Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 15

Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 15 YFIRVÖLD í Þýskalandi eru með gífurlegan öryggisviðbúnað vegna þriggja daga leiðtogafundar átta helstu iðnvelda heims, G-8, sem hefst á morgun í Heiligendamm, um 25 kílómetra frá Rostock. Gert er ráð fyrir því að um 16.000 lög- reglumenn verði á varðbergi við fundarstað Angelu Merkel, kansl- ara Þýskalands, og gesta hennar, George W. Bush Bandaríkjaforseta og leiðtoga Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kanada og Rúss- lands. Skriðdrekar og brynvarðir liðs- flutningabílar voru þegar á svæð- inu í gær og lögregluþyrlur sveim- uðu yfir því. Vegfarendur ráku upp stór augu þegar þeir sáu tveggja og hálfs metra háa gaddavírsgirðingu við fundarstaðinn með eftirlitsmynda- vélar og flóðljós. Mörgum þótti þetta minna á járntjaldið í kalda stríðinu. „Ég er ekki viss um að þetta sé nauðsynlegt,“ sagði einn vegfar- endanna. „Þetta er ekki gott í ljósi sögu Þýskalands. Við kynntumst þessu í Austur-Þýskalandi og núna hefst það aftur.“ Þýsk yfirvöld hafa þegar verið gagnrýnd fyrir að taka lyktarsýni af nokkrum andstæðingum leið- togafundarins og beita þannig að- ferð sem austur-þýska öryggis- lögreglan, Stasi, notaði til að leita að andófsmönnum með hundum. Öryggisviðbúnaðinum vegna fundar G-8 líkt við járntjaldið George W. BushAngela Merkel FUNDIST hafa í gömlum skáp í þvottahúsi í Sviss nær þúsund bréf sem þekkt fólk í sög- unni hefur ritað, þ.á m. Winston Churchill, Mahatma Gandhi og Pétur mikli Rússakeis- ari. Bréfin eru hluti af safni austurrísks bankamanns, Albin Schram og fundust í húsi hans í Lausanne, að sögn Aftenposten. Bréfin verða seld á uppboði og búist við að slegist verði um þau. „Fáheyrt er að menn finni bréfasafn af þessu tagi á okkar dög- um,“ segir Thomas Venning, sérfræðingur hjá uppboðsfyrirtækinu Christie’s í London. Honum finnst einkum til um eitt bréfið sem er frá breska skáldinu og rithöfundinum John Donne. „Ég sendi þér þrjá kossa – einn á munninn, einn á hjartað og einn á aug- un,“ segir í bréfi Napóleons I Frakkakeisara til verðandi eiginkonu sinnar, Jósefínu. Á herferðum sínum sendi hann stundum nokkur bréf á dag og voru þau send til hennar með hraðboða á hesti. Safn sendibréfa frá frægu fólki fannst í þvottahúsi Napóleon Bonaparte MUN fleiri fóstur skaðast í móður- kviði af völdum áfengisneyslu en áður var talið, segja bresku læknasamtökin. Börn sem fæð- ast með skil- greind áfengis- einkenni eru léttari en önnur börn, hafa óvenjulega andlitsdrætti og eru heilasködduð. Nú er talið að fjölmörg börn sem ekki uppfylli skilyrði greiningar séu einnig sködduð. Konum í barneignarhugleið- ingum er ráðlagt að drekka ekki áfengi, því merkjanlegur skaði get- ur orðið áður en meðgöngu verður vart. Fóstur undir áhrifum Áfengi hefur slæm áhrif á fóstur. TUGIR þúsunda manna söfnuðust saman í Hong Kong í gær til að minnast blóðsúthellinganna á Torgi hins himneska friðar í Peking 4. júní 1989 þegar kínversk stjórnvöld beittu hernum til að kveða niður friðsamleg mótmæli. Blóðbaðs minnst VIÐRÆÐUR munu hefjast milli fulltrúa Marokkó og Polisario, út- lægrar frelsishreyfingar