Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 33
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Saltfisksetrið í Grindavík heim-
sótt fimmtudaginn 26. júlí. Ekið suður í Hafnir og
þaðan til Grindavíkur. Kaffiveitingar á veitinga-
staðnum Salthúsinu. Lagt af stað kl. 12.30. Skrán-
ing og greiðsla eigi síðar en 24. júlí. Allir velkomnir.
Uppl. í síma 535 2760.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofa FEBK
Gullsmára 9 og Gjábakka verður lokuð vegna
sumarleyfa 1.-31. júlí. Hægt er að hafa samband ef
þörf krefur, við Kristjönu í 897 4566, Guðmund í
848 5426 og Kristmund í 895 0200. Félagsvist er
spiluð í Gullsmára á mánud. kl. 20.30, en í Gjábakka
á miðvikud. kl. 13 og á föstud. kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-hrólfar
ganga frá Grasagarðinum í Laugardal kl. 10. Skrif-
stofa félagsins er lokuð frá 16. júlí til 7. ágúst vegna
sumarleyfa.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin
og heitt á könnunni til kl. 16. Félagsvist kl. 13. Bobb
kl. 17.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 10 vefnaður og
ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13 kvenna-
brids. Púttvöllurinn opinn og ávallt heitt á könn-
unni.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Handverks- og bóka-
stofa opin. Kl. 12 ferð í Bónus. Kl. 14.30 kaffiveit-
ingar.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og dagblöðin, kl.
12 hádegismatur, kl. 13 brids, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Böðun fyrir hádegi. Hádegis-
verður kl. 11.30. Fótaaðgerðir s. 588 2320. Hár-
snyrting s. 517 3005/849 8029. Blöðin liggja
frammi.
Norðurbrún 1 | Félagsvist alla miðvikudaga kl. 14.
Allir velkomnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-
12.45 hádegisverður. Kl. 12.15-14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum. Kl. 13-14 vídeó/spurt og
spjallað. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgunstund og söngur
kl. 10, handavinnustofan opin, hárgreiðslu og fóta-
aðgerðarstofur opnar, verslunarferð kl. 12.30,
söngur og dans kl. 14, allir velkomnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Dómkirkjan | Alla miðvikudaga er bænastund frá
kl. 12.10-12.30. Léttur hádegisverður á kirkjuloftinu
á eftir. Bænarefnum má koma á framfæri í síma
520 9700 og með tölvupósti til domkirkjan-
@domkirkjan.is. Verið velkomin.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa í Hallgrímskirkju
alla miðvikudagmorgna kl. 8 árdegis. Íhugun, alt-
arisganga. Einfaldur morgunverður í safnaðarsal
eftir messuna.
Háteigskirkja | Kvöld- og fyrirbænir í Háteigskirkju
alla miðvikudaga kl. 18.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bænastund er á
miðvikudaga kl. 12. Matur í lok stundarinnar. Allir
eru velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í kvöld kl. 20.
Kveðjusamkoma fyrir Karl Jónas Gíslason og
Ragnheiði Guðmundsdóttur. Ásta María Karlsdóttir
og Gísli Davíð Karlsson flytja tónlist. Kaffiveitingar
eftir samkomuna. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10.30 heldur gönguhópurinn
Sólarmegin af stað frá kirkjudyrum. Fararstjóri er
Örn Sigurgeirsson. Öllum er velkomið að koma og
slást í hópinn.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr.
Örn Bárður Jónsson. Beðið er fyrir sjúkum og bág-
stöddum. Messan tekur um 20 mínútur. Hægt er að
koma fyrirbænarefnum til prestanna með tölvu-
pósti, símtali eða skriflega við upphaf messunnar.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Foreldramorgnar
hvern miðvikudag í sumar, kl. 10-12.30. Alltaf heitt
á könnunni.
Hlutavelta | Þessar duglegu stelpur, Anna Kristín Vilhjálmsdóttir, Ing-
unn Hekla Heiðarsdóttir og Ingunn Erla Vignisdóttir, héldu tombólu við
Grímsbæ og færðu Rauða krossinum ágóðann, 4.031 krónur.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur heita Lena Rós, Anna Bríet og
Nína Björk. Þær héldu tombólu og söfnuðu 3.319 krónum til styrktar
Rauða krossinum.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn Senda inn efni".
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 18. júlí, 199. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.)
KASSAR fullir af fyrstu útgáfu af nýju Harry Potter bók-
inni, Harry Potter and the Deathly Hallows, stóðu í stöflum
á lager Barnes & Noble í Bandaríkjunum í gær.
Öryggisverðir voru á staðnum til að vernda innihald
kassanna enda er það verðmætt, ekkert má spyrjast út um
söguþráðinn fyrr en bókin kemur í sölu þann 21. júlí.
