Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 17
SUÐURNES
20% afs
láttur
af toppgr
æjum fyr
ir glugga
þvottinn
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Miðási 7 • Egilsstöðum
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njarðvík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfirði
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
GLUGGAÞVOTTASKINN/SKAFA
Visa Versa gluggaþvottaskinn/skafa –
20% fljótlegra að nota þvottaskinn og
gluggaþvöru í einu áhaldi. Til í tveimur
stærðum. Auðvelt að festa á skaft til
að framlengja. Til í tveimur stærðum.
HREINIR OG
GLERFÍNIR
GLUGGAR
Tilboðið gildir til 30. júní eða
á meðan birgðir endast.
GLUGGAÞVOTTASÁPA
Gluggaþvottasápan sem
fagmaðurinn notar.
HIFLO ÞVOTTAKÚSTUR
HiFlo þvottakústur – samanstendur af
10 m slöngu, bursta með stillanlegum lið,
sápuskammtara og 64 umhverfisvænum
sáputöflum. Hægt er að kaupa mismunandi
lengdir á sköftum (fylgja ekki með).
GLUGGAÞVARA
Gluggaþvara með þægilegu
griphandfangi. Endurbætt gúmmí
sem skilur engar rákir eftir sig.
Auðvelt að festa á skaft til að
framlengja. Til í þremur stærðum.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
28
06
7
Sigurlið Andri Már, Aníta, Bjarki, Einar Th., Erna Lind, Gunnar Örn, Jón,
Margrét og Sölvi voru í sigurliðinu. Kennari þeirra er Svava Pétursdóttir.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Við þurftum að
spýta vel í lófana í lokin, það gekk
svo illa að fá bílana til að keyra,“
segir Bjarki Brynjólfsson, nemandi
í níunda bekk Njarðvíkurskóla.
Hann var í hópi nemenda úr 8. og 9.
bekk skólans sem sigruðu í hönn-
unarkeppni nemenda efstu bekkja
grunnskólanna í Reykjanesbæ,
Garði og Sandgerði.
Verkefnið var að hanna farartæki
sem byggt er að mestu leyti úr áli
og gengur fyrir vetni. Þurfti að
leysa ákveðnar þrautir á brautinni.
Þá kynntu nemendur rannsóknar-
verkefni sem fjalla um vetni sem
framtíðarorkugjafa og nýtingu áls.
Keppnin fór fram í Akurskóla síð-
astliðinn föstudag en nemendurnir
hafa undirbúið sig fyrir verkefnið
undanfarnar vikur.
Langur vinnudagur
Bjarki Brynjólfsson segir að í
upphafi hafi hönnunarverkefnið
verið valfag. Sér hafi þótt þetta
spennandi og tekið þátt. Í upphafi
hafi ekki litið út fyrir að þetta yrði
jafn erfitt og raun varð á. Þau hafi
hist einu sinni í viku framan af. Þau
hafi svo ekki fengið þá hluti sem
þurfti til að smíða bílana fyrr en í
lok apríl og erfitt hafi verið að fá þá
til að virka rétt á þeim stutta tíma
sem var til stefnu. Sérstaklega hafi
verið erfitt að fá bílana til að keyra
og því hafi hópurinn þurft að spýta í
lófana í lokin til að ná að ljúka verk-
efninu. Það gerðu þau með því að
nota þemadaga sem voru í skólan-
um. Þá lágu þau yfir þessu frá
klukkan átta á morgnana til fjögur
á daginn og stundum lengur. Guð-
munda Lára Guðmundsdóttir skóla-
stjóri segir að áhuginn hafi verið
svo mikill að það hafi beinlínis þurft
að reka krakkana heim úr skólan-
um. Bjarki kannast við það en segir
að það hafi ekki gerst oft því verk-
efnið hafi verið svo erfitt að þau hafi
verið orðin þreytt í lok dags og ver-
ið fegin að fara heim.
Þau settu í fyrstunni saman þrjá
bíla en ekki tókst að fá neinn þeirra
til að hreyfast, þeir voru of þungir.
Þá einbeittu þau sér að einum og
náðu honum á ágætis skrið. Út á
hann unnu þau keppnina.
Bjarki segir að með þátttöku í
þessu verkefni hafi hann öðlast
töluverða þekkingu á vetni og vetn-
isbílum. Reiknar hann með því að
þekkingin nýtist honum í framtíð-
inni þótt ekki viti hann nú hvernig.
