Morgunblaðið - 23.04.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 39
HLUTI af leikurum í sjónvarps-
þættinum Heroes mætir hér í partí í
Hollywood í seinustu viku á vegum
NBC til að fagna lokum fyrstu
þáttaraðarinnar.
Frá vinstri eru: Hayden Panet-
tiere, Jack Coleman, Greg Grun-
berg, Adrian Pasdar og Ali Larter.
Heroes liðar mæta
í Hollywoodpartí
FORNAR grafir – Dauðir fá mál
(Ancient Graves: Voices of the
Dead) er í sjónvarpinu kl. 20:15 í
kvöld. Þetta er bresk heimilda-
mynd þar sem sýnt er hvernig að-
ferðum nútímavísinda er beitt til
þess að svipta hulunni af leyndar-
dómum fortíðar með rannsóknum á
þúsunda ára gömlum múmíum og
steingerðum leifum.
Í myndinni er m.a. sýnt hvernig
vísindamaður býr til múmíu með
sömu aðferðum og Egyptar beittu
til forna til þess að fræðast nánar
um varðveislutækni þeirra. Eins
sjást múmíur sem fundust í Ata-
cama-eyðimörkinni í Síle og fornir
fiskimenn útbjuggu.
Ekki missa af …
Fornar grafir –
Dauðir fá mál
Reuters
AMERICAN Idol er sýnt á Stöð 2 í
kvöld kl. 21:40. Simon Cowell dóm-
ari komst í blöðin í vikunni því stað-
hæft var að hann hefði ranghvolft
augunum eins og honum væri sama
þegar-rætt var um skotárásina í
Virgina háskólanum í seinasta þætti.
Cowell neitar þessum orðrómi.
Simon ranghvolfdi
ekki augunum
SJARMATRÖLLIÐ Richard Gere
sést hér ásamt eiginkonu sinni Ca-
rey Lowell mæta á sérstaka frum-
sýningu á myndinni The Hoax sem
var haldin í Mann Festival Westwo-
od Village í Los Angeles á dög-
unum. Gere fer sjálfur með hlut-
verk í myndinni.
Gere og frú mæta
á frumsýningu
VEFSÍÐAN TMZ.com, sem sérhæf-
ir sig í fréttum af fræga fólkinu, birti
í lok síðustu viku upptöku af talhólfi
11 ára dóttur leikarans Alec Bald-
wins þar sem hann skammar hana
fyrir eitthvað sem hún hafði gert á
hlut hans.
Stelpan er dóttir Baldwin og leik-
konunnar Kim Basinger en þau tvö
hafa verið svarnir óvinir frá því þau
skildu árið 2000 og hafa þau háð
harða og langa baráttu fyrir dóm-
stólum varðandi það hvort þeirra
skuli hafa forræði yfir börnum sín-
um.
Baldwin sendi tilkynningu til fjöl-
miðla þar sem hann biðst afsökunar
á skammaryrðum sem hann lét falla
um dóttur sína í símaskilaboðum. Á
heimasíðu leikarans segist hann iðr-
ast þess að hafa misst stjórn á skapi
sínu og segir að rekja megi það til
þeirrar streitu sem áralöng forræð-
isdeila hans og Basinger hafi valdið.
„Það er að sjálfsögðu ekki gott að
foreldri missi stjórn á skapi sínu við
barn sitt,“ segir m.a. í yfirlýsingu
hans. „Allir þeir sem þekkja mig
persónulega vita að ég hef gengið í
gegnum margt á undanförnum árum
vegna forræðisdeilunnar. Allir þeir
sem þekkja mig persónulega vita að
ákveðnir aðilar munu gera hvað sem
er til að niðurlægja mig og spilla
sambandi mínu við dóttur mína.“
Áður hafði lögfræðingur Baldwins
lýst því yfir að hann myndi gera það
sem móðir barnsins væri svo brjóst-
umkennanlega ófær um, þ.e. að
þegja og fara þar með að dóms-
úrskurði.
Lögfræðingar Basinger segja
ásakanir Baldwins um það að hún
hafi lekið upptökunni í fjölmiðla ein-
ungis til marks um raunveruleika-
firringu hans.
Alec Baldwin
Kim Basinger
Skammaði
dótturina