Morgunblaðið - 05.06.2007, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ísak Jón Sig-urðsson fæddist
á Ísafirði 11. jan-
úar 1928. Hann lést
á heimili sínu,
Hjaltabakka 12 í
Reykjavík, aðfara-
nótt 22. maí síðast-
liðins. Foreldrar
hans voru Sigurður
Ásgeirsson hús-
gagnabólstrari á
Ísafirði, f. 30.8.
1892, d. 2.9. 1967,
og Jóna Guðrún Ís-
aksdóttir hús-
móðir, f. 2.7. 1894, d. 10.1. 1968.
Systkini Ísaks eru Guðrún Re-
bekka, f. 15.8. 1921, d. 4.4. 1996,
Elínborg, f. 19.6. 1923, d. 7.1.
2005, Ásgeir, f. 16.11. 1924, d.
11.11. 1970, og Einar Ingi, f.
22.8. 1926.
Ísak kvæntist 2.7. 1954 Gretu
N. Ágústsdóttur, f. 29.12. 1931,
d. 15.7. 2004. Börn þeirra eru: 1)
Benjamín Ágúst, f. 1.11. 1955,
kvæntur Helgu Helgadóttur, f.
23.8. 1967, 2) Jóna Guðrún, f.
13.5. 1958, 3)
Birna, f. 28.6. 1960,
í sambúð með Guð-
laugi Kristni Jóns-
syni, f. 21.11. 1955,
og 4) Vera Björk, f.
13.12. 1968, gift
Tryggva Þór
Ágústssyni, f.
13.11. 1967. Ísak
skilur eftir sig
vænan hóp afa-
barna, eða 17
barnabörn og níu
barnabarnabörn.
Ísak sleit barns-
skónum á Ísafirði og fluttist síð-
an sem ungur maður til Reykja-
víkur. Hann sinnti ýmsum
störfum, m.a. hjá Almenna
byggingarfélaginu, Fáfni og
Vélsmiðju Sigurðar Einars-
sonar. Mestan hluta starfs-
ævinnar vann hann við járn-
smíðar og þá lengst af hjá
Sindra Stáli.
Útför Ísaks verður gerð frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Það er komið kvöld. Sólin sleikir
Snæfellsjökul og aldrei slíku vant
er ró yfir öllu á mínu heimili, þar
sem ég sit við eldhúsborðið og
minnist pabba.
Ég minnist rólega mannsins sem
sat með mig í fanginu þegar ég var
pínulítil og lét mig syngja „All
kinds of everything“ inn á gam-
aldags snældutæki sem var alltaf
að bila.
Ég minnist hægláta mannsins
sem varð orðlaus þegar litla ör-
verpið, nýfarið að tala og varla
standandi út úr hnefa, argaði af
frekju af minnsta tilefni.
Ég minnist vanafasta mannsins
sem fór með okkur í sunnudags-
bíltúr, alltaf niður að höfn að skoða
skipin, og keypti handa okkur pral-
ín- eða bismark-brjóstsykur.
Ég minnist sveimhugans sem
sýndi mér himininn og kenndi mér
að þekkja stjörnurnar.
Ég minnist handlagna mannsins
sem kenndi mér að binda fánahnút
og pelastikk.
Ég minnist ættjarðarsinnans
sem kenndi mér að umgangast og
brjóta saman Íslenska fánann af
auðmýkt og virðingu.
Ég minnist sjómannsins sem
kenndi mér, sjóveikri, að stíga öld-
una og að fiska á handfæri á gam-
alli trillu.
Ég minnist nákvæma mannsins
sem sat við eldhúsborðið og fylgdi
eftir ferðum okkar á landakorti ef
eitthvað af okkur systkinunum var
á ferðalagi.
Í seinni tíð minnist ég þakkláta
mannsins sem í einu og öllu treysti
á Biddu systur til að versla inn fyr-
ir sig, fara með sig til læknis og
stússa með sig. Hún var lífsbjörgin
hans og klettur.
Ég minnist afans sem endalaust
gat hlustað á sögur af barnabörn-
unum sínum og burðaðist við af
veikum mætti að halda á yngsta
afabarninu sínu.
Síðast en ekki síst minnist ég
friðsæla mannsins, sem saddur líf-
daga lá í rúminu sínu, nýrakaður
og klipptur og hafði kvatt þennan
heim, tilbúinn að eiga stefnumót
við konuna sína sem beið hinum
megin.
Eins og segir í kvæðinu: „Líkna
þú þreyttum þegar degi hallar. Við
þröskuldinn hinsta skal sigurinn
nást.“
Hvíldu í friði elsku pabbi og
kysstu mömmu frá mér.
