Morgunblaðið - 05.06.2007, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Hjartanlegar þakkir fyrir sýnda samúð vegna and-
láts eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐBRANDS SKÚLASONAR
frá Patreksfirði,
Engihjalla 9,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir sendum við Trausta yfirlækni og
öllu starfsfólki á deild B4 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir góða
umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Elsa Herborg Þórarinsdóttir,
Bragi Guðbrandsson, Árdís Ólafsdóttir,
Guðmundur Þór Guðbrandsson, Herdís Ólöf Friðriksdóttir,
Kristján Helgi Guðbrandsson, Marta Gunnlaug Guðjónsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs fyrrum sambýlismanns
míns,
BALDURS HJÁLMTÝSSONAR,
Arahólum 4,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll,
Jóhanna S. Guðjónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, bróðir og afi,
JÓN ÓLAFSSON
skipstjóri,
Hellisgötu 34,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala fimmtudaginn 31. maí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtu-
daginn 7. júní kl. 15.00.
Snorri Jónsson,
Stella Leifsdóttir, Davíð Ingibjartsson,
Páll Th. Markan, Alfa Lind Markan,
Viktoría Valgerður Ólafsdóttir,
Jóhanna Oddný Ólafsdóttir
og barnabörn.
✝ Björg Hraun-fjörð Péturs-
dóttir kjólameistari
fæddist í Reykjavík
5. febrúar 1946. Hún
lést á líknardeildinni
í Kópavogi 29. maí
síðastliðinn. Hún er
dóttir hjónanna Pét-
urs Hraunfjörð Pét-
urssonar verka-
manns, skálds og
alþýðulistamanns, f.
í Stykkishólmi 4.
september 1922, d.
3. október 1999, og
Helgu Ingunnar Tryggvadóttur
húsmóður og verkakonu, f. á Þórs-
höfn á Langanesi 1. júní 1924. Þau
skildu. Systkini Bjargar eru Krist-
ján, f. 25. nóvember 1944, Birkir
febúar 2001. Börn Guðmundar og
Bjargar eru 1) Baugur, f. í Reykja-
vík 4. desember 1967. Sonur hans
og Sigríðar Hildar Ingólfsdóttur er
Rúnar Berg, f. 24. október 1986.
Dætur hans og Huldu Kristínar
Smáradóttur eru Brynja Ýr, f. 15.
desember 1989, og Valdís Fjóla, f.
16. september 1991. Sambýliskona
Baugs er Larisa Kverne. 2) Gnýr, f.
í Neskaupstað 18. september 1971,
kvæntur Önnu Láru Pálsdóttur.
Stjúpdóttir hans er Silja, f. 1. júní
1991. Synir Önnu Láru og Gnýs
eru Guðmundur Hrafn, f. 12. júlí
1998, og Dagur, f. 27. júlí 2002. 3)
Jóhann, f. í Neskaupstað 31. des-
ember 1972, kvæntur Katíu Simon-
iu Borges Rabelo. Dætur þeirra
eru Safíra Björg, f. 10. júní 2004,
og Sara Hanna, f. 8. mars 2006. 4)
Brá, f. í Neskaupstað 5. mars 1977.
Börn hennar og Róberts Axels Ax-
elssonar eru Birta, f. 12. maí 1998,
og Arnór, f. 3. janúar 2002.
Útför Bjargar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Einar, f. 12. maí 1947,
Pétur Hraunfjörð, f.
20. maí 1949, d. 9.
febrúar 1964, Bera, f.
14. júní 1950, Börkur,
f. 3. janúar 1953, d. 8.
maí 1953, Óttar, f. 5.
janúar 1956, Bára, f.
22. september 1957,
Gaukur, f. 23. janúar
1959, og Brynja, f. 24.
nóvember 1965.
Björg giftist í
Reykjavík 5. febrúar
1971 Guðmundi
Hrafni Jóhannssyni,
f. í Neskaupstað 27. ágúst 1944.
