Morgunblaðið - 18.07.2007, Page 36
Þar gefur að líta girni-
legan ávöxt, appels-
ínukjöt með eplahýði… 40
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ GLEÐUR eflaust marga að heyra að tónlist-
armaðurinn Jónas Sigurðsson heldur bráðlega í
tveggja vikna tónleikaferð um Ísland. Jónas gaf út
plötuna Þar sem malbikið svífur mun ég dansa
síðla árs 2006 og vakti fyrir vikið nokkra athygli
enda fékk platan góða dóma hvarvetna og var m.a.
kölluð óvæntasti glaðningur ársins.
Jónas hélt tvenna útgáfutónleika á Íslandi þeg-
ar platan kom út en hefur ekki sést hér síðan enda
býr hann og starfar í Danmörku. „Mér hefur ekki
gefist tími til að koma fyrr til Íslands til að fylgja
plötunni betur eftir. Það er mikið af hljóðfærum á
plötunni og ég hef ekkert verið til í að halda tón-
leika nema að vera með allt bandið með mér og
það var meira en að segja það að ná öllum saman,“
segir Jónas en í heildina verður það um fimmtán
manna hópur sem ferðast með honum um landið.
„Ég er með átta manns á bak við mig á sviðinu og
svo er danska hljómsveitin Jazirkus með í för en
hún spilar blöndu af fönki og djassi.“
Hringferðin verður nokkuð ströng hjá þeim
enda segir Jónas ekkert annað að gera en að spila
af krafti þegar þessi hópur er kominn til landsins.
Það eru bæði Danir og Íslendingar í bandinu
með Jónasi og meðal annars eru þar tveir
trommuleikarar. „Ég lærði á trommur í mörg ár
og hugsa alltaf tónlistina út frá trommum. Ég hef
líka alltaf verið veikur fyrir hljómsveitum sem
spila á tónleikum með tvo trommara,“ segir Jónas
sem er búinn að æfa tölvert fyrir ferðina. „Æfing-
ar hafa verið í tveimur löndum því blásararnir eru
staddir á Íslandi.“
Gaman að spila í kirkju
Tónleikaferðin byrjar á tónlistarhátíðinni
Bræðslunni á Borgarfirði eystri þann 28. júlí þar
sem Jónas mun spila á tónleikum ásamt Lay Low,
Magna, Aldísi og Megasi.
„Ég hlakka mikið til að spila enda gaman þegar
maður leggur svona mikið í tónleikaferðina,“ segir
Jónas sem mun m.a koma fram í Stokkseyra-
kirkju 2. ágúst. Spurður hvort tónlist hans eigi
heima innan kirkjuveggja er Jónas fljótur til
svars. „Mér finnst það, þetta er óður til lífsins.
Mér finnst líka gaman að spila í kirkju, aðrir út-
gáfutónleikar mínir fóru einmitt fram í Þorláks-
hafnarkirkju. Það er öðruvísi en á hefðbundnum
tónleikum, maður kemur fram af virðingu við
kirkjuna og leggur þetta upp á annan hátt. Það
kemur líka önnur stemning en alls ekki síður
skemmtileg.“
Í tilefni tónleikaferðalagsins verður hægt að
sækja þrjú lög af plötu Jónasar frítt af heimasíð-
unni www.jonassigurdsson.com. Einnig verður
hægt að fylgjast þar með Íslandstúrnum.
Leikur óð til lífsins
Svífur Jónas Sigurðsson fremstur í flokki ásamt félögum. Jónas kemur fram ásamt átta manna bandi á tónleikahringferð um landið.
Dagsetningar tónleikanna
28.7. Bræðslan Borgarfjörður eystri
29.7. Græni Hatturinn Akureyri
30.7. Bíóhöllin Akranesi
2.8. Stokkseyrarkirkja Stokkseyri
4.8. Fossatún Borgarbyggð
5.8. Gaukur á Stöng Reykjavik
10.8. Ráðhúskaffi Þorlákshöfn
11.8. Útlaginn Flúðir
Norræna kvikmyndahátíðin
Nordisk Panorama fer að þessu
sinni fram í Finnlandi dagana 21. til
26. september næstkomandi.
