Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 18
Eins og ung-
barn sem
aldrei stækkar
Eyja er rétt rúmlega einsárs, við opnuðum í fyrra-vor og þetta hefur gengiðmjög vel. Vinsælasti rétt-
urinn hjá okkur er íslenska hangi-
kjötið með hvítri mjólkursósu á
gamla mátann,“ segir Ýr Gunn-
arsdóttir um skandinavíska veitinga-
staðinn Eyju sem er í Den Haag í
Hollandi en móðir hennar Hjördís
Ingólfsdóttir á staðinn ásamt hol-
lenskum manni sínum Peter R. Jo-
hannes sem er yfirkokkur.
„Við höfum búið hér í Hollandi í
fjórtán ár og mamma hefur rekið
veisluþjónustu og stjúpfaðir minn
hefur unnið sem kokkur á mismun-
andi stöðum. Þau höfðu lengi verið að
velta því fyrir sér hvort þau ættu að
opna veitingastað en síðan var leitað
til þeirra þegar borgin fór í átak með
að gera hverfið okkar Stationbuurt að
betra hverfi. Það fólst meðal annars í
því að setja upp mismunandi veit-
ingastaði við síkið sem Eyja stendur
núna við.
Við settum fram hugmynd að
skandinavískum veitingastað og hún
féll í mjög góðan jarðveg. Borgin
veitti okkur lán fyrir húsnæðinu og
við fengum að velja úr nokkrum stöð-
um og enduðum á stað sem er miklu
stærri en við ætluðum í upphafi, en á
Eyju er bæði hægt að borða inni og
úti. Áherslan í þessu átaki borgar-
innar með veitingastaði var að hver
staður væri sérstakur og hér í
Avenue Culinaire opnaði til dæmis á
svipuðum tíma eþíópískur veitinga-
staður og einnig fransk-ítalskur svo
fátt eitt sé nefnt.“
Pönnukökur af ævagamalli
pönnu og íslenskt brennivín
Ýr segir að hollenskir viðskipta-
vinir séu öðruvísi en Íslendingar og
það hafi tekið þau ákveðinn tíma að
venjast því og aðlagast. „Hollend-
ingar gera allt aðrar kröfur og þeir
hegða sér öðruvísi þegar kemur að
veitingashúsum. Íslendingar fara til
dæmis út að borða klukkan níu á
kvöldin og fá sér síðan fullt af búsi á
eftir en Hollendingar mæta klukkan
fimm í kvöldmatinn.“
Ýr segir að sumir gestirnir séu svo-
lítið hræddir við skandinavískt eldhús
í byrjun en flestir verði mjög hrifnir
eftir að hafa prófað.
„Skyrið sem við notum í eftirrétt
hefur til dæmis gert mikla lukku en
við búum það til sjálf svo það er svona
85% eins og það sem við þekkjum
heima á Íslandi. Svo erum við meðal
annars með elg á matseðlinum, villtan
fugl, íslenskar rækjur og íslenskar
fiskibollur sem mamma býr til eftir
gamalli uppskrift frá ömmu. Við er-
um líka með íslenskar pönnukökur í
eftirrétt sem við búum til á hundrað
ára gamalli pönnukökupönnu frá ætt-
móður okkar, enda eru pönnukökur
af slíkum pönnum langbestar, þó svo
að maður verði að láta sig hafa það að
brenna sig stundum á þeim. Íslenskt
brennivín er líka í boði hjá okkur en
við eigum það ekki í miklu magni, við
skyldum alla sem koma til okkar frá
Íslandi til að færa okkur þennan
drykk á flöskum.“
Vilja fá íslenskan kokk
Ýr segir að Íslendingar rekist öðru
hvoru inn á Eyju en annars séu gest-
irnir frá hinum ýmsu löndum auk
Hollendinga.