Harry Potter í stöflum
Verðmætir kassar
Reuters
FRÉTTIR
FIMMTUDAGINN 19. júlí verður
haldin sagnavaka í Sögumiðstöð-
inni Grundarfirði. Þar verður
boðið upp á dagskrá með sögum
og söngvum undir yfirskriftinni
„Á vit ævintýranna“. Fram kemur
heimafólkið Ingi Hans og Sigur-
borg Kristín sem eru að góðu
kunn fyrir einstaka sagnagleði og
með þeim sérstakur gestur, David
Campbell, sem er einn þekktasti
sagnamaður Skota. Hann er
staddur hér á landi í tilefni af
Norrænu sagnaþingi sem haldið
verður að Reykjum í Hrútafirði
22.-27. júlí þar sem hann heldur
námskeið ásamt fleiri sagnamönn-
um.
Sagnavakan hefst klukkan 21
og aðgangur er 1.000 krónur.
Vegna takmarkaðs sætafjölda er
fólki bent á að panta miða tíman-
lega í síma: 438 1881 eða info-
@eyrbyggja.is
Skoskur sagna-
maður á
Sagnavöku í
Grundarfirði
NÆSTKOMANDI sunnudag mæta
Skoppa og Skrítla í Töfragarðinn á
Stokkseyri og syngja og skemmta
börnunum. Þær hafa komið í heim-
sókn undanfarin tvö sumur og not-
ið gríðarlegra vinsælda hjá smá-
fólkinu. Þann sama dag verða
einnig hestar teymdir undir börn-
um og boðið verður upp á andlits-
málun.
Skoppa og Skrítla
í Töfragarðinum
Lagt verður í kvöldgöngu úrKvosinni á fimmtudag kl. 20:„Nú er röðin komin aðMinjasafni Reykjavíkur að
leiða kvöldgönguna, og er þema kvölds-
ins konungskoman 1907, þegar Friðrik
VIII. og fylgdarlið komu til Íslands í
opinbera heimsókn,“ segir Helga Maur-
een Gylfadóttir safnvörður sem fer fyr-
ir göngunni.
„Konungurinn ferðaðist víða um
landið en við ætlum einkum að skoða
hvaða áhrif heimsókn konungs hafði í
Reykjavík en það varð heldur betur
uppi fótur og fit í bænum. Allir lögðust
á eitt um að undirbúa komu konungs
sem best en sitt sýndist þó hverjum um
tilkostnaðinn og segir sagan að menn
hafi rifist um útgjöldin niðri á bryggju
alveg þar til konungur var kominn á
land,“ segir Helga.
Með ferð sinni til Íslands var Friðrik
VIII. að endurgjalda för íslenskra þing-
manna til Danmerkur árið áður. „Hann
vildi treysta tengslin við hina norðlægu
hluta konungsdæmisins og var t.d.
komið við í Færeyjum í sömu ferð,“ seg-
ir Helga. „Með í för var Haraldur prins,
J.C. Christensen forsætisráðherra og
40 danskir ríkisþingmenn ásamt við-
skiptafulltrúum líkt og tíðkast í dag.“
Helga segir konungi hafa verið vel
tekið af þegnum sínum: „Hann var
mjög vel liðinn og þótti alþýðlegur í
framkomu. Hópurinn gisti í húsi
Menntaskólans og segir sagan að allt í
einu hafi Friðrik horfið. Hann hafði þá
brugðið sér í göngu um bæinn sí-svona,
en eins og vænta mátti spurðist það
hratt út að konungur væri á ferð og var
fljótt komin á eftir honum halarófa af
bæjarbúum sem vildu berja þjóðhöfð-
ingjann augum. Reykvíkingar voru í
sínu fínasta pússi, og hús sem vitað var
að konungur myndi eiga leið framhjá
höfðu verið máluð – alltént framhliðin,
og skreytt fánum og lyngfléttum, en
veðrið var með afbrigðum gott sem jók
enn á hátíðarblæinn.“
Gangan á fimmtudag hefst sem fyrr
segir kl. 20, og verður lagt af stað úr
Grófinni, milli húss Borgarbókasafnsins
og Listasafns Reykjavíkur við
Tryggvagötu.
Finna má nánari upplýsingar á slóð-
inni www.borgarbokasafn.is.
Sunnudaginn 29. júlí verða safnhús á
Árbæjarsafni skreytt líkt og þegar
Friðrik VIII. spásseraði um götur
Reykjavíkur fyrir 100 árum.
Saga | Gengið um slóðir Danakonungs í miðborg Reykjavíkur á fimmtudag
Í fótspor Friðriks VIII.
Helga Maureen
Gylfadóttir fædd-
ist í Reykjavík
1974. Hún lauk
stúdentsprófi frá
MR 1994 og BA-
prófi í sagnfræði
og ensku frá HÍ
1998. Helga fékkst
við kennslustörf í
Doncaster á Englandi en hóf störf hjá
Minjasafni Reykjavíkur, Árbæjarsafni
1997 þar sem hún starfar sem safn-
vörður við húsadeild safnins.
Fréttir
í tölvupósti