Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Ásgeir Sverrisson
og Rúnar Pálmason
DÓMSTÓLL í borginni Santa Ana í
El Salvador hefur dæmt tvo karl-
menn fyrir morðið á Jóni Þór Ólafs-
syni og fyrir að myrða Brendu Sal-
inas, vinkonu hans. Fyrir hvort
morðið um sig hlutu mennirnir 35
ára fangelsisdóm, samtals 70 ár.
Mennirnir heita José Alberto
Menjívar, 20 ára og Joel Nehemías
Escalante, 27 ára. Báðir eru félagar í
glæpagenginu „Mara 18“.
Í frétt frá fréttaritara spænsku
fréttastofunnar EFE í El Salvador
kemur fram að þeir hafi rænt Jóni
Þór og Brendu þegar þau komu út af
diskóteki í hverfinu San Benito í San
Salvador um klukkan 2.30 að stað-
artíma. Þau hafi verið myrt fjórum
klukkustundum síðar og fundust lík-
in á veginum sem liggur á milli San
Salvador og Santa Ana. Bæði höfðu
þau verið skotin til bana.
Glæpagengið sem mennirnir til-
heyra, „Mara 18“, var stofnað í Los
Angeles í Bandaríkjunum í kringum
1980 en eftir að bandarísk stjórnvöld
vísuðu meðlimum þess úr landi létu
þeir til sín taka í El Salvador og víðar
í Mið-Ameríku.
Jón Þór var 37 ára þegar hann var
myrtur í febrúar árið 2006. Hann lét
eftir sig sambýliskonu á Íslandi og
tvö börn frá fyrri sambúð. Hann var
verkfræðingur og vann sem slíkur í
El Salvador á vegum íslenska orku-
og ráðgjafarfyrirtækisins Enex.
Að sögn Lárusar Elíassonar,
framkvæmdastjóra Enex, voru fjórir
menn ákærðir fyrir morðið eða aðild
að því. Tveir þeirra, maður sem ók
bíl morðingjanna og maður sem
ákærður var fyrir að hafa tekið þátt í
árásinni, voru sýknaðir vegna skorts
á sönnunargögnum. Samkvæmt
upplýsingum Lárusar er vaninn sá
að menn afpláni að lágmarki 2⁄3 hluta
af dómum en þeir sitja þó aldrei
lengur í fangelsi en 35 ár.
Lárus segir það vonbrigði að tveir
hinna ákærðu hafi verið sýknaðir.
Alls hafi fimm verið bendlaðir við
morðið en sá fimmti sitji nú í fangelsi
og afpláni 17 ára fangelsisdóm sem
hann hlaut fyrir annað afbrot.
Dæmdir í 70 ára fangelsi
Myrtu Íslending og vinkonu hans í El Salvador í febrúar 2006
!
Í HNOTSKURN
» Jón Þór Ólafsson varmyrtur ásamt Brendu Sal-
inas í El Salvador hinn 12.
febrúar 2006.
» Tveir menn voru dæmdir í35 ára fangelsi fyrir hvort
morðið fyrir sig, samtals 70 ár
en tveir voru sýknaðir vegna
skorts á sönnunargögnum.
» Morðingjarnir tilheyrahættulegu glæpagengi, er
nefnist „Mara 18“.
því Smáratorgsverslunin fór í
rauninni bara út í Smáralind.“
Holtagarðar fá nýtt ytra útlit
og innangengt verður milli búða í
húsinu. Þá mun fólk geta ferðast
MIKLAR framkvæmdir eru hafn-
ar við Holtagarða þar sem Vín-
búð, Rúmfatalagerinn og IKEA
voru áður til húsa. Samkvæmt
Brynjari Erni Áskelssyni, verk-
stjóra framkvæmdanna hjá ÞG-
verki, er verið að bæta annarri
hæð inn í gamla IKEA-rýmið án
þess þó að byggja ofan á húsið,
enda æði hátt til lofts þar fyrir.