Foreldrar hans voru Jóhann Jóns-
son, f. í Breiðdal 5. júní 1918 , d. 7.
maí 1996, og Soffía Helgadóttir f. í
Neskaupstað 23. janúar 1925, d. 22.
Elsku besta mamma mín, sem nú
er farin, farin á góðan stað þar sem
sársauki og veikindi eru ekki til. Þar
er eilíf sæla og hamingja og ég veit að
þar á hún eftir að njóta sín vel.
Fyrir mér var hún besta mamma
sem ég gat hugsað mér að eiga og þó
svo að ég legði mig fram um að finna
eitthvað sem ég vildi að hefði verið
öðruvísi þá gæti ég það ekki, og á ég
þá bæði við um hana sem persónu og
samskipti okkar almennt. Hún stóð
með mér og studdi alla tíð, alveg
sama hvað það var sem ég var að
gera og finnst mér það alveg ómet-
anlegt. Mér leið aldrei eins og ég
væri ekki nógu góð á einhvern hátt,
því hún lét mér alltaf líða þannig að
ég væri góð og falleg manneskja.
En svona var hún bara, hún sá allt-
af það góða og fallega í öllum í kring-
um sig, dæmdi engan og mat alla að
þeirra eigin verðleikum.
Ég gleymi því aldrei þegar hún
mamma mín var hjá mér þegar ég
fæddi hana Birtu okkar, og hún var
alltaf svo stolt og ánægð að hafa verið
fyrsta manneskjan sem Birta leit
augum. Henni fannst alltaf eins og
hún ætti hana með mér og hún hugs-
aði um hana eins og móðir, og fyrir
mér átti Birta tvær mæður og önnur
þeirra, þú elsku mamma, hafðir
endalausa þolinmæði og umhyggju
að gefa henni.
Og þolinmæði var einmitt einn af
hennar helstu og bestu kostum. Ef ég
kemst eitthvað nálægt því að vera
jafn góð mamma og hún var þá er ég
hamingjusöm og börnin mín heppin.
Elsku mamma, takk fyrir allt, þú
gafst mér svo mikið, ég á aldrei eftir
að gleyma þér og þú skipar stóran
sess í hjarta mínu.
Ég kveð þig með miklum söknuði
og mikilli sorg, en ég veit að þér líður
betur núna og vitandi það líður mér
vel. Með þá vitneskju í farteskinu
veit ég að ég á eftir að standa mig vel.
Bless, elsku mamma, þín dóttir
Brá.
Í dag kveðjum við ömmu okkar,
Björgu Hraunfjörð.
Hún var indæl og góð kona sem
alltaf leit björtum og jákvæðum aug-
um á lífið og tilveruna, og sá alltaf
bjarta hlið á öllum málum.
Hún var flink saumakona og hjálp-
aði okkur oft við að sauma hitt og
þetta.
Amma var mikil garðyrkjukona og
í okkar augum var garðurinn hennar
eins og stór frumskógur þar sem
voru óteljandi tegundir af trjám og
plöntum.
Hún eyddi miklum tíma í garðinn
sinn sem hún hélt mikið upp á og öll-
um gestum var boðið í garðinn þar
sem hver planta átti sína sögu og
sagði hún sögu hverrar plöntu.
Við eigum eftir að sakna göngu-
ferðanna okkar saman og hlýjunnar
sem við fundum alltaf fyrir í návist
hennar.
Elsku amma, megi Guð geyma þig
og varðveita.
Við söknum þín.
Valdís og Brynja.
Björg Hraunfjörð
Pétursdóttir
Fleiri minningargreinar
um Björgu Hraunfjörð Pétursdóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu á næstu dögum.
✝ Örn Ásgeirssonfæddist í Reykja-
vík 4. júní 1942.
Hann andaðist á
Landspítala-há-
skólasjúkrahúsi við
Hringbraut 24. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Ása María Margrét
Jónsdóttir húsmóðir,
f. á Suðureyri 22.7.
