Morgunblaðið - 23.04.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 35
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
Sýnd kl. 6
...Á STÆRÐ
VIÐ HNETU!
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA...
eeee
LIB Topp5.is
„FYNDNASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS“ - GQ
V.I.J. Blaðið
The Hills Have Eyes 2 kl. 6, 8 og 10 B.i. 18 ára
Perfect Stranger kl. 5:30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6
TMNT kl. 6 B.i. 7 ára
Sunshine kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Science of Sleep kl. 8 og 10 B.i. 7 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
M A R K W A H L B E R G
Í GÆR VAR ÞAÐ
HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ
RÉTTLÆTIÐ
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 16 ára
kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA...
...Á STÆRÐ
VIÐ HNETU!
LA SCIENCE DES REVES
eeee
„Kvikmyndamiðillinn leikur í
höndum Gondrys!“
- H.J., Mbl
eee
- Ólafur H.Torfason
eee
- L.I.B.,Topp5.is
eeee
„Sjónrænt listaverk
með frábærum
leikurum“
- K.H.H., Fbl
ÍSLEN
SKT
TAL
Magnaður spennutryllir með
súperstjörnunum Halle Berry og
Bruce Willis ásamt Giovanni Ribisi
Sýnd kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
Vinkona hennar er myrt og ekki er allt sem sýnist
www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6 Með ísl. tali
ÍSLEN
SKT
TAL
Sími - 551 9000
ÞEIR sem þekkja til grimmrar ver-
aldar harðjaxlanna, kennda við Swag-
ger-ættina, bregður ekki við ofbeldið,
spennuna, dramatíkina né stórkarla-
lega en útsjónarsama sögufléttuna.
Allt eru þetta einkenni á bókum
Stephens Hunter, (sem einnig er
kvikmyndagagnrýnandi stórblaðsins
Washington Post), um þrjá ættliði
löggæslumannanna og stríðshetjanna
með þetta ágæta eftirnafn. Skytta er
byggð á Point of Impact, sem segir
frá mannraunum yngsta Swaggers-
ins, Bobs Lee (Wahlberg), fyrrum
hermanns í Víetnam stríðinu, þar
sem hann murkaði úr launsátri, lífið
úr herdeild Víet Cong, og bjargaði
þar með líftórunni. Einn síns liðs.
Skytta er nokkuð breytt frá bók-
inni, eins og gengur. Til að nálgast
efnið frá nútímanum, er Swagger
hetja úr stríði í Afríku, þar sem hann
lenti í mannraunum og er hættur í
landgönguliðinu. Þessi afburðaskytta
er sest að, ásamt hundinum sínum
Sámi, á eyðibýli í Klettafjöllunum og
á sér einskis ills von þegar sérsveit-
arforinginn Johnson (Glover), þefar
hann uppi. Ástæðan að óttast er um
að forsetanum verði sýnt banatilræði
á næstu vikum og nú er þörf á ein-
stökum hæfileikum Swaggers til að
finna út hvar og hvenær afburða-
skytta tekur í gikkinn.
Johnson höfðar til föðurlandsástar
Swaggers, sem kemur út úr hýði sínu
og allt gengur samkvæmt áætlun uns
skot leyniskyttunnar ríður af. Þá
snöggskipast veður í lofti. Swagger
uppgötvar á sama augnabliki að hann
hefur verið leiddur í gildru – er blóra-
böggullinn sem á að sitja uppi sem
sökudólgurinn. En það tekst ekki að
drepa hann í kjölfarið, gamla stríðs-
hetjan kemst undan í borgarlandslag-
inu, þrælmenntaður úr herskóla land-
gönguliðs flotans og hertur úr fjölda
styrjaldarátaka, er hann til að byrja
með músin, alríkislögguherinn, kött-
urinn.
Fuqua (Training Day, Tears of the
Sun), hefur ekki gert betur til þessa,
hráefnin eru öll til staðar í handritinu
og leikstjórinn keyrir myndina áfram
án þess að áhorfandanum gefist tími
til að blikka auga (eða velta fyrir sér
framvindunni.) Hann býr okkur und-
ir eftirleikinn í þrælmögnuðu upp-
hafsatriði úr Eþíópíu þar sem sýnt er
hvers leyniskyttan Swagger er
megnug. Sallar niður sína sextíu og
fimm, hér er maður á ferð sem betra
er að hafa með sér en á móti. Skítt
með að klína á hann morði, Swagger
fyrirgefur þeim aldrei að drepa Sám
fóstra.
Til að gera slíkt ofbeldisævintýri,
þar sem söguhetjan ann sér ekki
hvíldar fyrr en hann hefur náð fram
hefndum og er hundeltur í þokkabót,
þarf sterkan karakter í burðinn. Lík-
lega er betri leikari en Wahlberg
vandfundinn, hann á rosalegan dag
sem Swagger, maður kaupir allar
hans gjörðir án þess að velkjast í
vafa. Wahlberg hefur ekki verið betri
sem spennumyndahetja og hefur
skipað sér í fremstu röð.
Mikið er ánægjulegt að sjá gamla
góða Glover rísa upp úr gleymsku og
þá með þvílíkum krafti að það er un-
un að horfa á þá Wahlberg bítast um
senustuldinn í hverju atriðinu á fætur
öðru. Peña og Mara, sem eru einu
persónurnar sem Swagger getur
treyst sér til fylgilags, eiga góðan
dag. Í það heila tekið er Skytta
óvenju líflegur og hugvitssamlegur
spennutryllir, skemmtun í þessari
grein afþreyingar gerist ekki betri.
Góð „Í það heila tekið er Skytta óvenju líflegur og hugvitssamlegur
spennutryllir, skemmtun í þessari grein afþreyingar gerist ekki betri.“
Adrenalín, blý og blóð
KVIKMYNDIR
Laugarásbíói, Sambíóunum Álfa-
bakka og Keflavík og Borgarbíói
Akureyri.
Skytta/ Shooter
Leikstjóri: Antoine Fuqua. Aðalleikarar:
Mark Wahlberg, Michael Peña, Danny
Glover, Kate Mara, Ned Beatty. 125 mín.
Bandaríkin 2007.
Sæbjörn Valdimarsson
LEIKARARNIR og vinirnir George
Clooney og Brad Pitt hafa samþykkt
að leika í næstu kvikmynd Coen-
bræðra, sem sögð er bera titilinn
Burn after Reading. Vefsíða danska
blaðsins Politiken segir frá þessu.
Lítið hefur verið gefið upp um
söguþráð myndarinnar en hún er þó
sögð fjalla um leyniþjónustumann
sem týnir disklingi með drögum að
bók sem hann er að skrifa. Coen
bræður þykja með sérstæðari kvik-
myndagerðarmönnum Bandaríkj-
anna, en myndir þeirra vekja þó jafn-
an mikla athygli. Hvað þekktastar
eru myndirnar Fargo og The Big Le-
bowski auk myndarinnar O Brother
Where Art Thou, en þar lék George
Clooney einmitt aðalhlutverkið.
Leika í
næstu mynd
Coen-bræðra
Brad Pitt George Clooney