Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 44

Morgunblaðið - 05.06.2007, Page 44
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 156. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Hagstjórn í sjálfheldu?  Framkvæmdastjórn Samtaka at- vinnulífsins átti fund með forsætis- og utanríkisráðherra í gær og lagði þar áherslu á að rík- isstjórnin tæki á þeirri sjálfheldu sem stjórn peningamála og hag- stjórnin hefur ratað í að mati sam- takanna. Telja samtökin að aðgerðir Seðlabankans hafi skaðað atvinnulífið án þess að skila árangri á móti. »1 70 ára fangelsi  Dómstóll í El Salvador hefur dæmt tvo karlmenn fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni og fyrir að myrða Brendu Salinas, vinkonu hans. Fyrir hvort morðið um sig hlutu mennirnir 35 ára fangelsisdóm, sam- tals 70 ár. » 2 Konur með lungnateppu  Helmingi fleiri íslenskar konur á fimmtugsaldri greinast með lang- vinna lungnateppu en karlar í sama aldursflokki. Lungnateppa er sam- heiti yfir teppusjúkdóma í lungum, s.s. langvinna berkjubólgu, lungna- þembu og lokastig astma. »1 Fordæma hótanir  Atlantshafsbandalagið fordæmdi í gær hótun Vladímírs Pútíns Rúss- landsforseta um að kjarnorkuflaug- um verði á ný beint að skotmörkum í Evrópu ef Bandaríkjamenn komi upp svonefndum „eldflaugaskildi“ í Tékklandi og Póllandi. »14 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Himneskar drottningar Stakstein.: Kasparov við skákborðið Forystugreinar: Alsjáandi augu | Pútín hótar UMRÆÐAN» Nýjar reglur um fjármálamarkað Bráðnun íss – brennandi mál Guðni Ágústss. og evr. flokkaflóran Aths. við skrif Ríkharðs Pálssonar 1! $:%'! . %+ $ ;! %%&%#"% 3 3 3 3 3 3  3   3   3 3 3  3  3  3  -59 '  3 3  3 3 3 3  3 <=>>4?@ 'AB?>@7;'CD7< 5474<4<=>>4?@ <E7'5%5?F74 7=?'5%5?F74 'G7'5%5?F74 '6@''7&%H?475@ I4C47'5A%IB7 '<? B6?4 ;B7;@'6+'@A4>4 Heitast 15 °C | Kaldast 8 °C S- og SA, víða 5-13 m/s. Skýjað með köfl- um norðan- og austan til en annars súld. 10 » Bloggarar gagnrýna harðlega tilburði Ara Edwald og 365 miðla í máli Egils Helgasonar og RÚV. »38 FJÖLMIÐLAR» Gagnrýna 365 miðla TÖLVULEIKIR» Def Jam: Icon er góður leikur. »40 Sjónvarpskokkurinn Völundur Snær tók fyrir skömmu þátt í raunveruleikaþætt- inum Meal Ticket hér á landi. »39 SJÓNVARP» Hvar er Völli? FÓLK» George Michael er í slæmum málum. »39 FÓLK» Eiður Smári fór út á lífið á laugardaginn. »36 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Bruce Willis hefur í hótunum. 2. Hjón á batavegi eftir gaseitrun. 3. Gasskynjarar nauðsynlegir. 4.Paris Hilton í afplánun. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VÍSINDAMENN á vegum Sameinuðu þjóðanna segja að bráðnun jökla geti hraðað hlýnun lofts- lags í heiminum vegna þess að íshellur endurvarpi sólarljósi og þar með hita út úr gufuhvolfinu. Stór- ir vatnsfletir dragi hins vegar í sig hita. Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur segir að talið hafi verið að jöklar hérlendis gætu horfið á 150-200 ár- um ef meðalhiti á jörðinni hækkaði jafn mikið og vísindamenn Sameinuðu þjóðanna gera ráð fyrir. En nú geti þurft að endurskoða spána um jöklana. „Menn vita að þegar þeir fara á jökla þá verða þeir fljótt sólbrúnir en ísinn endurkastar að miklu leyti sólarljósinu, það fer aftur út í geiminn,“ segir Helgi. Hann bendir á að hafísinn á norðurskauts- svæðinu sé aðeins 3-5 metra þykkur og geti því horfið á tiltölulega skömmum tíma ef hitastig haldi áfram að hækka. Vatnsflötur drekki um 90% af geislum sólar í sig en mjög hreinn snjór geti varp- að frá sér um 90% geislanna út í geiminn. Sökum þess hve hafísinn þeki stórt svæði geti bráðnun hans aukið hlýnunina mjög hratt. Helgi segir að afleiðingar hlýnunar geti orðið aðrar hér en víða annars staðar vegna breytinga á hafstraumum, Golfstraumurinn geri Ísland mun hlýrra en það ætti að vera með tilliti til hnattstöðu. Hopa jöklar hraðar? Vatnsflötur dregur í sig um 90% af sólargeislunum en hreinn snjór á íshellu eins og á Grænlandi og Suðurskautslandinu getur endurvarpað um 90% af geislunum Morgunblaðið/Rax Ísinn Jökullandslag á austurströnd Grænlands Í HNOTSKURN »Jöklar þekja um 11% af landi á jörðinni,Grænlandsjökull er um 1,7 milljónir fer- kílómetra. Á veturna þekur hafís um 12 milljónir km2 í norðurhöfum en að vetr- arlagi þekur hann 20 milljónir km2 í suður- höfum. »Nú er vitað að jöklar geta minnkaðhraðar en talið var, ástæðan er að bráð- ið vatn, t.d. úr Grænlandsjökli, sígur niður og „smyr“ undirlag skriðjöklanna sem skríða því hraðar út í sjóinn en ella og bráðna.  Bráðnun | 14 HÚN var ekki til fjár, ferðin sem 17 ára piltur gerði sér á lögreglustöð á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag. Það segir sína sögu að á vef lögreglunnar er sagt frá piltinum undir fyrirsögn- inni: „Lygamörður afhjúpaður“. Í fyrstu sagðist piltinum svo frá að bíll hans væri horfinn og hugsanlega hefði honum verið stolið. Í ljós kom að bílnum hafði verið ekið inn í garð í Kópavogi um nóttina og ökumað- urinn hlaupið af vettvangi. Bíllinn var síðan dreginn í burtu og var á vísum stað. Við þessar fregnir kættist piltur en sú gleði var skammvinn því lög- reglu var farið að gruna að hann hefði óhreint mjöl í pokahorninu. Og það lá nærri. Eftir að hafa verið þaulspurður af lögreglu játaði hann ekki aðeins að hafa verið undir stýri umrædda nótt heldur viðurkenndi hann sömuleiðis að hafa verið undir áhrifum áfengis. Mál piltsins fer nú sína leið í kerfinu en hann má búast við ökuleyfissviptingu og fjársekt. Sér grefur gröf … SÚ hefð að kasta peningum í Flosagjá, eða Peningagjá eins og hún er oftast nefnd, á sér langa sögu. Sagt er að Friðrik 8. Danakonungur hafi fyrstur hent smápeningi í gjána þegar hann heimsótti Þingvelli árið 1907. Fjöldi ferðamanna hefur síðan leikið þetta eftir og kastað smá- peningum í gjána um leið og þeir hafa óskað sér. Með tímanum virðist greiðslumáti ferðafólks hins vegar hafa breyst, því nýverið köfuðu starfsmenn Þingvalla- þjóðgarðs í Peningagjá til þess að hreinsa þaðan rusl og fundu þá sjö greiðslukort, bæði íslensk og erlend. Að sögn Einars Á. E. Sæmundsen, fræðslufulltrúa Þingvallaþjóðgarðs, voru sum kortanna enn í gildi. Ljósmynd/Tobias Klose, DIVE.IS Greitt fyrir óskir með korti Greiðslukortum kastað í Peningagjá á Þingvöllum ROSKNI maðurinn sem fannst ásamt konu sinni meðvitundarlaus í tjaldvagni í Djúpadal á sunnudag hefur verið útskrifaður af gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi. Ástand hans var mun alvarlega en konunnar og lá hún t.a.m. aldrei á gjörgæsludeild, að sögn læknis. Fluttur af gjör- gæsludeild ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.