Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 29
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
VIÐ fréttalestur fyrir nokkru vakti at-
hygli mína falleg mynd frá Þjórsá,
mynd af lifandi landi sem til stendur
að deyða með uppistöðulóni. Svona
myndir eru ekki birtar á vef Lands-
virkjunar þegar til stendur að sökkva
landi.
Mér varð hugsað til baka og sá fyrir
mér hvernig Kárahnjúkavirkjun var
kynnt á sínum tíma og hvernig myndir
voru sýndar af virkjunarsvæðinu.
Þetta voru ekki myndir sem sýndu 40
ferkílómetra gróðurlendis með fjöl-
skrúðugu lífi sem til stóð að drekkja,
landslagi sem var víða stórbrotið og
smáfrítt í senn. Engar myndir af
Töfrafossi, Rauðuflúð, sérkennilegum
bergmyndunum, tærum lækjarspræn-
um, skjólgóðum gróðurhvömmum og
öllum fallegu fossunum í Jökulsá í
Fljótsdal sem hverfa. Þetta voru loft-
myndir, sumar tölvuteiknaðar, og ekk-
ert fallegt að sjá.
Stöndum vörð um Þjórsá
Nú hefur Landsvirkjun hafið kynn-
ingu á fyrirhuguðum framkvæmdum í
neðri hluta Þjórsár með sama hætti á
vef sínum. Ekkert sérstakt eða fallegt.
Bara fínt til að drekkja.
Með þessari hugleiðingu vil ég
hvetja fjölmiðla og aðra til að birta,
aftur og aftur, myndir af raunveru-
legri náttúru sem til stendur að eyði-
leggja. Landsvirkjun og stóriðjusinn-
ar stjórnvalda munu ekki sjá til þess
að náttúran verði kynnt með eðlileg-
um hætti.
Þótt Flóamenn hafi af sýnt þann
kjark og þá ábyrgð og hafna Urriða-
fossvirkjun er Landsvirkjun ekki af
baki dottin og hyggst halda áfram við-
ræðum við sveitarstjórnir og þá sem
eiga land að Þjórsá. Auðvitað ætti ekki
að setja sveitarstjórnir og einstaka
landeigendur í þá stöðu að ráða úrslit-
um um nýtingu lands þegar um svo
stórkarlaleg inngrip í náttúruna er að
ræða, allt fyrir mengandi stóriðju. Við
þessar aðstæður er viss hætta á að
skammtímasjónarmið nái yfirhöndinni
og að einhverjir falli í gullgrafarapytt-
inn. Því er nú gríðarlega mikilvægt að
allir hugsandi menn, sama hvar í
flokki þeir standa, komi í veg fyrir að
orkufyrirtæki okkar starfi eins og ríki
í ríkinu og fari sínu fram gegn vilja
meirihluta landsmanna.
SNORRI SIGURJÓNSSON,
lögreglufulltrúi og
félagi í Íslandshreyfingunni.
Myndir
skipta máli
Frá Snorra Sigurjónssyni:
(Ljósm.Einar Guðmann.)
Á meira en 100m dýpi" við Jöklu.
(Ljósm. Þórhallur Árnason)
Stækkandi Hálslón.
ÞAÐ verður að gera grundvall-
arbreytingar á löggjöfinni um fisk-
veiðistjórnunina annars verður hrun í
mörgum byggðarlögum landsins sem
byggjast á sjávarútvegi. Þetta er æ
fleirum að verða ljóst og þess vegna
hefur umræðan um sjávarútvegsmál
breyst mjög hratt eftir alþingiskosn-
ingar. Varla var búið að telja upp úr
kjörkössunum þegar
eigendur Kambs á
Flateyri sögðu að ekki
væri rekstrargrund-
völlur fyrir fyrirtækið
og ákváðu að selja afla-
heimildir og aðrar
eignir. Það sér-
kennilega sem þá við
blasti var að eigend-
urnir fara frá rekstr-
inum með fúlgur fjár
en íbúar þorpsins sitja
eftir með sárt ennið.
Í Vestmannaeyjum
hófst valdabarátta,
sem enn stendur yfir,
um yfirráðin yfir
helsta sjávarútvegs-
fyrirtæki eyjanna þar
sem veiðiheimildirnar
eru virtar upp á tugi
milljarða króna. Íbú-
ar Vestmannaeyja
geta fyrr en varir
staðið í sömu sporum
og Flateyringar.
Reyndar verður
líka mikil breyting í
þessum sjáv-
arplássum, þótt veiði-
heimildir fari ekki úr
plássinu við sölu. Þá
skapast skuldavandi.
Ný skuld, gríðarhá,
hefur orðið til og hvílir á rekstri fyr-
irtækisins. Nýju eigendurnir verða að
skera allan kostnað niður sem mest
þeir mega og að sjálfsögðu er það
launakostnaðurinn sem verður helst
fyrir. Starfsmönnum er fækkað og
allra leiða leitað til þess að lækka
launin. Þess eru dæmi að hluta-
skiptakerfið sé farið að láta undan.
