Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
"#$%
!
&$%
!
'$%
!
$(%
!
"#$
%&#$
''&#(
%#'
%$#$
')*#'
+#%
)#%
,,#*
+#%
'&#(
$"#(
+%&
+&&
%"&
%)&
%(&
%%&
%&&
'"&
')&
! -!.
%%&
%&&
'"&
')&
'(&
'%&
'&&
"&
)&
'"&
')&
'(&
'%&
'&&
"&
)&
(&
%&
')&
'(&
'%&
'&&
"&
)&
(&
%&
&
(&&
+,&
+&&
%,&
%&&
',&
'&&
,&
&
/
0/
12!
3
"#
45
64
&
45
64
#
45
64
%) +)%
%,(
%+%
++$
+&+
'"$
%,(
+(&
'$"
$+,!-
72 ')(#+ 42 / /!
8 /! 9! :
8. ( ;6
7 7
%"+ ! -!. 8 .##
%** ! -!. 8 /# 2.
%)( ! -!. 8 #
!7 7
<= .
"/ $ 0 -
72 ')#)' 42 8 /! ! : 8. ( ;6
1 / 72 '(#$ 42 / 8 '$&" ! -!. 4
. / 7 8 ! : .
!
!
!
"!
FJÖGUR af tíu kvótahæstu sjávar-
útvegsfyrirtækjunum leigja frá sér
heimildir sem svara til um 20.000
tonna af þorski samkvæmt upplýs-
ingum á heimasíðu Fiskistofu. Í
þessu dæmi er aðeins miðað við
heimildir innan lögsögu. Hlutfall
kvótaleigunnar af heildarkvóta inn-
an lögsögunnar hjá þessum fyrir-
tækjum er á bilinu 15% til 20%.
Í magni talið leigir HB Grandi
mest frá sér, eða um 6.600 tonn, sem
eru 16% heimilda innan lögsögu.
Næst kemur Brim með um 6.000
tonn eða 20% heimilda. Samherji er í
þriðja sætinu með 4.500 tonn eða
15% og loks Vinnslustöðin í Vest-
mannaeyjum með tæp 3.000 tonn,
sem er 20% heimilda innan lögsögu.
Þessar tölur segja þó ekki alla
söguna.
Leigan um það bil á núllinu
„Við höfum verið að leigja til okk-
ar mikið af aflaheimildum í Barents-
hafi og greitt fyrir þær með heim-
ildum innan lögsögu. Sömu sögu er
að segja af kolmunna. Við höfum líka
verið í samstarfi við Síldarvinnsluna
um að hún veiði hluta af heimildum
okkar og landi þeim til vinnslu hjá
okkur. Kvótaleigan hjá okkur er
nokkurn veginn á núllinu þegar til-
færslur frá okkur og til okkar eru
lagðar saman,“ segir Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Rúnar Stefánsson, útgerðarstjóri
HB Granda, tekur í sama streng.
Fyrirtækið sé að leigja til sín heim-
ildir í Barentshafi og í úthafskarfa til
að nýta skip sín við þær veiðar betur.
Fyrir þessar heimildir utan lögsögu
sé greitt með heimildum innan henn-
ar. Tekjur félagsins af kvótaleigu
séu smáaurar.
Geymsla og greiðsla
En það er fleira sem kemur til.
Stór hluti kvótaleigu Vinnslustöðv-
arinnar er í raun greiðsla vegna
kaupa á Gullbergi VE. Því fylgdu
töluverðar heimildir í uppsjávarfiski
og var greitt fyrir það með bolfisk-
kvóta. Annars er VSV með meiri
heimildir en skipin þurfa og leigir því
líka frá sér. Sigurgeir Brynjar Krist-
geirsson, forstjóri VSV, segir að ef
bæta ætti skipi við, þyrfti að auka
heimildir til að fullnýta það. Því sé
hagkvæmara að leigja frá sér.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Brims, bendir á að stór hluti
þess, sem skráð er sem kvótaleiga,
sé í raun kvótageymsla fyrir Freyju
RE og tilfærsla vegna kaupa Brims
á Kleifaberginu. Annars leigi fyrir-
tækið frá sér heimildir sem nemi um
2.500 þorskígildistonnum.
Mikil leiga á aflaheimildum
innan lögsögunnar
Leigja frá sér innan lögsögu til kaupa á þorski í Barentshafi
Í HNOTSKURN
»„Kvótaleigan hjá okkur ernokkurn veginn á núllinu
þegar tilfærslur frá okkur og
til okkar eru lagðar saman.“
»Kvótageymsla og greiðslafyrir skip og kvóta er
skráð sem kvótaleiga hjá
Fiskistofu.
»Hlutfall kvótaleigunnar afheildarkvóta innan lögsög-
unnar hjá þessum fyrirtækjum
er á bilinu 15% til 20%.
ÚR VERINU
MANNSHJARTAÐ verður í háveg-
um haft þegar árlegt kvennahlaup
ÍSÍ fer fram í átjánda skipti laugar-
daginn 16. júní næstkomandi. Kjör-
orð hlaupsins í ár er „Hreyfing er
hjartans mál“.
Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir
hjá ÍSÍ og Vilmundur Guðnason for-
stöðulæknir Hjartaverndar undirrit-
uðu á föstudag samstarfssamning
um kvennahlaupið og sögðust bæði
stolt og ánægð með samstarfið.
Markmið þess er að vekja athygli á
konum og kransæðasjúkdómum.
Ingibjörg og Vilmundur féllust í
faðma eftir að hafa undirritað samn-
inginn og sögðust fullviss um að
samstarfið yrði hreinlega yndislegt.
