Morgunblaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 11
FRÉTTIR
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
ÍSLENSKIR sem erlendir ferða-
menn hafa flykkst upp á hálendið í
sumar og notast þá ýmist við bíla,
hjól, hesta eða tvo jafnfljóta til að
bera sig út úr mannabyggðum. Um-
ferð á hálendisvegum hefur verið
stöðug og vaxandi með hverri vik-
unni og skálaverðir á stærstu áning-
arstöðum sammála um að fjölgun
hafi orðið frá því í fyrrasumar.
Landmannalaugar eru eitt fjöl-
farnasta svæði á hálendinu og áætlar
Ferðafélag Íslands að á meðalsumri
fari á bilinu 80-100 þúsund manns
þar um. Í sumar gæti stefnt í metár á
hálendinu, enda júlímánuður anna-
samasti ferðatími frá upphafi á Ís-
landi og ekki ástæða til að ætla ann-
að en að sá fjöldi rati inn til fjalla í
veðurblíðunni. Sólrún Jónsdóttir,
skálavörður í Landmannalaugum,
segist finna fyrir því að umferðin
hafi fyrr byrjað að þyngjast nú í
sumar en oft áður og fólksfjöldinn sé
í samræmi við það.
Erfitt að slíta sig frá fjöllunum
„Fólk kemur mjög mikið hingað á
eigin vegum og svo koma rúturnar
úr Reykjavík og Skaftafelli alveg
pakkaðar. Skálinn er búinn að vera
fullur dag eftir dag og tjaldstæðin
líka vel þétt,“ segir Sólrún. Tjald-
stæðin við Landmannalaugar eru
þekkt fyrir að vera í harðari kant-
inum og ekki óalgengt að bera þurfi
grjót á tjöldin. Sannir fjallagarpar
láta það þó ekki stöðva sig og segir
Sólrún algengt að fólk dvelji lengur
en það hafi ætlað í upphafi. „Fólk
bætir oft við gistinóttum og langar
ekkert til þess að fara, ákveður að
bæta við einni nótt enn og svo einni
enn.“
Landmannalaugar eru nokkuð að-
gengilegar fyrir bíla og þótt ferða-
langar megi eiga von á vænum hrist-
ingi á hinum víðfrægu
„þvottabrettum“, þá eru það ekki
jeppaeigendur einir sem eiga vísan
aðgang að þessari náttúruperlu, ef
færðin er góð. Sólrún segir mikið um
að fólk komi á bæði fólksbílum og
húsbílum, en það sem skálavörðum
bregður mest við að sjá er hversu
margir útlendingar koma á litlum
bílaleigubílum.
„Það gæti verið að þau geri sér
ekki alveg grein fyrir að bílaleigubíl-
arnir mega ekki koma hingað upp-
eftir,“ segir Sólrún.
Týnast í hraunbreiðunum
Þrátt fyrir mannfjöldann þvertek-
ur Sólrún fyrir að óbyggðastemning-
in tapist, enda sé svæðið stórt og
auðvelt að láta sig hverfa inn í auðn-
ina. „Fólk fer í göngur, týnist inn um
hraunið og dalina í kring. Maður sér
á bílastæðinu að allt er fullt, en verð-
ur samt ekki var við fjöldann.“
Sömu sögu segir Arna Björg Arn-
arsdóttir, skálavörður við Drekagil á
Öskjusvæðinu. Aðstaðan á svæðinu
hefur verið byggð mikið upp á und-
anförnum árum og ferðamanna-
straumurinn aukist eftir því. Arna
Björg segir allt að 100 bíla fara um
svæðið á dag og skálarnir séu alltaf
fullir, en náttúran hreinlega gleypi
fólksfjöldann. „Þetta er alveg ótrú-
legt svæði. Bílastæðið við Vikra-
borgir er til dæmis alltaf pakkað af
bílum en svo spyr maður sig hvar allt
þetta fólk sé eiginlega, því það dreif-
ist bara um allt.“
Fjallaþráin að aukast
Rúmur helmingur þeirra sem
ferðast um hálendið á sumrin er út-
lendingar og sækja Þjóðverjar og
Frakkar allra þjóða mest í heilnæma
