Morgunblaðið - 18.07.2007, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„ÞESSIR veiðiþjófar eru alltaf eitthvað á ferð-
inni. Við náðum síðast einum í gærkvöldi, þá var
hann að setja saman stöngina við Sjávarfoss, einn
helsta veiðistaðinn í ánni,“ sagði Jón Þ. Einarsson
veiðivörður við Elliðaárnar í gær.
Í fyrrasumar fór að bera á auknum ágangi veiði-
þjófa við Elliðaárnar og enn frekar í sumar, þann-
ig að gæsla við árnar hefur verið stóraukin. Má nú
segja að engin laxveiðiánna næst höfuðborgar-
svæðinu hafi ekki orðið fyrir barðinu á veiðiþjófum
í sumar, og munu í öllum tilvikum vera um erlenda
karlmenn að ræða. Stundum sýna þeir Veiðikort-
ið, þegar þeir eru krafðir um veiðileyfi, í öðrum til-
vikum hafa þeir horfið á hlaupum.
Veiðiþjófar hröktu lögmætan
leyfishafa frá Alviðru
Þegar veiði hófst formlega í Laxá í Kjós og
Bugðu í júní, höfðu kvöldið áður verið gripnir þrír
erlendir karlmenn með spúnastangir við Bugðu.
Voru stangir þeirra og aflinn, einn urriði, gerðar
upptækar. Í síðustu viku stöðvuðu réttmætir
veiðimenn í Leirvogsá, einni bestu veiðiá landsins,
tvo karlmenn sem voru að veiða þar í óleyfi. Héldu
þeir mönnunum þar til lögreglan kom á staðinn,
tæpum einum og hálfum tíma síðar.
Mörg veiðisvæðanna þar sem veiðimenn hafa
verið gripnir við veiðiþjófnað, eru innan vébanda
Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Á fréttavef SVFR
eru sagt af viðskiptum veiðimanna í Soginu við
veiðiþjófa. Er menn mættu til veiða fyrir Ásgarðs-
landi í liðinni viku sáu þeir þrjá menn úti í ánni, á
bestu veiðistöðunum. Er þeir urðu varir við
mannaferðir hlupu þeir út í kjarrið og komust
undan.
Þá lenti veiðimaður við Alviðru í því, að þar sem
hann var að veiða, renndi að bíll með fjórum er-
lendum mönnum. Þeir tóku fram veiðistangir og
hófu veiðar, þrátt fyrir kröftug mótmæli mannsins
sem átti löglegt veiðileyfi. Hringdi hann á lög-
reglu, sem sá sér ekki fært að mæta, og endaði
með því að sá með leyfið varð frá að hverfa.
Í kjölfarið ræddu forsvarsmenn SVFR við lög-
reglu á Selfossi og eru veiðimenn í framtíðinni, ef
þeir lenda í veiðiþjófum, hvattir til að láta lögreglu
vita og mun hún gera skýrslu um málið. Þá eru
menn beðnir um að skrifa niður bílnúmer meintra
veiðiþjófa sem flýja af vettvangi.
„Það er takmarkað hvað hægt er að hafa mikla
gæslu, en það er erfitt að stöðva þessa menn,“ seg-
ir Haraldur Eiríksson, ritstjóri fréttavefjar
SVFR. Hann segir að í vikunni var einn eltur á
hlaupum um Elliðaárdalinn, stangir hafa verið
gerðar upptækar hjá öðrum, og í fyrra fannst
meira að segja netastubbur ofan við Árbæjar-
stíflu.
„Þetta er skelfilegt ástand og í raun algjör
plága,“ segir Haraldur. Hann bætir við að hann
vilji ekki hljóma eins og rasisti en það sé stað-
reynd að það séu bara karlmenn frá Póllandi og
Litháen sem hafa verið staðnir að verki við árnar.