Hlaupið í 10 löndum
Kvennahlaupið er stærsti árlegi
íþróttaviðburðurinn á landinu því ár-
lega taka um 16-18 þúsund konur
þátt. Þannig skjóta konurnar bæði
landsleikjum í knattspyrnu og
Reykjavíkurmaraþoni ref fyrir rass
hvað mætingu varðar. Nú er svo
komið að ríflega helmingur íslenskra
kvenna á aldrinum 16-75 ára hefur
tekið þátt í hlaupinu, en þátttak-
endur eru á breiðu aldursbili, frá
ómálga ungbörnum upp í virðulegar
konur á tíræðisaldri.
Hlaupið fer fram á 90 stöðum hér
á landi, en stærstu hlaupin verða í
Garðabæ, Mosfellsbæ og á Akur-
eyri. Kvennahlaupið teygir sig einn-
ig langt út fyrir landsteinana og bú-
ist er við að íslenskar konur hlaupi
víða um heim nú í júní, m.a. í Banda-
ríkjunum, Sviss, Namibíu og á
Spáni.
Dulin áhætta fyrir konur
Vilmundur segir einkenni hjarta-
og æðasjúkdóma ekki koma fram á
sama hátt hjá konum og körlum. Þau
séu óhefðbundin og óskýr hjá konum
auk þess sem þau verði ekki ljós fyrr
en um eða eftir sextugt, eða um 10-
15 árum síðar á lífsleiðinni en hjá
körlum. Karlar fá oftast auðþekkj-
anlega verki fyrir brjóstið, en það
sama gildir ekki endilega um konur
sem sami kvilli hrjáir. Sjúkdóms-
ferlið er þess í stað miklu hraðara
hjá konum og nær tökum á þeim á
skemmri tíma. Mestu hættuna segir
Vilmundur stafa af því þegar fólk
sofni á verðinum, telji sig ekki í
hættu og taki ekki eftir einkenn-
unum. Kvennahlaupið verður kynnt
rækilega í samstarfi við styrktarað-
ila þess, Sjóvá, þegar nær dregur
stóra deginum.
„Hreyfing er hjartans mál“
er slagorð Kvennahlaupsins
Búist við að þátt-
takendur verði 16-
18 þúsund talsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skemmtileg hreyfing Kvennahlaup ÍSÍ er kjörið tækifæri til þess að hreyfa kroppinn. Fjölmargir gönguhópar
hafa orðið til út frá hlaupinu, enda uppgötva konur sem taka þátt að hreyfing getur verið hin besta skemmtun.
Glöð í bragði Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir og Vilmundur Guðnason
undirrituðu samninginn um framkvæmd Kvennahlaups ÍSÍ.
Í HNOTSKURN
»Kvennahlaup ÍSÍ er lang-stærsti árlegi íþrótta-
viðburðurinn hér á landi.
»Hjarta- og æðasjúkdómareru algengasta dánar-
orsök kvenna og leggja fleiri
að velli en allar tegundir
krabbameins til samans.
»Hjartavernd leggur núaukna áherslu á að
rannsaka hjarta- og æða-
sjúkdóma með tilliti til
kvenna.
»Slíkar rannsóknir hafahingað til fyrst og fremst
verið „karlarannsóknir“.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FORSETI Ís-
lands, Ólafur
Ragnar Gríms-
son, sat í gær
samráðsfund
leiðtoga evr-
ópskra smáríkja
sem haldinn var í
boði Alberts II
fursta af Mónakó
í tengslum við
Smáþjóðaleikana
sem hófust þar í gærkvöldi.
Á fundinum var ítarlega rætt um
þær hættur sem yfirvofandi lofts-
lagsbreytingar skapa mannkyni og
nauðsyn þess að á sérhverju sviði
samfélagsins verði gripið til rót-
tækra gagnaðgerða, segir í frétt
frá skrifstofu forseta Íslands. Fram
kom að loftslagsbreytingar munu
skapa fjölda smárra ríkja í veröld-
inni meiri ógn en öðrum ríkjum
vegna þess hve mörg þeirra eru ey-
ríki sem bíða munu verulegt tjón,
vegna hækkunar sjávarborðs, jafnt
á mannvirkjum sem öllu efnahags-
lífi. Leiðtogarnir ræddu um nauð-
syn þess að forystumenn smáríkja
tækju saman höndum til að hafa
áhrif á aðgerðir á heimsvísu.
Hvatt til aðgerða
Í tilefni af Smáþjóðaleikunum
samþykktu leiðtogarnir yfirlýsingu
þar sem hvatt er til aðgerða í þágu
baráttunnar gegn loftslagsbreyt-
ingum með því að vega á móti út-
blæstri koltvísýrings í andrúms-
loftið. Alþjóðleg íþróttamót yrðu
kolefnisjöfnuð með markvissum að-
gerðum þannig að mengunaráhrif
þeirra yrðu hverfandi. Smáþjóða-
leikarnir gætu í framtíðinni orðið
verðugt fordæmi fyrir önnur al-
þjóðleg íþróttamót enda væri slík
forysta í samræmi við siðferðis-
grundvöll hins fjölþjóðlega íþrótta-
starfs.
Forseti Íslands var, ásamt öðrum
leiðtogum evrópskra smáríkja, Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra, Ólafi Rafns-
syni forseta ÍSÍ og öðrum forystu-
mönnum íslenskrar íþróttahreyf-
ingar, viðstaddur setningarathöfn
leikanna. Forsetinn mun næstu
daga vera viðstaddur ýmsa atburði
Smáþjóðaleikanna, en hann er
verndari Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands.
Samráðs-
fundur um
umhverfismál
Ólafur Ragnar
Grímsson