Morgunblaðið - 18.07.2007, Side 4

Morgunblaðið - 18.07.2007, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lítil áhrif frávísunar  Iðnaðarráðherra hefur vísað frá öllum umsóknum um rannsóknarleyfi  Leyfi til rannsókna virkjunarkosta fyrir Bakka, Straumsvík og Helguvík til staðar FORSTJÓRAR helstu orkufyrirtækja landsins telja ekki að ákvörðun Össurar Skarphéðins- sonar iðnaðarráðherra um að vísa frá öllum um- sóknum um rannsóknarleyfi vegna virkjunar- kosta hafi mikil áhrif á þau stóriðjuáform sem nú liggi fyrir. Ákvörðunin er í samræmi við ákvæði stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að ekki verði farið inn á óröskuð svæði áður en vinnu við rammaáætlun um verndargildi háhitasvæða er lokið, nema með samþykki Alþingis. „Þessi ákvörðun mun ekki hafa áhrif á fyr- irliggjandi áform Landsvirkjunar vegna virkj- unar í neðanverðri Þjórsá eða jarðvarmavirkjana á Norðausturlandi. Áhrifin eru fyrst og fremst til lengri tíma en við bindum auðvitað vonir við að rammaáætlunin verði unnin hratt og vel og að hún liggi fyrir í lok ársins 2009 eins og kemur fram í stjórnarsáttmálanum,“ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Vegna stóriðju hefur fyrirtækið gert samkomulag við Alcoa um að vinna sameiginlega að undirbúningi álvers á Bakka og raforkusölu til þess en einnig við Alcan um sölu hluta rafmagns til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Þau mál munu þó skýrast á næstu vikum vegna kosninganna í Hafnarfirði. Friðrik segir að komi til þess geti Landsvirkjun veitt báðum fyrirtækjunum þá orku sem til þarf. Orkuveita Reykjavíkur hefur einnig samið við Alcan vegna stækkaðs álvers í Straumsvík sem og við Norðurál vegna álvers í Helguvík. Guð- mundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að rannsóknarleyfi liggi þegar fyrir vegna þessara verkefna. „Þau rannsóknarleyfi sem við sóttum um og ráðherra synjaði um núna voru vegna virkjunarkosta sem ekki átti að nota fyrr en miklu seinna,“ segir Guðmundur. Eins og Orkuveita Reykjavíkur hefur Hita- veita Suðurnesja samið við Norðurál vegna orku- sölu til álvers í Helguvík. Júlíus Jónsson, for- stjóri Hitaveitunnar, segir fyrirtækið hafa rannsóknarleyfi fyrir Krýsuvíkursvæðið sem auk stækkana á fyrri virkjunum geti staðið undir fyrsta áfanga álversins og vel það. „Miðað við það sem vísindamenn segja okkur gerum við ráð fyrir að við höfum rannsóknarleyfi á svæðum sem nægja fyrir fyrstu tvo áfanga álversins,“ segir Júlíus. 430 íslenskir skátar munu leggja leið sína til Hylands Park í Chelms- ford í austurhluta Englands hinn 27. júlí næstkomandi til að vera við- staddir 10 daga heimsmót skáta (e. World Scout Jamboree) sem stend- ur fram í ágúst. Á gresjum Hylands Park verður enginn smáfjöldi sam- an kominn, heldur 42.000 skátar frá 159 löndum. Íslensku skátarnir verða flestir á aldrinum 13-18 ára, auk sveitarforingja á öllum aldri. Eygló Höskuldsdóttir, fjölmiðla- fulltrúi íslenska hópsins, segir flesta þátttakendur vilja kynnast fólki frá öðrum heimshornum og heimsmótið sé kjörið til þess. Mótið sé vímulaust og líkist landsmótinu á margan hátt. „Við munum kynnast því sem er erlent og kynna það sem er íslenskt. Við munum leyfa fólki að bragða á lýsi og harðfiski og verðum með gervi- fætur frá Össuri hf. til sýnis, auk margs fleira,“ segir Eygló. 