heiðloftið tæra. Þó hafa skálaverðir
orðir varir við að meira sé af Íslend-
ingum en vanalega og þeim sé að
fjölga á tjaldstæðunum. „Íslending-
ar virðast vera að taka meira við
sér,“ segir Arna Björg. „Mér finnst
þeir líka vera að skoða landið betur
en áður, sem er mjög gaman að sjá.“
Ragnar Sigurðsson, skálavörður í
Laugafelli við Hofsjökul, segir ferða-
menn á svæðinu koma alls staðar að
og gistinóttum hafi fjölgað, ekki síst í
tjaldi, en það séu aðallega útlending-
ar sem gisti. Íslendingar rúnti gjarn-
an uppeftir til að fara í laugina, þar
sem er oft mikil stemning, en þeir
stoppi síður næturlangt. Gistinóttum
hefur samt almennt fjölgað að sögn
Ragnars. Frá 1. júlí hafi 730 ferða-
menn komið í Laugafell, en það er
um 20-30% aukning frá því í fyrra-
sumar. „Við náum alltaf að hliðra til
svo það er enginn ofan í neinum,“
segir Sigurður. „Fólk er almennt
mjög ánægt með aðstöðuna hérna,
sérstaklega göngu- og hestafólk því
við erum með upphitað klósett
hérna. Það tala sumir um að þetta sé
eins og fjögurra stjörnu hótel, bara
út af þessu upphitaða klósetti.“
Ferðamenn til fyrirmyndar
Skálaverðir bera ferðafólkinu vel
söguna og segja umgengni almennt
með ágætum. Lítið sé um rusl og fólk
almennt opið fyrir leiðbeiningum um
rétta umgengni við náttúruna. Eitt-
hvað hefur þó borið á utanvegaakstri
og eru það einkum erlendir ferða-
menn sem verða uppvísir að því í
kringum hálendisskálana. Ragnar
segir það þó skrifast á Íslendinga,
því betra upplýsingaflæði vanti um
akstur á hálendisvegum. „Fólk áttar
sig ekki alveg á þessu, það heldur að
það sé allt í lagi að keyra þar sem það
keyrir því það veit ekki betur.“
Ferðir um hálendið krefjast alltaf
nokkurrar varúðar, en þrátt fyrir
þunga umferð hefur lítið verið um að
bílar lendi í ógöngum. Enda eru
ferðamenn í skýjunum með hálendið
og segir Sólrún að veðrið leiki þar
líka stórt hlutverk. „Það er bara
stanslaus blíða. Við erum alveg orð-
laus.“
Mikil umferð ferðamanna er nú
um hálendið og stefnir í metár
Morgunblaðið/RAX
Skálar og tjaldsvæði eru full nánast allar nætur Skálaverðir segja hálendið bera fjöldann vel
Í HNOTSKURN
»Búist er við að um 40 þúsunderlendir ferðamenn komi til
Íslands um miðjan júlí, en það
eru þeir sem helst gista hálendið
á sumrin.
»Skálaverðir telja að umferðum hálendið sé núna í há-
marki. Áætlað er að um 15 þús-
und manns hafi lagt leið sína í
Landmannalaugar undanfarna
viku.
»Á hálendinu má finna margafjallaskála þar sem eru um-
sjónarmenn á sumrin.
»Fyrsta sæluhúsið var reist íHvítárnesi árið 1930, en
Ferðafélagið og Útivist starf-
rækja nú samtals skála á 40 stöð-
um víðsvegar um landið.
Mikilfenglegt Í Landmannalaugum eru fjöllin blá og mennirnir smáir. Bláhnúkur er langvinsælasta göngufjallið
á svæðinu, þar sem úir og grúir af spennandi gönguleiðum eins og víðast hvar á hálendi Íslands.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
GRUNUR leikur á að erlendur
starfsmaður við Kárahnjúka sé hald-
inn hermannaveiki. Talið er líklegt
að hann hafi smitast í útlöndum og
að um einangrað tilvik sé að ræða.
Hann dvelur nú á Landspítalanum,
en ekki fengust upplýsingar um líðan
hans þar.
