Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 17

Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 17 LANDIÐ Eftir Sigurgeir Jónsson Fyrir tíu árum urðu ákveð-in straumhvörf í lífi Guð-mundu Hjörleifsdóttur íVestmannaeyjum. Hún fékk sendan pakka af Volare- heilsuvörum frá Svíþjóð og þar með hófst ævintýri sem hana hefði sjálfsagt ekki órað fyrir á þeim tíma. Á næstu árum byggði hún upp, ásamt fjölskyldunni, fyr- irtækið Volare í Vestmannaeyjum og er með um hundrað sölufulltrúa um land allt. „Ég var að vinna sem þerna á Herjólfi árið 1997 og líkaði bara ágætlega í því starfi,“ segir Guð- munda. „Matta, dóttir mín, sem var búsett í Svíþjóð, hafði verið að selja þessar Volare-vörur þar og vildi endilega koma þeim á fram- færi á Íslandi. Hún sendi mér eins konar kynningarpakka og bað mig að prófa þetta á vinum og ætt- ingjum. Ég gerði það og árang- urinn var það góður að þá um haustið fór ég af stað sem fulltrúi Volare á Íslandi og er það enn tíu árum síðar.“ Guðmunda segir að fyrstu fjögur árin hafi hún verið með vörurnar heima og þar hafi allt verið, bæði skrifstofa og lager. „Þetta var smám saman að vinda upp á sig og var svo komið að öll aukaherbergi í húsinu voru nýtt sem lagerpláss. Sem betur fer voru börnin öll farin að heiman, þannig að þetta gekk alveg en engu að síður sáum við að þetta gat ekki gengið lengur, um- svifin voru alltaf að aukast. Þess vegna ákváðum við að fara niður í bæ og fengum húsnæði á Vest- mannabraut 38 undir starfsemina. Þar opnuðum við verslun með þessar vörur. Það var og er fyrsta og eina Volare-verslunin í heim- inum. Ég varð að fá sérstakt leyfi frá fyrirtækinu í Ísrael til að gera þetta, enda eru þessar vörur að- eins seldar í svokallaðri heimasölu alls staðar í veröldinni. En þar sem ég var búsett á eyju og var þannig ekki að skemma fyrir nein- um, þá var leyfið fúslega veitt.“ En húsnæðið sprengdi fljótlega utan af sér starfsemina og fyrir tveimur árum fluttu þau í hús- næðið við hliðina, á Vestmanna- braut 36, mun rúmbetra húsnæði og þar er verslunin í dag. Unnið úr efnum úr Dauðahafi Fyrirtækið sem framleiðir Vol- are-vörurnar heitir Melumad Laboratories og er í Ísrael. Eig- andi þess er dr. David Melumad og er þekktur og virtur í sínu heimalandi. Hann er húðsjúkdóma- fræðingur og hefur auk þess Ph.D.-gráðu í lyfjafræði. Hann hef- ur starfrækt fyrirtækið í nær 30 ár og hugsunin á bak við þessa fram- leiðslu er að brúa bilið milli snyrti- fræði og lyfjafræði. Volare er selt sem heilsuvörur fyrir alla fjölskylduna, ákveðnar línur, allt sem fólk þarf til að halda sér hreinu, vel lyktandi og síðast en ekki síst, heilbrigðu. Á hverju ári er kynnt ný lína, á þessu ári heitir hún Spa Pleasure, er svona eins konar dekurlína sem ætti að falla konum vel í geð. „Ástæðan fyrir því að vörurnar eru seldar sem heilsuvörur, er sú að ekki er leyfilegt að markaðs- setja þær sem lækningavöru þar sem ekki hefur verið vísindalega sannað að þær hafi lækningamátt,“ segir Guðmunda. „En margra ára reynsla þeirra sem notað hafa þessar vörur, sýnir og sannar að þær skila árangri. Það eru einkum tvær tegundir, Aloe Vera-gel og Aloe Vera-djúsinn, sem hafa sýnt sig og sannað á því sviði. Læknar hafa hingað til verið fremur tor- tryggnir á áhrifamátt náttúruefna á borð við þessi en sú afstaða hef- ur mjög verið að breytast hin síð- ari ár og fáeinir íslenskir læknar sem hafa bent á vörurnar okkar og mælt með þeim.“ Guðmunda segir að Aloe Vera- djúsinn hafi einkum reynst vel við vandamálum í maga og ristli. „En djúsinn er einnig góður við húð- sjúkdómum. Kunningi minn var illa haldinn af psoriasis og ég fékk hann til að fara í það sem ég kall- aði „djúsmeðferð.