Morgunblaðið - 18.07.2007, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hann hefur ekki svo mikið sem hnusað af okkur síðan við fórum að taka þennan hvítlauks-
fjanda, Skjalda mín. Við verðum bara að hafa það eins og forsætisráðherra, fá okkur eitt-
hvað sem gerir sama gagn.
VEÐUR
Ríkissjónvarpið skýrði frá því ígærkvöldi að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra hefði
rætt við Shimon Peres, hinn nýja
forseta Ísraels, í gær. Gert hefði
verið ráð fyrir að samtal þeirra
mundi standa í 20 mínútur en það
hefði staðið í klukkutíma.
Þetta er ánægjulegt og traust-vekjandi. Það kemur stöku
sinnum fyrir að íslenzkir ráðamenn
eigi lengri viðræður við erlenda
ráðamenn en til hefur staðið skv.
dagskrá.
Þetta kemurlíka stundum
fyrir þegar for-
seti vor á fundi
með leiðtogum
annarra þjóða.
Það er gottþegar frétta-
menn halda þessum litlu stað-
reyndum til haga.
Þær benda til þess að það sékannski rangt, sem Morg-
unblaðið hefur haldið fram, að slík-
ar viðræður þjóni takmörkuðum til-
gangi vegna þess að við erum
fámenn þjóð og smá og skiptum
litlu máli í alþjóðlegu samhengi.
Þegar samtöl lengjast með þess-um hætti er það vísbending um
að leiðtogar okkar hafi ýmislegt
fram að færa sem hinir erlendu
ráðamenn vilji gjarnan hlusta á.
Slíkt eykur að sjálfsögðu sjálfs-
traust okkar sem þjóðar.
Leiðtogar Ísraels eiga góðarminningar um heimsóknir sínar
hingað.
Þeim hefur að vísu stundum veriðilla tekið af forystumönnum
vinstrimanna, sem hafa jafnvel ekki
viljað við þá tala, en það er allt
gleymt og grafið.
STAKSTEINAR
Shimon Peres
Traustvekjandi
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
:
*$;<
!
"
*!
$$; *!
"#
$
%
#
%
& '%( '
=2
=! =2
=! =2
"&%$ ) !*+ ',
2>
/
- %'
$, . /
#$
/'
0'
% '1
2 1
=7
- %'
$' #
! # #
' !'3
. , #
1
2 , .
1
=
"' /%*# 3
! #
(!3
$ #
, #
12
3
4' ' !1
5. '66 '% 7
' ') !
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
1 3
3
1 1
1 1
1
1
1
1
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Brissó B. Johannsson | 15. júlí
Glæpasaga um kjarl
og kéllingu í koti sjínu
Bjórinn rann í lítravís
niður kok hennar vet-
urna 1999-2003. Einn
taumur lak iðulega nið-
ur hökuna, niður háls-
inn og á milli brjóst-
anna sem voru eins og
tvær helíum-blöðrur sem umlukust
utan um skraut á síðri keðju sem
hékk ekki heldur hvíldi á milli bobb-
ingana. „Ég er bara eitthvað svona
skraut og hvíli mig hérna á kaa-
aaantinum, sjáðu brjóstin sem ég
ligg á! ligga ligga lá!“
Meira: brisso.blog.is
Marta B. Helgadóttir | 17. júlí
Fjalla-Bensi
Öræfasögur hafa alltaf
yfir sér einhvern æv-
intýrablæ finnst mér:
Fjalla-Bensi var
þjóðsagnapersóna úr
Mývatnssveitinni.
Hann var smali og
lenti í aftakaveðri inni á Mývatns-
öræfum. Hann brá á það ráð að
koma fénu fyrir í gjótu en þessi
gjóta er skammt frá þjóðveginum.
Þarna hírðist hann með öllum kind-
unum í ca tvær vikur og var talinn
af. Leit hafði verið hætt og öll von
úti héldu menn.