100 ára afmælisútilega Hún kveður mótið fara fram á Hylands Park að mestu en þó verði farin sérferð í eina nótt út í eyju eina þar sem Robert Baden-Powell stýrði fyrstu skátaútilegunni árið 1907. „Einn strákur og ein stelpa frá hverju landi fá að fara út í eyj- una, en þar verður reynt að upplifa þá stemningu að gista í tjöldum án rafmagns og rennandi vatns.“ Rit- gerðasamkeppni verður um pláss í eyjarferðinni, að sögn Eyglóar, og skilar hver þátttakandi ritgerð um ferðina og dregið úr þeim. Bjóða erlendum félögum sínum að smakka lýsi og harðfisk Ljósmynd/Baldur Árnason Gaman Skátar kunna að skemmta sér saman með heilbrigðum hætti. Hér sést skátaandinn svífa yfir Úlfljótsvatni í fylgd gasblaðra í öllum regnbogans litum. Nú eru 100 ár síðan Robert Baden-Powell stýrði fyrstu skátaútilegunni. Hundruð ungra skáta skunda á 100 ára afmælishátíð í Bretlandi „JAMBOREE“ er orð sem fæstir kannast við en hefur þó sérstaka þýðingu í hugum skáta sem nafn á stórum samkomum þeirra. Faðir skátahreyfingarinnar, að- alsmaðurinn Robert Baden-Powell, ku hafa fundið samkomunum þetta nafn til að marka þeim sérstöðu, en uppruni þess er sagður framandi, annaðhvort úr svahílí þar sem „jambo“ þýðir „halló“ eða ónefndri indíánamállýsku þar sem orðið táknar „gaman“ eða „skemmtun“. Þar er boðskapur samhjálpar og vin- skapar efldur meðal þátttakenda og víst er að á heims- mótinu geta skátar lagt rækt við það markmið. Söng- lag með góðum boðskap hefur verið samið fyrir mótið. „Jamboree“ fyrir vináttu og samhjálp HREINDÝRA- VEIÐI fer rólega af stað í ár en bú- ið var að veiða fimmtán tarfa síðdegis í gær. Alls má veiða 1.137 hreindýr á þessu veiðiári, 577 kýr og 560 tarfa. Voru fyrstu tarfarnir felldir á sunnudag, á fyrsta degi veiðitímabilsins, í Hjaltastaða- þinghá á Fljótsdalshéraði. Veiði- tímabilið er til 15. sept. en fram til næstu mánaðamóta má aðeins veiða tarfa. Jóhann G. Gunnarsson hjá veiðistjórnunarsviði Umhverf- isstofnunar segir umsóknir um þau veiðileyfi sem gefin voru út að þessu sinni hafa verið um tvöfaldur sá fjöldi sem var í boði. Áhuginn sé því mikill, eins og fyrri ár. Búið að fella fimmtán hreindýr Hreindýr Sýnd veiði en ekki gefin. „TÖKUM upp hanskann fyrir Reykjavík“ nefnist fegrunarátakið í borginni sem staðið hefur í á annað ár. Á laugardaginn munu íbúar taka til hendinni í Laugardal og ná- grenni. Borgarstjórinn í Reykjavík boðar af þessu tilefni til fundar með íbú- um miðvikudaginn 18. júlí klukkan 20 í Langholtsskóla til að kynna átakið og heyra álit íbúa. Laugardaginn 21. júlí gefst íbú- um svo tækifæri til að fegra saman hverfið sitt með því að tína rusl, gróðursetja, hreinsa veggjakrot, þökuleggja, laga leiktæki, kant- skera, sópa og bæta girðingar, svo dæmi séu tekin. Hreinsunarátakið hefst kl. 11 við Laugarnesskóla og Langholtskirkju. Klukkan 14 hefst grillveisla ásamt skemmtiatriðum við félagsheimili Þróttar í Laug- ardal. Deginum lýkur með því að þátttakendur fá ókeypis aðgang í Laugardalslaugina. Íbúar fegra Laugardalinn UM 12 milljónir króna sparast