Morgunblaðið - 18.07.2007, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÞAÐ var afskaplega ánægjulegt að
klára þetta,“ segir Jón Viðar Matt-
híasson slökkviliðsstjóri höfuðborg-
arsvæðisins. „Þetta var stórt verk-
efni að glíma við og við áttum þess
vegna von á að það yrðu einhver af-
föll en sem betur fer var það ekki.“
Jón Viðar segir verkefnið hafa að
vissu leyti verið erfiðara en þeir
bjuggust við. Veðrið lék við þá og
sólin skein allan tímann en fyrir vik-
ið voru vegirnir erfiðari vegna
þurrks og mikils ryks.
Aðspurður segir Jón Viðar sand-
ana við Dreka hafa verið erfiðasta en
þeir eru yfir 40 km og mjög þurrir
og erfiðir yfirferðar. „Við urðum
hreinlega að hleypa úr dekkjunum á
hjólunum eins og jeppakarlarnir
gera þegar þeir fara yfir jökla og
snjó. Við hleyptum úr og minnk-
uðum loftið til að ná meira floti og
náðum þannig að hjóla.“
Jón Viðar segir mest hafa verið
hjólað fyrsta daginn en þá voru farn-
ir 114 km; frá vitanum við Fontinn á
Langanesi inn að Hafralóni.
Hann segir ferðalangana hafa
teygt vel og reynt að hugsa vel um
líkamann en það sem hafi haft hvað
mest að segja fyrir þá var að tveir
bílar fylgdu þeim alla leiðina og báru
búnað þeirra. „Svo voru eiginkona
og dóttir eins slökkviliðsmannsins
sem elduðu þessar svakalegu kræs-
ingar fyrir okkur á hverju kvöldi og
sáu til þess að við nærðumst rétt.“
Aðspurður segir Jón Viðar það
vera yndislega tilfinningu að þurfa
ekki að setjast upp á hjólið aftur í
dag. Líklegast líði nokkrir dagar
þangað til hann geri það aftur.
Hann segir það standa upp úr hve
hópurinn var ákveðinn í að ná tak-
markinu. „Menn voru náttúrulega
orðnir dálítið lemstraðir; hásinar,
hné og bak og aðrir slíkir hlutir farn-
ir að gefa sig en menn voru mjög
ákveðnir í því að klára ferðina.“
Ferðin var farin í þeim tilgangi að
safna fé í styrktar- og líknarsjóð
slökkviliðsmanna en söfnunin verður
opin fram í september. Allar upplýs-
ingar um hvernig hægt er að styrkja
sjóðinn má nálgast á www.babu.is.
Frá Fonti til Táar á 10 dögum
Níu slökkviliðsmenn
af höfuðborgarsvæð-
inu hjóluðu 750 km
Morgunblaðið/Júlíus
Komið í mark Slökkviliðsmennirnir níu luku 750 km ferð sinni við vitann á
Reykjanestá í gær. Ferðin hófst á norðausturhorni landsins og tók 10 daga.
STEFNT er að
því að breyta
SPRON í hluta-
félag og skrá það
í OMX kauphöll-
ina á Íslandi í
september í
haust en slík
breyting er háð
samþykki Fjár-
málaeftirlits og
stofnfjáreigenda.
Guðmundur Hauksson sparisjóðs-
stjóri segist ekki eiga von á öðru en
að breytingin leggist vel í stofnfjár-
eigendur en eignarhlutur þeirra
verður 85% en sjálfseignarstofn-
unar 15%. Ætla má að markaðsvirði
SPRON kunni að vera um 70 millj-
arðar króna. | 12
Stefnt að því að
gera SPRON
að hlutafélagi
Guðmundur
Hauksson
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu handtók aðfaranótt þriðjudags
fimm einstaklinga í heimahúsi
vegna gruns um fíkniefnasölu.
Fimmmenningarnir voru yfirheyrð-
ir í gær og að því loknu sleppt úr
haldi þar sem málið taldist upplýst.
Að sögn lögreglu fundust fáein
grömm af fíkniefnum á staðnum og
lék grunur á að meira magn væri í
fórum þeirra handteknu. Svo
reyndist ekki vera og hefur þeim
öllum verið sleppt. Sá yngsti sem
handtekinn var fæddist árið 1988
en sá elsti árið 1956.
Yfirheyrðir
vegna fíkniefna
MAÐURINN
sem lést í um-
ferðarslysi á
mótum Akra-
fjallsvegar og
Innnesvegar á
mánudagskvöld
hét Aðalsteinn
Davíð Jóhanns-
son, til heimilis
að Háholti 12 á Akranesi. Að-
alsteinn var 35 ára, fæddur 26.
júní 1972. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og tvö börn.
Slysið varð með þeim hætti að
bifhjól sem Aðalsteinn ók lenti í
árekstri við strætisvagn á gatna-
mótunum. Hjólið lenti framan á
strætisvagninum og Aðalsteinn ut-
an vegar. Talið er að hann hafi
látist samstundis.
Lét lífið í um-
ferðarslysi
OLLI Rehn, yfirmaður stækk-
unarmála Evrópusambandsins
sagði í viðtali við þýska dagblaðið
Die Welt í gær að umsókn Íslend-
inga um aðild að sambandinu yrði
fagnað og að afgreiðsla yrði hröð.