Þín
Vera Björk.
Ísak Jón Sigurðsson
Fleiri minningargreinar
um Skafta Friðfinnsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Fleiri minningargreinar um Ísak
Jón Sigurðsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Skafti Frið-finnsson fæddist
á Blönduósi 9. sept-
ember 1916. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Vífils-
stöðum 29. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Friðfinn-
ur Jónas Jónsson,
snikkari og hrepp-
stjóri, f. 1873, og
Þórunn Ingibjörg
Hannesdóttir, f.
1873. Systkini hans
voru Gunnhildur, f.
1906, Sigríður, f. 1907, Drengur,
f. 1909, og Hulda, f. 1910. Þau eru
öll látin.
Skafti kvæntist 7. september
1946 Sigríði Svövu Runólfdóttur
frá Keflavík, f. 1920. Foreldrar
hennar voru Runólfur Þórðarson,
bóndi og verkamaður, f. 1874, og
Ingiríður Einarsdóttir húsfreyja,
f. 1889. Börn Skafta og Sigríðar
dóttir. Börn þeirra eru Karítas, f.
1994, Benjamín, f. 1996, og Sal-
óme, f. 2001.
Skafti ólst upp í foreldrahúsum
á Blönduósi, hélt til Reykjavíkur
og lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1937. Að
því loknu hóf hann nám í lækn-
isfræði við Háskóla Íslands. Skafti
vann ýmis störf víða um land, m.a.
hafnargerð í Keflavík, en þangað
fluttist hann 1942. Um áratuga
skeið átti hann og rak Efnalaug
Keflavíkur og var umboðsmaður
Morgunblaðsins. Honum voru fal-
in ýmis trúnaðar- og ábyrgð-
arstörf, var t.d. um árabil formað-
ur fræðsluráðs og í stjórn
Sparisjóðsins í Keflavík. Hann tók
þátt í félagsstörfum, m.a. innan
Rotary-hreyfingarinnar og Björg-
unarsveitarinnar Stakks, en hann
var einn af stofnendum hennar.
Til Reykjavíkur fluttust þau hjón-
in 1997, en síðasta árið dvaldi
Skafti á hjúkrunarheimilinu Víf-
ilsstöðum.
Útför Skafta verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Svövu eru: 1) Run-
ólfur, f. 1947. Börn
hans eru Jóhannes, f.
1981, Anna, f. 1983,
og Auður, f. 1983. 2)
Þórunn, f. 1949.
Dætur hennar eru
Hulda Soffía, f. 1984,
og Sigurlaug Lilja, f.
1985, Jónasdætur. 3)
Stúlka andvana fædd
1950. 4) Inga, f.
1953. Maður hennar
er Birgir V. Sigurðs-
son. Börn þeirra eru
Svava, f. 1982, og
Pétur, f. 1993. 5) Gunnhildur, f.
1956. Maður hennar er Guð-
mundur Magnússon. 6) Frið-
finnur, f. 1958. Kona hans er Sig-
ríður H. Ingibjörnsdóttir. 7)
Einar, f. 1960. Kona hans er Lydía
Jónsdóttir. Börn þeirra eru Jón
Arinbjörn, f. 1992, og Edda
Anika, f. 1997. 8) Páll, f. 1965.
Kona hans er Hrund Þórarins-
Sólin er sofnuð. Húmið læðist hægt
úr hafsins mjúku dýnum yfir fold.
Himinninn grætur hljótt við rauða mold.
Hafgolan beygir grasið létt og vægt.
Litglaumur dagsins þagnar. Rökkurró,
rofin af stöku, daufu lóukvaki.
Einveran mikla bíður mín að baki,
blundandi skuggar yfir dökkum mó.
Hjarta mitt þráir hvíld, sér sjálfu að gleyma,
hallar sér þreytt á nætursortans dún.
Dreymir þó stöðugt sólris bjargs við brún,
brennandi dag með gleði um alla heima.
(Jakob Jóh. Smári)
Með þökk fyrir samfylgdina,
fjölskylda Skafta.
