Morgunblaðið - 05.06.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 37
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands sl. fimmtudag
bundu enda á fjögurra vetra verk-
efni sem Rumon Gamba átti frum-
kvæði að og á
mikið hrós skilið
fyrir; að flytja
allar fimmtán
sinfóníur Sjos-
takovitsj fyrir ís-
lenska áheyr-
endur.
Fyrst á efnis-
skrá var frum-
flutningur á
verki eftir Þórð
Magnússon.
Verkið, sem byggt er á aðeins
tveimur lagstúfum, reyndist standa
fyllilega undir vaxandi orðspori
tónskáldsins. Gaman er nú að sjá
kveða við nýjan tón í íslenskri tón-
smíð sem sannar að hún þarf ekki
að vera þunglamaleg og tregabund-
in til þess að teljast þjóðleg. Það
voru svo forréttindi að fá að heyra í
hinum langsjóaða bassasöngvara
Sir Donald McIntyre, en þrátt fyrir
háan starfsaldur söng hann hlut-
verk Óðins af virðingu og reisn.
Flutningur hljómsveitarinnar
eftir hlé á fimmtándu sinfóníu Sjos-
takovitsj var þó vafalaust hápunkt-
ur tónleikanna. Af öllum sinfóníum
tónskáldsins er þessi síðasta lík-
lega sú torskildasta, enda gegn-
umgangandi krydduð með vitn-
unum í eigin verk tónskáldsins
ásamt verkum eftir Rossini, Wag-
ner og jafnvel Glinka. Mikið hefur
verið rætt um myrkrið og dauðann
sem vofir yfir síðustu sinfóníum
Sjostakovitsj en e.t.v. ekki nógu
mikið um þau bláköldu bölsýnis-
augu sem tónskáldið tók að líta lífið
með, sem þó er ekki nema eðlilegt
eftir að hafa lifað undir áralangri
og grimmri ógnarstjórn Stalíns.
Dauðinn er rauður þráður í gegn-
um æviágrip tónskáldsins, en hann
sagði þar sjálfur að fólk þyrfti að
byrja að tala meira og fyrr um
dauðann og venjast honum. Aðeins
þá gæti fólk hætt að óttast hann,
hugsað skýrar og gert færri mistök
í lífinu.
Í öðrum kafla verksins náði Ru-
mon Gamba, ásamt glæsilega
spiluðu en jafnframt sársaukafullu
sólói Bryndísar Höllu Gylfadóttur
sellóleikara, að draga fram tómlegt
og draugalegt andrúmsloft. Flutn-
ingurinn var svo áhrifaríkur að
undirrituð fann hvernig lífsandinn
lak hægt og bítandi úr líkamanum
og skildi eftir nær tómið eitt, en
þessi upplifun er ekki nema þoku-
kennd og óljós spegilmynd af því
sem fólk hefur mátt upplifa á tím-
um Stalíns.
Í lokakaflanum náði Sinfón-
íuhljómsveitin að byggja upp til-
finningaþrunginn hápunkt með
öruggu samspili undir hnitmiðaðri
stjórn Rumons Gamba. Strengja-
sveitin lék blíðan A-dúr undir lokin,
en undir þessari fögru silkifilmu
ómaði stöðugur og vélrænn slag-
verksleikur með ómstríðum
hræðsluskvettum frá málm- og tré-
blásurunum. Það var líkt og þessi
einkennilegi endir gæfi í skyn að
hið illa yrði í raun aldrei kæft. Best
að sætta sig við það sem fyrst.
Memento mori
Morgunblaðið/Ásdís
Rumon Gamba Aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur
tekist á við allar sinfóníur Sjostakovitsj með hljómsveitinni á þremur árum.
TÓNLIST
Háskólabíó
Verk eftir Sjostakovitsj, Wagner og Þórð
Magnússon. Sinfóníuhljómsveit Íslands
lék undir stjórn Rumons Gamba. Ein-
söngvari: Sir Donald McIntyre bassa-
söngvari.