Alls verða 41 stuttmynd, 21 heim-
ildarmynd og 15 kvikmyndir sýnd-
ar á hátíðinni í ár, þar af fimm ís-
lenskar stuttmyndir sem keppa til
verðlauna á hátíðinni.
Það eru nöfnurnar Anna eftir
Helenu Stefánsdóttur og Anna og
skapsveiflurnar eftir Gunnar Karls-
son, Hundur eftir Hermann Karls-
son, Skröltormar eftir Hafstein G.
Sigurðsson og Bræðrabylta eftir
Grím Hákonarson.
Þá var heimildamyndin Drauma-
landið - sjálfshjálparmynd handa
hræddri þjóð eftir Þorfinn Guðna-
son valin til þátttöku á Nordisk
Forum fjármögnunarmessunni sem
haldin er samhliða hátíðinni.
Lars von Trier er meðal þeirra
Dana sem eiga stuttmynd á hátíð-
inni.
Anna, Anna og
skröltormarnir
Hinn heims-
frægi skoski
kokkur Gordon
Ramsey var
staddur hér á
landi um helgina.
Það kemur lík-
lega fáum á
óvart að hann
skellti sér á Café
Oliver á laug-
ardagskvöldið þar sem hann fór
hamförum á dansgólfinu. Á leið
sinni út af staðnum lét hann þau orð
falla að þetta væri eitt besta diskó-
tek sem hann hefði farið á. Nú er
bara spurning hvort Hell’s Disco
verði hans næsti sjónvarpsþáttur …
Gordon Ramsey
skemmti sér á Oliver
Gordon Ramsey
EMILÍA Björg Óskarsdóttir hefur
ákveðið að segja skilið við Nylon-
flokkinn eftir þriggja ára samstarf.
Að sögn Einars Bárðarsonar, um-
boðsmanns sveitarinnar, skilur hún
fullkomlega sátt við sveitina. Emilía
gekk að eiga unnusta sinn til nokk-
urra ára um helgina og á þeim tíma-
mótum ákvað hún einnig að breyta
til á vettvangi tónlistarinnar. Hún er
nú í brúðkaupsferðalagi en í frétta-
tilkynningu segir hún meðal annars:
„Þetta er búið að vera ævintýralega
skemmtilegur tími. Ég hef lært mik-
ið og eignast þrjár yndislegar vin-
konur. En um leið er þetta gríð-
arlega mikil vinna og þetta kostar
líka mikla fjarveru frá fjölskyldu og
vinum. Við höfðum verið í hálfgerðu
fríi frá Bretlandi síðan um áramót
en nú liggur fyrir að Nylon er að
fara í aðra útrás í lok árs. Ég hef
ákveðið að fara ekki með. Þetta er
auðvitað ákvörðun sem ég hef hugs-
að mikið en ég er sátt við hana og við
stelpurnar kveðjumst „tónlist-
arlega“ í fullkominni sátt og ég óska
þeim alls hins besta enda er ég ekki
að kveðja þær sem vinkonur. Við
verðum vinkonur áfram.“
Nýr sjónvarpsþáttur
Að sögn Einars er ekki stefnt að
því að breyta Nylon í tríó, heldur
verður arftaki Emilíu fundinn. Áætl-
að er að hefja áheyrnarprufur fyrir
fjórða meðliminn í lok næsta mán-
aðar og verður gerður sérstakur
sjónvarpsþáttur um leitina. Einar
segir frágengið að Saga Film muni
framleiða þættina en hins vegar eigi
eftir að koma í ljós hvort þeir verði
sýndir á Skjá Einum eða Stöð 2. Í
þáttunum verður fylgst með pruf-
unum en svo verður hinum nýja
meðlimi fylgt eftir og skoðað hvern-
ig samstarf hennar við þær Ölmu,
Klöru og Steinunni heppnast. Fylgst
verður með þeim í upptökum í Bret-
landi sem og undirbúningi að út-
komu þriðju smáskífu Nylon þar í
landi.
Áheyrnarprufurnar verða aug-
lýstar þegar nær dregur.
Emilía hættir í Nylon;
leitað að nýrri söngkonu
Fjórar Nylon í upprunalegri mynd. Frá vinstri: Emilía, Klara, Alma og
Steinunn. Leit að nýrri söngkonu hópsins hefst í lok næsta mánaðar.