Nú er komið að því að kveðja
Skafta afa. Margs er að minnast og
oft var mikið gaman með honum. Að
fara í allar ferðirnar með ömmu og
afa í Krumshóla var eitt það
skemmtilegasta sem við gerðum. Þá
fórum við oft niður að á að vitja um
netin. Við fórum líka oft með afa að
skoða Krummahreiðrin þarna í
Krumshólum. Afi var mikill áhuga-
maður um náttúruna og mikið var
gaman að skoða eggjasafnið hjá hon-
um. Einnig var alltaf beðið eftir að
jóladagur kæmi því þá vorum við öll
saman hjá ömmu og afa. Afi var mik-
ill íþróttaunnandi og fylgdist hann
vel með okkur, hvernig okkur gekk í
fótboltanum og í skólanum. Þegar
við heimsóttum afa á Vífilsstaði vildi
hann finna hvort hendurnar væru
kaldar og þá strauk hann gjarnan
hendurnar og fór með „Fagur fiskur
í sjónum …“
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Elsku afi, takk fyrir samveruna.
Þín afabörn,
Jón Arinbjörn og
Edda Anika.
Elsku afi.
Þegar lyktin af vindlareyk líður að
vitum okkar getum við ekki annað en
hugsað um þig. Þetta var svona afa-
lykt, og strax kemur upp í hugann
þegar þú sast með vindlastubbinn á
tannstöngli að nýta hann til fulln-
ustu.
Þú varst alltaf tilbúinn að sýna
litlum stelpum smá athygli og leyfa
þeim að skoða inn í herbergið þitt,
sjá uppstoppuðu fuglana og öll eggin
sem þú áttir og varst svo stoltur af.
Þú kunnir ógrynnin öll af vísum og
kvæðum og ósjaldan var þeirri kunn-
áttu deilt með okkur þegar þú þuldir
heilu kvæðin.
Þú varst alltaf áhugasamur um
það sem við vorum að gera og fylgd-
ist með lífi okkar allt fram á síðasta
dag.
Þú varst alltaf svo góður í að slá á
léttar nótur og alltaf fljótur að sjá
skondnu hliðarnar á hlutunum.
Ósjaldan var það að þú laumaðir út
úr þér fyndnum athugasemdum,
enda var stutt í húmorinn hjá þér.
Heimsóknirnar til þín í lokin urðu
ekki eins margar og þær hefðu mátt
vera og við hefðum gjarnan viljað
kynnast þér enn betur, en það var
orðið erfitt að eiga samtöl við þig í
restina. Minningarnar sem við eig-
um um þig sitja hins vegar fastar í
huga okkar og þeim munum við seint
gleyma.
Hulda og Sigurlaug.
Skafti Friðfinnsson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HELGA SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR
frá Miðtúni á Melrakkasléttu,
lést á dvalarheimili aldraðra, Hvammi, Húsavík
föstudaginn 1. júní.
Jarðarförin fer fram frá Snartarstaðakirkju
föstudaginn 8. júní kl. 14.00.
Maríus Jóhann Lund, Ásdís Karlsdóttir,
Kristinn Lund, Guðný Kristín Guttormsdóttir,
Níels Árni Lund, Kristjana Benediktsdóttir,
Benedikt Lund, Anna Vigdís Ólafsdóttir,
Sveinbjörn Lund, Jóhanna Hallsdóttir,
Grímur Þór Lund, Eva Nøregaard Larsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
ATLI VIÐAR JÖRUNDSSON,
Hringbraut 4,
Hafnarfirði,
er látinn.
Steinar Örn Atlason, Edda Björnsdóttir,
Sigríður Erla Steinarsdóttir,
Brynja Jörundsdóttir, Birgir Úlfsson,
Guðmundur Jörundsson,
Eiríkur Páll Jörundsson, Heiða Viðarsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
HENNING FREDERIKSEN
skipstjóri,
Stjörnusteinum 12,
Stokkseyri,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn 3. júní.
Ingibjörg Jónasdóttir,
Jónas Henningsson, Katrín Jónsdóttir,
Vilhelm Henningsson, Anna Kristín Ingvarsdóttir
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ARI HEIÐMANN JÓSAVINSSON
bóndi,
Auðnum,
Öxnadal,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 2. júní.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
8. júní kl. 13.30.
Erla M. Halldórsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær dóttir mín,
ANNA ÁRSÆLSDÓTTIR,
Stuðlaseli 2,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
að kvöldi föstudagsins 1. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Klara Vemundsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Akranesi,
sem lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi laugar-
daginn 2. júní 2007 verður jarðsungin frá Akranes-
kirkju föstudaginn 8. júní kl. 14:00.
Ragnheiður Björgvinsdóttir Villaverde, Manuel Villaverde,
Valdimar Björgvinsson, Jóhanna L. Jónsdóttir,
Þórður Björgvinsson, Sigfríð Stefánsdóttir,
Ólöf Björgvinsdóttir, Guðjón Þ. Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.