Morgunblaðið - 18.07.2007, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
KÍNVERSKUR maður var í gær
dæmdur til dauða og 28 voru
dæmdir í fangelsi þegar dómstólar
fjölluðu um fyrsta hluta þræla-
haldsmálsins sem kom upp í síðasta
mánuði. Margir mótmæltu því að
ekki skyldu falla fleiri dauðadómar.
Þrælahaldarar
ÍTÖLSK heilbrigðisyfirvöld hafa
farið fram á að fyrirtæki slaki á
kröfum um klæðaburð, svo að
minnka megi notkun loftkælinga.
Þau fullyrða að líkamshiti lækki um
tvær til þrjár gráður um leið og los-
að er um bindishnút. Hitabylgja er
yfirstandandi á Ítalíu.
Ódýr kæling
NOKKRIR meðlimir lávarðadeild-
arinnar í Bretlandi hafa orðið upp-
vísir að skiptum á aðgangspassa að
þinginu og peningum. Passana
leigja þeir til fulltrúa þrýstihópa
sem fá þá aðgang að þingmönnum.
Spilltir lávarðar
Peking. AP. | Eyðimerkurmyndun
hefur verið alvarlegt vandamál í
Kína um árabil og hafa ráðamenn
þar sagt að jarðvegseyðing sé
versta umhverfisvandamál sem
steðji að landinu. Sl. áratug hafa
Kínverjar unnið hörðum höndum
að því að stemma stigu við landfok-
inu og virðast vera að ná árangri.
Síðustu fimm ár hafa eyðimerk-
urnar skroppið saman um u.þ.b
1.200 ferkílómetra ár hvert, ef
marka má gervihnattamyndir.
Þúsundir hektara hafa verið
markvisst græddir upp á liðnu ári
til að stoppa útbreiðslu eyðimarka í
Norður- og Vestur-Kína.
Frá árinu 1981 hefur 49,2 millj-
örðum trjáa verið plantað í Kína.
Markmið stjórnvalda er að árið
2020 verði 26% landsins skógi vax-
in, að sögn Jia Zhibang, formanns
kínverska skógræktarráðsins.
Kínverjar ná tök-
um á uppblæstri
AP
Stingandi strá Auðn á undanhaldi
Tókíó. AFP, AP. |
Yfirvöld í Japan
rannsökuðu í gær
mögulega meng-
unarhættu í
kjarnorkuverinu
Kashiwazaki-
Kariwa vegna
jarðskjálfta síð-
astliðinn mánu-
dag sem mældist
6,8 á Richter.
Þar ultu um koll 100 innsiglaðar
tunnur fullar af geislamenguðum
fötum og hönskum en kjarnorku-
verið er sagt vera eitt hið stærsta í
heimi. Stjórnendur kjarnorkuvers-
ins viðurkenndu á mánudag að vatn
með „örlitlu“ af geislavirku efni
hefði lekið út í Japanshaf en fullyrtu
að magnið væri langt undir leyfileg-
um mörkum og engin hætta stafaði
af því.
Eldur kviknaði einnig í kjarn-
orkuverinu eftir skjálftann og lagði
svartan reyk frá verinu í nokkra
klukkutíma. Shinzo Abe, forsætis-
ráðherra Japans, ávítti stjórnendur
versins og sagði skýrslur þeirra til
yfirvalda koma of seint. Hann sagði
blaðamönnum að hann vildi að fyrir-
tækið fyndi fyrir ábyrgð.
Íbúar þorpsins Kariwa við verið
segjast vera mjög áhyggjufullir
vegna kjarnorkuversins og segja
forsvarsmenn þess hafa gefið út
ósannar yfirlýsingar um leka geisla-
virkra efna áður.
Níu manns dóu í skjálftanum, yfir
1.000 manns slösuðust en 47 slösuð-
ust alvarlega. Um 13.000 manns hafa
leitað hælis í kjölfar skjálftans en
um 50.000 heimili eru vatnslaus.
Mengunar-
hætta eftir
skjálfta
Shinzo Abe
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MARGT bendir til að deila Breta og
Rússa um framsal meints morðingja
fyrrverandi rússnesks njósnara,
Alexanders Lítvínenko, sé komin í
slæman hnút. Rússar neita að fram-
selja Andrei Lúgóvoi, sem breska
lögreglan telur að hafi eitrað fyrir
Lítvínenkó í London í nóvember.
Utanríkisráðherra Bretlands, David
Miliband, ákvað í fyrradag að láta
reka úr landi fjóra rússneska dipló-
mata og Rússar segja að gripið verði
til „viðeigandi“ gagnráðstafana en
þeim samt frestað um sinn.
Deilan er farin að minna á pólitísk
átök vesturveldanna og Sovétríkj-
anna gömlu í kalda stríðinu og ljóst
er að hún getur stefnt í voða tilraun-
um Bandaríkjamanna til að bæta
samskiptin við Rússland sem hafa
kólnað mjög síðustu árin eftir þíðuna
í kjölfar hruns Sovétríkjanna 1991.
Fyrir nokkrum dögum hættu Rússar
þátttöku í samningi við Atlantshafs-
bandalagið um takmörkun vígbúnað-
ar í Evrópu, CFE-samningnum.
Ennfremur hafa Evrópuríkin og
Rússland deilt um orkumál og ekki
má gleyma að Rússar gegna lykil-
hlutverki í tilraunum alþjóðasam-
félagsins til að fá Írana til að hætta
tilraunum sem margir telja að hafi
að markmiði að smíða kjarnavopn.
Deilan um Lítvínenko-morðið getur
því haft afdrifaríkar afleiðingar.