1918, d. 21.2. 2002,
og Ásgeir Sigurður
Guðmundsson
verkamaður í
Reykjavík, f. á Stokkseyri 20.8.
1905 , d. 2.5. 1973. Systur Arnar
eru Vilborg, f. 29.3. 1944, og Bryn-
dís, f. 3.12. 1947.
Hinn 14.1. 1967 kvæntist Örn
Þóreyju Sævar Sigurbjörnsdóttur
húsmóður, f. í Reykjavík 30.7. 1944.
Foreldrar hennar voru Sigrún Pét-
ursdóttir húsmóðir og þjónustu-
kona, f. á Hallfreðarstöðum í Hró-
arstungu 13.3. 1920, d. 19.4. 1971,
f. 7.10. 1978, kona Ingveldur Gísla-
dóttir þjónustustjóri, f. 27.11. 1979,
dóttir þeirra Emilía Líf, f. 14.5.
2005. Sonur Þóreyjar er 5) Sigurð-
ur Rúnar Karlsson afgreiðslumað-
ur, f. 26.6. 1964, kvæntur Þórunni
Magnúsdóttur lánafulltrúa, f.
27.11. 1967, börn þeirra eru Frey-
steinn Sölvi, f. 24.6. 1988, og Sigrún
Birna, f. 10.1. 1992.
Örn ólst upp í Reykjavík. Ungur
að aldri hóf hann störf sem háseti á
mb. Hinriki Guðmundssyni og síðar
á skipum Landhelgisgæslunnar
sem háseti og bátsmaður. Var hann
meðal annars við störf hjá Land-
helgisgæslunni í þorskastríðinu ár-
ið 1975. Örn stundaði nám í húsa-
smíði hjá Snorra Halldórssyni
húsasmíðameistara. Hann vann hjá
framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar sem flokksstjóri síðustu ár.
Hann hafði unun af ferðalögum og
ferðaðist mikið innanlands og síð-
ari ár utanlands. Hann var fróður
maður, þekkti landið sitt vel og
hafði gaman af að segja sögur frá
fyrri tímum.
Útför Arnar verður gerð frá
Grafarkirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
og Sigurbjörn Guð-
mundur Björnsson
lögreglumaður og
síðar bifreiðarstjóri,
f. á Hvammstanga
17.3. 1921, d. 14.8.
1986. Börn Arnar og
Þóreyjar eru: 1)
Hrafnhildur hár-
greiðslumeistari, f.
24.12. 1966. Börn
hennar eru Tryggvi
Örn Gunnarsson, f.
8.3. 1989, og Magnea
Gunnarsdóttir, f.
22.9. 1994. 2) Ásgeir
Guðmundur, vinnur við málmhúð-
un í Svíþjóð, f. 1.3. 1968, kvæntur
Jóhönnu Rósu Kolbeins iðjuþjálfa,
f. 3.2. 1971, sonur þeirra Sævar
Örn, f. 9.9. 2000, fyrir átti Jóhanna
Hannes Ragnar, f. 10.4. 1992, og
Petru Írisi, f. 11.1. 1996, Leifsbörn.
3) Gunnar Örn stýrimaður, f. 18.10.
1971, kvæntur Bellu Freydísi Pét-
ursdóttur hjúkrunarfræðingi, f.
22.5. 1971. 4) Bjarki Þór verktaki,
Elsku maðurinn minn. Nú ertu far-
inn, ég er í raun ekki farin að trú því
enn að þú sért farinn frá mér eftir
rúm 40 ár í sambandi. Fyrirvarinn
var svo stuttur því aðeins 5 vikum eft-
ir að þú veikist ertu farinn frá okkur
en við vitum að það var gott fyrir þig
að fá að fara því þá þjáist þú ekki
lengur. Takk fyrir allar okkar góðu
stundir sem við höfum átt saman.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Þín eiginkona,
Þórey Sævar Sigurbörnsdóttir.
