Guðni Már Henningsson og Jakob Smári Magnússon. Morgunblaðið/Árni Sæberg Svanhildur Björnsdóttir og Ragnheiður Guðmundsdóttir. Bríet Ósk Magnúsdóttir og Ásthildur Guðmundsdóttir. Eva Guðjónsdóttir, Áróra Bergsdóttir og Urður Bergsdóttir. Bergþóra Þorsteinsdóttir og Krístín Sigurðardóttir. Rakel Hjartardóttir, Þórunn Elva, Vigdís Gýja og Ylfa Ásgerður. Jónas Halldórsson og Haukur Guðnason. Lestrarlauka- kitl og miðbæjar- maddömur . . . var fyrrgreint skáld eins og klipptur út úr svarthvítri mynd frá þeim tíma . . . »HljómsveitinSíðan skein sól hélt tuttugu ára afmælistónleika sína á Stóra svið- inu í Borgarleik- húsinu. » Söngleikurinn Grettir var frumsýndur í Borgarleikhúsinu. »HalldórHrafn opn- aði mynd- listarsýningu í Skotgallerí- inu, Óðins- götu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigurður Ernir Þórisson og Ásþór Þórisson. Halldór Hrafn Guðmundsson og Jón Pálmar Siguðsson. flugan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.