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, segir Rússa hafa neitað
öllu samstarfi í málinu og því hafi
verið gripið til þessara harkalegu að-
gerða. Brown þykir hafa staðið sig
vel í málinu, breskir fjölmiðlar styðja
yfirleitt aðgerðir stjórnar hans.
Hann segir ekki hægt að una því að
stjórnvöld í Moskvu komi í veg fyrir
að réttað verði yfir manni sem rök-
studdur grunur sé um að hafi framið
morð í London. Lítvínenko var harð-
ur andstæðingur Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta og hafa lengi verið
á kreiki sögusagnir um að menn Pút-
íns hafi staðið á bak við morðið.
Rússar hóta aðgerðum gegn Bretum vegna brottvísunar
Minnir
á kalda
stríðið
AP
Óbreytt Merki Sovétríkjanna gömlu, með hamri og sigð, skreytir enn aðal-
stöðvar utanríkisráðuneytis Rússlands í Moskvu.
Í HNOTSKURN
»Ráðamenn í Moskvu segjaað stjórnarskráin banni
framsal borgara landsins til
dómstóla erlendis, því verði að
rannsaka mál Lúgovois þar í
landi. En Bretar benda á und-
antekningarákvæði al-
þjóðlegra samninga sem Rúss-
ar hafa gert um slík mál.
FIMM búlgarskir hjúkrunarfræð-
ingar og palestínskur læknir, sem
dæmd höfðu verið til dauða í Líbýu
fyrir að smita á fimmta hundrað
barna af HIV-veirunni, halda lífi, að
sögn breska útvarpsins, BBC. Sér-
stakt dómstólaráð Líbýu breytti í
gær dómunum í lífstíðarfangelsi.
Fólkið hefur verið í haldi í átta ár en
það hefur ávallt neitað sök. Segist
það hafa verið pyntað til að játa.
Fjölskyldur barnanna létu af kröfum
um dauðarefsingu yfir fólkinu eftir
að þeim voru greiddar bætur.
Hæstiréttur Líbýu staðfesti
dauðadóminn yfir fólkinu í liðinni
viku og hefur málið síðan verið í
höndum dómsmálaráðs landsins sem
hefur vald til að milda dóma og náða
fanga. Samkvæmt íslömskum lögum
má náða fanga fallist fjölskyldur
fórnarlamba þeirra á greiðslu svo-
kallaðra blóðpeninga. Bæturnar
koma úr sérstökum sjóði og nema
sem svarar um 60 milljónum króna á
barn. Eru það allmörg Evrópuríki og
Líbýustjórn sem leggja fram fé í
sjóðinn.
Stjórnvöld í Búlgaríu og mörgum
vestrænum ríkjum beittu sér í mál-
inu og báðu áttmenningunum griða
en erlendir sérfræðingar telja líkleg-
ast að börnin hafi þegar verið sýkt er
hjúkrunarfræðingarnir og læknirinn
fengu þau í hendur. Málið er afar
viðkvæmt þar sem Líbýumenn vilja
ekki viðurkenna að sóðaskapur og
gallar í heilbrigðiskerfinu séu raun-
verulegi sökudólgurinn.
Ivailo Kalfin, utanríkisráðherra
Búlgaríu, sagði áður en lokaniður-
staða fékkst að Búlgarar væru reiðu-
búnir að afskrifa hluta af skuldum
Líbýu. Þær nema um 290 milljónum
evra, liðlega 23 milljörðum króna.
Sleppa við dauðadóm
Moskvu. AP. | Um 800 manns hafa ver-
ið fluttir á brott úr heimaþorpum
sínum í grennd við Lvív í Úkraínu,
flestir að eigin ósk og 14 voru fluttir
á spítala eftir að lest á leið frá Kha-
sakstan til Póllands fór út af sporinu
og eldur kviknaði í 15 vögnum. Vagn-
arnir voru fullir af gulum fosfór en
hann er mjög eldfimur og leggur af
honum eiturgufur við bruna. Fjórir
af þeim sem slösuðust unnu við
björgunaraðgerðir á staðnum og
slasaðist einn af þeim alvarlega.
Oleksandr Kúzmúk, aðstoðarfor-
sætisráðherra Úkraínu, líkti slysinu
við hið fræga Tsjernóbýlslys 1986 en
þá varð sprenging í kjarnakljúf í
Tsjernóbýl. Eru menn enn að glíma
við afleiðingar þess en geislavirkni
eftir slysið hefur valdið þúsundum
manna líkamstjóni. Hann sagði stór-
slys hafa orðið og það gæti haft al-
varlegar afleiðingar sem ekki væri
hægt að sjá fyrir endann á.
Skýið þekur um 90 ferkílómetra
svæði fyrir ofan 14 þorp um 70 kíló-
metra frá bænum Lvív en þeim sem
eftir eru á svæðinu hefur verið ráð-
lagt að halda sig innan dyra og forð-
ast að borða grænmeti og kjöt fram-
leitt á svæðinu á næstunni. Um
11.000 manns búa á þessu svæði en í
Lvív eru um 800.000 íbúar og þar
reynir fólk að halda börnum sínum
innandyra samkvæmt heimildum frá
fréttamanni AFP.
Áður höfðu yfirvöld skýrt frá því
að fjórir hefðu slasast þegar 15 tank-
bílar hefðu oltið síðastliðinn mánu-
dag en í ljós kom að það voru lestar-
vagnar en ekki tankbílar.
Líkt við
Tsjernó-
býlslysið
Lest með eiturefni
fór af sporinu
♦♦♦
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
O
R
K
3
81
51
0
7
/0
7