Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 20
menntun
20 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ö
rtækni, latína, næring-
arfræði, tölvuverk-
fræði, sálfræði, jap-
anska, þjóðfræði og
sanskrít er á meðal
þess sem stendur ungu fólki til
boða í Háskóla unga fólksins, sem
hefur nú göngu sína fjórða sumarið
í röð.
Háskóli unga fólksins er fyrir
krakka á aldrinum 12 til 16 ára og
er námsframboð einstakt, að sögn
Guðrúnar Bachmann, kynning-
arstjóra Háskóla Íslands.
Nemendur geta valið á milli
þrjátíu námskeiða af öllum fræða-
sviðum Háskóla Íslands auk þess
sem þeir velja sér einn „þemadag“
þar sem kafað verður dýpra í
fræðin. Á þemadögum er m.a. boð-
ið upp á þemu á borð við bráða-
vaktina, bíódag, lífið á jörðinni,
leikið á gerviheiminn, Milky Way –
ekki bara súkkulaði, Surtsey og
hvernig láta má drauma sína ræt-
ast.
Gaman í háskólaumhverfi
„Þetta nám er að okkar mati
rosalega skemmtilegt og við mynd-
um sko aldeilis ekki undir nokkrum
kringumstæðum vilja missa af því,“
segja vinirnir Arnór Már Arn-
órsson og Þorsteinn Baldvin Jóns-
son, sem eru nýfermdir og ætla að
taka þátt í Háskóla unga fólksins
nú þriðja árið í röð. Þeir Arnór og
Þorsteinn kynntust í Ísaksskóla
þegar þeir voru fimm ára gamlir og
hafa síðan verið miklir félagar
þrátt fyrir að Arnór búi í Kópavog-
inum og gangi í Digranesskóla og
Þorsteinn búi í Vesturbæ Reykja-
víkur og gangi í Hagaskóla.
„Steini átti upphaflega hug-
myndina að því að sækja Háskóla
unga fólksins fyrir tveimur árum
og fékk mig með sér. Við höfum
sótt sömu fögin og verið algjörlega
samferða í þessu. Fyrsta árið tók-
um við dönsku, tölvunarfræði,
matvælafræði og Vísindavefinn. Í
fyrra urðu japanska, læknisfræði,
stjörnufræði, danska og Vís-
indavefurinn fyrir valinu og núna
höfum við félagarnir skráð okkur í
fornaldarsögu, tölvuverkfræði,
mannfræði og Vísindavefinn. Við
völdum svo bíódag sem þemadag,“
segir Arnór.
Þegar þeir eru spurðir hvaða fag
sé skemmtilegast í háskóla-
umhverfinu eru þeir sammála um
að Vísindavefurinn sé þeim hug-
leiknastur því á vefnum megi fræð-
ast um allt milli himins og jarðar.
Hver sem er getur sent inn fyr-
irspurnir og leitað svara við spurn-
ingum á borð við: Hvað er svart-
hol? Hvernig töpuðu Þjóðverjar
seinni heimsstyrjöldinni? Hvert er
hættulegasta dýr í heimi? Af
hverju halda strákar að þeir séu
eitthvað merkilegri en stelpur? Og
hvað heitir höfuðborg Indlands?
Nemendurnir ungu munu svo leit-
ast við að svara viðkomandi fyrir-
spurnum og miðla fróðleik.
Feta kannski í fótspor
feðranna
– En hvað ætlið þið að verða
þegar þið verðir stórir?
„Ég hef mikinn áhuga á því að
leggja fyrir mig læknisfræði, jafn-
vel hjartalækningar,“ svarar Þor-
steinn, sem þá mun að líkindum
feta í fótspor föður síns Jóns
Högnasonar, en saman deila þeir
feðgar miklum tónlistaráhuga. „Við
höfum farið saman á Eric Clapton-
tónleika og erum núna að leita okk-
ur að tónleikum með mexíkóska
götulistaparinu Rodrigo y Gabriela,
sem eru frábærir listamenn,“ segir
Þorsteinn, sem er sjálfur að nema
klassískan gítarleik hjá Páli Eyj-
ólfssyni í Tónmenntaskólanum.
Arnór er líka staðráðinn í að
ganga menntaveginn og segist hafa
hug á hagfræði líkt og pabbi sinn
sem er viðskiptahagfræðingur að
mennt. „Annars erum við líka mikl-
ir golfáhugamenn og höfum farið
saman á golfnámskeið þrjú ár í röð
og svo er ég mikill aðdáandi Liver-
pool og Breiðabliks og fer gjarnan
á völlinn þó ég sé ekki í boltanum
sjálfur,“ segir Arnór. Þeir félagar
ætla báðir að skreppa til útlanda í
sumar, Þorsteinn til Danmerkur
með foreldrum sínum og Arnór til
Noregs í heimsókn til frændfólks.
„Við vorum aðeins að spá í ung-
lingavinnuna, en komumst fljótt að
því að það er engin tími í svoleiðis
að sinni,“ segja þessir ungu
menntamenn að lokum.
