Morgunblaðið - 18.07.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Aukaafsláttur - Tilboð
ÚTSALA
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
FYRIR ELDRI BORGARA
Traust þjónusta í 30 ár
Gimli fasteignasala sími 570 4800 kynnir fyrir eldri borgara.
Vorum að fá í sölu sérlega vel staðsett og fallegt 80 fm parhús við Hjallasel í Reykja-
vík. Húsið er á einni hæð á skjólsælum stað við Seljahlíð í Breiðholti. Seljahlíð er
hjúkrunar- og þjónustuheimili fyrir aldraða. Nálægðin við Seljahlíð býður upp á ýmsa
þjónustumöguleika ásamt þátttöku í félagsstarfi sem þar er í boði.
NÁNARI LÝSING: Húsið er rúmgott tveggja herbergja með björtum sólskála. Inn-
gangur er yfirbyggður og þaðan er komið inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Inn-
af forstofu er rúmgóð geymsla. Í húsinu er stórt og rúmgott flísalagt baðherbergi
með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum
og góðu geymslurými fyrir ofan skápana. Eldhús með fallegri beyki innréttingu, hellu-
borði og veggofni. Björt og rúmgóð stofa með parketi, þar er útgengt í sólstofu þar
sem hægt er að opna út í fallegan og vel gróinn garð. Loft í stofu og herbergi eru við-
arklædd. Sér hellulagt bílastæði er við húsið. Útigeymsla. Hitabræðslukerfi í stétt.
Mjög fallegur garður í góðri rækt. Húsið er laust til afhendingar.
ALLAR NÁNARAI UPPL. Á SKRIFSTOFU GIMLI
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Viggó Sig.
löggiltur fasteignasali.
Erum með í sölu mikið úrval af
skrifstofuhúsnæði í öllum stærðum
og gerðum.
Áhugasamir hafi samband við Viggó eða
Bjarna á skrifstofu Akkurat að Stórhöfða 27.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Mynd frá InnX
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Mikið úrval af lóðum og jarðskikum í
ýmsum stærðarflokkum fyrir hestamenn á
Suðurlandinu.
Áhugasamir hafi samband við Viggó á
skrifstofu Akkurat að Stórhöfða 27.
Viggó Sig löggiltur fasteignasali 8245066
LÓÐIR OG LÖND FYRIR HESTAMENN
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Högum
hf.:
Í ljósi umræðu um verð á dagvöru
undanfarna daga er rétt að draga
fram mikilvægar staðreyndir um
þróun verðlags á dagvörumarkaði
undanfarin ár.
Helsta niðurstaðan er að verðlag á
dagvöru stóð nánast í stað á fimm
ára tímabili, frá febrúar 2002 til febr-
úar 2007. Verðlag er lægra í dag en
það var í febrúar árið 2002.
Þetta þýðir að í ljósi rúmlega 20%
hækkunar á vísitölu neysluverðs á
þessu tímabili hefur verðlag dagvöru
dregið verulega úr verðbólgu á
þessu tímabili.
Upplýsingar þessar eru fengnar á
vef Hagstofu Íslands. Þar sem veru-
leg breyting varð á skattlagningu
matvara þann 1. mars síðastliðinn
eru annars vegar teknar saman upp-
lýsingar um vísitölur frá febrúar árið
2002 til febrúar árið 2007, og hins
vegar frá febrúar árið 2002 til júlí
2007.
Vísitala neysluverðs hækkaði um
21,24% frá febrúar árið 2002 til febr-
úar árið 2007. Á sama tíma hækkaði
vísitala dagvöru um 2,70%. Tveir
stærstu kostnaðarliðir verslunarinn-
ar eru laun og húsnæðiskostnaður.
Launavísitalan hækkaði um 38,92%
á þessu tímabili og húsnæðisvísitalan
um 68,59%.
Í kjölfar skattalækkana ríkis-
stjórnarinnar á matvöru hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 23,59%
frá febrúar árið 2002 til júlí 2007. Á
sama tíma hefur vísitala dagvöru
lækkað um 3,55%. Húsnæðisvísital-
an hefur hækkað um 80,70%. Launa-
vísitalan hefur hækkað um 40,97% á
tímabilinu frá febrúar árið 2002 til
maí 2007, en ekki er nýrri launavísi-
tala á vef Hagstofunnar.
Launakostnaður og húsnæðis-
kostnaður eru gjarnan á bilinu 70-
80% af kostnaði við rekstur verslana.
Sá atvinnurógur sem dagvöru-
verslunin hefur ítrekað orðið fyrir
undanfarin ár á því ekki við nokkur
rök að styðjast.
Verðlag á dagvöru hef-
ur staðið í stað í 5 ár
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna frá 1997
Vísitala Vísitala Br.: feb. Vísitala Vísitala Br.: feb.
Feb. 2002 Feb. 2007 2002-2007 Maí 2007 Júlí 2007 2002 - 2007
Vísitala neysluverðs 123,8 150,1 21,24% -- 153 23,59%
þar af: dagvara 129,4 132,9 2,70% -- 124,8 -3,55%
Vísitala launa 224,8 312,3 38,92% 316,9 -- 40,97%
1 Búvörur án grænmetis 123,9 137,5 10,98% -- -- --
2 Grænmeti 132,2 108,2 -18,15% -- -- --
3 Aðrar innl. mat- og drykkjarvörur 133,2 145,3 9,08% -- -- --
4 Aðrar innl. vörur 122,1 136,6 11,88% -- -- --
5 Innfluttar mat- og drykkjarvörur 135,8 127,5 -6,11% -- -- --
9 Áfengi og tóbak 134,5 161,4 20,00% -- -- --
10 Húsnæði 148,7 250,7 68,59% -- 268,7 80,70%
11 Opinber þjónusta 118,7 152,3 28,31% -- -- --
Gögn þessi eru sótt af vef Hagstofu Íslands 16. júlí 2007.
ÞAU Svava Rúna Björgvinsdóttir og
afi hennar, Guðjón Pétursson,
horfðu björtum augum til hafs þegar
ljósmyndara Morgunblaðsins bar að
garði í gær. Þau leystu bátinn Pétur
frá bryggju á Akranesi, stímdu
ótrauð til hafs og hafa eflaust vonast
til þess að krækja í eitthvað í soðið í
leiðangrinum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Fyrir stafni
eru haf og
himinninn
KARLMAÐUR á þrítugsaldri var
fluttur á slysadeild eftir óhapp á svo-
kölluðu trampólíni. Maðurinn fékk
slæma byltu og skurð í andlit og lá í
yfirliði skamma stund.
Ungt fólk var að skemmta sér í út-
hverfi höfuðborgarsvæðisins árla
morguns og var áfengi haft um hönd.
Svo virðist sem einhver í sam-
kvæminu hafi fengið þá hugmynd að
spreyta sig á trampólíni en það getur
verið varasamt ef ekki eru öll skiln-
ingarvit í lagi.
Á slysadeild
eftir trampólín