„Hingað koma meðal annars Eng-
lendingar og Ástralar að ógleymdum
Svíum, Norðmönnum og Dönum. Við
reynum líka að hafa nánast allt starfs-
fólkið frá Norðurlöndunum og okkur
langar til að hafa íslenskan kokk
starfandi hjá okkur. Allir sem koma
hingað frá Íslandi eru beðnir um að
finna einn slíkan þegar þeir koma
heim og senda okkur, þó ekki væri
nema til að vinna hér í stuttan tíma.“
Ýr vinnur fulla vinnu sem ráðgjafi
en meðfram því sér hún um kynn-
ingu, heimasíðu, bókhald og aðra
vinnu fyrir veitingastaðinn Eyju. „En
ég er stundum í þjónustustörfum á
Eyju um helgar ef nauðsyn krefur
eins og um síðustu helgi. Þá var árleg
djasshátíð hér í götunni og brjálað að
gera hjá okkur, við unnum næstum 24
tíma á sólarhring.
Við reynum líka að vera með uppá-
komur og við vorum til dæmis með
mikla veislu hér fyrsta desember síð-
astliðinn, á fullveldisdegi Íslands sem
auk þess er afmælisdagurinn minn og
alþjóðlegur AIDS-dagur. Við gáfum
allan ágóða af þeim degi til alnæm-
issamtaka hér í landi.
Að sjá um Eyju er algjört ævintýr
þó svo að þetta sé miklu meiri vinna
en mig hefði órað fyrir. Þetta er eins
og að eiga ungbarn sem aldrei stækk-
ar og maður fær aldrei pössun, en
mér skilst að ef maður lifi fyrsta árið
af, þá sé eftirleikurinn auðveldari,“
segir Ýr og hlær.
Fjölskyldufyrirtæki Þau sáu sjálf um að hanna veitingastaðinn og gera allt sem þurfti til að koma honum upp.
Þegar stund gefst lætur Ýr (t.v.) dekra við sig í mat og drykk á Eyju og býður gjarnan góðum vin með sér.
Kokteilstofan Gestir geta slakað á í notalegu umhverfi með góðan drykk.
Hvítt eins og snjór Einfaldleiki og birta ráða ríkjum á Eyju.
Á íslenska veitingastaðnum Eyju í Hollandi er hægt
að fá skyr, hangiket og fiskibollur gerðar eftir upp-
skrift ömmu. Kristín Heiða Kristinsdóttir spjallaði
við Ýr Gunnarsdóttur sem brennir sig stundum á
hundrað ára pönnukökupönnu.
Eyja
Groenewegje 132-135
2515 lr Den Haag
sími: +31(0)703699224
www.eyja.nl
|miðvikudagur|18. 7. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Litrík blóm gefa lífinu lit og í
Ölpunum er blómum og trjám
komið fyrir á svolítið óvenju-
legan hátt. »21
daglegt
Á meðan dregið hefur úr sýkla-
lyfjanotkun í flestum löndum
hefur hún aukist hérlendis, seg-
ir Vilhjálmur Ari Arason. »20
heilsa
ÞAÐ er aldrei of seint að tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl þó menn séu komnir
fram á miðjan aldur því nýleg rannsókn
bendir til að hægt sé að draga úr hættu á
hjartaáföllum og ótímabærum dauða
með því að taka upp hollar lífsvenjur.
Miðaldra einstaklingar, sem tóku upp
á því að borða fimm eða fleiri ávaxta- og
grænmetisskammta á dag, stunda lík-
amsrækt í tvo og hálfan tíma á viku,
halda vigtinni í skefjum og leggja reyk-
ingar á hilluna minnkuðu hættu á hjarta-
áföllum um 35% og hættu á ótímabærum
dauða um 40% innan fjögurra ára.
„Það fólk, sem ákveður að snúa við
Aldrei of seint að
snúa við blaðinu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
blaðinu og taka upp heilbrigðan lífsstíl,
vinnur heilsuna upp á fjórum árum og
jafnar þannig metin við þá, sem ræktað
hafa heilsuna í gegnum tíðina,“ sagði dr.
Dana King, prófessor við Suður-
Karólínu háskóla sem leiddi rannsókn-
ina.
Hann bætti þó við að ekki væri endi-
lega mælt með því að fólk biði með
heilsusamlegt líferni fram á miðjan aldur
því best væri að byrja sem fyrst. Það
væri þó aldrei of seint að breyta til og
byrja, hafi menn hingað til ekki verið á
nógu góðum hollustunótum í lífinu, segir
í nýlegri frétt á netmiðli NBC.