Sinfóníutónleikar, fimmtudaginn 31. maí
2007
Alexandra Kjeld
Dimitri
Sjostakovitsj
VELGENGNI Garðars Thórs Cort-
es á erlendri grundu á ekki að þurfa
að koma svo
mikið á óvart.
Hér er vel
staðið að öll-
um málum,
ímyndarvinna
er tipp topp og
markaðs-
vinnan sömu-
leiðis. Garðari er gefinn nátt-
úrulegur þokki og fallegt fas, hann
býr yfir útgeislun og líkt og með
Josh Groban, sem rær á svipuð mið,
þarf nokkra lagni til að láta hann
fara í taugarnar á sér. Sóknin inn á
markaðinn þar sem poppið og klass-
íkin haldast í hendur, þar sem fyrir
eru listamenn eins og hinir snoppu-
fríðu Il Divo og sá „blindi“, Andrea
Bocelli, hefur því verið árangursrík
fram til þessa.
En það er nú svo, að tónlistin þarf
líka að vera í lagi, og það tekst á
þessari plötu, þeirri fyrstu sem er
teflt fram á alþjóðavettvangi. Garð-
ar kann vel að syngja og fer smekk-
lega með það sem honum er fært.
Fínlegt jafnvægi er á milli popplaga,
sem Garðar tekur með tenórrödd-
inni, „alklassískra“ laga og svo laga
sem búa yfir hvoru tveggja. Per-
sónulega set ég spurningarmerki við
ballöðu A-ha, „Hunting High and
Low“, sem gengur ekki upp og dúett
Garðars með Heather Small (fyrr-
verandi söngkonu M People) er
svona á mörkum hins smekklega.
Annað er hins vegar í góðu lagi.
Garðar fer á mesta flugið í klass-
íkinni („Nessun Dorma“) og í þess-
um vinsælu „crossover“-lögum eins
og „Nella Fantasia“ og „Caruso“.
Rúsínan í pylsuendanum er svo vel
heppnuð útgáfa af hinu gullfallega
lagi „Skýið“ – sem sungið er á ís-
lensku, að sjálfsögðu.
Sem sagt, vel heppnað útspil í
fyrstu umferð og Garðari er í raun
allt fært ef haldið er vel á spöð-
unum.
Fagmennska
TÓNLIST
Cortes – Cortes
Arnar Eggert Thoroddsen
7/6 UPPSELT KL. 20
SÝNINGAR HEFJAST AFTUR Í HAUST.
PABBINN ÞAKKAR ÖLLUM ÞEIM GESTUM
SEM SÓTT HAFA RÚMLEGA 50
UPPSELDAR SÝNINGAR VERKSINS.
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Costa Dorada ströndin, sem skartar m.a. bæjunum Salou og
Pineda, hefur notið mikilla vinsælda vegna mikils fjölbreytileika
svæðisins. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Terra Nova býður
frábært súpersólar tilboð. Þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brott-
för færðu að vita hvar þú gistir. Hér eru margra kílómetra langar
aðgrunnar strendur, hótelgisting sem hentar jafnt fjölskyldufólki
sem öðrum, úrval afþreyingar, blómstrandi menning og frábært
skemmtanalíf.
Súpersól til
Salou
1. og 15. júní
frá kr. 34.995
- SPENNANDI VALKOSTUR
kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorð-
na, í herbergi/stúdíó/íbúð í viku.
Aukavika kr. 10.000.
Ath. súpersólar tilboð 15. júní
kr. 10.000 aukalega.
kr. 34.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna
og 2 börn, í íbúð með einu
svefnherbergi í viku. Aukavika kr.
10.000. Ath. súpersólar tilboð
15. júní kr. 10.000 aukalega.