Elsku pabbi minn, ég kveð þig með
söknuð í hjarta. Er ég hugsa til æsku-
áranna eru mér ofarlega í minni allar
útilegurnar sem þú og mamma fóruð
með okkur í. Það þurfti ekki að fara
langt, inn að Kolviðarhól eða til Þing-
valla. Oft skaustu svo í bæinn til að
fara að vinna en komst svo upp eftir
til okkar. Þegar ég flutti til Svíþjóðar
voruð þið mamma dugleg að heim-
sækja okkur fjölskylduna og í hvert
skipti talaðir þú um hvað veðurlagið
væri gott, svo gott að þú þurftir ekki
einu sinni að taka astmalyfin þín. Við
komum til með að sakna þín mikið.
Pabbi minn, ég veit að þú varst ekki
tilbúinn að fara, en ég veit að þér mun
líða vel á þeim fallega stað þar sem þú
ert núna og það mun verða tekið vel á
móti þér. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þinn sonur,
Ásgeir.
Elsku pabbi, mikið er sárt að kveðja
þig. Þú barðist við illvígan sjúkdóm en
aldrei kvartaðir þú undan verkjum,
vildir vera sterkur fyrir okkur hin.
Hugurinn reikar yfir allar þær stund-
ir sem við áttum og eru mér mjög
minnisstæðar þær stundir sem við
áttum í orlofshúsum Landhelgisgæsl-
unnar í Grónesi. Við fjölskyldan vor-
um þar í eitt skipti í svo mikilli blíðu að
hægt var að synda í sjónum. Þegar
þeim sundspretti var lokið voru góð
ráð dýr þar sem engar sturtur voru á
svæðinu en þú reddaðir því með því að
leiða vatnsslöngu út um baðgluggann
svo að við krakkarnir gætum skolað af
okkur saltið. Þetta fannst okkur mikið
sport.
Hugur minn reikar einnig oft til
þess þegar ég fékk 12 ára gamall að
fara með einn túr á togaranum Berg-
vík frá Keflavík. Ég var svo lánsamur
að túrinn lengdist og endaði í söluferð
til Grimsby í Englandi. Við feðgarnir
höfðum gaman af veiðum og plönuðum
ferðirnar reyndar meira en við fórum.
Við áttum þó góðar stundir við Með-
alfellsvatn þó svo að aflabrögðin væru
misjöfn. Ferðalögin innanlands voru
ófá með þér og mömmu og toppgrind-
in á bílnum ósjaldan hlaðin því eins og
gefur að skilja fylgdi töluverður far-
angur stórri fjölskyldu. Mörg ferða-
lögin eru minnisstæð en eitt er mér of-
arlega í huga. Það er þegar við fórum á
Þingvelli í blíðskaparveðri og áttum
þar góðan dag að leik og grilluðum um
kvöldið en um nóttina rigndi svo mikið
að við nánast flutum út úr tjaldinu.
Ekki var annað hægt en að pakka
saman í hasti og halda heim á leið um
miðja nótt. Í minningunni er þetta
stysta ferðalag sem ég hef farið í.
Margar sögurnar sagðir þú mér af
sjóferli þínum og óhætt að segja að ég
hafi smitast af sjómannslífinu því þeg-
ar ég hafði aldur til fór ég á sjóinn á
varðskipin til að feta í fótspor þín.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem)
Ég kveð þig með söknuði en veit að
þú ert hjá mér í huga og í hjarta.
Hvíl í friði elsku pabbi minn með
þökk fyrir allt.
Þinn sonur,
Gunnar.
Örn Ásgeirsson
Fleiri minningargreinar um Örn
Ásgeirsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu á næstu dögum.
Okkur systkinin langar að
kveðja hann Örn afa okkar
með þessu ljóði.
Við burtför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Núna vitum við að afa líður
ekki lengur illa og að Guð
passar hann.
Petra Íris og Hannes Ragnar.
HINSTA KVEÐJA