sam- kvæmt niðurstöðum rammasamn- ingsútboðs innkaupa- og vöru- stjórnunarsviðs LSH á seymi og hefti miðað við notkun sjúkrahúss- ins á einu ári. Seymi er notað til að loka skurð- sárum og sauma líffæri og er líka nefnt saumur. Hefti eru notuð í sama tilgangi og seymi í sérvaldar aðgerðir. Árið 2006 var notað seymi og hefti fyrir 88,5 milljónir króna en sama magn kostar samkvæmt út- boðinu 76,5 milljónir. Sparnaðurinn jafngildir um 13,6 prósentum, samkvæmt vef LSH, að því er fram kemur á mbl.is Sparnaður hjá Landspítala Eftir Andra Karl andri@mbl.is BETUR fór en á horfðist þegar nýleg vörubifreið hafnaði hálf úti í sjó við landfyllingu skammt frá Kópavogshöfn um hádegisbil í gær. Ökumanni, sem var einn í bílnum, tókst að stökkva út þegar hann sá í hvað stefndi og slapp án meiðsla. Honum var töluvert brugðið við atvikið og vildi ekki ræða við fjölmiðla. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu var maðurinn að vinna við land- fyllinguna, þ.e. að sturta jarðefnum út í sjávarmál- ið, þegar brúnin gaf sig með þeim afleiðingum að vörubifreiðin fór af stað. Hún fór þó ekki nema hálf ofan í og komu starfsmenn á svæðinu fljótt að og festu bílinn með togbandi í jarðýtu sem stóð nærri. Lögregla og slökkvilið kom fljótlega á vett- vang og eftir nokkrar vangaveltur var ákveðið að kalla eftir aðstoð Árna Kópssonar, sem er með að- stöðu skammt frá höfninni. Komist var að þeirri niðurstöðu að best væri að moka frá bílnum og gera eins konar veg upp á bakkann. Tókst það vel og var vörubifreiðin dreg- in upp. Skemmdir eru ekki taldar miklar þar sem stýrishúsið fór ekki undir yfirborð sjávar. Kópavogsbær hyggst gera landfyllingu sem er 4,8 hektarar og viðlegukant fyrir skip á hafnar- svæðinu. Segir framkvæmt samkvæmt skipulagi Forsvarsmaður samtakanna Betri byggð á Kársnesi hafði samband við blaðamann Morgun- blaðsins og velti upp þeim möguleika hvort vinna á svæðinu væri án leyfis. Benti hann m.a. á gagnrýni skipulagsstjóra ríkisins í marsmánuði sl. þar sem hann efast um lögmæti framkvæmdarinnar auk þess sem verið sé að kynna íbúum deiliskipulag fyrir svæðið um þessar mundir. Frestur til að gera athugasemdir við skipulagið er til 21. ágúst nk. Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópa- vogsbæjar, segir framkvæmdina unna samkvæmt gildandi deiliskipulagi, það skipulag sem er í aug- lýsingu núna snúi að frekari uppfyllingu og skipu- lagi viðlegukantsins. Brugðið en slapp ómeiddur Nýleg vörubifreið fór hálf út í sjó þegar brún landfyllingar gaf sig undan þunga Morgunblaðið/Eyþór Vel sloppið Bifreiðin er ekki talin mikið skemmd þrátt fyrir að hafa lent hálf úti í sjó. VALNEFND í Tjarna- prestakalli í Kjal- arnesprófasts- dæmi ákvað að leggja til að sr. Bára Friðriks- dóttir yrði ráðin sóknarprestur í Tjarnapresta- kalli. Níu um- sækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. september 2007. Bára Friðriksdóttir lauk guð- fræðiprófi frá HÍ 1995. Hún var skipuð prestur í Vestmanna- eyjaprestakalli 1998 og vígð sama ár. Bára hefur einnig starfað í af- leysingum sem sóknarprestur á nokkrum stöðum. Fær Tjarna- prestakall Bára Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.