Aðsóknin eykst ár frá ári
Að sögn Guðrúnar hefur aðsókn í
Háskóla unga fólksins aukist ár frá
ári og má gera ráð fyrir því að yfir
tvö hundruð ungmenni sæki skól-
ann að þessu sinni. „Það er einstök
upplifun að fylgjast með unga fólk-
inu gera sig heimakomið á há-
skólalóðinni. Hjá þessu unga fólki
er ekkert sjálfsagðara en að
spranga á milli bygginga, kynna
sér alls kyns undur vísindanna og
spjalla við háskólaprófessora um
menn og málefni.“
join@mbl.is
Skemmtilegt nám fyrir ungdóminn
Morgunblaðið/G.Rúnar
Námsmennirnir Þorsteinn Baldvin Jónsson og Arnór Már Arnórsson stefna nú á Háskóla unga fólksins þriðja árið í röð.
Háskóli unga fólksins er
skemmtileg leið fyrir
fróðleiksfúsa krakka til
að fræðast um fjölda
ólíkra fræðisviða. Jó-
hanna Ingvarsdóttir hitti
tvo hressa stráka sem
ætla að kynna sér bæði
fornaldarsögu og tölvu-
verkfræði.
Háskóli unga fólksins Krökkum á aldrinum 12-16 ára bjóðast þar tæki-
færi til að kynnast ýmsum ólíkum og skemmtilegum fræðigreinum.
Kennsla hefst í Háskóla unga
fólksins mánudaginn 11. júní og
stendur í eina viku.
www.ung.is
DAUÐSFÖLL tveggja stúlkna í Danmörku eru rakin
til Yasmin getnaðarvarnarpillunnar samkvæmt frétta-
þætti á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 á sunnudag. Í
þættinum sögðust læknar telja pilluna hafa orsakað
blóðtappa sem leiddi stúlkurnar til dauða. Yasmin-
pillan er meðal algengustu getnaðarvarnarpillna á Ís-
landi.
Yasmin er mest selda getnaðarvarnarpillan í Dan-
mörku að því er fram kom á vefsíðu Politiken í gær.
Þar segir einnig að skv. tölum danska lyfjaeftirlitsins
tengist Yasmin um 20% allra tilkynntra tilfella um
blóðtappa og allt að 27% tilkynntra aukaverkana. Það
er mun meira en hægt er að útskýra af markaðs-
hlutfalli pillunnar.
Í þættinum sagði hollenskur prófessor tölurnar sem
þar komu fram staðfesta grun um að eitthvað væri að
Yasmin-pillunni. Á sjúkrahúsinu í Esbjerg hafa komið
upp nokkur tilvik um blóðtappa hjá ungum konum
sem rakin eru til lyfsins.
Danska lyfjaeftirlitið hefur sent frá sér yfirlýsingu
um að blóðtappi sé þekkt aukaverkun getnaðarvarn-
arpillna og að Yasmin sé ekki talin skaðlegri en aðr-
ar sambærilegar tegundir. Lyfjafyrirtækið Bayer-
Schering, sem býr til Yasmin-pilluna, vildi ekki taka
þátt í gerð sjónvarpsþáttar TV2, en vísaði til rann-
sóknar sem fyrirtækið fjármagnaði sjálft og sýndi
fram á að Yasmin valdi ekki oftar blóðtappa heldur
en aðrar tegundir.
Yasmin-pillan er ein algengasta getnaðarvarn-
arpillan á Íslandi. Hjá Lyfjaeftirlitinu fengust þær
upplýsingar að hún væri notuð í um 20 prósentum til-
vika. Skráning á aukaverkunum lyfja á Íslandi er
ekki mikil og því lítið vitað um það hversu algengar
þær eru.
Telja Yasmin-
pilluna valda
blóðtappa
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Pillan Yasmin er ein tegund svokallaðra 3. kynslóðar
getnaðarvarnartafla.
Hallmundur Kristinsson er farinn
að blogga og má finna kveðskapinn
á vefslóðinni: www.hallkri.blog.is.
Fyrstu vísuna nefnir hann Upphaf:
Ég er að byrja að blogga.
Blundar mér skáldið í.
Nú er ég mættur hjá Mogga,
mikið er gaman að því!
Einum nýliðanum varð á
ofstuðlun á leirnum, póstlista
hagyrðinga. Ármann Þorgrímsson
orti þegar:
Lifað hef ég langa tíð
við leirburð oft og mikið glími.
Enn er ég að yrkja níð
með ofstuðlun og skökku rími
Og Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit bætti við:
Mönnum verður alltaf á
af því skeytin spretta,
að flestu á leirnum finna má
svo fástu ekki um þetta.
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd gluggaði í fréttir
Moggans:
Kerfisvillan voru láði
veitir illar hremmingar.
Engin stilla í Eyjum ráði,
ekkert spilli lífi þar!
Og fleira er í fréttum sem vekur
Rúnar til umhugsunar:
Samdist lítt með Agli og Ara,
önnur stöð þess bráðum nýtur.
Egill vildi ólmur fara,
Ari greyið stóð sem þvara,
– sínum augum silfrið hver á lítur!
Guðveig Sigurðardóttir er með
síðbúnar hugleiðingar um
kosningar og Framsóknarflokkinn:
Nú er fylgi Framsóknar
fallið eins og spýtan.
Vinstri grænir vindhanar
vilja held ég nýt’ann.
VÍSNAHORNIÐ
Af bloggi og Eyjum
pebl@mbl.is