Heimild til borgaralegrar handtöku
Forsvarsmenn SVFR áttu fyrir helgi fund með
Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins og er nú
ljóst að allur veiðiþjófnaður í ám á vegum félagsins
verður kærður og lögregla kvödd til. Eru veiði-
menn sem og aðrir sem verða vitni að veiðum án
leyfis, hvattir til að kalla til lögreglu auk veiðivarð-
ar.
Á fréttavef SVFR kemur fram að stangaveiði-
menn hafa heimild til „borgaralegrar handtöku,“
þar sem veiðiþjófar eru hindraðir í að fara af vett-
vangi. Ef stefnir í átök eða ofbeldi skulu menn
undantekningalaust bakka út úr málinu en láta
lögreglu vita af slíku þegar hún mætir á staðinn.
Veiðiþjófnaður í laxveiðiám í nágrenni höfuðborgarsvæðisins er vaxandi vandamál
„Þetta er skelfilegt ástand
og í raun algjör plága“
Morgunblaðið/Einar Falur
Tól og tæki Veiðistangir þriggja veiðiþjófa voru
gerðar upptækar í Kjósinni í júní. Voru þeir við
veiðar kvöldið fyrir formlega opnun árinnar.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
TJÓNUM í umferðinni í Reykjavík
fjölgaði um rúman þriðjung milli ár-
anna 2005 og 2006, og sama gildir
um slys á fólki. Kostnaður sam-
félagsins vegna umferðaslysa nemur
að minnsta kosti 12 milljörðum á ári.
Yngstu ökumennirnir bæta sig tals-
vert og valda nú hlutfallslega færri
slysum en áður. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu frá Sjóvá Forvarn-
arhúsi.
1.234 einstaklingar slösuðust í
umferðarslysum á höfuðborg-
arsvæðinu á síðasta ári og 20.000
bílar skemmdust. Ef öllum þessum
bílum væri raðað í eina bílalest,
myndi halarófan verða 89 kílómetrar
á lengd, eða sem nemur vegalengd-
inni frá Reykjavík í Reykholt í Borg-
arfirði.
Algengast er að umferðaróhöpp
verði þegar fólk bakkar bílum sínum
og gætir ekki nógu vel að sér, en slys
verða oftast við aftanákeyrslur.
12 milljarðar á ári
Höfundar skýrslunnar fullyrða að
kostnaður samfélagsins vegna um-
ferðaslysa á höfuðborgarsvæðinu sé
ekki undir 12 milljörðum króna á ári.
Þar bera tryggingafélögin stærsta
byrði, eða 4,6 milljarða. Næstir
koma tjónvaldar, en kostnaður sem
fellur á þá nemur 4,1 milljarði. Rík-
isstofnanir á borð við Trygg-
ingastofnun, sjúkrahús og lögreglu
bera samanlagt um 3,3 milljarða
kostnað vegna þessara slysa. Það
sem upp á vantar er svo ýmis annar
kostnaður, t.d. útgjöld fyrirtækja
vegna fólks sem er frá vinnu vegna
slysa.
Yngstu ökumennirnir bæta sig
Ungir ökumenn eru líklegastir til
þess að valda slysi, en nú ber svo við
að þeir allra yngstu, 17 ára krakkar,
standa sig mun betur og valda færri
óhöppum en 18 og 19 ára ökumenn.
Einar Guðmundsson, forstöðumaður
Forvarnarhúss segir ýmislegt benda
til þess að þarna sé um raunverulega
breytingu að ræða, en ekki tilvilj-
unarkenndan mun á árgöngum.
Hann bendir á að í fyrra hafi verið
tekið upp svokallað ökumat, en í því
felst að fólk þarf að vera punktalaust
fyrsta árið til þess að fá varanlegt
skírteini.
Hættulegustu gatnamótin
Síðasta ár, eins og árin á undan,
urðu flest óhöpp á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar þar sem tveir þungir um-
ferðarstraumar mætast. Skýrsluhöf-
undar leggja áherslu á að
nauðsynlegt sé að hraða gerð mis-
lægra gatnamóta á þessum stað til
þess að fækka slysum og minnka
tjón. Á síðasta ári komu gatnamót
Hringbrautar og Njarðargötu þar
fast á eftir, sem vekur nokkra furðu
þar sem stutt er síðan þau voru
byggð. Einar segir að helsta skýr-
ingin á fjölda óhappa þar um slóðir
sé hraðakstur sem endi með aftan-
ákeyrslum.
Guðbrandur Sigurðsson aðalvarð-
stjóri í umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, segir lögregl-
una fylgjast vel með þessum gatna-
mótum og komi hún reglulega fyrir
myndavélum sem skrá hraðakstur
og brot þar sem umferðarljós eru
ekki virt. Að auki séu lögreglumenn
oft við gatnamótin á álagstímum.
„Síðast þegar við vorum þar með
vélina, þá var um 5% brotahlutfall af
heildarumferðinni. En lengi má gott
bæta. Við fylgjumst með tölfræðinni,
hvar flest óhöpp verða og stýrum
löggæslunni í samræmi við það,“
sagði Guðbrandur.
Tólf milljarðar vegna slysa
Tjónum og slysum fjölgar um 35% í umferðinni í Reykjavík 17 ára ökumenn valda færri slysum
20 þúsund bílar skemmdust í umferðinni í fyrra Algengustu óhöppin þegar fólk bakkar
Umferðaróhöppum fjölgar stöðugt í Reykjavík,
enda gengur seinlega að laga gatnakerfið að sí-
felldri fjölgun bíla. Líf og limir borgarbúa eru í
húfi, en auk þess gríðarlegar fjárhæðir.
!!"
!
"# #$"
!"
%"
"
$&"
%"
%"
#"
#"
$#"
!"
"
"
"
'"
$"
"
$"
"
$"
&"
$"
"
'
'
'
'
!'
"
#
'
$
'
%
'
(
)
*
+
'
,-
.
-
/
0
-
1
23
/
4
-
,
-
5
Í HNOTSKURN
»510 manns slösuðust í aftan-ákeyrslum á höfuðborg-
arsvæðinu á síðasta ári. Oft
verða þær vegna þess að fólk er
að tala í síma eða gera eitthvað
annað sem truflar einbeitingu
þess í umferðinni.
»Næst flestir, eða 172, slös-uðust á gatnamótum þar sem
ökumenn virtu ekki umferð-
arljós. Í þessum tilvikum eru
menn oft á miklum hraða og slys
á fólki verða alvarlegri.
Mikil litadýrð
hefur ljómað um
Breiðafjörðinn
að undanförnu.
Erlendir ferða-
menn eru frá sér
numdir.
Þeir taka sér
næturstað með
útsýni norður yf-
ir fjörðinn og
horfa úr bílum
sínum á sólsetrið. Norðanáttin
sendir saklaus þokuský suður yfir
fjöllin.
Þar mæta þau síðustu geislum
sólarinnar sem er að hníga. Þá
gyllast þau og roðna eins og ást-
fangið ungviði. Skýin mynda kast-
ala, hallir og borgir, og oft sést
gíll. Vilja þá veðurspámenn að úlf-
urinn sjáist líka.
Litrófinu á síðkvöldi verður
ekki með orðum lýst
Norðanáttin leggur líka báru-
hjúp á hafflötinn og kvöldsólin
kyssir hann einnig. Því er það að
sé t.d. gengið á síðkvöldi vestur
bakkana innan við Ólafsvík má sjá
á sjónum litróf sem ekki verður
með orðum lýst. Sólin er þá að
hverfa bakvið Vaðalfjöllin í
norðri.
Austast í firðinum verður sjór-
inn dimmblár en gyllist svo og
roðnar til vesturs.
Og hafi menn hitt á óska-
stundina sannfærast þeir um allt
hið gamalkveðna um roðagullinn
sæ, því þegar komið er vestast á
bakkana er engu líkara en að þar
kasti bárurnar blóði upp í sandinn.
Litadýrðin
ljómar í
Breiðafirði
Ferðamenn eru
frá sér numdir
Snæfellsjökull
hefur aðdráttarafl.