Morgunblaðið - 18.07.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 43
-hágæðaheimilistæki
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele þvottavélar.
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W1514 142.714 99.900
1400sn/mín/5 kg
Þurrkari T7644C 135.571 94.900
rakaþéttir/6 kg
Erum með í einkasölu heildar-
húseign á þessum frábæra
stað í miðbæ Reykjuavíkur.
Eignin er alls 360 fm og á
þremur hæðum ásamt litlu
rými að neðanverðu sem lengi
vel innihélt sjoppu. Húsið er
nýmálað og lítur því vel út að
utan. Húsið getur hentað til
ýmisskonar atvinnustarfssemi
en einnig er hægt að gera það
að glæsilegu einbýlishúsi. Til
greina kemur að leigja eignina
út. 6734
Nánari upplýsingar veitir Jason Guðmundsson lögg. fasteignasali
á skrifstofu fasteignasölunnar Miklaborg.
Miklaborg - Síðumúla 13 - 108 Reykjavík sími 569 7000 - fax 569 7001 - miklaborg@miklaborg.is
Óskar R. Harðarson hdl. löggiltur fasteignasali - Jason Guðmundsson Lögfræðingur BA
MIKLABORG
F A S T E I G N A S A L A N
Laufásvegur - Heil húseign
Jason Guðmundsson BA í lögfræði / lögg. fasteignasali
jason@miklaborg.is - www.miklaborg.is
SVAVAR Knútur trúbador mun í
kvöld leika lög sín fyrir gesti
Næsta bars við Ingólfsstræti.
Þetta eru síðustu tónleikar Svav-
ars Knúts í Reykjavík áður en
hann fer í tónleikaferðalag til
Ástralíu allan ágústmánuð. Þar
mun hann leika ásamt tveimur
áströlskum söngvaskáldum í
helstu borgum austurstrandar
Ástralíu auk borgarinnar Hobart í
Tasmaníu.
Á dagskrá tónleikanna verða
lög af heimabrenndri plötu Svav-
ars, Songs of misery and redemp-
tion, auk laga af nýútkominni
plötu hljómsveitar hans, Hrauns, I
can’t believe it’s not happiness. Þá
verða nokkur óútgefin lög flutt.
Tónlist Svavars er að megninu
til nokkuð lágstemmd og tregafull,
en ætíð glittir í vonina.
Svavar Knútur bar sigur úr být-
um í trúbadorakeppni Rásar 2 ár-
ið 2005 og hefur síðan leikið tón-
list sína víða við góðan orðstír.
Lög eftir Svavar má m.a. finna á
plötu Hildar Völu, La La La.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og
kostar 1.000 kr. inn.
Lágstemmdur og
tregafullur Svavar
Næsti bar Svavar Knútur verður ef-
laust kátur á tónleikunum í kvöld.
ÞÓ AÐ seinasta þáttaröð
bandarísku útgáfu Lær-
lingsins (The Apprentice)
hafi verið auglýst sú síðasta
hefur nú verið ákveðið að
fara af stað með eina enn.
Sú verður ekki eins og
þær fyrri því Donald
Trump vill að þessu sinni fá
til liðs við sig þekkta ein-
staklinga til að keppa um að
vera bestu starfsmennirnir.
Sú stjarna sem stendur
uppi sem sigurvegari að lokinni
þáttaröðinni þarf þó ekki að ráða sig
í vinnu hjá Trump heldur fær að
velja sér góðgerðarsamtök
til að styrkja í lokin.
Nafn Rosie O’Donnel hef-
ur verið nefnt í þessu sam-
hengi en Trump mun hafa
boðið henni að taka þátt. Af
því verður þó trúlega ekki
því talskona hennar sagði
nefnilega það „aldrei verða,
hvorki í þessu lífi né því
næsta.“
Þau Trump og O’Donnel
hafa eldað grátt silfur sam-
an undanfarin misseri eftir að annað
þeirra lét falla niðrandi ummæli um
hitt.
Trump vill reka
fræga fólkið
Rekinn Donald
Trump lagar hár-
greiðsluna góðu.
HLJÓMSVEITIN Rolling Stones
fékk greiddar 2,4 milljónir punda,
331 milljón króna, fyrir að spila í
veislu á vegum Deutsche Bank í
listasafni í borginni Barcelona á
Spáni. Spilaði hljómsveitin í 80 mín-
útur og var mínútuverðið því rúmar
fjórar milljónir króna.
Alls voru fimm hundruð manns í
veislunni og kallaði Mick Jagger,
söngvari hljómsveitarinnar, til
fjöldans í lok tónleika: „Takk fyrir
að taka svona vel á móti okkur. Það
besta er hins vegar að þið greiðið
fyrir þetta með kaupaukunum ykk-
ar.“
Íslandsvinir með
lægri kauptaxta
Meðlimir Rolling Stones, sem
hafa fengið allt að fjórar milljónir
punda, 400 milljónir króna, fyrir að
koma fram í einkaveislum, eru ekki
einu tónlistarmennirnir sem hafa
haft gott upp úr því að koma fram í
veislum sem þessum, samkvæmt
upplýsingum fréttavefjar Morg-
unblaðsins.
Bandaríska hljómsveitin Eagles
tekur yfirleitt 3,75 milljónir punda
fyrir slíkt og kanadíska söngkonan
Celine Dion fær oft greiddar 3,3
milljónir punda. Elton John, sem
meðal annars kom fram í fimmtugs-
afmæli Ólafs Ólafssonar, stjórn-
arformanns Samskipa, tók nýverið
eina milljón punda, tæpar 123 millj-
ónir króna fyrir að koma fram í
brúðkaupi í Bretlandi.
Hins vegar er mun ódýrara að fá
rapparann 50 Cent til þess að koma
fram í einkaveislum, en hann kom
meðal annars fram í fertugsafmæli
Björgólfs Thors Björgólfssonar á
Jamaíka, eða 250 þúsund pund, 31
milljón króna. Segir 50 Cent að hann
sé að vísu ekki með ákveðna
verðskrá en þetta taki hann að með-
altali fyrir að spila í þrjátíu mínútur.
Fjórar milljónir á mínútu
Fjáður Mick Jagger og félagar
þurfa ekki að hafa áhyggjur af salt-
skorti í grautnum sínum á næstunni.
MIÐASALA á tónleika hljómsveit-
arinnar GusGus á Nasa á menning-
arnótt, 18. ágúst, hefst í dag í versl-
unum Skífunnar, BT Akureyri,
Egilsstöðum og Selfossi og á
www.midi.is.
Sveitin hefur ekki leikið á landinu
síðan á uppseldri útgáfutónleika-
tvennu sinni á Nasa sl. vor. Síðan þá
hefur GusGus verið á nær samfelldu
tónleikaferðalagi um heiminn til
kynningar á breiðskífunni Forever
og hefur hvarvetna leikið fyrir fullu
húsi. Gullkálfurinn Jack Schidt sér
um upphitun á tónleikunum
Miðaverð á menningarnæturtón-
leikana er 3000 kr. í forsölu og er
fólk hvatt til að tryggja sér miða í
tíma.
GusGus Leikur á Nasa 18. ágúst.
GusGus á menningarnótt