Síðustu sætin
Pabbinn – aukasýningar vegna mikillar aðsóknar
Fös. 08/06 kl. 19 Aukasýn, örfá sæti laus
Lau. 09/06 kl. 19 Aukasýn, örfá sæti laus
Nýtt fjölbreytt og skemmtilegt leikár
verður kynnt í ágúst.
Þá hefst sala áskriftarkorta. Vertu með!
www.leikfelag.is
4 600 200
DAGUR VONAR
Fös 8/6 kl. 20
Ekki er hleypt inní salinn eftir að sýning er hafin
Síðasta sýning í vor
LÍK Í ÓSKILUM
Í kvöld kl. 20 FORS.
Fim 7/6 kl. 20 FORS.
Fös 8/6 kl. 20 FORS.
Lau 9/6 kl. 20 FORS.
Miðaverð 1.500
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN
25 TÍMAR
Fim 7/6 FORS. Miðaverð 1.500
Fös 8/6 kl. 20
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Mið 20/6 kl. 20 UPPS.
Fim 21/6 kl. 20 UPPS.
Fös 22/6 kl. 20
Lau 23/6 kl. 20
Sun 24/6 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fim 7/6 kl. 20 UPPS.
Lau 9/6 kl. 20
Fös 15/6 kl. 20
Síðustu sýningar í vor
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 6/6 kl. 20 UPPS.
Sun 10/6 kl. 20 UPPS.
Þri 12/6 kl. 20 AUKAS.
Mið 13/6 kl. 20 UPPS.
Fim 14/6 kl. 20 UPPS.
Aðeins þessar sýningar Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MÝRAMAÐURINN
- höf. og leikari Gísli Einarsson
7/6 kl. 20, 8/6 kl. 20 uppselt,
14/6 kl. 20 síðasta sýning
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
9/6 kl 15, kl 20, 15/6 kl 18,
20/6 kl 20 uppselt, 29/6 kl 20,
1/7 kl 20, 5/7 kl 20, 13/7 kl. 20,
14/7 kl. 20,11/8 kl. 20, 12/8 kl. 20, 18/8
kl. 20, 19/8 kl. 20, 30/8 kl. 20, 31/8 kl. 20
SVONA ERU MENN (KK og Einar)
Aukasýning 16. júní kl. 20
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
JERRY Bruckheimer, framleiðandi
kvikmyndanna um sjóræningja Kar-
íbahafsins (The Pirate’s of the Ca-
ribbean) hefur gefið út þá yfirlýs-
ingu að enn sé líf í sumum
sjóræningjum. Eru því miklar líkur
á því að Disney hyggist halda áfram
að mjólka kúna meðan færi gefst.
Johnny Depp, sem túlkaði hinn óút-
reiknanlega Jack Sparrow, í þrílógí-
unni, mun ekki snúa aftur.
Margir óttast þá þróun sem nú á
sér stað í sumarmyndum, og einkum
framhaldsmyndum. Myndir verða
sífellt lengri, en skemmst er að
minnast þess að nýjasta sjóræn-
ingjamyndin er hátt í þrír tímar. Það
er því hætt við að ýmsir foreldrar
þurfa að búa við óþægindi í sitjand-
anum á næstunni.
Sjóræningjar
Karíbahafsins 4?
Ferna? Depp sem Jack Sparrow.
NÚ geta heitir áhugamenn um
stjórnmál reynt að hafa bein áhrif á
heimsmálin því nú eru komnar í
sölu vúdúdúkkur af Bush Banda-
ríkjaforseta og Hillary Clinton for-
setaframbjóðanda. Dúkkunum
fylgja nokkrir pinnar og bæklingur
þar sem sýnt er hvernig stinga
skuli pinnunum svo áhrifin verði
eins og til er ætlast, með galdraþul-
um af ýmsum gerðum. Dúkkurnar
fást í Bóksölu stúdenta.
Reuters
Dúkkur Laura og George W. Bush.
Vúdúdúkkur af
Bush til sölu