Morgunblaðið - 18.07.2007, Síða 19
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 19
Anthony Eden, fyrrverandiforsætisráðherra Bretlands,
kom við sögu í Staksteinum á
mánudag. Við þá lesningu rifjaðist
upp að honum bregður fyrir í
íslenskum kveðskap. Hann lét
nefnilega svo um mælt í endur-
minningum sínum að útsýnið í
siglingu inn Faxaflóann væri eins
og dauf vatnslitamynd. Mér er sagt
að Bjarni Benediktsson, sem um
skeið var ritstjóri Morgunblaðsins
og síðar forsætisráðherra, hafi gert
athugasemdir við það orðalag í
Reykjavíkurbréfi. Og Kristján
Karlsson orti kvæðið Dýrleg ljósin
á Skaga af þessu tilefni:
Oftar vildi ég sjá hrikaleg fjöll,
sagarbjörg, hrokafull opinmynnt fljót
og ljósin í Napólí eða San Fransisco
2
grænn sjórinn fyrir köldum nesjum
gleður hjarta mitt í dag hefir Eden
(Sir Anthony) rétt fyrir sér:
3
hrollvakin eitt og eitt stöndum við
mitt í kuldalegri vatnslitamynd
af smáfjöllum nesi og flóa: upphaf
4
olíumálverks og fyrsti dagur í hörpu
koma rauður bátur fyrir Engey, handan
flóans
kvikna dýrleg ljósin á Skaga, í Napólí
og áfram.
„Innsiglingin er falleg,“ sagði
Sæunn Eiríksdóttir með áherslu við
morgunverðarboðið í Reykjavík í
gær. „Ég ætti að vita það. Ég hef
siglt þrisvar sinnum til Íslands, einu
sinni með Drottningunni og tvisvar
með Gullfossi, og fríkaði út í öll
skiptin sem ég sá ljósin í
höfuðborginni.“
VÍSNAHORNIÐ
Af Eden og
vatnslita-
mynd
pebl@mbl.is
FÁEINAR aukamínútur geta gert gæfu-
muninn þegar kemur að upplifun sjúklings
af læknisheimsókn að því er sænsk rannsókn
sýnir. Þá skipta orðalaus samskipti, á borð
við augnsamband, líkamstjáningu og svip-
brigði miklu máli fyrir líðan sjúklingsins hjá
lækninum.
Forskning.no greinir frá því að sænsku
vísindamennirnir hafi nýtt sér myndbands-
upptökur til að rannsaka samskiptin milli
átta lækna og 21 barns og foreldra þeirra
sem fóru í rannsókn á kviðsliti við nára.
Þessi hópur var sérstaklega valinn vegna
þess að slík rannsókn tekur yfir persónuleg
svæði á líkamanum sem gerir framkomu
læknisins sérstaklega mikilvæga.
Læknisheimsóknin stóð í tíu mínútur að
meðaltali. Greinilegt samhengi var á milli
aukins tíma og jákvæðrar upplifunar af
heimsókninni, sérstaklega hvað friðhelgi
sjúklingsins varðaði. Alina Rodriguez, einn
höfunda rannsóknarinnar bendir þó á að
ekki sé um mikinn tíma að ræða, heldur að-
eins fáeinar aukamínútur sem geti skipt
sköpum fyrir heimsóknina. „Jákvæðu afleið-
ingarnar eru því mun meiri en það sem þarf
að kosta til,“ segir hún.
Fyrri rannsóknir á sambandi lækna og
sjúklinga hafa sýnt að stór hluti þeirra síð-
arnefndu er óánægður. Þeir telja meðal ann-
ars að þeir hafi ekki fengið nægilegar upp-
lýsingar, þeim hafi verið misboðið eða að það
hafi verið tekið á móti þeim á stressandi
hátt.
Mikilvægar mínútur
Reuters
Samband Tími skiptir máli við myndun traust milli læknis og sjúklings.
smáauglýsingar
mbl.is