Morgunblaðið - 18.07.2007, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
SÍÐASTA húsið á Látrum á Látra-
strönd var rifið árið 1942. Í kjölfarið
var björgunarskýli byggt á grunn-
inum og stóð í ein 60 ár, þar til það
var rifið í byrjun mánaðarins. Nú
tekur við nýtt hús og ný saga.
„Skýlið var lítið og þröngt og orð-
ið dálítið lélegt,“ segir Björn Ing-
ólfsson stjórnarmaður í ferðafélag-
inu Fjörðungi. „Það hefði ekki
borgað sig að gera við það.“
Skýlið sem stóð var björgunar-
skýli fyrir skipbrotsmenn en tæknin
hefur leyst hlutverk þess af hendi.
„Nú er hægt að láta vita af sér um
leið og eitthvað gerist. Menn vita
strax ef skip strandar,“ segir Björn.
Fjörðungur gengur í
endurnýjun lífdaga
Þar sem hvorki hreppurinn né
björgunarsveitin vildu nokkuð með
skýlið hafa, ákvað Ferðafélagið
Fjörðungur að taka að sér skýlið við
Látur, ásamt öðrum tveimur við
Þönglabakka og í Keflavík sem fóru
með sama hlutverk. Félagið hefur að
sögn Björns verið lítið virkt undan-
farin ár, en það hefur nú verið lífgað
við og mun sjá um að halda við og
endurnýja umrædd skýli.
Með styrk m.a. frá Pokasjóði í far-
teskinu festi félagið kaup á bjálka-
húsi frá Finnlandi sem sómir sér vel
á nýja staðnum, enda mjög svipað í
laginu og íbúðarhúsið sem rifið var
árið 1942. Verkið tók skamman tíma,
aðeins um fjóra daga, en húsið kom í
búntum sem síðan voru sett saman:
„Þetta gekk mjög greiðlega. Það
voru 36 manns sem skiluðu yfir 900
vinnustundum í sjálfboðavinnu, sem
er merki um hvað samtakamáttur-
inn getur verið öflugur. Við fengum
meðal annars aðstoð frá Sæfara,
Hríseyjarferjunni, og TF-Sif aðstoð-
aði við að koma búntunum á land.“
Að sögn Björns er mikið gengið að
Látrum og öðrum eyðibýlum í
Fjörðum, sérstaklega á sumrin. Fé-
lagið Fjörðungar ehf. býður upp á
ferðir þangað, sem hafa verið fjöl-
sóttar, en Björn er leiðsögumaður í
þeim:
„Þetta er nokkuð fjölfarin leið fyr-
ir ferðamenn, gönguhópa og jafnvel
einstaklinga. Nýja húsið verður öll-
um opið sem þangað koma, og þar að
auki nauðsynlegt afdrep fyrir
gangnamenn á haustin.“
Rifu hús og reistu
nýtt á fjórum dögum
Ljósmynd/Björn Ingólfsson
Mikið verk 36 manns tóku þátt í verkinu og unnu í sjálfboðavinnu yfir 900
vinnustundir. Húsið er finnskt bjálkahús og passar vel á gamla grunninn.
Fjörðungur reisir
hús á Látrum
Í HNOTSKURN
»Látur á Látraströnd erfornt höfuðból og hét áður
Hvallátur. Þar var verstöð en
fór í eyði árið 1942.
»Einn frægasti ábúandi þarvar skáldkonan Látra-
Björg.
»Eftir að bærinn fór í eyðivar þar skýli í 60 ár, en nú
er þar risið nýtt hús, sem er
opið öllum ferðamönnum.
Ljósmynd/Björn Ingólfsson
Látur Útsýnið frá nýja húsinu sem risið er á Látrum er engu líkt.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
UNGLINGAR í Vinnuskóla Reykja-
víkur hafa ýmislegt til málanna að
leggja og ein af hugmyndum þeirra
til að bæta þjónustu strætó er að
vera með hraðbanka í vögnunum.
Þetta kom fram á fyrstu ráðstefnu
skólans sem fór fram á Hótel Nor-
dica í gær og fyrradag. Tinna Otte-
sen fræðsluleiðbeinandi segir að
ráðstefnan hafi gengið mjög vel. 400
unglingar, elstu nemendur vinnu-
skólans, hafi hlýtt á fyrirlestra fyrir
hádegi og unnið verkefni í vinnustof-
um eftir hádegi. Unglingunum var
skipt í tvo 200 manna hópa og
mættu þeir hvor sinn daginn.
Í heimi fullorðinna
Tinna segir að hugmyndin hafi
verið að kynna krökkum, sem hafa
lokið 10. bekk, heim fullorðinna.
Krakkarnir hafi sett sig í spor
þeirra eldri og tekið þátt í ráðstefnu
á hóteli. Sömu kröfur hafi verið
gerðar til þeirra og fullorðinna ráð-
stefnugesta og þeir hafi axlað þær
kröfur ágætlega. „Tilgangurinn var
að reyna að láta krakkana átta sig á
því hvað þeir geta haft mikil áhrif á
samfélagið ef þeir vilja,“ segir
Tinna. Hún bætir við að allar vinnu-
stöðvarnar hafi gengið út á að
krakkarnir tækju ákvarðanir og
hefðu skoðanir á ýmsum málefnum
samfélagsins í gegnum til dæmis
greinarskrif, myndvinnslu og plak-
atagerð.