Þá bætist 1.500 fermetra viðbygg-
ing við húsið og bílastæðahús á
tveimur hæðum rís fyrir framan
gömlu Vínbúðina. Verslunarhús-
næðið verður um 10 þúsund fer-
metrar að breytingum loknum.
Hagkaup með 7.000 fermetra
Nýjar verslanir verða opnaðar í
húsnæðinu í haust. Meðal annars
opna Hagkaup, Útilíf og Max-
raftæki nýjar búðir og Bónus
verður áfram á sínum stað. Einn-
ig er reiknað með nokkrum minni
verslunum. Gunnar Ingi Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Hag-
kaupa, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að búðin yrði „í fullri
stærð“ eða um 7.000 fermetrar og
myndi bjóða upp á fullt vöruúr-
val. „Þetta er hrein viðbót,“ sagði
Gunnar Ingi, „við höfum ekki
opnað nýja stórverslun síðan 1998
með innkaupakerrur á milli hæða
á svonefndu göngubandi (e. wal-
kalator). Uppbygging hússins og
útlit verður því meira í ætt við
verslanamiðstöðvar en áður hefur
verið, samkvæmt Gunnari Inga.
ÞG-verk áætlar verklok við
breytingarnar 28. nóvember næst-
komandi, en það er Fasteigna-
félagið Stoðir sem er verkkaupi.
Morgunblaðið/Ásdís
10.000 fermetra verslanamiðstöð á tveimur hæðum og búin göngubandi
Umbreyting Holtagarða
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG hef enn ekki fengið fréttir að utan, en ég
geri ráð fyrir að ég þekki skipstjórann á skip-
inu,“ segir Ólafur Ragnarsson, fyrrverandi
skipstjóri, sem um árabil vann fyrir danska út-
gerðarfyrirtækið H. Folmer & Co. Á þeirra
vegum sigldi hann nokkrum sinnum með flutn-
ingaskipinu Danica White, seinast árið 2002.
Eins og greint hefur verið frá náðu sóm-
alskir sjóræningjar Danica White á sitt vald sl.
laugardag. Skipið var þá um 240 sjómílur und-
an strönd Sómalíu á leið sinni til Mombasa í
Kenýu. Fimm danskir skipverjar voru um
borð og hefur útgerð skipsins, H. Folmer &
Co., árangurslaust reynt að ná sambandi við
þá á síðustu dögum. Samkvæmt netútgáfu
Politiken mun staðfest að Danica White liggi
nú við bryggju í höfninni Hobyo í Sómalíu.
Ólafur vann sem stýri-
maður hjá H. Folmer & Co.
á árabilinu 1992-2005 og
sigldi á því tímabili um öll
heimsins höf. „Við sigldum
t.d. oft með vopn frá Banda-
ríkjunum til Persaflóasvæð-
isins,“ segir Ólafur, en vill
lítið gera úr því að um
hættulegar ferðir hafi verið
að ræða. Spurður hvort
hann hafi einhvern tímann
orðið var við sjóræningja
svarar Ólafur því neitandi, en rifjar upp að
einu sinni hafi hurð skollið nærri hælum. „Við
vorum að sigla með sprengiefni frá Brasilíu til
Georgetown í Guayana og þá kom strandgæsl-
an á móti okkur langt út á haf til að verja okk-
ur fyrir sjóræningjum ef þeir skyldu reyna að
ráðast á okkur,“ segir Ólafur og minnir á að
breska siglingastofnunin gefi reglulega út við-
varanir á þeim leiðum þar sem búast megi við
árásum sjóræningja. Bendir hann á að sigl-
ingaleiðir undan ströndum Sómalíu, sundið við
Singapúr, ýmsir staðir í Indókína og ákveðin
svæði í Karíbahafinu hafi löngum verið við-
sjárverð.
Spurður hvort áhafnir hafi einhvern sér-
stakan viðbúnað þegar skip sigli á leiðum þar
sem búast megi við sjóræningjum svarar Ólaf-
ur því játandi. „Þegar við sigldum á vafasöm-
um svæðum þá voru allir á vakt og vakandi, en
yfirleitt reyna þeir að ráðast á skipið á nótt-
unni. Undir þessum kringumstæðum fylgd-
umst við stýrimennirnir vel með radarnum
auk þess sem menn voru úti á brúarvængj-
unum. Ef eitthvað hreyfðist í átt til okkar voru
skipverjar á dekkinu reiðubúnir með öflugan
smúl til þess að geta dælt á sjóræningjana sjó
af fullum krafti ef þeir nálguðust skipið.“
Spurður hvort hann hafi einhvern tímann
orðið hræddur við sjóræningja svarar Ólafur
því neitandi. „Maður hafði yfirleitt um nóg
annað að hugsa. Auk þess sem maður var alltaf
sannfærður um að ekkert kæmi fyrir mann.“
Ólafur Ragnarsson fyrrverandi skipstjóri hefur siglt með Danica White um heimsins höf Segir
viðbúnað áhafnar gegn sjóræningjum felast í því að halda vöku sinni og vera reiðubúna með smúl
Hurð skall nærri hælum
Ólafur
Ragnarsson Rænt Danska flutningaskipinu Danica White
var rænt af sjóræningjum um liðna helgi.
LÖGREGLAN á Hvolsvelli stöðv-
aði í gær átta erlenda ferðamenn
fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast
ók var á 134 kílómetra hraða.
Þessir erlendu gestir létu sumir,
að eigin sögn, freistast til hrað-
aksturs á hringveginum vegna
þess að vegurinn er bæði breiður
og engin tré skyggja á útsýnið.
Væntanlega hefur lögregla getað
bent þeim á að engin tré skyggja
heldur á umferðarskilti sem sýna
að hámarkshraði á þjóðvegum er
90 kílómetrar á klukkustund.
Óku hratt með tengivagna
Fimm innfæddir ökumenn höfðu
einnig verið stöðvaðir af lögregl-
unni á Hvolsvelli þegar rætt var
við hana í gærkvöld, sumir hverjir
vegna þess að þeir óku of hratt
með tengivagn, þ.e. tjaldvagn og
þess háttar útilegubúnað, í eftir-
dragi.
Dæmi voru um menn sem óku á
106 og 110 km hraða með slíkan
vagn en eins og þeim ætti að vera
kunnugt má ekki aka bíl með
tengivagn hraðar en 80 km/klst.
Breiður veg-
ur, engin tré
♦♦♦
VIÐRÆÐUR standa nú yfir við
nokkra fjárfesta á Suðurlandi um sölu
á stórum hluta í fyrirtækinu Feyg-
ingu ehf. í Þorlákshöfn. Vegna fjár-
skorts hafa framkvæmdir við upp-
byggingu verksmiðjunnar legið niðri
síðan í nóvember á síðasta ári.
Greint er frá þessu í Sunnlenska
fréttablaðinu en átta ár eru liðin síðan
Feyging var stofnuð til framleiðslu á
trefjum úr sunnlenskum hör til út-
flutnings. Helstu eigendur fyrirtæk-
isins eru Orkuveita Reykjavíkur
(OR), Brú-fjárfestingarsjóður og
Sveitarfélagið Ölfus.
Stjórnarformaður Feygingar, Þor-
leifur Finnsson frá OR, sagði við
Morgunblaðið að viðræður við fjár-
festa stæðu enn yfir og vildi hann ekki
upplýsa um hvaða aðila væri að ræða.
Niðurstaðna væri að vænta fljótlega
en menn hefðu ekki gefið upp alla von
um að framleiðslan ætti framtíð fyrir
sér.
Eignir Feygingar hafa verið settar
í söluferli en takist viðræður við nýja
fjárfesta verður sú sala afturkölluð.
Viðræður
um sölu á
Feygingu