“ Hann drakk ákveðið magn af Aloe Vera- djúsnum á dag í þrjár vikur og notaði einnig kremin okkar og gel- ið, en hætti þá, enda orðinn við- þolslaus af sjúkdómnum og út- brotin orðin meiri en áður. En nokkrum dögum síðar hurfu þessi einkenni og hafa lítið látið á sér kræla síðan. Það var eins og lík- aminn þyrfti þennan tíma til að losna við óþverrann. Þetta voru mikil átök meðan á þessu stóð en ég held því fram að sé fólk þol- inmótt þá náist árangur. Það er mjög algengt að fólki versni fyrst, meðan exemið, sem kemur innan frá, er að ganga út úr líkamanum.“ Kraftaverk í Eyjafirði Árið 2003 kom rækilega í ljós hver áhrifamáttur Aloe Vera- gelsins er. Ungur drengur norður í Eyjafirði saup af misgáningi á flösku með hreinsivökva fyrir mjaltavélar, með hroðalegum af- leiðingum. Vélindað brann undan eitrinu og um tíma var honum vart hugað líf. Læknar þóttust þess fullvissir að hann myndi aldrei ná sér að fullu og spurning hvort þyrfti að nema vélindað á burt. „Móðir drengsins hafði verið söluráðgjafi fyrir Volare í nokkur ár og hún þekkti græðingarmátt gelsins,“ segir Guðmunda. „Hún vissi að það er bólgueyðandi, sýkladrepandi og kemur í veg fyrir öramyndun. Hún fékk leyfi læknanna til að bera gelið á kinn- ina á drengnum en kinnin hafði einnig brennst. Daginn eftir voru þau brunasár svo gott sem horfin. En hún lét ekki þar við sitja, held- ur ákvað að prófa gelið einnig inn- vortis þó svo að það sé ekki bein- línis ætlað til slíks. Hún gaf honum eina skeið af því á dag og árang- urinn var undraverður. Eftir fá- eina daga var bólgan í hálsinum horfin og þvert á allar spár lækna, þá náði drengurinn sér að fullu eftir nokkurn tíma. Þetta þótti undravert og læknarnir hafa víst aldrei viðurkennt það fúslega að gelið hafi haft þessi áhrif. En að sjálfsögðu hefur góð læknishjálp og gelið, þessir samverkandi þætt- ir, orðið til þess að barnið er heil- brigt í dag,“ segir Guðmunda. Keppti í landsmóti 13 dögum eftir slysið Og nýjasta dæmið um áhrifa- mátt Aloe Vera-gelsins er frá þessu ári. Jóhann Norðfjörð, sem lengi bjó í Vestmannaeyjum og var oftast kallaður Bóbó, varð fyrir því óláni í vor að saga af sér þrjá fing- ur vinstri handar, þumalfingur, vísifingur og löngutöng. Sem gam- all sjómaður vissi Jóhann að það tæki æði langan tíma fyrir slík sár að gróa, 42 spor voru saumuð til að loka sárunum auk annars eins undir húðinni. Honum var fyr- irskipað að mæta á spítalann á þriggja daga fresti til að láta hreinsa burt dauða húð og skipta um umbúðir á sárunum daglega. Eiginkonan aðstoðaði hann við að skipta um umbúðir og vildi endilega prófa að bera Aloe Vera- gel á skurðina. Jóhann var ekki ýkja ginnkeyptur fyrir því, hafði ekki mikla trú á einhverju kremi sem kvenfólk notaði, en leyfði henni að ráða og árangurinn kom fljótt í ljós. Gelið var borið á þrisv- ar á dag og á þriðja degi var mun- urinn orðinn það mikill á sárunum að Jóhann sá ekki ástæðu til að fara á spítalann til að láta hreinsa þau. Á tíunda degi, eftir aðgerðina, voru saumarnir teknir og þá var engin dauð húð kringum sárin. Læknirinn sagði að sárin væru með ólíkindum vel gróin. Og það sem kannski er ótrúlegast í þessu. Þrettán dögum eftir slysið keppti Jóhann á landsmóti í hagla- byssuskotfimi, sárin fullgróin. Í tölvupósti, sem Jóhann sendi Guð- mundu, segir hann að hann hafi mátt éta ofan í sig stóru orðin sem varða kvenfólk og krem og þetta gel sé nú orðið staðalbúnaður á sínu heimili. Fótagelið reyndist vel við gyllinæð Umsvifin í kringum fyrirtækið eru fyrir löngu orðin að fullu starfi hjá Guðmundu og rúmlega það. Fyrstu fjögur árin vann hún ein við þetta, reyndar með aðstoð fjöl- skyldunnar en í dag eru þrír í fullu starfi við fyrirtækið í Eyjum og tveir í hálfu starfi. Þá eru um hundrað starfandi söluráðgjafar um allt land og tveir deildarstjórar sem sjá um þann þátt, annar í Reykjavík og hinn á Akureyri. „Ég hef verið einstaklega heppin með það fólk sem starfar fyrir mig, bæði söluráðgjafana og deild- arstjórana. Þetta eru konur á öll- um aldri, sú yngsta er átján ára og sú elsta 72 ára. Og þær hafa mikla ánægju af þessu starfi,“ segir Guð- munda. „Einn mikill kostur við þessar vörur er að á þeim öllum er 45 daga skilaréttur. Ef fólk hefur of- næmi fyrir vörunni, eða finnst hún ekki gera sitt gagn, þá getur það skilað henni. Þetta finnst mér mjög mikilvægt. Heimasala hefur ekki alltaf haft gott orð á sér, fólki finnst það oft hafa keypt köttinn í sekknum og situr kannski uppi með vöru sem það hefur ekki not fyrir. Það er ekki hætta á slíku með Volare-vörurnar. Þeim er hægt að skila og fá endurgreitt. Reyndar gerist það afskaplega sjaldan og við fáum mjög jákvæð viðbrögð og meðmæli. Það segir sig líka sjálft að fólk væri ekki að kaupa þessar vörur ef það væri óánægt með þær.