Með ráðstefnunni var ætlunin að
hvetja unglingana til gagnrýninnar
hugsunar, sjálfstæðra vinnubragða
og kynna fyrir þeim vinnumarkað-
inn og almennt vinnusiðferði. Að
sögn Tinnu kunnu krakkarnir mjög
vel að meta hvernig höfðað var til
þeirra og þeir svöruðu fyrir sig með
ákveðnum skoðunum. „Ég vona að
þetta verði virkur hópur á næstu ár-
um.“
Efnið birt
Næsta skref verður að koma
koma efni og hugmyndum á fram-
færi. Tinna segir að blaðagreinahóp-
ur hafi skrifað greinar um ráðstefn-
una, vinnuskólann, samfélagið og
fleira og sé stefnt að því að birta
þær á mbl.is og plaköt verði hengd
upp víða um borgina. Vinnuhópur
um strætó hafi lagt fram nokkur
hundruð tillögur til að bæta þjón-
ustuna og verði þeim komið á fram-
færi við forsvarsmenn fyrirtækisins.
Á meðal hugmynda er að vera með
ýmsar kynningar í vögnunum eins
og til dæmis kynningu á skyndi-
hjálp, kynningu á menningu Íslands,
kynningu á árlegum uppákomum,
staðsetningu á heilsugæslum og
spítulum og staðsetningu á þjón-
ustumiðstöðvum fyrir útlendinga.
Þá er lagt til að púðar verði settir í
vagnana, hraðbankar, loftkæling,
auðar síður sem teikna má á, sniðug-
ar „pikköpp-línur“ og fleira.
Vilja hraðbanka og ýmsa
aðra þjónustu í strætó
Fyrsta ráðstefna
Vinnuskóla
Reykjavíkur skil-
aði miklu efni
Morgunblaðið/Eyþór
Hugmyndir Krakkarnir komu fram með margar hugmyndir.
Í GÆR voru send bréf til 30 umsækj-
enda um sjö einbýlishúsalóðir í Úlf-
arsárdal. Um er að ræða fimm lóðir
vestast í hverfinu, sem ekki voru
valdar í fyrstu úthlutun, og tvær lóð-
ir sem búið var að úthluta en um-
sækjendur drógu umsóknir sínar til
baka.
Í maí var auglýst eftir umsóknum
um 115 lóðir í Úlfarsárdal og bárust
samtals 378 umsóknir. 38 umsóknir
bárust í fjórar lóðir fyrir fjölbýlishús
með alls 216 íbúðum. 26 umsóknir
bárust í 11 lóðir fyrir raðhús með
samtals 45 íbúðum. 48 umsóknir bár-
ust í 27 lóðir fyrir parhús með alls 54
íbúðum og 266 umsóknir bárust í 73
lóðir fyrir einbýlishús.
Dregið var úr gildum umsóknum
hjá reiknistofnun Háskóla Íslands að
fulltrúa sýslumanns viðstöddum og
fengu umsækjendur svonefnt val-
númer, sem vísaði til þess í hvaða röð
þeir veldu lóðir. Dregnar voru út 85
umsóknir um lóðir fyrir einbýlishús
og þar af voru 12 til vara. Ágúst
Jónsson, skrifstofustjóri fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar,
segir að í fyrra hafi fimm lóðir vest-
ast í hverfinu ekki gengið út og sömu
lóðir hafi ekki verið valdar í fyrstu
umferð að þessu sinni. Auk þess hafi
umsóknir um þrjár lóðir verið dregn-
ar til baka og þar með hafi átta lóðir
verið lausar. Haft hafi verið samband
við umsækjendur úr hópi þeirra 85
sem ekki höfðu fengið lóð og þeim
bent á þessar þrjár sem hafði verið
skilað. Þá hafi ein lóð gengið út og á
mánudag hafi verið dregnar út 30
umsóknir um lóðirnar sjö. „Þeir sem
hafa lægstu númerin í þessum hópi
hafa forgang fram yfir hina sem hafa
hærri númer,“ segir Ágúst.
Hver lóð kostar 11 milljónir króna.
Fram hefur komið að lögð er áhersla
á að hverfið í Úlfarsárdal byggist
hratt upp og er stefnt að því að fram-
kvæmdir verði hafnar við allar götur
í lok kjörtímabilsins. Lóðir í vestari
hluta hverfisins, vestan við Nönnu-
brunn, eru þegar byggingarhæfar og
framkvæmdir víða hafnar. Lóðir í
eystri hlutanum, austan Nönnu-
brunns, verða byggingarhæfar í
október eða nóvember.
Úlfarsárdalur Dregin hafa verið valnúmer vegna sjö einbýlishúsalóða.
Önnur lóðaúthlutun
í Úlfarsárdal
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
ÍSLANDS MÁLNING
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður
Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus