Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÆVINTÝRAMYNDIN Pirates of The Carribean – At Worlds End er vinsælasta myndin í íslenskum kvik- myndahúsum, aðra vikuna í röð. Rúmlega átta þúsund manns sáu sjóræningjana um helgina, og alls hafa því um fjörutíu þúsund manns séð Johnny Depp og félaga í bíó hér á landi. Breska hrollvekjan 28 Weeks La- ter stökk beint í annað sætið, en hana sáu rúmlega 1.500 manns fyrstu sýningarhelgina. Það heyrir til tíðinda að mynd sem ekki er bandarísk að uppruna komist svo hátt á bíólistanum, en trúlega hafa góðir dómar um myndina haft sitt að segja. Þannig gaf Heiða Jóhanns- dóttir, kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins, myndinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum og sagði hana meðal annars eina eft- irminnilegustu hryllingsmynd síð- ustu ára, og tímabært fráhvarf frá ríkjandi klisjum greinarinnar. Spider-Man 3 er ennþá nokkuð vinsæl hér á landi þrátt fyrir að fimm vikur séu síðan myndin var frumsýnd. Kóngulóarmaðurinn situr í fjórða sætinu, en tæplega 800 Ís- lendingar sáu hann leika listir sínar í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina. Þá nær gamanmyndin Delta Farce þeim merkilega árangri að komast í sjötta sætið eftir fyrstu helgina. Rúmlega 500 manns sáu myndina þrátt fyrir að hún hafi fengið mjög slæma dóma. Sæbjörn Valdimarsson, kvikmyndagagnrýn- andi Morgunblaðsins, gaf myndinni aðeins eina stjörnu og talaði m.a. um ómerkilega samsuðu suðurríkjafyr- irlitningar, hommafóbíu og músl- imabrandara. Vinsælustu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum Fjörutíu þúsund manns hafa séð sjóræningjana        K 7 4                           !  "#$ %&  '  (  # )  "# '  * +    ,  - . /0   . 1   1 * ! 2  3               Vinsæll hrollur Breska hrollvekjan 28 Weeks Later er næstvinsælasta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum, enda hefur hún hlotið góða dóma.  Vefsvæði Baggalúts (http://baggalutur.is) hefur verið lokað yfir sum- artímann en verður opnað aftur þegar haustar. Til að sefa þjóð sína og draga úr þeim sársauka sem lokunin veldur hefur Baggalútur sent frá sér snemmsumarsmellinn „Sof þú mér hjá“, sem hægt er að hlusta á á slóðinni baggalutur.is/sof. Þá fagna þeir Baggalútsmenn því að hafa hlotið við- urkenningu frá móðurmálskennurum fyrir skapandi málnotkun. Baggalútur fer í sumarfrí  Fyrsti hluti heimstónlistar- ferðalags Bjarkar um Norður- Ameríku lauk á mánudaginn þegar hópurinn sneri heim til Íslands. Ef marka má ferðapistla Jónasar Sen og bloggsíðu Valdísar Þorkels- dóttur (vallarinn.blogspot.com) sem er ein tíu blásara í ferðinni, er mikil stemning í hópnum og ljóst að Björk á marga aðdáendur í Vest- urheimi. Stoppið varir þó stutt að þessu sinni því hópurinn heldur til Englands á fimmtudag til að leika í hinum víðfræga tónlistarþætti Joo- les Holland. Þar verður að- alstjarnan hins vegar ekki Björk, heldur Paul McCartney sem einnig fagnar útkomu nýrrar plötu. Cartney og Björk í Jooles Holland  Í frétt um norrænu stærð- fræðikeppnina KappAbel í Morg- unblaðinu í gær kom fram að Ís- lendingar hefðu ekki sigrað í keppninni áður. Það mun ekki vera rétt því fjórir nemendur úr 9.B í Lundarskóla á Akureyri sigruðu í keppninni árið 2005. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. Sigur í Kapp- Abel árið 2005  Eitt vinsælasta skúbb- og slúð- urblogg síðasta árs, Orðið á göt- unni, hefur aftur hafið göngu sína. Í einni færslu gærdagsins er Silfur Egils til umfjöllunar. Draga um- sjónarmenn bloggsins fram nokkr- ar bloggfærslur því til staðfest- ingar að almenningur líti hornauga þær tilraunir Ara Edwalds for- stjóra 365 miðla að hefta för Egils Helgasonar yfir til RÚV. Er meðal annars vitnað í blogg Einars Elí Magnússonar fyrrverandi starfs- manns Fréttablaðsins sem segir að á sínum tíma hafi meira legið á því að starfsmenn skiptu yfir í OgVoda- fone en að gerðir væru við þá al- mennir launasamningar. Orðið á götunni lætur á sér kræla  Óli Björn Kárason, fjölmiðlamað- ur og álitsgjafi, er hættur að blogga. Á síðunni sinni, bus- inessreport.blog.is, segir hann að sín bíði önnur verkefni sem vert sé að sinna en útskýrir það ekki frek- ar. Skammt er síðan sparisjóðurinn Byr byrjaði að greiða Óla Birni fyr- ir að fá að auglýsa á blogginu hans. Má því leiða að því líkur að Óla Birni hafi borist betra boð annars staðar frá. Óli Björn hætt- ur að blogga - Kauptu bíómiðann á netinu Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000 Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir 28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Pathfinder kl. 6 - 8 B.i. 16 ára The Hills Have Eyes 2 kl. 10 B.i. 16 ára Pirates of the Carribean 3 kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 10:45 B.i. 10 ára Pirates of the Carribean 3 kl. 5 - 9 LÚXUS Fracture kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * 28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Unknown kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára Painted Veil kl. 5.30 - 8 - 10.30 It’s a Boy Girl Thing kl. 8 - 10.10 Spider Man 3 kl. 5.20 B.i. 10 ára FALIN ÁSÝND eee „Falin ásýnd er vönduð kvikmynd...“  H.J., MBL It’s a Boy Girl Thing kl. 3.45 - 5.50 Spider Man 3 kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 10 ára Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar ÞEIR ERU LOKAÐIR INN OG MUNA EKKI HVAÐ GERÐIST. ÞEIR TREYSTA ENGUM OG ÓTTAST ALLA. FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ FLOTTUM LEIKURUM. MMJ  KVIKMYNDIR.COM OG VBL eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is eee F.G.G. - FBL eeee S.V. - MBL D.Ö.J. - Kvikmyndir.com og VBL MISSIÐ EKKI AF ÞESSU BLÓÐUGA FRAMHALDI AF 28 DAYS LATER SEM HEFUR HLOTIÐ FRÁBÆRA DÓMA! „Besta Pirates myndin í röðinni!“ tv - kvikmyndir.is „SANNUR SUMARSMELLUR... FINASTA AFÞREYINGARMYND“ Trausti S. - BLAÐIÐ ROBERT CARLYLE ER VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA 30.000 manns á 7 dögum Stærsta 5 daga sumar opnun allra tíma á íslandi eeee „28 Weeks Later er skylduáhorf fyrir hroll- vekjuaðdáendur.“ L.I.B. - Topp5.is eee V.I.J. - Blaðið eeee Empire eeee „Hér er á ferðinni ein eftirminnilegasta hryllingsmynd síðustu ára... H.J. - MBL eee LIB, Topp5.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.