Vestur- Saharamanna, í New York 18. júní. Marokkómenn hernámu V-Sahara á áttunda áratugnum. Hefja viðræður SPÆNSKUM læknum hefur tekist að færa hægri hönd 63 ára manns yfir á vinstri handlegg en maðurinn missti vinstri höndina fyrir um 40 árum. Einnig færðu þeir þum- alfingurinn að litla fingrinum. Hægri hönd færð Føroya Banki er einn stærsti banki Færeyja með 44% markaðshlutdeild í útlánum og 39% hlutdeild á innlána- markaði. Bankinn er með 20 útibú í Færeyjum og viðskipta- vinum, jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum og stofnunum, fjölgar óðum. Stöðugt býðst betri þjónusta, fagmennska og sérþekking á ýmsum sviðum starfseminnar. Að bankanum standa reyndir stjórnendur og stefnan er sú að Føroya Banki verði leiðandi í fjármálastarfsemi í Færeyjum og geti boðið valda fjármálaþjónustu á alþjóðlegum vettvangi. Á árinu 2006 var hagnaður Føroya banka fyrir afskriftir útlána og skatta 125 milljónir danskra króna, lánastarfsemi jókst um 33% og var 5,4 milljarðar danskra króna. Hagnaður- inn hélt áfram að aukast á fyrsta ársfjórðungi ársins 2007 og nam fyrir afskriftir útlána og skatta 49 milljónum danskra króna. Bankinn áætlar að hagnaður fyrir afskriftir útlána og skatta á árinu 2007 verði alls um 145–165 milljónir króna. Helstu markmið bankans eru 10% samfelldur meðalvöxtur á ári hvað varðar hreinar vaxtatekjur og þóknanir og 12% langtímahagnaður eftir skatta af hlutafjáreign. Føroya Banki er nú í eigu færeysku landsstjórnarinnar í gegnum sérstakan sjóð frá 1992 sem kallast Fíggingar- grunnurin eða Financing Fund of 1992. Landsstjórn Færeyja hefur ákveðið að einkavæða bankann og allt að 66% af hlutafé hans er nú til sölu. Sótt hefur verið um skráningu hlutabréfa Føroya Banki í Kauphöll Íslands (ICEX) og hjá Copenhagen Stock Exchange (CSE) í Danmörku. Heildarfjöldi útgefinna hluta er 10.000.000, hver hlutur er 20 danskar krónur að nafnverði, og eru 6.000.000 hlutir boðnir til sölu í útboðinu. Að auki er heimild til umframúthlutunar 600.000 hluta. Áætlað er að verð liggi á bilinu 162 og 189 danskar krónur á hlut, verð ákvarðast með áskriftarverð- lagningu (e. book-building). Tímabil útboðs stendur yfir frá og með 11. júní 2007 og er reiknað með að því ljúki 19. júní. Útboðinu lýkur í fyrsta lagi 13. júní 2007 kl. 15.00 að íslenskum tíma. Hægt er að loka fyrir áskriftir að andvirði 2.000.000 danskra króna og minna í almennum hluta útboðsins óháð öðrum hluta útboðsins. Skráning á ICEX og CSE undir auðkenninu FO-BANK er fyrirhuguð 21. júní 2007. Hægt er að nálgast lýsingu á slóðunum www.landsbanki.is, www.handelsbanken.dk eða á vefsetri Føroya Banka www.foroya.fo frá 4. júní 2007 og þar til útboðstímabili lýkur. Hægt er að óska eftir prentútgáfu af lýsingu í útibúum Landsbankans. Fjárfestar sem hafa áhuga á að leggja fram til- boð þurfa að fylla út rafrænt eyðublað á www.landsbanki.is. Þórshöfn 5. júní 2007 R E P R O Z FØROYA BANKI · Húsagøta 3 · P.O. Box 3048 · FO-110 Þórshöfn · Færeyjum Sími +298 330 330 · Fax +298 330 001 · Netfang info@foroya.fo · www.foroya.fo Hlutabréf til sölu í ört vaxandi banka Sokkabuxur sem eru sérsni›nar fyrir stórvaxnar konur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.