Níu nemendur úr 8. og 9. bekk
Njarðvíkurskóla tóku þátt í keppn-
inni en stærri hópur vann með þeim
á undirbúningstímanum.
Liðið hlaut einnig fyrstu verðlaun
fyrir rannsóknarverkefni sitt um
vetni en Skjaldbakan í Heiðarskóla
fékk fyrstu verðlaun fyrir rann-
sóknarverkefni sitt um ál.
„Við þurftum að spýta
vel í lófana í lokin“
Í HNOTSKURN
»Virkjum vísindin og hug-vitið hjá unga fólkinu, er
yfirskrift hönnunarkeppni
meðal nemenda efstu bekkj-
anna í grunnskólum á Suð-
urnesjum. Fimmtíu nemendur
tóku þátt.
»Keppnin er hluti af sam-starfsverkefni Reykjanes-
bæjar, Norðuráls og Hitaveitu
Suðurnesja um eflingu raun-
vísindakennslu á Suð-
urnesjum. Kennarar hafa
fengið margvíslega fræðslu.
Grímsey | Ryan George Brown,
mann- og umhverfisfræðingur frá
háskólanum í Alberta í Kanada,
kom nýlega í heimsókn til Gríms-
eyjar. Ryan hefur dvalið á Ak-
ureyri, sem gestarannsakandi hjá
stofnun Vilhjálms Stefánssonar, en
hann er að ljúka mastersritgerð um
veðurfar og breytingar á heim-
skautasvæðum. Áður hafði Ryan
safnað að sér veðurfarsupplýs-
ingum hjá inúítum í Kanada.
Ryan kom til landsins í apríl.
Hann hefur ferðast um á Norður-
landi og tekið viðtöl við umhverf-
isáhugamenn, bændur, fólk í ferða-
mennsku og fuglaáhugamenn. Til
Grímseyjar lagði hann leið sína til
að fræðast um upplifun íbúa á
heimskautsbaug varðandi veð-
urbreytingar og breytingar á lofts-
lagi síðustu tíu árin.
Ryan sagði að upplýsingar um
loftslag væru til alveg frá fyrstu
dögum Íslandsbyggðar og það væri
einstakt í heiminum. Ryan Brown
er mjög ánægður með dvölina á Ís-
landi og segist halda heim síðar í
mánuðinum með gagnlegar upplýs-
ingar fyrir rannsókn sína.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Við heimskautsbaug Ryan George Brown við höfnina í Grímsey.
Kannar veður- og
loftslagsbreytingar
á heimskautasvæðum
LANDIÐ
Siglufjörður | Bátasmiðjan Siglu-
fjarðar Seigur ehf. hlaut hvatning-
arverðlaun atvinnuþróunar SSNV
fyrir árið
2007. Adolf
H. Bernd-
sen, for-
maður
Samtaka
sveitarfé-
laga á
Norðurlandi vestra, afhenti Guðna
Sigtryggssyni framkvæmdastjóra
verðlaunin við athöfn í húsakynn-
um fyrirtækisins.
Fram kom við það tækifæri að
fyrirtækið hlyti verðlaunin vegna
hugkvæmni og áræðis sem starfs-
menn og stjórnendur hafa sýnt við
uppbyggingu þess.
Siglufjarðar Seigur ehf. var
stofnað fyrir tveimur árum af JE
vélaverkstæði ehf. á Siglufirði,
Seiglu ehf. í Reykjavík og Siglu-
fjarðarkaupstað. Tilgangurinn var
að smíða plastfiskibáta fyrir inn-
lendan og erlendan markað. Í byrj-
un fullvann fyrirtækið bátsskrokka
sem steyptir voru hjá Seiglu ehf. í
Reykjavík og nýverið afhenti fyr-
irtækið sjöunda bátinn og þann
þriðja sem fyrirtækið byggir alfar-
ið sjálft. Einn af þessum bátum hef-
ur verið fluttur út til Noregs. Verk-
efni hafa aukist jafnt og þétt.
Hjá fyrirtækinu vinna nú fjórir
sérþjálfaðir menn sem sótt hafa
námskeið og hlotið þjálfun í með-
ferð og vinnslu plastefna. Hjá sam-
starfsfyrirtækjunum, JE vélaverk-
stæði og Rafbæ ehf., vinna
iðnaðarmenn með mikla reynslu á
sínum sviðum. Þannig er sam-
ankomið einvala lið til að annast
verkefni sem þessi, eins og komist
er á orði í fréttatilkynningu.
Fengu hvatn-
ingarverðlaun