Að sögn Sigurðar Arnalds, upplýs-
ingafulltrúa Kárahnjúkavirkjunar,
er maðurinn sænskur verkfræðingur
hjá framkvæmdaeftirliti Landsvirkj-
unar við Kárahnjúkavirkjun. Segir
hann manninn hafa komið til lands-
ins frá Svíþjóð um síðustu mánaða-
mót og veikst skömmu síðar. Hann
var í síðustu viku fluttur á Landspít-
alann til aðhlynningar.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Haraldur Briem, sóttvarnalæknir
hjá landlæknisembættinu, allar líkur
á því að um einstakt tilfelli sé að
ræða. Segir hann engar fréttir hafa
borist af öðrum tilfellum sem tengist
manninum. Bendir hann á að her-
mannaveiki smitist ekki manna á
milli, heldur smitist bakterían, sem
nefnist legionella pneumophila, þeg-
ar svifúði myndist frá vatnsleiðslum
eða vatnstönkum. Slík svifúðamynd-
un eigi sér oftast stað út frá loftkæl-
ingum og kæliturnum sem ætlaðir
séu til kælingar í stóru iðnaðarhús-
næði, hótelum og verslunarmið-
stöðvum.
Bíða niðurstöðu rannsókna
Haraldur segir hermannaveiki
vera tilkynningaskyldan sjúkdóm og
að Ísland taki sökum þessa þátt í
samstarfi við Evrópusambandið um
að greina smitstaði til að koma í veg
fyrir frekari útbreiðslu bakteríunn-
ar. Tekur hann fram að enn sé verið
að bíða niðurstaðna rannsókna til
þess að fá það staðfest að um her-
mannaveiki sé að ræða hjá mannin-
um. Reynist svo vera muni sóttvarn-
arlæknir hafa samband við
samstarfsaðila sína í Svíþjóð til þess
að reyna að komast að því hvar mað-
urinn smitaðist af bakteríunni.
Aðspurður segir Haraldur her-
mannaveiki afar sjaldgæfa hérlend-
is, en árlega greinist um 2-3 tilfelli.
Meðgöngutími veikinnar er 2-10
dagar. Aðspurður segir Haraldur
fullfríska unga einstaklinga geta
fengið bakteríuna í öndunarveg án
þess að veikjast. Segir hann þá sem
veikjast illa af hermannaveiki vera
fólk sem er veikt fyrir. Samkvæmt
upplýsingum blaðamanns var heilsu-
far mannsins ekki gott áður en hann
veiktist og því hefur hann verið við-
kvæmari fyrir bakteríunni en ella.
Líklegt að tilfelli her-
mannaveiki sé einstakt
BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins,
Sniglar, efna til „keyrslu“ í dag, mið-
vikudag. Allir eru boðnir velkomnir
til þátttöku, bæði bílar og bifhjól, að
því er fram kemur í frétt frá samtök-
unum.
Tilgangur keyrslunnar er sagður
að sýna fram á að bifhjól og bifreiðir
eiga samleið í umferðinni og minna á
að tillitssemi á milli manna er lykill
að öruggri umferð. Ökumenn bif-
hjóla séu flestir einnig ökumenn bif-
reiða sem sýni það að þessir tveir
hópar eiga margt sameiginlegt.
„Keyrslunni er einnig ætlað að
minna okkur á þá ábyrgð sem við
tökumst á hendur þegar við setjumst
upp á hjólið eða undir stýrið á bif-
reið. Við verðum að vera vel vakandi,
nota öryggisbeltin og aka eftir að-
stæðum,“ segir þar einnig.
Farið verður frá planinu á Ken-
tucky Fried Chicken í Mosfellssveit
kl. 18.30 og ekið inn að Gljúfrasteini.
Þar verður snúið við og ekið inn í
Mosfellssveit.
Í fréttinni segir í lokin að vonandi
sjái sem flestir sér fært að mæta og
til að minna á notkun öryggisbelt-
anna verði ökumenn bifreiða að sjálf-
sögðu með sín belti spennt en bif-
hjólamenn geti sýnt sinn vilja í verki
með að spenna um sig hvítan borða
sem liggur þvert yfir bringuna eins
og bílbelti.
Sniglarnir efna
til hópaksturs
Morgunblaðið/Sverrir