“ Svo finnst mér alltaf skemmti- legt þegar fólk er að hafa samband og láta mig vita af ýmsu skemmti- legu og óvæntu. Fótagel er t.d. ein tegundin sem við erum með og hefur reynst vel við ýmsum fóta- kvillum. Svo hafði ein samband við mig og sagði að það hefði virkað mjög vel við gyllinæð! Í dag er það mikið selt við þeim kvilla. Mér finnst það mjög gaman þegar fólk prófar eitthvað svona.“ Ekkert vandamál að vera í Eyjum Guðmunda segist oft spurð að því hvort ekki sé erfitt að vera með höfuðstöðvar fyrirtækisins í Vestmannaeyjum, þar sem sölu- fulltrúar eru víðs vegar um landið og vörurnar eru sendar þangað frá Eyjum. „Staðsetningin hér í Eyj- um er enginn þröskuldur. Það finnst engum þetta neitt vandamál, okkar fólk uppi á landi fær sínar vörur fljótt og vel. Við sendum allt með flugi og starfsfólkið hjá Flug- félagi Íslands í Vestmannaeyjum sér vel um þann þátt. Aftur á móti er erfiðara að fá vörurnar hingað til Eyja, þar geta stundum orðið tafir en aldrei vandamál að koma þeim héðan. En þetta segir okkur bara hvað góðar samgöngur skipta miklu máli fyrir okkur í Vest- mannaeyjum. Það var slæmt ástand þegar hætt var að fljúga hingað en eftir að Flugfélagið tók við fluginu á ný, þá er þetta mjög gott.“ Eins og áður hefur komið fram er Volare í Vestmannaeyjum fjöl- skyldufyrirtæki, í eigu þeirra Guð- mundu og eiginmanns hennar, Þórðar Sigursveinssonar. Sig- ursveinn, sonur þeirra starfar einnig við það. En fjölskyldan teygir arma sína víðar en á Ís- landi. Matta, dóttir Guðmundu, býr í Svíþjóð og hún er umboðs- aðili fyrir sömu vörur bæði í Sví- þjóð og Noregi. Þá vinnur Inga, dóttir Guðmundu, einnig hjá syst- ur sinni. „Já, við erum allar að vinna í því sama,“ segir Guð- munda. „Munurinn er bara sá að umsvifin hjá þeim eru um það bil tíu sinnum meiri en hjá mér.“ Umhyggja fær eitt prósent af veltunni Síðustu fimm ár hefur Guð- munda haft það fyrir fastan sið að gefa eitt prósent af veltu fyrirtæk- isins til Umhyggju, félags lang- veikra barna. „Mér finnst eðlilegt að fyrirtæki, sem gengur vel, láti aðra njóta þess,“ segir Guðmunda. „Við veltum því fyrir okkur í byrj- un hvaða aðila við ættum að láta njóta þess og okkur fannst þörfin vera hvað mest þar. Fyrst völdum við sjálf fjölskyldur sem áttu í erf- iðleikum, með aðstoð fólks frá Um- hyggju, en nú látum við félagið al- veg sjá um það. Undanfarin fimm ár hefur þessi upphæð numið frá 400 þúsund og upp í 700 þúsund krónum á ári og er það fé afhent Umhyggju í byrjun aðventu á hverju ári.“ „Ég tel mig og fjölskyldu mína hafa verið heppin í gegnum tíðina og það er gott að geta rétt þeim hjálparhönd sem eiga í erf- iðleikum,“ segir kjarnakonan Guð- munda Hjörleifsdóttir í Volare að lokum. Öll fjölskyldan á kafi í heilsuvörunum Morgunblaðið/Sigurgeir Heimasala Guðmunda Hjörleifsdóttir byrjaði með Volare á heimili sínu í Vestmannaeyjum fyrir tíu árum. Húsið fylltist fljótt af vörum svo hún leigði verslunarhúsnæði niðri í bæ og þurfti svo enn að stækka við sig. Í HNOTSKURN »Volare-vörurnar eru unn-ar úr aloe vera- jurtinni, auk steinefna, salts og svartr- ar leðju úr Dauðahafinu og eru seldar sem húð-, hár- og heilsuvörur en hafa einnig gagnast við ýmsum kvillum, sérstaklega húðsjúkdómum. »Fimm starfsmenn eru hjáVolare í Vestmannaeyjum auk hundrað söluráðgjafa um allt land. Guðmunda Hjör- leifsdóttir rekur Volare í Eyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.