Meira: martasmarta.blog.is
Bjarni Harðarson | 16. júlí
Hátíðisdagur með
Tungnamönnum
Við Skúli mágur minn
áttum hátíðisdag í gær
þar sem við fórum um
Tungurnar og tókum
hús á gömlum Tungna-
mönnum og skráðum
minningar þeirra um
gamla daga inn á upptökutæki. Betri
geta sunnudagar ekki orðið.
Komum fyrst að Miðhúsum til
Sighvats Arnórssonar. Hann er
Þingeyingur en þó allra Tungna-
manna hógværastur. Víðlesinn og
vel menntaður bóndi sem unun er að
hlusta á segja frá liðnum dögum,
bæði norðan og sunnan heiða. Eftir
kaffiveitingar hjá Geirþrúði dóttur
hans lá leiðin til Halldórs Þórð-
arsonar á Litla-Fljóti sem ég sann-
færðist enn og aftur um í gær að er
mestur sagnasjóður núlifandi
Tungnamanna. Halldór man glöggt
munnmælasagnir af fjölmörgum 19.
aldar Tungnamönnum
Meira: bjarnihardar.blog.is
Guðríður Haraldsdóttir | 17. júlí
Tækjatröll inn
við beinið
Smá sólarleysi er vel
þegið eftir síðustu vik-
urnar, allavega þegar
setið er við suð-
urglugga og unnið, ég
segi nú ekki annað. Ég
sit með latte og er að
ljúka við djúsí lífsreynslusögu. Er
orðin það klár í að búa mér til latte
að ég þurfti ekkert að kíkja á leið-
beiningarnar. Þetta er frekar flókið
ferli. Ýtt á ýmsa takka, skrúfað frá
frussi, gufu hleypt út með látum og
alls kyns svoleiðis. Æ, þetta er
kannski ekkert svo flókið þegar
maður er búin að læra þetta.
Hræðslan við að hávær, hvæsandi
vélin springi hefur líklega þessi
áhrif.
Ég man þegar ég stillti einu sinni
vídeótæki fyrir Hildu. Gat valið um
leiðbeiningar á úrdú, finnsku eða
serbó-króatísku, minnir mig. Það
þurfti að ýta á suma takkana saman,
standa jafnvel á öðrum fæti og
góla … og þetta tókst fyrir rest og
Hilda hafði aldrei átt jafnvel stillt
vídeótæki.
Ég er búin að komast að því að ég
á ekki mjög heimaríka ketti. Tommi
og Kubbur ganga varkárir um
himnaríki, þó hættir að vera í felum,
og gestakötturinn er hnarreistur og
urrar bara ef einhver er með kjaft!
Það eru engin slagsmál og læti en
sjokkerandi feluleikur Bjarts fer illa
með taugakerfi mitt, ég held alltaf
að hann hafi hoppað út um glugga ef
ég finn hann ekki strax.
Ég passaði nefnilega einu sinni
kött þegar ég bjó á Hringbrautinni
og hann hoppaði (eða datt) niður í
snjóskaflana af annarri hæð. Fyrr-
verandi samstarfskona mín býr hin-
um megin við Hringbrautina og
hafði tekið eftir þessum ketti fara
yfir þessa umferðargötu, sikksakka
til skiptis, og var orðin frekar
stressuð.
Tveimur dögum seinna náði hún
honum og kom til mín, ég hafði vit-
anlega auglýst eftir honum í Morg-
unblaðinu. Það urðu miklir fagn-
aðarfundir með þeim Tomma. Þeir
urðu perluvinir og leikfélagar stuttu
eftir að hann kom í pössunina.
Skömmu seinna flutti Högni til Dan-
merkur og hefur það víst ótrúlega
gott þar. Eigendurnir fengu ekkert
að vita fyrr en eftir að hann var
fundinn, þeir voru í útlöndum og
fréttu ekkert.
Ég horfði loksins á Hugh Grant-
myndina í gær og hún var ósköp
sæt. Stefni að því að sjá Apocalypto
í kvöld, það mæla allir með henni.
P.s. Væri ekki bara svolítið flott ef
Valsmenn tækju Landsbankadeild-
ina? Ég veit að það yrði mikil ham-
ingja í Efstasundinu … sei nó mor.
Meira: gurrihar.blog.is
BLOG.IS