Rehn virðist finnast skrýtið að Ís-
lendingar hafi ekki sótt um nú þeg-
ar, því hann segir að um 80% reglna
sambandsins séu þegar í gildi hér-
lendis, vegna aðildar okkar að Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Umsókn yrði
tekið fagnandi
TVEIMUR púðum, skreyttum
myndum af stæltum karlmönnum
að takast á, var stolið af myndlist-
arsýningunni Maður með mönnum í
Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Get-
gátur eru um að sýningargestur
hafi hrifist mikið af skreytingunni
og því stolið púðunum.
Stæltum karl-
mönnum stolið
SAMKOMULAG er um að Sölvi
Sveinsson láti af störfum sem skóla-
stjóri Verslunarskóla Íslands og taki
að sér að stofna Listmenntaskóla Ís-
lands. Ingi Ólafsson hefur verið ráð-
inn skólastjóri VÍ í stað Sölva.
Sölvi var áður skólameistari Fjöl-
brautaskólans í Ármúla. Hann segir
að þegar hann hafi komið til starfa
hjá VÍ 2005 hafi það gerst að Háskól-
inn í Reykjavík – sem sjálfseignar-
stofnun á vegum Viðskiptaráðs rek-
ur, auk Verslunarskólans – hóf að
svipast um eftir nýju húsnæði.
Skólanefnd VÍ hafi verið falið að
finna nýjan skóla fyrir húsnæðið við
Ofanleiti. Hann hafi tekið það verk-
efni upp á sína arma og hugmyndin
um nýjan Listmenntaskóla hafi fljót-
lega orðið ofan á. „Þetta hefur verið
mín hugmynd og þess vegna finnst
mönnum eðlilegt að ég fylgi henni
eftir,“ sagði Sölvi í gær.
Sölva bíður nú það verkefni að
finna út rekstrargrundvöll list-
menntaskólans og gera nákvæma
viðskiptaáætlun og þarfagreiningu,
þannig að SVÍF, sjálfseignarstofnun
Viðskiptaráðs, sem rekur VÍ og HR,
geti tekið ákvörðun um framhaldið.
Ingi Ólafsson hefur verið aðstoð-
arskólameistari sl. sjö ár en á að baki
átján ára starfsaldur í Verslunar-
skólanum, kenndi þar áður stærð-
fræði og eðlisfræði. Hann sagði að
sér litist mjög vel á nýja starfið. „Ég
hef auðvitað komið að stjórnun í
þessum skóla í mörg ár og veit alveg
að hverju ég geng,“ sagði hann.
Ingi tekur við
sem skólastjóri
Sölvi Sveinsson Ingi Ólafsson
ÞORKELL Ágústsson, rannsóknar-
stjóri Rannsóknarnefndar flugslysa,
staðfestir að til rannsóknar sé af
hverju loft hafi ekki verið í neyðar-
floti björgunarþyrlunnar TF-Sifjar,
sem nauðlenti við Straumsvík á
mánudag. Samkvæmt heimildar-
manni blaðsins lenti þyrlan mjúk-
lega á sjónum fyrir tilstilli neyðar-
flota á botni vélarinnar. Hins vegar
hefði loft tekið að leka úr einu neyð-
arflotinu, eftir að vélinni var nauð-
lent, og henni hefði sennilega hvolft
af þeim sökum.
Undir þyrlunni eru fjögur neyð-
arflot. Tvö kúlulaga flot eru að aftan
og tvö sívalningslaga flot að framan.
Að sögn Þorkels eru flotin að framan
hólfuð í þrennt og útlit er fyrir að eitt
hólfið hafi brostið og loft tæmst úr
því. Þorkell vill þó ekki tjá sig um
hvort neyðarflotið sé orsök þess að
þyrlunni hvolfdi. Þorkell segir að
rannsókn á tildrögum slyssins skipt-
ist í tvennt. Annars vegar sé til at-
hugunar af hverju vélin hafi fallið og
hins vegar af hverju hún hafi farið á
hvolf.
Þorkell vonast til þess að eftir að
vinnu við frumrannsókn hefur verið
lokið verði línur farnar að skýrast og
mögulegt verði að beina rannsókn-
inni að afmörkuðum þáttum.| 6
Neyðarflot virð-
ist hafa brostið
Ljósmynd/Sigurður Ásgrímsson
Orsökin? Annað neyðarflotið virð-
ist loftlaust og lafandi.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra átti í gær fund með
Shimon Peres, forseta Ísraels. Í
samtali við Morgunblaðið segist
Ingibjörg Sólrún hafa leitað á fund-
inum eftir upplýsingum um það
hvernig Peres liti á stöðu mála á
svæðinu. Segir hún það hafa komið
ánægjulega á óvart að hann teldi að
nú um stundir væri ákveðið tækifæri
til að ná saman og að mikilvægt væri
að nýta það tækifæri. „Það virðist
sem hann hafi mikla trú á Fayyad og
Abbas og telji að það sé ákveðið
tækifæri til að ná sáttum núna, að
því gefnu að Palestínumenn fái mik-
inn efnahagslegan stuðning til að
byggja upp sínar stofnanir.“
Aðspurð segir Ingibjörg Sólrún
það skipta Íslendinga miklu máli
hvað sé að gerast í Mið-Austurlönd-
um, því heimurinn sé alltaf að
minnka. „Ástandið þar hefur áhrif á
lífskjör og lífsgæði fólks á Íslandi,
eins og annars staðar á Vesturlönd-
um. Því verra sem ástandið er fyrir
botni Miðjarðarhafs þeim mun lík-
legra er það til að hafa áhrif á öryggi
og lífsgæði fólks á Íslandi.“
Sér tækifæri til sátta
Reuters
Vinafundur Vel fór á með þeim Shimoni Peres og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í Jerúsalem í gær.