Meðallaun í fiskveiðum eru á Vest-
fjörðum þau lægstu á landinu og um
40% lægri en á höfuðborgarsvæðinu.
Í fiskvinnslu eru meðalárslaunin á
Vestfjörðum um 1 m.kr. lægri en á
höfuðborgarsvæðinu. Það er, að mínu
mati, engin tilviljun að launin eru
lægst þar sem mest er af keyptum
veiðiheimildum í seinni tíð og það má
alveg rannsaka að auki hvort sam-
band er á milli teknanna og fjölda út-
lendinga í atvinnugreininni.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum hefur verð á varanlegum
veiðiheimildum hækkað um 70% á
einu ári. Það þýðir að heild-
arverðmæti veiðiheimildanna hefur
hækkað um hundruð milljarða króna
á einu ári. Hvað hefur gerst á þessum
skamma tíma sem framkallar þessi
verðmæti?
Ekki hef ég svör við því, en eitt er
víst að veruleg samþjöppun veiði-
heimilda er framundan. Hún verður
einmitt rökstudd með skírskotun til
þessarar verðhækkunar, annars gætu
kaupendur veiðiheimilda ekki staðið
undir slíku verði. Að óbreyttu endar
samþjöppunin fyrst og fremst á höf-
uðborgarsvæðinu og færir fiskvinnsl-
una þangað meira og minna í skjóli
þess að þar er eina útflutningshöfn
landsmanna eins og sakir standa.
Þessar staðreyndir leiða til þess að
í umræðu utan dagskrár á Alþingi í
síðustu viku, sem ég stóð fyrir, um
áhrif framsalsins í fisk-
veiðistjórnunarkerfinu,
kom mjög skýrt fram, í
fyrsta sinn í langan tíma,
að allir ræðumenn við-
urkenndu vandann og
töldu rétt að gera breyt-
ingar. Loksins er mönn-
um að verða ljóst að
hagsmunir fárra útgerð-
armanna verða að víkja
fyrir almennum hags-
munum tuga þúsunda
landsmanna sem kerfið
leikur svo grátt að
óbærilegt er upp á að
horfa.
Vandinn er ekki bara
Vestfjarðavandi, það er
almennur kerfisvandi,
grundvallarbreytingar
verður að gera til þess að
innleiða almennar leik-
reglur í almannaþágu.
Það var ótvírætt nið-
urstaða forseta Alþingis í
ræðu hans á Ísafirði á
þjóðhátíðardaginn og for-
sætisráðherra við-
urkenndi líka vandann
sem almennan kerf-
isvanda í ræðu sinni á
Austurvelli.
Það eru orðin vatnaskil
í umræðunni. Nú verða
stjórnmálaflokkarnir að ljúka málinu
sem hófst fyrir 7 árum þegar endur-
skoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins
fór fram en sérhagsmunaaðilarnir
komu þá að sinni fyrir kattarnef með
sterkum ítökum sínum í Framsókn-
arflokknum og Sjálfstæðisflokknum.
Frjálslyndi flokkurinn er reiðubúinn
til þess af fullum heilindum að taka
höndum saman við þá sem vilja nú
endurskoða kerfið frá grunni og færa
sjávarbyggðum landsins aftur til-
verugrundvöll sinn.
Grundvallar-
breytingar
annars hrun
Kristinn H. Gunnarsson skrifar
um fiskveiðistjórnunina
» Gera verðurgrundvall-
arbreytingar á
löggjöfinni um
fiskveiðistjórn-
unina annars
verður hrun í
mörgum byggð-
arlögum lands-
ins sem byggj-
ast á sjávar-
útvegi.
Kristinn H.
Gunnarsson
Höfundur er alþingismaður.
Fellahvarf 24 Kóp. Opið hús
Eign sem sker sig úr
Sérlega vandað endaraðhús á einni hæð við Fellahvarf í Kópavogi með stór-
kostlegu útsýni. Vel útfært og þægilegt hús að búa í, vandaðar innréttingar,
gólfefni o.fl. Vel skipulagt hús með vönduðum innréttingum og frágangi í
alla staði, hús sem býður uppá allt það besta í umhverfi þar sem þú gleym-
ir algjörlega stað og stund. Við erum með opið hús í dag fimmtudag milli kl.
18 og 19. Sjón er sögu ríkari. Verð 62 millj.
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Sölufulltrúi Fasteignakaupa Guðmundur Valtýsson 865 3022,
tekur á móti gestum í dag á milli 18 og 19.
BRANDARAKARLARNIR!
Fyrir krakkana,
mömmurnar,
pabbana
og öll hin
Sumardiskurinn
í ár.
Stútfullur af
bröndurum.
Hentar hvar og
hvenær sem er,
ekki síst
í ferðalagið.
FÆST Í BÓKABÚÐUM